Morgunblaðið - 07.02.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBROAR 1984
23
: ^ Mfm
, ■ ■ "
• Ásgeir átti firnafast skot úr aukaspyrnu í leiknum gegn Mannheim um helgina. Boltinn fór af
þverslánni og innfyrir línuna en dómarinn dæmdi ekki mark.
Wembley-mark:
Boltinn var inni
— sagði markvörður
Mannheim
Fré Jóhanni Inga Gunnarssyni, fréttaritara
V-þýsk blöö fjalla mjög mikiö
um skot Ásgeirs Sigurvinssonar
úr aukaspyrnunni sem hann tók í
leiknum gegn Mannheim um
helgina. Dómari leiksins dæmdi
ekki mark en greinilegt var á
sjónvarpsmyndum svo og Ijós-
myndum aö boltinn var um þaö
bil 20 sentimetra fyrir innan
marklínuna. Skot Ásgeirs var
firnafast. Boltinn hrökk undir
þverslána og þaöan niöur ( jörö-
ina vel fyrir innan línuna. Þaöan
upp í slána, aftur niöur og út á
völlinn.
Ljósmyndarar sem sátu viö
markið sverja í blöðum hór að
boltinn hafi fariö inn fyrir línuna.
Það sanna síðan Ijósmyndir og
sjónvarpsmynd. En dómarinn var
illa staösettur og lét leikinn halda
áfram.
Mbl. í V-Þýskalandi:
Blööin hér tala um „Wembley-
markið" og eru að minna á umdeilt
atvik 1966 í úrslitaleik heimsmeist-
arakeppninnar í knattspyrnu árið
1966. En þá áttu Þjóöverjar skot
sem fór í þverslána og niöur i jörö-
ina. En erfitt reyndist að skera úr
um hvort boltinn heföi fariö inn
fyrir iínuna eöa ekki.
Hinn mjög svo rólegi og yfirveg-
aöi þjálfari Stuttgart, Benthaus,
sleppti sér alveg viö þetta atvik og
hljóp að hliöarlínunni og var mjög
reiöur.
Reichart í liöi Stuttgart sá atvik-
ið vel og sagöi: „Þetta var mark.
Ég er blindur annars." Markmaöur
Mannheim sagöi eftir leikinn:
„Boltinn var inni. En þegar ég
heyröi hrópaö af bekknum aö
dómarinn heföi ekki séö atvikið
handsamaöi ég boltann í hvelli."
Úrslit í V-Þýskalandi ÚRSLIT leikja í V-Þýskalandi: Hólfleikstölur innan sviga:
Waldhof — Mannheim Stuttgart 2—2 (2-0)
Braunschweig — Bochum 3—1 (1-0)
Uerdingen — Hamburger SV 3—1 (1-0)
Borussia Dortmund — Kaiserslautern 1—0 (1-0)
Kickers Offenbach — FC Köln 2—0 (0-0)
Armenia Bielefeld — NUrnberg 1—0 (1-0)
Werder Bremen — Borussia Mönchengladbach Leverkusen — Frankfurt 2—0 2—2 (0-0)
Knattspyrna
Stuttgart var undir, 0—2, en jafnaði metin:
Hörð barátta um efstu sætin
STAÐAN í „Bundesligunni“ er nú mjög jöfn eftir leiki helgarinnar.
Stuttgart og Bayern eru í efstu sætunum með 28 stig. En síöan fylgja
þrjú lið fast á eftir. Greinilegt er að baráttan um efstu sætin fimm í
deildinni verður gífurlega tvísýn og spennandi.
Stuttgart geröi jafntefli 2—2 í
Mannheim eftir aö hafa veriö undir
0—2 í hálfleik. Þaö voru ekki liönar
nema átta mínútur af leik Waldhof
Mannheim og Stuttgart þegar Fritz
Walter komst einn í gegn um vörn
Stuttgart og skoraði af öryggi.
Þetta var 10. mark hans á keppn-
istímabilinu. 38 þúsund áhorfendur
risu úr sætum sínum af fögnuöi.
Leikur liöanna einkennist jafnan af
því aö um nágrannaliö er aö ræöa
og því oft heitt í kolunum. Á 38.
minútu tókst svo Alfred Schön aö
leika á Karl Heinz Förster og kom-
ast í gott færi og skora, staðan
2—0, og þaö leit ekki vel út hjá
Stuttgart-liöinu í hálfleik. En þetta
er ekki fyrsti leikur liösins þar sem
illa gengur í fyrri hálfleik og liöiö
nær sér svo á strik í þeim síöari.
En sú varö raunin. Corneliusson
FC Köln mætir Dússeldorf í kvöld:
Leikurinn leggst
vel í mig segir Atli
í KVÖLD fer fram einn leikur í 1.
deildinni í vestur-þýsku deildar-
keppninni í knattspyrnu. FC Köln
fær Fortuna DUsseldorf í heim-
sókn. Leik liðanna var frestað á
sínum tíma vegna mikillar rign-
ingar og ísingar. Leikur þessi er
gífurlega þýöingamikill fyrir
DUsseldorf liðið og margir bíöa
nú spenntir hvort leikmenn fagna
áframhaldandi velgengni.
— Leikurinn leggst vel í mig,
sagöi Atli Eðvaldsson, er viö spjöll-
uöum viö hann í gær. — Viö mun-
um fá 20 til 25 þúsund áhorfendur
á leikinn frá Dusseldorf og þaö
hjálpar okkur mikiö.
— Við eigum aö getað sigraö
þá ef viö leikum af eölilegri getu en
nú er spurning hvort ekki fer aö
halla undan fæti. Vonandi ekki.
Þaö væri mjög gott ef viö myndum
fá 3 stig út úr næstu þremur leikj-
um sem allir eru á útivelli. Köln,
Nurnberg og Hamborg. Frábært ef
viö fengjum 4 eöa fleiri. Ég get
sagt frá því aö Fortuna Dússeldorf
hefur aldrei i sögu félagsins sigraö
Núrnberg á útivelli. En liöiö er nú í
neösta sæti í deildinni meö niu
stig. Ég vona bara þaö besta. Þaö
er mikil pressa á okkur núna allir
heimta fleiri sigra og þá stóra.
— ÞR.
skoraði meö skalla strax á 47.
mínútu eftir glæsisendingu Ás-
geirs.
Á 25. mínútu síöari hálfleiks fékk
Stuttgart aukaspyrnu rétt utan
vítateigsins. Ásgeir tók spyrnuna
og firnafast skot hans fór í þver-
slána niöur í jöröina uppí slána aft-
ur og aftur niöur í jöröina og hrökk
svo út á völlinn. Allir voru sammála
um aö boltinn heföi fariö vel inn
fyrir línuna en dómarinn svaf á
veröinum svo og línuverðir og
mark var ekki dæmt. Stuttgart
pressaöi stíft allan síöari hálfleik-
inn og á 65., 73. og 75. minútu
tókst leikmönnum Mannheim aö
bjarga marki á síöustu stundu.
Sluppu svo sannarlega fyrir horn.
Þaö var ekki fyrr en sjö mínútum
fyrir leikslok aö Reichert gat jafnaö
metin 2—2.
Ósigraðir í 32
leikjum heima
Liö Werden Bremen skaust upp
í þriöja sætiö í deildinni um helgina
og hefur nú 27 stig. Bremen vann
öruggan 2—0 sigur á Borussia
Mönchengladback. Frank Neu-
barth skoraöi fyrra markiö af 11
metra færi mjög fallega á 70. mín-
útu. Rudi Wölier skoraði siðara
markiö á 80. mínútu. Áhorfendur
voru 32.000. Werder Bremen hefur
nú skorað 44 mörk í 20 leikjum, en
aðeins fengiö á sig 20. Liöiö er
gífurlega sterkt á heimavelli sínum.
Þeir hafa ekki tapaö leik heima
síöan 23. apríl 1982, en þá var þaö
einmitt Mönchengladback sem
sigraöi þá 3—0. Síöan hefur
Werder Bremen leikiö 32 leiki á
heimavelli sínum án þess aö tapa.
Stuttgart fær því erfiöa mótherja í
bikarkeppninni, en þeir mæta
Werder Bremen úti í bikarnum 3.
mars næstkomandi. Margir spá því
aö liö Werder Bremen nái meist-
aratitlinum í ár, og víst er að liöiö
er geysilega sterkt og jafnt aö
getu.
Eftir mjög jafnan leik lengst af
varð Hamborg aö sætta sig viö að
tapa 3—1 á útivelli gegn Uerding-
en. Heilladisirnar viröast hafa yfir-
gefiö lið Hamborgar. En enginn
skildi þó afskrifa liö Hamborgar
sem er það leikreyndasta í deild-
inni. Mark Hamborgar skoraöi
Wuttke, en mörk Uerdingen skor-
uöu Loontiens 2 og Funkel.
Kickers Offenbach vann 2—0
sigur á liöi FC Köln og var sá sigur
sanngjarn. Lið Kölnar leikur ekki
vel um þessar mundir. Þá tapaöi
Kaiserlautern fyrir Borussia
Dortmund 0—1. Næstu umferöir í
deildarkeppninni eru mjög þýö-
ingamiklar fyrir liöin og aö loknum
fjórum umferöum í viöbót ættu lín-
urnar aö vera farnar aö skýrast
nokkuö.
• Atli Eðvaldsson leikmaður
helgarinnar í V-Þýskalandi.
Lið
vikunnar
Lið vikunnar í V-Þýskalandi
var valiö þannig:
Burdenski Bremen, Geige
Braunsweig, Borokva Glad-
bach, Bruns Gladbach, Löhr
Dusseldorf, Bommer Duss-
eldorf, Mayer Bremen, Bein
Offenbach, Loontiens Uerd-
ingen, Karl Heinz Bayern, Atli
Eövaldsson Dusseldorf.
JUDO
Æfingar fyrir byrjendur og lengra
komna eru að hefjast. Upplýsingar
í símum 44209 og 36331.
Júdófélag Reykjavíkur
Brautarholti 18.