Morgunblaðið - 07.02.1984, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
27
Fyrsti Egyptinn á vetrarólympíuleikum:
Tveir mánuðir í ein-
angrun við hugleiðslu
Frá Will Grimsley, fréttamanni AP í Sarajevo.
„LÍKAMLEGUR undirbúningur er
vissulega mikilvægur — en hinn
andlegi er enn mikilvægari,“ seg-
ir Hatem El Reedy, faöir eina eg-
ypska keppandans á Ólympíu-
leikunum. „Þetta hefur ekkert
meö skíöaíþróttina aö gera; aö-
eins hugann og sálina ... þetta
mun gera Jamil aö enn ákveönari
keppnismanni." Sonur Hatem,
hinn 18 ára Jamil El Reedy, verö-
ur fyrsti Egyptinn til aö keppa á
vetrarólympíuleikum — og undir-
búningur hans er nokkuö nýstár-
legur, svo ekki sé meira sagt.
Faðir hans skyldi Hatem eftír í
helli í egypsku eyöimörkinni í 40
daga og síðar fékk Hatem þaö
verkefni aö skrúbba gólf á salerni i
tvo tíma meö tannbursta og hrein-
silegi. Einkar nýstárlegur undlr-
búningur fyrir skíöakeppni
Ólympíuleika en, eins og faöirinn
segir: andlegi undirbúningurinn er
mikilvægari en sá líkamlegi!
Jamil, sem fullu nafni heitir
hvorki meira né minna en Jamil
Omar Hatem Abdullaleem Jamil
Abdulamalik Omar Mohammed El
Reedy, hefur búiö í Bandaríkjunum
síðan hann var smástrákur. Móöir
hans, sem er bandarísk, flúöi til
heimalands síns í sex daga stríöinu
1967 og faðirinn, sem starfaöi í
Kairó, kom seinna.
Jamil byrjaöi snemma aö renna
sér á skíðum og segja má aö hann
hafi alist upp í skíðabrekkunum í
Lake Placid, þar sem Ólympíuleik-
arnir fóru fram fyrir fjórum árum.
Þá var hann fjórtán ára.
„Ég fór stundum meö keppend-
unum upp í lyftunum. Einu sinni sat
ég rétt aftan viö Ingemar Sten-
mark og viö töluöum heilmikiö
saman um skíðaíþróttina," segir
Jamil. Strákurinn haföi mikinn
áhuga á því aö keppa á Ólympíu-
leikum en hann hefur aldrei keppt í
heimsbikarkeppni. Faðirinn geröi
sér Ijóst aö Jamil kæmist aldrei í
Ólympíuliö Bandaríkjanna þannig
aö þeir ákvaöu aö notfæra sér
egypskan ríkisborgararétt hans.
„Ég veit aö hljómar undarlega
aö Egypti muni keppa á skíöum.
Viö höfum heyrt menn gera grín aö
þessu: Æföi hann sig meö því aö
renna sér niður pýramtdana? hefur
fólk spurt. Ég hef nú bara hlegiö á
móti og spurt fólkiö hvort þaö viti
ekki að snjó sé aö finna efst á
pýramídunum,“ segir faöirinn.
Hann segist hafa gert sér Ijóst
aö möguleikar Jamil lægju í því aö
styrkja hugann meö þeim aöferö-
um sem Egyptar brúkuöu til forna.
„Þetta viröist vera hin grimmi-
legasta aöferð en svo er ekki.
Þvert á móti. Meö þessu móti
kemst maöur vel niöur á jöröina —
og nálægt guöi.“
Fyrir tveimur mánuöum flugu
þeir feðgar til Egyptalands, en
þangaö haföi Jamil ekki komið síö-
an hann fór smákrakki til Ameríku.
i hellinum úti í eyöimörkinni var
Jamil skilinn eftir og þaö eina sem
hann haföi meöferöis var vatn og
matur. Þar sat hann viö hugleiðslu
• tvo mánuöi! „Mér stóö nú ekki á
sama í upphafi en gerði mér síöar
Ijóst aö öryggi hugans er hiö eina
sanna öryggi.” Og nú er hann til-
búinn i slaginn á Ólympíuleikunum.
• Bill Johnson
Ólympíu-
ráðstefna í
Tókýó 1990
ÁKVEÐIÐ var á sunnudag aö
Ólympíuráóstefna yrói haldin í
Tókýó 1990. Þar koma menn sam-
an og ræöa framtíð leikanna. Al-
þjóðaólympíunefndin ákvað þetta
á fundi sínum.
Aðeins hafa veriö haldin tvö
ólympiuþing eftir síöari heimsstyrj-
öldina — í Varna í Búlgaríu 1973
og í Baden-Baden í Vestur-Þýska-
landi 1981. Þeir sem sækja þingin
eru meðlimir alþjóöaólympíu-
nefndarinnar, fulltrúar 28 alþjóða-
sambanda ólympíuíþrótta og
ólympíunefndir einstakra landa.
Samtals eru þaö rúmlega 150
manns.
• Franz Klammer
Klammer
fánaberi
Austurríkis
FRANZ Klammer, ólympíumeist-
ari í bruni 1976 í Innsbruck, hefur
veriö valinn til aö bera fána Aust-
urríkis viö opnunarhátíö Ólymp-
íuleikanna.
Klammer, sem er þrítugur og
elstur þátttakenda í heimsbikar-
keppninni í vetur, er talinn nokkuö
sigurstranglegur í brunkeppninni i
Sarajevo — en hún verður á
fimmtudag. Þess má geta aö
Klammer komst ekki í liö Austur-
ríkis fyrir Ólympíuleikana í Lake
Placid 1980!
Brunkeppnin á fimmtudag:
Johnson og Miiller
sigurstranglegastir
Fré John Mosiman, fréttamanni AP í Sarajevo.
EF EITTHVAD er aö marka úrslit
æfingakeppnanna fyrir Ólympíu-
leikana veróa Peter MUIier og Bill
Johnson aö teljast sigurstrang-
legastir. Brunbrautin á Bjelasn-
ica-fjalli hefur veríö gagnrýnd af
mörgum skíðakappanna — þeir
segja hana ekki nógu erfiöa.
Segja hana tiltölulega flata á allt
of mörgum stööum. MUIIer og
Johnson eru eínmitt þekktir fyrir
aö halda uppi góöum hraöa á
flötu köflum brautanna og þeir
náöu bestum tímum í tveimur
fyrstu æfingakeppnunum. MUIIer
á laugardag og Johnson á sunnu-
dag. Brunkeppnin fer fram á
fimmtudag.
„Ég kann best viö mig í svona
braut og allir hér vita það,“ sagöi
Johnson eftir keppnina á sunnu-
dag er hann fékk tímann 1:47,99
mín. Hann var tveimur tiundu á
undan Muller á sunnudag.
„Mér tókst þaö sem ég ætlaöi
mér í dag. Ég ætlaöi aö sjá hve
hratt mér tækist aö komast. Ég á
aö komast enn hraöar á vissum
köflum, en ég hef mikla trú á því aö
mér takist aö sigra hér,“ sagöi
Johnson. Hann er 23 ára og fyrsti
Bandaríkjamaðurinn sem unniö
hefur brunmót í heimsbikarkepþn-
inni — vann í Wengen í Sviss í
síöasta mánuöi.
Muller varö í ööru sæti í æf-
ingakeppninni á sunnudag ásamt
Helmut Höflehner á 1:48,47, næst-
um hálfri sekúndu á eftir Johnson.
„Brautin er góö en ég vona aö hún
haröni fyrir keppnina,“ sagöi Mull-
er. Hoeflehner, sem ekki hefur
gengiö vel i vetur — en sigraöi þó
í Cortina-bruninu í síöustu viku —
sagöist vonast til aö annaö sætiö í
æfingakeppninni yröi til þess aö
þagga niður í þeim er óánægöir
voru með aö hann skyldi valinn í
brunliö Austurríkismanna.
Erwin Resch frá Austurríki og
Urs Raeber, Sviss, hafa veriö ofar-
iega á blaöi í vetur en þeim gekk
illa í tveimur fyrstu æfingakeppn-
unum. Franz Klammer datt á
sunnudaginn og tognaöi í nára.
Ekki eru meiöslin þó alvarleg og
hann var kominn á fulla ferð viö
æfingar i gær á ný. Klammer hefur
gagnrýnt Ólympíubrautina. „Þetta
er braut fyrir krakka,“ sagöi hann.
„En þegar ég segi þaö og dett svo
sjálfur hlæja auövitaö allir aö
mér.“ Klammer sagöi aö brautin
héldi aftur af þeim brunmönnum
sem þyröu aö taka áhættu — þeim
gæfist varla tækifæri til þess hér.
Bandaríkjamenn f jölmennastir
FJÖRUTÍU og níu þjóöir taka þátt
í vetrarólympíuleikunum í Sara-
jevo. Keppendur koma frá ólík-
legustu stöðum. Egyptaland
sendir til dæmis einn keppanda.
Bandaríkjamenn eru meö flesta
keppendur á leikunum, 124. Sov-
étríkin senda 110 keppendur.
V-Þjóöverjar eru meö þriöja fjöl-
mennasta hópinn, 99 keppendur.
Kínverjar senda nú í fyrsta sinn
keppendur á vetrarólympíuleika.
Þaöan koma 37 keppendur. Þaö
er athyglisvert að þjóðir eins og
Puerto Rico, Jómfrúareyjar, Mex-
íkó, og Marokkó eiga þátttakend-
ur á leikunum.
Punktar frá Bob Hennessy, fréttamanni Morgunblaðsins í Englandi
Mikiðum meiðsli hjá West Ham:
Lukkustrákur fé-
lagsins nefbrotnaði!
ÞAD Á ekki af West Ham aó
ganga. Eins og áður hefur kom-
iö fram er mikið um meiósli hjá
félaginu um þessar mundir og
til að laga ástandiö keypti John
Lyall, framkvæmdastjóri félags-
ins 24 ára mióvörö, Paul Hilton,
á fimmtudag í síöustu viku.
Hilton mætti á sína fyrstu æf-
ingu hjá West Ham á föstudag —
meiddist þá á hné og braut í sér
tönn. Hann lék því ekki á laug-
ardag eins og til stóö. „Miðaö viö
þaö hve margir eru á sjúkralista
hjá okkur var þaö stórkostlegt aö
vinna Stoke 3:0 og komast aftur
í þriöja sæti,“ sagöi Lyall eftir
leikinn á laugardag. „En til dæm-
is um meiösli hjá félaginu get ég
sagt aö lukkustrákurinn okkar
(strákurinn sem hleypur meö liö-
inu inn á völlin fyrir leiki) var
m.a.s. meiddur. Hann nefbrotn-
aöi fyrir helgina!!“
Hoddle fer í vor
Latchford þarf að
hætta formennsku
BOB Latchford er nú farinn aö
leika meö hollenska 2. deildar-
liöinu NAC Breda eins og viö
höfum sagt frá. Hann var for-
maöur sambands atvinnuknatt-
spyrnumanna í Englandí — tók
viö því embætti af Steve Copp-
ell fyrir aðeins fjórum mánuö-
um, en verður aö afsala sér því
embætti þar eö hann fluttist úr
landi. Brian Talbot hjá Arsenal
og Paul Hart hjá Nottingham
Forest eru aöallega nefndir sem
hugsanlegir eftirmann hans.
Mullery stoltur
eftir sigurinn
„ÞETTA er mitt síöasta keppn-
istímabil meö Tottenham. Ég
hef tekió ákvöröun um þaö,“
sagði Glenn Hoddle í víótali viö
ítalska íþróttadagblaðiö Gazz-
ette dello Sport um helgina.
Þaö virðist því ekkert geta
komið í veg fyrir þaö aö Totten-
ham missi Hoddle. „Eg er ákveö-
inn í því aö leika meö liði utan
Bretlands næsta vetur — og
helst vildi ég aö þaö liö yröi
ítalskt," sagöi Hoddle. Hann gat
þess ennfremur aö ítalska deild-
arkeppnin væri sú besta í Evrópu
aö sínu mati, jafnvel sú besta í
heiminum.
sj.
■
Glenn Hoddle
„ÉG HEF aldrei veriö eins stolt-
ur síðan ég tók viö stjórninni
hér á Selhurst Park og í dag,“
sagöi Alan Mullery, fram-
kvæmdastjóri Crystal Palace,
eftir leikinn gegn Middles-
brough á laugardaginn.
Þetta sagöi hann vegna þess
aö tveimur færri náöi lið hans aö
sigra 1:0. Kevin Mabbutt var rek-
inn af velli á 48. mín. Billy Gilbert
var ekki sáttur viö þessa
ákvöröun dómarans og mót-
mælti og var þá vísaö af velli líka!
Peter Nicholas tryggöi Palace
svo sigur meö marki úr víta-
spyrnu á 55. mín. „Ég mun ekki
hegna þeim tveimur leikmönnum
sem voru reknir útaf,“ sagöi
Mullery. „En ef ég segöi eitthvaö
um dómara leiksins kæmist ég í
slæm vandræöi." Greinilega ekki
yfir sig ánægöur meö dómgæsl-
una, Mullery.