Morgunblaðið - 07.02.1984, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
28
Morgunblaöiö/Simamynd AP.
Paul Bush, leikmaður West Ham, rennir sór hér é eftir knettinum og gefur fyrir msrkiö í leiknum gegn Stoke á Upton Park. West Ham sigraði
auðveldlega í leiknum þrátt fyrir að átta af fastamönnum liðsins gætu ekki leikið vegna meiösla.
Hughton jafnaði á loka-
sekúndunum gegn Forest
— 16 ára skólastrákur kom inn á hjá Ipswich og skoraði í sínum fyrsta leik
— Liverpool og United skoruðu ekki og staðan er óbreytt á toppi deildarinnar
Frá Bob Henne»*y, fréttamanni Morgunblaöains i Englandi, oo AP
ENGAR breytingar uröu á toppi
ensku 1. deildarinnar um helgina,
Liverpool hefur enn fimm stiga
forskot þar sem liöið geröi jafn-
tefli eins og Manchester United.
Liverpool geröi 0:0-jafntefli í
Sunderland, þar sem liöið hefur
ekki tapaö í 26 ár, og United gerði
einnig markalaust jafntefli —
gegn Norwich á Old Trafford.
En þó efstu tvö liðin skoruöu
ekki var nóg af mörkum í öörum
leikjum. Ekki munaöi miklu aö
Nottingham Forest næði aö skjót-
ast upp fyrir United á töflunni.
Steve Hodge fljótlega fyrir Forest
gegn Tottenham meö gullfallegu
skoti af 25 metra færi en Mark
Falco jafnaöi skömmu síöar. Colin
Walsh náöi forystu fyrir Forest á ný
með marki úr vítaspyrnu um miöj-
an síöari hálfleik, en bakvöröurinn,
Chris Hughton, jafnaöi fyrir Spurs
á síöustu sekúndum leiksins.
Osvaldo Ardiles lék skemmtilega á
vörn Forest og lyfti knettinum
glæsilega beint á Hughton, sem
tók hann á brjóstiö og þrumaöi
svo í netiö. Áhorfendur: 21.428.
Viö sigur heföi Forest komist i ann-
aö sætiö. En keppnin er jöfn, og í
staö annars sætisins vermir Forest
nú þaö fjóröa. Ástæöan: West
Ham vann.
West Ham ekki í vand-
ræðum með Stoke
Átta fastamenn eru nú meiddir
hjá West Ham en þrátt fyrir þaö
tók liöiö Stoke í kennslustund og
sigraði 3:0. Bobby Barnes skoraöi
fyrst á 6. mín. og Tony Cottee
bætti marki viö fyrir hlé. Ray Stew-
art gulltryggöi sigurinn, sem raun-
ar var aldrei í neinni hættu, meö
marki úr vítaspyrnu í seinni hálf-
leik. „Við höfum ávallt lagt ríka
áherslu á aö ala upp leikmenn hjá
félaginu og njótum góös af því nú
þegar mikiö er um meiösli. Ungu
strákarnir standa sig vel og lofa
góöu upp á framtíöina," sagöi
John Lyall, framkvæmdastjóri
West Ham eftir leikinn. Áhorfendur
á Upton Park voru 18.775.
Sunderland, sem hefur ekki
unniö Liverpool á heimavelli sínum
síöan 1959, var nálægt því að
leggja meistarana aö velli á laug-
ardag. Bruce Grobbelaar þurfti
nokkrum sinnum aö leggja sig all-
an fram til aö koma í veg fyrir að
Sunderland skoraöi og marka-
maskínu Liverpool, lan Rush, var
algjörlega haldiö niöri af lan Atkin-
son. Áhorfendur: 25.646.
Norwich varðist
af miklum krafti
Norwich kom til Manchester til
aö verjast og fara burt meö eitt
stig. Þaö tókst en ekki var knatt-
spyrnan sem liöiö lék skemmtileg.
Tíu menn í vörn langtímum saman.
Vörnin því óneitanlega sterk en
þegar leikmenn United náöu aö
brjóta hana niöur var viö Chris
Woods í markinu aö eiga og hann
var í mjög góöu formi. Áhorfendur:
36.851.
Yngsti leikmaður í
1. deild í 20 ár
Jason Dozzeil, 16 ára strákur,
sem mætti í skólann á ný í gær-
morgun eins og venjulega, varð á
laugardag yngsti leikmaöur til aö
skora í 1. deildinni og einnig sá
yngsti til aö spila í deildinni í 20 ár.
Dozzell, sem er mög stór framherji,
skoraöi þriöja mark ieiksins, er
leikmenn Ipswich voru einum
færri. Paul Mariner og Eric Gates
voru báöir farnir meiddir af velli,
en Dozzell kom inn á sem vara-
maður fyrir Mariner. Markiö geröi
strákurinn aöeins einni mín. fyrir
leikslok. Mariner skoraöi fyrsta
mark leiksins á 13. mín. og Mark
Brennan kom Ipswich í 2:0 tveimur
mín. síöar. Terry Gibson geröi
mark Coventry á 71. mín. Áhorf-
endur: 13.406.
Leicester tapaði heima
Leicester haföi ekki tapaö á
heimavelli sínum, Filbert Street,
siöan í september þar á laugardag
er Birmingham kom í heimsókn.
Billy Wright skoraöi sigurmark
Birmingham úr vítaspyrnu fjórum
mín. fyrir leikslok. Gestirnir leiddu
2:0 í leikhléi — Andy Peake
(sjálfsmark) og Howard Gayle
geröu mörkin en Alan Smith skor-
aöi tvívegis á tveimur mínútum
fyrir Leicester í seinni hálfleiknum.
Áhorfendur: 13.770.
Líkurnar á því aö Don Howe fái
framkvæmdastjórastööu Arsenal
til frambúöar minnkuöu á laugar-
dag er liöið fékk Queens Park
Rangers í heimsókn. Framlínu-
mönnum Arsenal má kenna um
þaö: þeir fóru illa meö mörg góö
marktækifæri og leikmenn Rang-
ers nýttu sér klaufaskap andstæö-
inganna til hins ýtrasta. lan Stew-
art skoraði fyrra markiö meö
bogaskoti frá vítateig snemma í
seinni hálfleiknum — stórglæsilegt
mark — og ellefu mín. fyrir leikslok
geröi Terry Fenwick út um leikinn
meö marki af stuttu færi. Áhorf-
endur á leik Lundúnaliöanna voru
31.014.
Úlfarnir daprir
Níunda mark Steve Moran á
keppnistímabilinu tryggöi South-
ampton sigur á Wolves í Wolver-
hampton. Sigur suöurstrandarliös-
ins var mun auöveldari en tölurnar
gefa til kynna. Úlfarnir voru væg-
ast sagt mjög slakir á öllum sviö-
um og fengu aöeins eitt mark-
tækifæri í öllum leiknum. South-
ampton haföi yfirburði frá fyrstu
mínútu til hinnar síöustu og mark
Moran kom á 63. mín. Áhorfendur
voru 9.943.
Everton hefur nú leikiö tíu leiki
án taps og 4:1-sigurinn á Notts
County á laugardag var stærsti
sigur liösins á heimavelli í vetur —
en þaö sorglega viö leikinn var aö
áhorfendur hafa ekki veriö færri á
leik á Goodison Park í vetur.
McParland skoraöi fyrsta mark
leiksins úr víti fyrir Notts County,
en síöan fór Everton-liöiö í gang.
Adrian Heath skoraði þrennu og
Kevin Sheedy eitt úr víti.
Enn skorar Johnston
Fyrri hálfleikurinn hjá Watford
og WBA var mjög slakur en fjör
færöist í leikinn eftir hlé. Maurice
Johnston skoraöi fyrsta mark
leiksins fyrir Watford — hans 13.
mark í 15 leikjum. Romeo Zond-
ervan jafnaði fyrir Albion en Jimmy
Callaghan, sem kom í liðið í staö
George Reilly sem er meiddur,
skoraöi tvívegis fyrir Watford á
síöustu átta mínútunum. Áhorf-
endur: 14.240.
Luton haföi unniö síöustu sex
útileiki en á laugardag varö liðiö aö
sætta sig viö jafntefli gegn Aston
Villa á Villa Park. Villa var reyndar
nær því aö sigra — liöið sótti af
miklum krafti í seinni hálfleiknum
en ailt kom fyrir ekki. Þaö næsta
sem Villa komst aö skora var er
Kirk Douglas bjargaöi skoti Paul
Rideout af línu. Áhorfendur:
18.656.
Forskot Chelsea eykst
Chelsea jók forskot í annarri
deild er liöiö sigraöi Huddersfield
3:1. Kerry Dixon skoraöi tvívegis
— hann hefur gert 23 mörk í allt í
vetur; og Speedie geröi eitt mark.
Sheffield Wednesday er enn í ööru
sæti — liðiö geröi markalaust jafn-
tefli viö Blackburn en Wednesday
á tvo leiki til góöa. Kevin Keegan
og Peter Beardsley geröu tvö
mörk hvor í 4:1-útisigri Newcastle
á Portsmouth.
1. deild
Arsonal — QPR 0—2
Aston Villa — Luton 0—0
Everton — Notts County 4—1
Ipswich — Covontry 3—1
Leicester — Birmingham 2—3
Man. Utd. — Norwich 0—0
Nott Forest — Tottenham 2—2
Sunderland — Liverpool 0—0
Watford — WBA 3—1
West Ham — Stoke 3—0
Wolves — Southampton 0—1
Staðan
Livorpoot 26 15 7 4 43:19 52
Man. Utd. 25 13 8 4 44:27 47
Wnt Ham 25 14 4 7 41:24 46
NoHFoml 25 14 4 7 47:31 46
OPR 24 13 3 8 42*2 42
Southampton 25 12 6 7 29*2 42
Luton 25 12 3 10 41*6 39
Coventry 25 10 8 7 34*1 38
Aaton ViHa 25 10 7 8 37:38 37
Hocwich 26 9 9 8 30*9 36
Araanal 26 10 4 12 41*7 34
Wattord 26 10 4 12 43:45 34
Tottanham 25 9 7 9 40:42 34
Evarton 25 9 7 9 20*8 34
Ipawich 25 9 5 11 36:34 32
Sunderland 24 8 7 9 25:32 31
WBA 25 9 3 13 29:39 30
Laicaatar 26 7 8 11 40:46 29
Birmrngham 25 8 4 13 25:31 28
Notta County 25 5 5 15 33:52 20
Stoko 26 4 8 14 22:47 20
Wolvea 25 4 5 16 21*3 17
2. deild
Barnsley — Carditf 2—3
Bfackburn — Sheffield Wed. 0—0
Carlisle — Oertoy 2—1
Charlton — Brighton 2—0
Chelsea — Huddersfield 3—1
Crystal Palace — Middlesbrough 1—0
Grimstoy — Manchester City 1—1
Leeds — Shrewsbury 3—0
Oldham — Cambridge 0—0
Portsmouth — Newcastle 1—4
Staðan
ChelMi 28 15 9 4 59 32 54
Shoff. Wed.cfay 28 15 7 4 49 24 52
Manchester City 28 14 6 6 44 28 48
Newcastle 25 15 3 7 51 36 48
Grimstoy 28 12 10 4 38 27 46
Biackburn 26 12 10 4 35 30 46
Chartton 27 13 7 7 37 33 46
Carliste 28 12 9 5 31 19 45
Huddersfíeld 28 10 9 7 37 34 39
Brighton 26 9 6 11 41 40 33
Portsmouth 26 9 5 12 <? 36 32
Middlesbrough 26 8 8 10 28 28 32
Cardiff 25 10 2 13 33 37 32
Shrewsbury 25 8 8 9 30 34 32
Leeds 24 8 6 10 33 35 30
Barnsiey 25 8 5 12 36 36 29
Crystal Patace 25 8 5 12 27 33 29
Oldham 26 8 5 13 29 45 29
Fulham 25 5 8 12 27 37 23
Derby County 28 6 5 15 23 49 23
Swansea 25 3 5 17 22 50 14
Cambridge 26 2 8 16 20 49 14
Skotland
AberdMn — Cellíc 1—0
Dundee United — Heerte tr.
Rengere — Motherwell 2—1
St. Mirren — St. Jotinetone 1—1
Steden:
Aberdeen 21 « 3 2 53—12 35
Cettic 21 12 5 4 46—23 29
Dundee United 19 11 4 4 38—18 26
Rengere 22 10 4 8 33—28 24
Heerte 21 7 7 7 23—29 21
St Mirren 21 S 10 6 29—31 20
Selur Edwards
sinn hlut f
Man. United?
Frá Bob Honneeey, fréttemanni Morgunbleðeine i Englendi.
SVO GÆTI farið aö Martin
Edwards, stjórnarformaöur
Manchester United, seldi sinn
hlut í félaginu, en hann og fjöl-
skylda hans eiga meirihluta í
því: 51%. Mikiö var fjallaö um
þetta mál i blööum hér í Eng-
landi um helgina.
Robert Maxwell, formaöur Ox-
ford, hefur veriö nefndur í sam-
bandi viö þetta mál, en nýiega
var hann oröaður viö Birming-
ham — hann haföi þá áhuga á að
kaupa þaö félag. Maxwell, sem
varla veit aura sinna tal, hefur
verið i sambandi viö einn stjórn-
armanna Ur.ited, Jimmy Gulliver,
sem er 52 ára og einnig milljóna-
mæringur.
„Þaö er greinilega eitthvað aö
gerast innanbúöar hjá féiaginu,
en ég hef ekki fengiö nein tilboð
á skrifborðiö hjá mér ennþá,“
sagöi Edwards á sunnudaginn.
Maxwell er sagöur hafa í huga
aö bjóöa Edwards tíu milljónir
punda fyrir hlut hans t félaginu.
Maxwell og Gulliver hafa áhuga á
aö koma upp íþróttamiöstöð í
tengslum viö Old Trafford, leik-
vang United. Ekki er taliö loku
fyrir þaö skotiö aö Edwards sé
tilbúinn að selja sinn hlul — og
snúi sér að viöskiptum.