Morgunblaðið - 07.02.1984, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
Leiðtogar norrænna borgaraflokka á fundi í Stokkhólmi í gær, mánudag, talið frá vinstri: Ilkka Suominen,
Finnlandi, Káre Willoch, Noregi, Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, Ulf Adelshon, Svíþjóð, Jo
Benkow, Noregi og Patrick Lillius, Finnlandi. Simamynd ap.
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í Stokkhólmi:
Samræmd stefna borg-
aralegra stjórnmála-
afla í Norðurlandaráði
„VERKEFNI fundarins var að ræða stefnuskrá fyrir samstarfið í Norður-
landaráði," sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í gær
eftir fund sem hann sat í Stokkhólmi með Káre Willoch, forsætisráðherra
Noregs, Jo Benkow, formanni norska hægriflokksins, Patrick Lilius, for-
manni Sænska þjóðarflokksins í Finnlandi, llkha Suominen, formanni Nat-
ionclla Samlingspartiet í Finnlandi og Torben Rechendorf, framkvæmda-
stjóra danska fhaldsflokksins, en Poul Schliiter, flokksformaður og forsætis-
ráðherra, var við setningu danska þingsins. Gestgjafi í Stokkhólmi var Ulf
Adelsohn, formaður Moderata Samlingspartiet í Svíþjóð.
„Á fundinum voru menn ein-
huga um að halda því samstarfi
sem þessir borgaraflokkar hafa
átt á vettvangi Norðurlandaráðs
áfram til að standa vörð um vel-
ferðarþjóðfélagið og stuðla að
aukinni samvinnu milli fyrirtækja
og einstaklinga í löndunum. Við
fjölluðum um einstök mál,“ sagði
Þorsteinn Pálsson,„ sem verið
hafa til meðferðar innan Norður-
landaráðs og sjálfstæðismenn
hafa staðið að ásamt öðrum, s.s.
frelsi á hlutafjár- og peninga-
markaði. Lögð var áhersla á að
með félagslegu markaðshagkerfi
væri best að vinna bug á atvinnu-
leysi í þeim löndum þar sem þess
er þörf og viðhalda atvinnu og
auka framleiðni annars staðar.
Þá var rætt um aukna menning-
arsamvinnu og samstarf um
gervihnattarsjónvarp. Jafnframt
hvöttu menn til þess að einkarétt-
ur ríkisins verði afnuminn á sjón-
varps- og útvarpsrekstri."
— Vinna flokkar með svipaða
stefnu þannig saman að afgreiðslu
mála innan Norðurlandaráðs?
„Samstarf sósíalísku flokkanna
hefur verið mjög mikið um langan
tíma,“ sagði Þorsteinn Pálsson.
„Hins vegar má norræn samvinna
ekki einkennast af sósíalískum
viðhorfum. Þess vegna er nauð-
synlegt að borgaraleg stjórnmála-
öfl samhæfi krafta sína, það
styrkir framgang okkar sjónar-
miða. Þátttaka í fundum sem
þessum breytir engu um það að við
erum óháðir öllum nema sjálfum
okkur.“
Samhliða því sem flokksfor-
mennirnir funduðu um stefnumál-
in á fundi Norðurlandaráðs hitt-
ust framkvæmdastjórar flokk-
anna og er Kjartan Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins, í Stokkhólmi.
Tillögur að nýskipan í stjórn Kjarvalsstaða:
Starf listráðunautar
og forstöðumanns
verði sameinað
Listamenn á starfslaunum Reykja-
víkurborgar taki sæti í stjórn hússins
STJÓRN Kjarvalsstaöa hefur nú til athugunar tillögur að nýrri skipan
aðildar listamanna að stjórninni og breytingar á starfssviði listráðunautar og
forstöðumanns hússins, að því er Einar Hákonarson, formaður stjórnar
Kjarvalsstaða, staðfesti í gær er blaöamaður Morgunblaðsins spurðist fyrir
um málið. „Það er rétt að hugmyndir þessar hafa verið lagðar fram í stjórn
Kjarvalsstaða," sagði Einar, „og verða væntanlega teknar til afgreiöslu 14.
þessa mánaðar.“
Að sögn Einars eru helstu ný-
mæli tillagnanna tvíþætt. í fyrsta
lagi væri nú gert ráð fyrir því að
sá listamaður, sem hlýtur starfs-
laun borgarinnar hverju sinni,
sitji í stjórn Kjarvalsstaða, í staö
tilnefninga frá landssamtökum,
og hafi þar fullt málfrelsi og til-
lögurétt og atkvæðisrétt um list-
ræn mál. Er hugmyndin að við-
komandi listamaður eigi sæti í
stjórninni þann tíma sem hann
nýtur starfslauna og varamaður
verði sá listamaður er launin
hlaut árið á undan. í öðru lagi er
gert ráð fyrir því að núverandi
stöður listráðunautar og forstöðu-
manns Kjarvalsstaða verði sam-
einaðar í eina stöðu forstöðu-
manns. Hafi forstöðumaður þá
bæði til að bera víðtæka þekkingu
á list og rekstrarreynslu eða þekk-
ingu.
„Þessar nýju reglur hafa lengi
verið í smíðum," sagði Einar, „og
munu koma í stað samkomulags
um Kjarvalsstaði, sem nú er runn-
ið út. Að mínum dómi horfa þessi
nýmæli til bóta. Staðreynd er að
þeir listamenn, sem starfslaun
hljóta, eru úr röðum „aktívistu"
listamannanna hverju sinni, og
fengur er að því að fá slíkt fólk inn
í stjórnina. Þá er með hugmynd-
inni að breytingu á starfi for-
stöðumanns stefnt að því að fá
sterkari og markvissari stjórn á
húsinu og ekki óeðlilegt að þetta
starf sé á einni hendi. Sú breyting
mun hins vegar ekki taka gildi
fyrr en 1. desember 1985 ef af
verður."
Fjármálaráðherra um sölu hlutabréfa í Eimskip:
Sel þau ekki
á þessu verði
„ÉG sel bréfln ekki á þessu verði,“ sagði Álbert Guðmundsson fjármála-
ráðherra, er hann var spurður hver staða mála væri varðandi sölu hluta-
bréfa ríkissjóðs í Eimskipafélagi íslands.
Aðspurður sagði Albert, að sér
hefðu borist tilboð frá þremur
aðilum í hlutabréfin, en hann
myndi ekki selja þau á nafnvirði,
þar sem hann teldi það alltof
Íágt. Hann sagði: „Eg tel að
nafnverð hlutabréfanna sé of
lágt og þó bréfin séu til sölu á
nafnvirði hjá Eimskip, þannig
að einstakiingar geti keypt sér
nokkur bréf á nafnverði, þá segir
það sig sjálft að þau eru mjög
vanmetin. 60 millj. kr., sem er
heildarverðmætið, er ekki einu
sinni verðmæti gamla skrif-
stofuhúsnæðisins, hvað þá
meira."
Albert sagði í lokin að hann
myndi láta athuga málið miklu
betur áður en hann tæki ákvörð-
un, og gæti það tekið langan
tíma.
unnið tafl
Pia á
PIA CRAMLING hefur ennþá
frábæra möguleika á því að sigra á
Búnaðarbankaskákmótinu á Hótel
Hofl, því í gærkvöldi tefldi hún við
bandaríska stórmeistarann Lev
Alburt og á hrók yflr og gjörunnið
tafl í biðstöðunni. Alburt beitti
uppáhaldsbyrjun sinni, Aljekín-
vörninni, en kom ekki að tómum
kofanum hjá ungu sænsku stúlk-
unni sem náði miklum stöðuyflr-
burðum strax í byrjuninni. Alburt
varð síðan svo aðþrengdur að hann
brá á það ráð að fórna biskup fyrir
tvö peð og skömmu síðar neyddist
hann til að fórna skiptamun til
viðbótar til að halda lífl í stöðunni.
Svart: Lev Alburt
Hvítur lék biðleik.
Af öðrum spennandi skákum í
áttundu umferðinni vakti tíma-
hraksuppgjör þeirra Jóns Krist-
inssonar og Guðmundar Sigur-
jónssonar mesta athygli. Skákin
var reyndar mjög dæmigerð
fyrir sviptingar þær sem eiga sér
stað þegar fallvísirinn er að
detta. Upp úr byrjuninni virtist
Guðmundur fá mjög þokkalega
stöðu, en í þessari stöðu teygði
hann sig alltof langt:
■ b c d • t g h
llvítt: Jón Kristinsson
27. - Rd4?, 28. Dc4!
Enn betra en 28. Bxd4 —
Dxd5, 29. Bf6
28. — Rf5, 29. Hxc5 — Dxc4, 30.
Hxc4 - Rxd6, 31. Hcd4! - Kf7,
32. Hd5?
Rétt var 32. a4 — Ke6, 33. Ba3!
og svartur á í miklum erfiðleik-
um. I stað þess snýst skákin við.
— Ke6, 33. Hld4? — Hc8!, 34. a4
— Hc5!
Svartur er raknaður úr rotinu
og er kominn með mótspil. Nú
kórónar Jón mistökin með
rangri skiptamunsfórn.
35. Hxd6+? — Hxd6, 36. Hxe4+
— KI7, 37. Ba3 — Hdl+, 38. Kh2
— Hc2, 39. Kg3 - Hdd2, 40.
Hf4+ - Ke6.
í þessari stöðu fór skákin í bið
og ljóst er að svartur stendur
með pálmann í höndunum með
skiptamun yfir og peðameiri-
hluta á drottningarvæng.
Úrslit í öðrum skákum urðu
þau að Margeir og Jón L. gerðu
jafntefli, sem og Helgi og Knezv-
ic og De Firmian og Shamkovic.
Jóhann vann Sævar.
Staðan á mótinu er óljós
vegna fjölda biðskáka, en efstur
er De Firmian með 5 vinninga. í
2.-3. sæti eru Helgi Ólafsson og
Jóhann Hjartarson með 4lÆ
vinning og biðskák. í 4. sæti Pia
Cramling með 4 vinninga og
tvær biðskákir og þá Margeir
Pétursson með 4 vinninga og
eina biðskák. Aðrir keppendur
hafa færri vinninga.
Á sunnudaginn ætlaði Alburt
að hagnýta sér tímahrak Jóns
Kristinssonar til að ná mátsókn.
En eins og fyrir tíu árum þegar
Jón tefldi >sem mest var hann
fastur fyrir í vörninni. Eftir 37.
leik svarts kom síðan upp þessi
staða:
Svart: Jón Kristinsson.
Hvítt: Lev Alburt.
38. Hd7
38. Db2!? og 38. Hxc6 — Hxc6,
39. Df3 komu ekki síður til
greina og í báðum tilfellum hef-
ur hvítur nokkrra stöðuyfir-
burði.
- Dxd7!, 39. Rxd7 — Re3, 40.
Dh3
Svartur stendur betur eftir 40.
Dd2 - Rxdl, 41. Rc5 - b6!
— Rxcl, 41. Dh4
Hér fór skákin í bið og Jón lék
biðleik. Sýnt er að hvítur hlýtur
að eiga þráskák í framhaldinu,
en hæpið er að hann hafi meira
en það upp úr krafsinu.
Skák efstu manna, þeirra
Helga Ólafssonar og Piu Cram-
ling, einkenndist af varfærni á
báða bóga. Hvorugt þeirra gaf
færi á sér og biðstaðan er þann-
>R'
Svart: Pia Cramling.
Hvítt: Helgi Ólafsson.
Sem sjá má hefur hvítur örlít-
ið þægilegri stöðu, en það verður
erfitt að komast lengra áleiðis,
því svarta staðan er afar traust.
Aðrar skákir í 7. umferðinni
fóru í bið.