Morgunblaðið - 07.02.1984, Qupperneq 30
I
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
Stjórnarskrármálið
hjá þingflokkunum
Öllum dagskrármálum rutt út í neðri deild
Sovéska skipið Fobus í Reykjavíkurhöfq í gær. Ljósm.: óiafur K. MaKnússon.
Sovéskt skip í Reykjavíkurhöfn:
Tekur vistir og olíu
á meðan 48 manna
áhöfn hvílir sig
SOVÉSKA dráttar- og björgun-
arskipið Fobus er nú í Reykjavík-
urhöfn í þcim tilgangi að taka vist-
ir og olíu og til að gefa áhöfninni
kost á að komast í land, að því er
Kári Valvesson hjá skipadeild
Sambandsins tjáði blaðamanni
Morgunblaðsins í gær. Skipadeild
SÍS er umboðsaðili sovéskra skipa
hér á landi.
Kári Valvesson sagði þetta
vera eitt þriggja skipa er hingað
kæmi um þessar mundir í sama
tilgangi, og væri annað skip
væntanlegt hinn 8. febrúar.
Sagði hann 48 manna áhöfn vera
á Fobus. „Þetta er dráttarskip,
sem fylgir fiskveiðiflota Sovét-
manna hér í norðurhöfum,"
sagði Kári, „og mennirnir hafa
ekki komið í land síðan þeir voru
í Kaupmannahöfn síðla í desem-
ber. Þetta eru prýðismenn og
gera hér ekki annað en sjá sig
um, kaupa ull og fara í sundlaug-
arnar."
Ólafur Egilsson sendiherra
sagði í samtali við blaðamann í
gær, að skipið, sem nú væri í
Reykjavíkurhöfn, væri eitt
þriggja sovéskra skipa, sem leyfi
hefðu fengið að koma inn til
hafnar þessara erinda. Um væri
að ræða dráttarskip og rann-
sóknaskip.
Að sögn ólafs sóttu yfirvöld í
Sovétríkjunum einnig um leyfi
til að senda hingað tvö til þrjú
skip til rannsókna á veðurfari,
samspili lofts og sjávar innan
200 mílna efnahagslögsögu ís-
lands. Rannsóknirnar áttu að
fara fram fyrir NA-landi og
fyrir Austurlandi. Þeim var
svarað á þann veg, að ekki lægju
fyrir nægilega skýrar upplýs-
ingar vegna umsóknanna, því
væri ekki unnt að taka afstöðu
til þeirra.
Eskifjörður:
10 þúsund tonn-
um af loðnu land
að um helgina
• Frumvarp að
höfundalögum
Ragnhildur Helgadóttir, mennta-
málaráðherra, mælti í gær fyrir
stjórnarfrumvarpi að höfundalög-
um, sem m.a. er ætlað að veita
höfundum réttarvernd á tiltekn-
um andlegum verðmætum, bók-
menntum og listum. í máli ráð-
herra kom m.a. fram að fjölföld-
unartækni nútímans, hljóð- og
myndritar, geri það auðvelt að
ganga á hagsmuni höfunda og eig-
enda flutningsréttar. Því sé nauð-
synlegt að setja lagaákvæði um
þetta efni.
• Stjórnarskrármál
Olafur Þ. Þórðarson (F) kvaddi
sér hljóðs utan dagskrár í neðri
deild og spurði forsætisráðherra,
hvort staðið yrði við fyrirheit um
jöfnun félagslegra og efnahags-
legra þátta, sem nú mismuni
þegnunum eftir búsetu, í kjölfar
Fenner
Reimar og
reimskífur
Ástengi
Fenner Ástengi
Leguhús
Vald
Poulsen
Suóurlandsbraut 10,
sími 86499.
breytingar sem að sé stefnt á vægi
atkvæða til Alþingis. Forsætisráð-
herra kvað vonir standa til þess,
en stjórnarskrármál, önnur en
varða kosningar til þings, séu nú
til umsagnar í þingflokkum.
Matthías Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra, formaður stjórnarskrár-
nefndar, sem vinnur að heildar-
endurskoðun stjórnarskrár, sagði
nefndina bíða umsagnar þing-
flokka áður en lengra verður hald-
ið.
• Stjórnarskrár-
nefndir í þingdeildum
Frumvarp að stjórnskipunar-
lögum um skipan og kjör Alþingis,
sem samþykkt var á síðasta þingi,
og þarf staðfestingu nýs þings til
að öðlast gildi, hefur verið endur-
flutt í efri deild. Kosnar verða sér-
stakar stjórnarskrárnefndir í
þingdeildum til að fjalla um þetta
frumvarp. Nefndin i efri deild er
þannig skipuð: Þorvaldur Garðar
Kristjánsson (S), Salome Þorkels-
dóttir (S), Valdimar Indriðason
(S), Tómas Árnason (F), Eiður
Guðnason (A), Ragnar Arnalds
(Abl) og Stefán Benediktsson (BJ).
• Sighvatur tekur
sæti á þingi
Sighvatur Björgvinsson, vara-
þingmaður Alþýðuflokks í Vest-
HÁDEGI
SÝNISHORN
Súpa og salat fylgir ölhim réttum
Rifjasteik
að dönskum hætti
(flæskesteg)
ARriARHÓLL
Hvíldarstaður
í hádegi
höll að kveldi
Velkomin
Ath. Opnum kl. 11.30
fjarðakjördæmi, tók sæti á þingi í
gær í veikindafjarveru Karvels
Pálmasonar.
• Tíu mál á dagskrá,
tíu tekin af dagskrá
Tíu mál vóru á dagskrá neðri
deildar í gær (mánudag). Fundar-
tíminn fór hinsvegar í tvær utan-
dagskrárumræður: annarsvegar
um stjórnarskrármál, hinsvegar
um kjaradeilu við álverið. Hart
var deilt en flest sem fram kom
var í endursögn. í lok fundar vóru
öll dagskrármál tekin af dagskrá.
Forseti kunngerði að þingdeild-
armenn mættu búast við kvöld-
fundum í vikunni.
• Ný þingmál
Salome Þorkelsdóttir (S) og sjö
aðrir þingmenn úr öllum þing-
flokkum flytja frumvarp um
hvern veg bifreiðir, sem flytja
skólabörn, skuli auðkenndar með
þar til gerðum skiltum. Ber að
stöðva aðrar bifreiðir, sem leið
eiga um, meðan skólafarkostir
taka farþega sína upp eða hleypa
þeim út.
Jóhanna Siguröardóttir (A) o.fl.
þingmenn flytja frumvarp þess-
efnis, að vinnukaupendur skuli
gefa skattyfirvöldum upplýsingar
um hvers konar endurgjald til
starfsfólks, þ. á m. ágóðaþóknun,
ökutækjastyrk, húsaleigustyrk,
hvers konar önnur fríðindi og
hlunnindi, biðlaun og lífeyri. Meg-
intilgangur er sagður vera að
tryggja fljótvirka og hagkvæma
leið til „að fá úttekt á raunveru-
legri tekjuskiptingu í þjóðfélag-
inu“.
Tómas Árnason (F), Helgi Seljan
(Abl) og Egill Jónsson (S) flytja
frumvarp sem heimilar ríkis-
stjórninni að selja Jóni Sigurðs-
syni, Hánefsstöðum, eyðijörðina
Bæjarstæði í Seyðisfjarðarhreppi.
Guðrún Agnarsdóttir (Kvl) flytur
ásamt tólf öðrum þingmönnum úr
öllum þingflokkum tillögu til
þingsályktunar um „friðar-
fræðslu", sem ná skal til dagvist-
arstofnana, grunnskóla og fram-
haldsskóla landsins. „Markmið
fræðslunnar skal vera,“ segir í til-
lögugreininni, „að glæða skilning
á þýðingu og hlutverki friðar og
rækta hæfileika til þess að leysa
vandamál án ofbeldis í samskipt-
um einstaklinga, hópa og þjóða".
Sagnfræðifund-
ur um hagsögu
SagnfrKðingafélag íslands heldur
fund í stofu 422 í Árnagarði við Suð-
urgötu þriðjudaginn 7. febrúar og
hefst hann kl. 20.30. í frétt frá
sagnfræðifélaginu segir, að efni
fundarins verði doktorsritgcrð Gísla
Gunnarssonar: Monopoly Trade and
Economic Stagnation. Studies in the
Foreign Trade of Iceland
1602—1787.
Dagskrá fundarins verður sem
hér segir:
1) Dr. Gísli Gunnarsson ræðir
um tilurð doktorsritgerðar sinnar
og hugleiðir aðferðir í hagsögu. 2)
Sveinbjörn Rafnsson, prófessor,
fjallar um doktorsritgerð Gísla. 3)
Álmennar umræður um ritgerð-
ina, — efni hennar og aðferðir
Gísla.
Eskiflrði, 6. febrúar.
STANSLAUS loðnulöndun hefur
verið hér á Eskifirði síðan á föstu-
dag og hafa skipin komið inn hvert á
fætur öðru, flest með fullfermi. í
þessari törn er búið að landa hátt í
10 þúsund tonnum hjá loðnuverk-
smiðju Hraðfrystihúss Eskifjarðar. f
dag hefur verið smá upprof á lönd-
uninni en það stendur bara til
kvölds því þá er von á fleiri skipum.
Sum þeirra eru væntanleg með
stóra farma. Til dæmis eru Eld-
borgin og Jón Kjartansson bæði
með fullfermi, en þau lönduðu
einnig í gær. Eldborgin 1.250 tonn-
um og Jón Kjartansson 1.100
tonnum.
Á vertíðinni fyrir áramót var
landað hér 10.629 tonnum. Loðnan
hleypir miklu fjöri í atvinnulífið
og er gaman að fylgjast með skip-
unum koma drekkhlöðnum að
landi. Jafnvel svo að sumum þykir
nóg um hleðsluna hjá sumum.
Tveir bátar hafa verið á rækju hér
í firðinum undanfarið og hafa afl-
að sæmilega. Hólmanesið kom inn
í morgun með 140 tonn af blönduð-
um fiski. Þetta er besta veiðiferð
skipsins frá áramótum. Á morgun
er Hólmatindur væntanlegur úr
góðum túr hér útaf Austfjörðum.
Fiskerí togaranna hefur verið
betra það sem af er árs en á sama
tíma í fyrra.
Ævar
Eskifjörður:
Leit enn
án árangurs
Kskiflrði, 6. febrúar.
LEITIN aö sjómanninum, sem hvarf
af loðnuskipinu llilmi II, hefur enn
engan árangur borið. Á hverjum
degi eru fjörur gengnar og mun svo
verða enn um skeið.
Þá var feginn rækjubátur til
þess að toga með trolli með landi
um helgina. Kafarar hafa leitað.
Búið er að slæða botninn en sem
fyrr segir hefur þetta engan ár-
angur borið.
Ævar