Morgunblaðið - 07.02.1984, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
31
Enn mokveiði á
loðnumiðunum
Laugardagsaflinn sá mesti frá upphafi loðnuveiða
Sami góði aflinn er enn á loðnuveiðunum og var laugardagsaflinn sá
mesti, sem orðið hefur á einum sólarhring frá uphafi, eða 25.010 tonn.
Helgaraflinn, til kl. 17 á mánudegi, er því orðinn rúm 45.000 tonn. Aðalveiði-
svaðið er nú við Ingólfshöfða samkvæmt upplýsingum Loðnunefndar. Einn
bátur, Hrafn GK, er búinn að fylla kvótann.
I sunnudagsblaðinu var skýrt
frá afla 25 báta, sem höfðu til-
kynnt sig á hádegi á laugardag, en
hér á eftir fer yfirlit yfir afla ann-
arra, sem lönduðu þann dag:
Skarðsvík SH 600, Helga II RE
550, Þórður Jónasson EA 480, Fíf-
ill GK 630, Örn KE 500, Súlan EA
780, Gullberg VE 590, Jöfur KE
460, Hilmir SU 1250, Júpiter RE
1150, Sæbjörg VE 600. Alls lönd-
uðu 35 bátar á laugardag samtals
Fyrsti báturinn
fyllir loðnukvótann:
„Við erum
að vonast
eftir meiri
loðnuveiði“
— segir Sveinn ísaksson,
skipstjóri á Hrafni GK
„VIÐ ERUM að vonast eftir
meiri loðnuveiði því það kom svo
mikið út úr októbermælingunum
í haust. Við teljum, að stofninn
sé ekki fullnýttur með þessu
magni," sagði Sveinn ísaksson,
skipstjóri á Hrafni GK, þegar
þeir biðu þess að komast inn til
Grindavíkur á flóðinu í gær.
Hrafn var að koma úr sínum síð-
asta túr af loðnumiðunum og bú-
inn að fylla kvótann, 7.100 tonn.
„Það er töluvert mikil loðna
fyrir vestan Ingólfshöfða og að
sjálfsögðu leita menn ekkert
þegar þannig er, heldur er bara
farið að vinna,“ sagði Sveinn
ísaksson, en hafrannsókna-
skipin, Bjarni Sæmundsson og
Árni Friðriksson, eru nú við
loðnumælingar fyrir sunnan og
austan land. Sveinn kvaðst
hins vegar ekki hafa trú, að
jafn mikið kæmi út úr þeim
mælingum og októbermæling-
unum.
„Loðnan er svo dreifð þegar
hún kemur suður fyrir Reyð-
arfjarðardjúp að hún finnst
ekki á nein tæki. Ég held að
stór hluti hennar hafi verið þar
þegar mælingarnar hófust í
janúar og sést það líka best á
flotanum, sem fékk ekkert á
þeim tíma,“ sagði Sveinn ís-
aksson að lokum og bætti því
við, að þeir á Hrafni vissu ekk-
ert hvað tæki nú við hjá þeim
enda ekki fengið úthlutað
neinu.
JHóraitttMattb
Metsöiubhd á hverjum degi!
25.010 tonnum og er það metafli á
einum sólarhring á loðnuveiðun-
um.
Á sunnudag lönduðu eftirtaldir
bátar: Hákon ÞH 750, Erling KE
400, Guðmundur Ólafur ÓF 520,
Húnaröst ÁR 620, Gísli Árni RE
600, Magnús NK 500, Hilmir II SU
530, Jón Finnsson RE 550, Skírnir
AK 440, Rauðsey AK 30. Samtals
10 bátar með 4.940 tonn.
Mánudagsaflinn var sem hér
segir til klukkan 17: Hrafn GK
540, Svanur RE 660, Ljósfari RE
450, Pétur Jónsson RE 660, Bergur
VE 500, ísleifur VE 680, Höfrung-
ur AK 830, Dagfari ÞH 510,
Heimaey VE 470, Skarðsvík SH
620, Huginn VE 560, Gígja KE 750,
Harpa RE 570, Sighvatur Bjarna-
son VE 650, Þórshamar GK 500,
Súlan EA 720, Albert GK 520,
Óskar Halldórsson RE 50, Bjarni
Ólafsson AK 1000, Grindvíkingur
GK 1030, Kap II VE 90, Víkingur
AK 1200, Jón Kjartansson SU 930,
Eldborg GK 1230. 24 bátar með
samtals 15.520 tonn.
660 V.-Húnvetningar mótmæla fjölgun þingmanna
Forsætisráöherra, Steingrími Hermannssyni, voru í gær afhentir undirskriftalistar frá áhugamönnum um
kjördæmamálið f V.-Húnavatnssýslu. Listarnir voru undirritaöir af um 660 manns, eða u.þ.b. 60% atkvæðis-
bærra manna að sögn þeirra sem afhentu þá. Mótmæla V.-Húnvetningarnir fyrirhugaðri fjölgun alþingismanna
og segjast telja að engin rök hafi verið færð fyrir því að breytingin verði þjóðinni til hagsbóta. Á myndinni, sem
Ólafur K. Magnússon tók, er undirskriftalistarnir voru afhendir eru, talið frá vinstri: Sveinn Benónýsson, Björn
Sigurvaldason, Hólmfríöur Bjarnadóttir, Pétur Valdimarsson, forsætisráðherra og Aðalbjörn Benediktsson.
Háskólatónleikar
í Norræna húsinu
AÐRIR Háskólatónleikar á síðara
misseri þessa árs verða miðvikudag-
inn 8. febrúar í Norræna húsinu.
Þar koma fram Gunnar Kvaran
sellóleikari og Gísli Magnússon pí-
anóleikari. Á efnisskránni er són-
ata eftir enska tónskáldið Henry
Eccles, sem uppi var á 17. og 18.
öld, og Svíta fyrir einleiksselló, nr.
3 í C-dúr, eftir Jóhann Sebastian
Bach.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.30 og
standa u.þ.b. hálftíma.
Fréitatilkynning
habitati
Vika
FRAMLENGD—
ÖRFÁIR DAGAR
36 kerti í pakka, hvert
kerti kemur út á kr. 2,69?
Verö áöur 158 kr. nú kr.
97
Wok-kínverski potturinn, sem slegiö
hefur í gegn um allan
hinn vestræna heim.
Verö áður kr. 797 nú kr.
650
Margir góöir
hlutir á
stórlækkuöu veröi
10%
afsláttur af öllum
öðrum vörum.
3 glös í pakka fyrir rauö-
vín/lrish Coffee. Áöur
198,- nú kr.
169
Townhouse sófi
fáanlegur í Ijósu, bláu og
rauöu, 3 púöar fylgja.
Sterkur sófi. Verö áöur
10.917 kr. nú kr
9.600