Morgunblaðið - 07.02.1984, Síða 35

Morgunblaðið - 07.02.1984, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984 35 Minning: Ingimundur Lofts- son frá Hafnarhólmi Fæddur 22. júlí 1921 Dáinn 15. ágúst 1983 Eitt systkinið enn frá Vík er fallið. Maðurinn með ljáinn hefur höggvið skarð í systkinahópinn, það er svo sárt að þurfa að hugsa um það að Mundi bróðir sé allur. Ég sem hitti hann um hádegi, þá glaðan með gamanyrði á vörum eins og oft, þegar við hittumst, og svo var hann allur um miðjan dag. Það var 15. ágúst síðastliðinn að Hermann sonur hans kom og sagði okkur þessar fréttir. Mér fannst eitthvað bresta, og ég hugs- aði fyrst til mömmu, hvað á þetta að ganga langt, mamma okkar sem sjálf er sjúklingur, á hún að þurfa að sjá á eftir svona mörgum börnum sínum og manni. Foreldrar okkar voru Loftur Torfason, sem lést 1965, og Hildur Gestsdóttir. Þau bjuggu í Vík, sem er úr landi Hafnarhólms. Ingi- mundur var elstur af okkur systkinunum sem komumst til fullorðinsára, en við vorum 13 fædd, en erum nú bara 6 eftir. Mundi var skapstór, en þó svo Ijúfur, og mikill dugnaður ein- kenndi hann. Sambandið milli okkar systkinanna var alltaf mjög náið, enda stutt á milli heimila okkar. Ingimundur var kvæntur Rögnu Kristínu Árnadóttur og eignuðust þau 10 börn saman, en Ingimund- ur var búinn að eignast dreng áð- ur en þau Stína tóku saman, Sig- urð Jón. Öll voru og eru þetta dugleg og mannvænleg börn, og flest búin að stofna sín eigin heimili. En það var skammt stórra högga á milli hjá þeim hjónum, er þau misstu tvo drengina sína í sjóinn, Loft sem fórst með Pólstjörnunni 17. desember 1977 og svo næsta vor, eða 11. maí 1978, drukknaði Sig- urður Jón í róðri frá Höfnum á Suðurnesjum. Það var þung raun fyrir þau að sjá á eftir þeim. Við, sem þekktum þá svo vel, vitum hvað missirinn var sár. Mundi og Stína stofnuðu heimili á Hafnarhólmi 1947 og bjuggu þar lengstan sinn búskap, eða þar til SVAR MITT eftir Billy Graham Endurkoman Ég veit, að Biblían kennir, að Jesús muni koma aftur, en ég fæ ekki skilið, hvers vegna hann kemur. Getið þér útskýrt það fyrir mér? Einstök atriði varðandi endurkomu Jesú valda ágrein- ingi meðal sumra einlægra lesenda Biblíunnar. En kjarni málsins er skýr í Biblíunni: Jesús kemur aftur. Þegar hann steig upp til himins, sögðu englarnir við þá, sem skyggndust eftir honum: „Hví standið þér og horfið til himins?. Þessi Jesús, sem var uppnuminn frá yður til himins, mun koma á sama hátt og þér sáuð hann fara til himins" (Post. 1,11). Þetta er hin dýrmæta von þeirra, sem trúa, — einkum á þrengingatímum. Ég vil sérstaklega benda á tvennt varðandi endur- komu Jesú. Annað er það, að hann kemur til að dæma syndina. Ein mesta blekking nútímans er sú, að við getum gert hvað sem við viljum og það skipti engu máli, við þurfum ekki að gera neinum skil vegna synda okkar. En þetta er ekki rétt. Þegar Jesús kemur aftur, „munu allar þjóðirnar safnast saman frammi fyrir honum, og hann mun skilja þá hverja frá öðrum, eins og hirðirinn skilur sauðina frá höfrunum ... Og þessir skulu fara burt til eilífrar refsingar, en hinir réttlátu til eilífs lífs“ (Matt. 25,32,46). þau fluttu að Hamri á Drangsnesi haustið 1968, en þau höfðu samt fjárbúskap þar áfram, og hefir einn sonur þeirra, Svanur Hólm, að mestu leyti séð um búskapinn, því fljótlega eftir að þau fluttu að Drangsnesi fór Mundi að vinna í hraðfrystihúsinu þar. Mundi og Stína voru vinamörg og gott til þeirra að koma, þó var gleði þeirra mest þegar barnabörnin komu að heimsækja þau, enda oft sumar- langt hjá þeim. Þau vildu öllum gott enda gott til þeirra að leita. Stína mín, ég á svo margar minningar frá því að við vorum öll saman á Hafnarhólmi, og börnin voru að alast upp. Mér hefur alltaf fundist þau vera eins og systkini mín, einkum þau elstu. Ég minnist þess er við Mundi töluðum um dauðann, er Gestur bróðir okkar dó 1982, að Mundi sagðist ekki hræðast hann, en við vorum bæði hrædd við að vera hjá látnum, og við ræddum um hvort við gætum ekki hjálpað hvort öðru að yfirstíga þennan ótta, og gam- an væri að það sem færi á undan fengi að hjálpa hinu. Ég man þeg- ar ég fór til að vera við kistulagn- inguna hans Munda og ég kyssti á ennið hans, þá hvarf mér allur ótti, svo það var hann sem hjálp- aði mér eins og svo oft áður. Ég get aldrei fullþakkað það sem hann gerði fyrir mig og mína fjölskyldu. Þó Mundi væri oft las- inn og ætti við vanheilsu að stríða þá var hann ekki að kvarta, enda sést það best á vilja hans til að vinna, að hann var við heyvinnu er hann féll frá. Stína mín, þú sem ert svo dugleg þó bjátað hafi á, og oft verið erfitt að sækja á bratt- ann. Ég bið góðan Guð að hjálpa ykkur öllum, sem syrgið góðan eiginmann, föður og afa. Elsku mamma min, ég vona að nú verði hlé milli stríða hjá okkur öllum, þú sem hefir misst svo mikið, en átt samt svo mikið fyrir aðra sem huggunar þurfa með. Það er komið stórt skarð í systkinahópinn svo þetta verða fátækleg orð, þegar Munda er minnst. Elsku bróður minn kveð ég með söknuði en veit að það bíða hans svo margir opnir armar er hann kemur yfir landamærin. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Sóley Fullt af vörum nykomnar ALLT Á BARNIÐ: Nærföt, náttföt, leikföt, útigallar og regngallar. Einnig úrval af sængurgjöfum, tepp- um, handklæðum, smekkir í miklu úrvali, samfestingar og margt fleira. I fötum fra líður barninu vel B. Olafsson i: Bcnidscn hf Samfestingar meö aföstum sokkum, tilvaldir í skíða- ferðina. Stæröir 4—12. Langageröi 114, simi 34207. 1 _ _ _ _ 1 Straumnes Vesturbergi Ksæn pjonusta í Breiðholti Hólagarður Lóuhólum 1 1 Kjöt og fiskur Seljabraut Nú höfum viö breytt opnunartíma verslana okkar sem hér segir: virka daga kl. 9^-19 föstudaga kl. 9—19-30 Ásgeir Tindaseli 1 laugardaga kl. 9-^16 1 Valgarður Veriö ávallt velkomin í verslanir okkar Breiðholtskjör Leirubakka E Arnarbakka EUnoCARO.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.