Morgunblaðið - 07.02.1984, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
36
SIEMENS
Vestur-þýzk í húö og hár!
Nýja
S/WAMAT
SIEMENS
þvottavélin
fyrirferöarlítil en fullkomin
og tekur 4,5 kg.
Aöeins 67 cm á hæö.
45 cm á breidd.
Sparnaöarkerfi.
Frjálst hitastigsval.
Vinduhraðar:
350/700/850 sn./mín.
S/WAMAT 640
SIEMENS EINKAUMBOÐ
SMITH & NORLAND H/F.,
Nóatúni 4,105 Reykjavík.
Sími 28300.
Viftur ýmsar gerðir
12 og 24 volt
Startkaplar
í ýmsum gerðum einnig
klemmur og kapall
Miðstöðvar
ýmsar gerðir 12 og
24 volt
Loftbarkar
miðstöpvarmótorar,
tlöngur
Vatnsdælur tlllli:
og vatnskassahosur
Viftureimar
í úrvali
HITAMÆLINGA
MIÐSTÖÐVAR
fyrir báta,
skip og iðnað
Fáanlegar fyrir sex, átta, tíu, tótf, sextán, átján eöa
tuttugu og sex mælistaöi.
Ein og sama miöstööin getur tekiö viö og sýnt
bæöi frost og hita, t.d. Celcius +200+850 eöa
0+1200 o.fl.
Hitaþreifarar af mismunandi lengdum og meö mis-
munandi skrúfgangi fáanlegar.
Fyrir algengustu riö- og jafnstraumsspennur.
Ljósastafir 20 mm háir.
Þaö er hægt aö fylgjast meö afgashita, kæli-
vatnshíta, smurolíuhita, lofthita, kulda í kælum,
frystum, lestum, sjó og „man ekki fleira i bili“ í einu
tæki.
Lofaöu okkur aö heyra frá þór.
jysmravam & (S<® mv>j«v>.ic<uno
VMlurgðtu 16. Sfanar 14660 — 13260.
Svedberg
baðskápar
henta öllum
Baöskápar í öllum stæröum frá
Svedberg. Yfir 100 mismunandi
eininga. Hægt er aö velja þær
einingar sem henta best og
raöa saman eftir þörfum hvers
og eins. Hvítlakkaöar, náttúru-
fura eöa bæsaö. Dyr sléttar,
rimla eöa meö reyr. Spegla-
skápar eöa aöeins spegill.
Handlaugar úr marmara blönd-
uöum/polyester. Háskápar,
veggskápar, hornskápar og
lyfjaskápar. Baöherbergisljós
meö eöa án rakvélatengils.
Loftljós og baðherbergisáhöld
úr furu eöa postulíni.
Verðlaunað c==i
fyrir gæði
og hönnun svedhebgs
# Nýborg;
Ármúla 23. Sími 86755.
Útsölustaöir:
Byko, Kópavogi.
Fell, Egilsstöðum.
Gler og málning, Akranesi.
J.L. byggingavörur, Reykjavík.
Kjartan Ingvarsson, Egilsstöðum.
Mióstööin, Vestmannaeyjum.
Raftækni, Akureyri.
Smiösbúö, Garöabæ.
Trósmiöjan Borg, Húsavík.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásídum Moggans! y
Minning:
Ole Nordman
Olsen forstjóri
Fæddur 13. nóvember 1935
Dáinn 28. janúar 1984
Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt mað frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt,
lit og blöð niður lagði, —
líf mannlegt endar skjótt.
Hvorki fyrir hefð né valdi
hopar dauðinn eitt strik,
fæst síst með fögru gjaldi
frestur um augnablik,
allt hann að einu gildir,
þótt illa líki eða vel,
bón ei né bræði mildir
hans beiska heiftarþel.
Ég lifi í Jesú nafni,
í Jesú nafni ég dey,
þó heilsa og líf mér hafni,
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt,
í Kristí krafti ég segi:
Kom þú sæll, þá þú vilt.
Sb. 1671 — H. Pétursson.
í dag kveðjum við í hinsta sinn
vin okkar Ole N. Olsen. Ole fædd-
ist á ísafirði þann 13. nóvember
1935, sonur Símonar Á. Olsen og
Magnúsínu Richter Olsen.
A ísafirði ólst Ole upp og bjó
þar til síðasta dags. Á heimilinu í
Tangagötu 6 hefur sorgin oft knú-
ið dyra. Þann 25. sept. 1961 fórust
þeir feðgar Símon, faðir Ole, og
Kristján, bróðir hans, er bátur
þeirra, Karmoy, sökk. Árið 1971
lést bróðursonur Ole, sonur
Kristjáns, hann Diddi litli. Árið
1973 lést svo yngsti bróðir Ole,
Marthen, þá í blóma lífsins. Nú er
eftirlifandi af fjórum börnum
þeirra Möggu og Símonar Inga
Ruth, elsta dóttirin.
Magnúsína Olsen lifir nú son
sinn og starfar enn sem verkstjóri
í fyrirtæki hans. Faðir Ole, Símon
Olsen, var af norsku bergi brotinn,
hann hóf fyrstur manna rækju-
veiðar við ísland.
Þeir feðgar, Símon og Kristján,
sóttu sjóinn, en Ole sá um hráefn-
ið er á land var komið. Fyrst var
unnið í leiguhúsnæði, en síðan
þann 3. nóvember 1959 var Ole bú-
inn að koma upp sinni eigin
rækjuverksmiðju aðeins 23 ára
gamall.
Fyrst var rækjan handpilluð en
síðan fór tæknin að segja til sín og
nú í dag er Olsen-verksmiðjan
með þeim fullkomnustu á landinu.
Við hjónin höfum starfað í mörg
ár hjá Ole N. Olsen í verksmiðj-
unni og alltaf reyndist Ole Olsen
öllu sínu starfsfólki sérstaklega
vel, bæði sem yfirmaður og seinna
sem traustur vinur.
Við viljum þakka honum sam-
fylgdina og gott og ánægjulegt
samstarf.
Að lokum sendum við okkar
dýpstu samúðarkveðjur til Magn-
úsínu móður Ole, Ingu Ruth systur
hans, dætrunum Kristbjörgu og
Selmu, afabarninu Mörthu Ruth
og til annarra aðstandenda.
Guð styrki ykkur og styðji í
ykkar miklu sorg.
Megi minningin um góðan dreng
geymast í hug okkar allra.
Inga og Grímur
Þann 28. janúar lést á heimili
sínu á Tangagötu 6 Ole N. Olsen
forstjóri. Ole fæddist á ísafirði
þann 13. nóvember 1935. Sonur
Símonar A. Olsen sem lést árið
1961 og Magnúsínu Richter Olsen.
Ole ólst upp á ísafirði og bjó þar
allan sinn aldur.
Árið 1959 þann 3. nóvember
gátu allir Isfirðingar samglaðst
Ole og verið stoltir af honum, því
þá aðeins 23ja ára að aldri hafði
.hann reist sitt eigið fyrirtæki,
rækjuverksmiðju O.N. Olsen.
Þetta var góður bústólpi fyrir at-
vinnulíf bæjarins þá og er enn, því
sífellt er verið að endurbæta og
breyta og er verksmiðjan orðin
með þeim bestu á landinu í dag.
Dugnaður, elja og kjarkur var
Ole Olsen í blóð borið, það hefur
hann sótt beint í foreldra sína.
Faðir Ole, Símon, var fyrstur
manna til að hefja rækjuveiðar
við ísland og Magnúsína Olsen er
enn við störf í verksmiðju sonar
síns og sér um verkstjórn.
í litlum plássum úti á landi, þar
sem allir þekkja alla, er sérstakur
sjarmur yfir öllu. Þannig er það
líka á vinnustöðúnum. í verk-
smiðju Ole N. Olsen má segja að
starfsfólkið allt sé eins og ein fjöl-
skylda. Þar deila allir saman
hvort sem er gleði eða sorg. Þann-
ig hefur það verið og verður alltaf.
Það var því þungbúinn laugar-
dagur er þær fréttir bárust niður í
verksmiðju að Ole N. Olsen for-
stjóri væri allur. Það var svo
fjarri öllum að það væri í nánd.
Enn einu sinni hefur stórt skarð
verið höggvið í Olsen-fjölskyld-
una. Því þann 25. september 1961
fórust feðgarnir Símon A. Olsen
og Kristján Olsen er bátur þeirra
Karmoy sökk. Árið 1971 lést svo af
slysförum litli sólargeislinn, sem
Kristján Olsen lét eftir sig, Diddi
litli, aðeins 10 ára. Enn eitt áfallið
reið yfir er yngsti sonur Möggu og
Símonar, Marthen, lést þann 4.
maí 1973 þá í blóma lífsins.
Mikið hefur verið á þetta fólk
lagt, en þó hvert áfallið reki ann-
að, láta þau ekki bugast.
Nú er eftirlifandi af fjórum
börnum þeirra Símonar og Möggu
frumburðurinn Inga Ruth. Og
móðirin Magnúsína lifir son sinn.
Þessi fátæklegu orð ætlum við
að enda með því að þakka Ole N.
Olsen fyrir áralangt gott og
ánægjulegt samstarf. Því alltaf lét
Ole búa vel að sínu fólki.
Við biðjum honum Guðs bless-
unar í hinum nýju heimkynnum.
Okkar dýpstu samúðarkveðjur
sendum við ykkur elsku Magga,
Inga Ruth, dætrunum Selmu og
Kristbjörgu, litlu afastelpunni svo
og öðrum aðstandendum.
Guð styrki ykkur og styðji í
ykkar mikla missi. Megi minning-
in um góðan dreng sefa sárasta
söknuðinn.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
A1IKLIG9RÐUR
MARKADUR VIÐSUND