Morgunblaðið - 07.02.1984, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
t
Móöir mín, tengdamóöir og amma,
STEINUNN SVEINBJARNARDÓTTIR,
andaöist i Landspítalanum 5. febrúar.
Sigvaldi Haraldsaon,
Úlfhildur Geirsdóttir,
Haraldur Sigvaldason,
Lárus Sigvaldason,
Steinunn Sigvaldadóttir.
Bryndís Elías-
dóttir — Minning
Fædd 2. maí 1947
Dáin 27. janúar 1984
I dag er gerð frá Fossvogskap-
ellu útför Bryndísar Elíasdóttur
frá Bíldudal. Hún var fædd á
Bíldudal 2. maí 1947, dóttir hjón-
anna Elíasar Jónssonar og Krist-
rúnar Kristófersdóttur frá Hvestu
í Ketildölum. Elías faðir hennar er
látinn fyrir mörgum árum og al-
aðsskólanum á Núpi, þar kynntist
ég Bryndísi heitinni best. Við vor-
um óaðskiljanlegar vinkonur eins
og unglinga er háttur. Heiðríkjan,
sem hvílir yfir minningum tengd-
um Bryndísi frá þessum tíma,
varð tilefni þessara fátæklegu
minningarorða á útfarardegi
hennar. Hún var einstök að skap-
lyndi, glaðlynd með afbrigðum og
+ systkini hennar bæði, Ingibjörg og færði allt til betri vegar með sínu Pétur, eru einnig horfin yfir móð- góða og glaða viðmóti. Engu var una miklu í blóma lífsins. líkara en hún hefði til að bera
1 Mikill harmur er því kveðinn að meiri þroska en okkur hinum
Eiginmaður minn. móður þeirra, börnum og‘ öðrum hafði þá hlotnast.
STEINGRÍMUR EINARSSON, ástvinum.
sjómaður. Bryndís ólst upp í systkinahópi Leiðir okkar skildu vitaskuld og
fré Légholti, heima á Bíldudal og þegar hún við fluttumst hvor á sitt lands-
Framnesvegi 59, Reykjavík, hafði aldur til hleypti hún heim- horn.
er látinn. Jarðarförin auglýst síðar. í Fyrir hönd barna okkar og annarra vandamanna, draganum og fór til náms að Hér- Bryndís átti við vanheilsu að
Þuríður Ágústa Sfmonardóttir.
t
Systir mín,
4- SIGRÚN GÍSLADÓTTIR,
fyrrverandi tónlistarfulltrúi ríkisútvarpsins.
1 j Faöir okkar, Sólvallagötu 33,
HALLDÓRGUNNARSSON, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 9. febrúar kl. 13.30.
skipstjóri, Fyrir hönd ættingja.
Austurvegi 13, ísafiröi,
í lézt í Reykjavík 5. þ.m. Útförin verður auglýst síöar. Theodór Gíslason.
Börn hins létna.
t t Eiginkona mín og móöir okkar,
Faöir okkar, tengdafaöir og afi, STEINUNN GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR,
ASMUNDUR ÁRNASON, Bésenda 7,
verslunarmaöur, Brekkutanga 34, Mosfellssveit, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni miövikudaginn 8. febrúar kl. 13.30.
l lést í Borgarsjúkrahúsinu 3. febrúar.
Júlía Ásmundsdóttir, Benedikt Steingrímsson, Guömundur Jónasson, Margrét Guómundsdóttir,
Pélmi Ásmundsson, Henný Guðmundsdóttir, Erla Ásmundsdóttir, Agnar Ólafsson Guöjón Guðmundsson.
og barnabörn.
t Faöir okkar, tengdafaöir og afi. t Hjartans þakkir fyrir hlýhug og ómetanlega vináttu viö andlát og
ÓLAFUR ÞORSTEINSSON, útför
fyrrverandi vélstjóri, BRAGA ÞÓRS GÍSLASONAR.
veröur jarösunginn frá Fossvogskapellu miövikudaginn 8. febrúar kl. 10.30. Jóhanna Ólafsdóttir, Gísli Guömundsson,
Óskar Ólafsson, Sigríöur Vilhjélmsdóttir, Baldur Ólafsaon, Halla Guömundsdóttir, Björk Gisladóttir, Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir.
Sigrún Ólafsdóttir, Guömundur Karlsson
og barnabörn.
1
t t Þökkum auösýnda samúö og hlýhug við andlát og útför
Sonur minn og bróöir okkar, SVEINS JÓHANNSSONAR,
HÖRÐUR STEFÁNSSON, Karlsrauöatorgi 16, Dalvík.
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriöjudaginn 7. febrúar kl. 15 e.h. Petrína Zophoníasdóttir,
Jónína Brynjólfsdóttir, Bryndís Stefénsdóttir, Rósa Sveinsdóttir, Jóhannes Tómasson, Soffia Jóhannesdóttir, Tómas Heiöar Jóhannesson.
Stefén örn Stefénsson.
é +
t Þökkum öllum vinum okkar og velunnurum innilega fyrir samúð og hlýhug vegna andláts eiginmanns míns, fööur okkar og sonar,
Sonur minn, faöir okkar, bróöir og afi minn, HALLDÓRS SIGURÐAR BACKMAN,
byggingameistara,
OLE N. OLSEN, Tangagötu 6, isafiröi, Sóleyjargötu 7, Reykjavík.
veröur jarösunginn frá ísafjaröarkirkju þriöjudaginn 7. febrúar kl. 14. Jóhanna Arnmundsdóttir Backman, Jónína S. Helgadóttir Backman, Arnmundur S. Backman,
Magnúsína Olsen, Inga Jónína Backman,
Kristbjörg Olsen, Marta Rut, Ernst Jóhannes Backman,
Selma Olsen, Inga Rut. Edda Heiörún Backman.
stríða um mörg ár og mátti þola
mikið andstreymi. En augasteinn
lífs hennar varð sonurinn, Krist-
, ján Þór, sem nú sér á bak móður á
ungum aldri.
Eg sendi honum og öðrum að-
standendum Bryndísar hugheilar
samúðarkveðjur — um leið og ég
þakka þær björtu minningar sem í
mínum huga eru tengdar sam-
verustundum með henni.
Guðríður Guðbjartsdóttir
Mynd Bryndísar Elíasdóttur
verður mér ætíð skýr og þá eink-
um eins og ég man hana fyrst.
Hún var allt í senn falleg og hlý,
einbeitt og upplitsdjörf. Bryndís
var þá 15 ára gömul, nýkomin til
höfuðborgarinnar vestan af Bíldu-
dal og taldi sig eiga erindi vestur í
bæ, ætlaði reyndar að biðja okkur
að gera sér smágreiða. Þetta haust
hugðist hún hefja nám í Sam-
vinnuskólanum og til þess hélt
hún sig þurfa tilsögn í stærðfræði
og dönsku. Af sinni eðlislægu hóg-
værð bað hún aðeins um smáað-
stoð. Að sjálfsögðu var orðið við
óskum hennar, enda kom fljótlega
í ljós að Bryndís þurfti ekki nema
á smátilsögn að halda, svo var hún
fljót að tileinka sér það sem á
vantaði. Síðan stundaði hún nám í
Samvinnuskólanum í tvö ár, henni
sóttist námið þar vel og vegna
þess hve jákvæð og félagslynd hún
var að eðlisfari, þá varð dvölin að
Bifröst henni ógleymanleg.
Þannig voru okkar fyrstu kynni,
mér féll hún strax vel í geð og
síðar átti ég eftir að reyna það æ
betur eftir því sem árin liðu
hversu mikla mannkosti hún hafði
til að bera.
Bryndís var fædd á Bíldudal 2.
maí 1947 og var næstyngst þriggja
systkina. Foreldrar hennar voru
hjónin Elías Jónsson og Kristrún
Kristófersdóttir, sem þá voru bú-
sett þar. Föður sinn missti Bryn-
dís aðeins fjögurra ára gömul, en
móðir hennar giftist öðru sinni,
Kristjáni Þ. ólafssyni frá Pat-
reksfirði. Kristján reyndist
Bryndísi sem besti faðir og á
heimili þeirra ólst hún síðan upp.
Systkini Bryndísar eru bæði látin,
en þau voru Ingibjörg Halldóra,
látin 1969, og Pétur Þór, látinn
1982, en hálfsystkini hennar eru
Sigríður Kristjánsdóttir, búsett á
Patreksfirði, og Kristófer Krist-
jánsson, búsettur á Bíldudal.
Bryndís eignaðist einn son, Krist-
ján Þór, sem nú er 12 ára gamall.
Að loknu námi í Samvinnuskól-
anum hóf Bryndís skrifstofustörf
hjá Kaupfélagi Arnfirðinga á
Bíldudal, en eftir að fjölskylda
hennar fluttist suður, byrjaði hún
að starfa á skrifstofum Sam-
bandsins hér í Reykjavík og þar
vann hún síðan í tæp 10 ár eða þar
til heilsa hennar leyfði það ekki
lengur. Greind, samviskusemi og
glaðlyndi einkenndu allt hennar
dagfar, og þá ekki síður störf
hennar, enda var hún vel látin af
starfsfélögum sínum og aflaði sér
fljótlega trausts og virðingar
þeirra.
En Bryndísi auðnaðist ekki að
lifa langa ævi, rösklega þrítugri
varð henni ljóst að hættuleg veik-
indi urðu ekki umflúin og nú er
hún öll aðeins 37 ára gömul. En
þótt ævi Bryndísar yrði hvorki
löng né viðburðarík, þá varð hún
öðrum fremur til þess að þroska
og móta viðhorf okkar, sem áttum
með henni samleið. Það gerði hún
fyrst og fremst vegna þess, að hún
var þeirrar gerðar, að samveru-
stundirnar með henni urðu aldrei
daufar né daprar, heldur einmitt
oft afar skemmtilegar. Bryndís
var jafnan létt og spaugsöm, það
var ætíð stutt í bros og hlátur og
hún var flestum fljótari að koma
auga á hið broslega f tilverunni.
Hugur hennar var líka opinn fyrir
því sem fallegt var og listrænt,
hún las jafnan mikið, og eignaðist
fjölmargar góðar ljóðabækur. Allt
þetta varð henni mikils virði ekki
síst eftir að veikindin bundu hana
heima og hún gat ekki lengur unn-
ið. En þannig var öll hennar
skaphöfn, hún einkenndist af
hyggindum og góðum gáfum, og
eftir að hún var orðin veikindun-
um háð, þá brást hún líka við á