Morgunblaðið - 07.02.1984, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
39
sinn fallega og æðrulausa hátt. Já,
það er þessi fallega mynd góðrar
stúlku, sem nú mun geymast í
hugum okkar, sem henni kynnt-
umst. Slíka mynd er gott að eiga,
hún er og verður svo skýr og lif-
andi hvenær sem til hennar er lit-
ið. Og nú þegar ég kveð Bryndísi,
þá á ég þá ósk besta, að líf hennar
megi verða okkur til eftirbreytni
og þroska. Þannig verður minn-
ingu Bryndísar Elíasdóttur mesti
sómi sýndur. Hvíli hún í friði.
G.T.
Þó Bryndís Elíasdóttir hafi ekki
átt að baki mörg ár get ég ekki
sagt að mér hafi komið á óvart
fréttin um andlát hennar í Land-
sspítalanum 27. janúar sl. Hún
hafði um skeið farið mjög halloka
fyrir vægðarlausum sjúkdómi,
sem hún frá unglingsaldri vissi að
mundi verða líklegt hlutskipti
hennar. Systkin hennar tvö, Ingi-
björg og Pétur Þór, hlutu og sama
skapadóm og eru farin heim til
Guðs.
Það voru þung spor að ganga
mót framtíð slíkri óvissu bland-
inni, þegar allt annað var svo
fjarska gott. Til slíkrar göngu
þarf mikinn kjark og stöðuga
kjölfestu. Hvort tveggja átti
Bryndís. Hún var ein mesta prýði
á hópnum, sem var að spretta úr
grasi á Bíldudal á sjötta áratugn-
um.
Hún Bryndís var fædd 2. maí
1947 og voru foreldrar hennar
Kristrún Kristófersdóttir og Elías
Jónsson, sem lést þegar þau syst-
kinin voru á barnsaldri. Þau voru
bæði ættuð úr Arnarfirði og
nærsveitum og stóð að þeim mikið
mannkostafólk á alla grein;
greint, skapfast og dugmikið,
glaðvært og skemmtilegt.
Þegar ég minnist þeirra ára sem
við vorum að komast á legg á ég
einkar góðar hugsanir um félags-
skap okkar krakkanna og þau
kjör, sem við nutum. Mannlíf þyk-
ir mér hafa verið vel heilbrigt á
Bíldudal eftir tíðarhætti og við
áttum góða að. Kennarar okkar
voru flestir mikið afbragðsfólk og
höfðu á okkur góð áhrif, ekki síst
konurnar í þeim hópi og skóla-
stjórinn. Presturinn okkar skipaði
mikilvægan sess í lífi okkar með
sunnudagaskólahaldi og barna-
stúkustarfi, sem fæstir létu fram
hjá sér fara. Á vettvangi æsku
okkar voru starfsemi og reglusemi
einkunnir en ekki síður glaðværð
og vinátta. Bryndís spratt upp í
þessum varpa sem sóley og brosti
við lífinu. Hún brosti oft, var
manna glöðust og yljaði okkur oft
um hjartaræturnar.
Við urðum nokkur samferða
fyrstu sporin að heiman og héld-
um að Núpi til skola. Að eiga jafn
traustan og indælan vin og hana í
svo erfiðum sporum fæ ég seint
fullþakkað. Þá treystist vinátta,
sem hélst traust þrátt fyrir fækk-
andi tækifæri til samfunda eftir
því sem lengra leið á ævina.
Endurfundir voru engu háðir í
tímaleysi vináttunnar. Þegar við
hittumst var alltaf eins og við
hefðum sést í gær.
Bryndís lagði fyrir sig nám við
Samvinnuskólann og hefur tekið
þaðan próf 1965. Hún vann svo við
skrifstofustörf, fyrst heima á
Bíldudal, síðar í Reykjavík. Hún
gat sér gott orð sem ábyggilegur
og klár starfsmaður.
Bryndís eignaðist son sem hún
hét Kristján Þór eftir stjúpa sín-
um, Kristjáni Þ. ólafssyni, sem
hún mat mikils. Þau Kristrún
hafa mátt bera þungar byrðar en
þau hafa haft þá gæfu að standa
saman um það. Tvö börn eiga þau
saman, efnismanneskjur, Sigríði
og Kristófer. Sorg þeirra allra er
þung nú og söknuðurinn sár. En
mig langar að minna þau og aðra
hrygga á eftirvæntinguna eftir
sólarkomunni í þorrabyrjun, þeg-
ar hún var að þoka geislum sínum
lengra og lengra niður eftir
fjallshlíðinni fyrir ofan Bíldudal.
Við krakkarnir fórum stundum
upp á Hrygg til að sjá hana sem
fyrst og syngja í sólunni. Að því
kom svo alltaf að hún baðaði á
sínum tíma litla þorpið okkar
geislum sínum.
Göngum í sorg okkar uppeftir
og syngjum í sólunni og munum að
sá sem stýrir gangi hennar stýrir
og lífsfleyi okkar í örugga höfn um
síðir, hvort sem sjóleiðin hefur
verið löng eða stutt, ströng eða
blíð, ef við aðeins gefum honum
stýrið. Um þetta sungum við líka í
sunnudagaskólanum hjá séra Jóni:
Mitt fley er svo lítið en lögurinn stór.
Mitt líf er í Frelsarans hönd.
Og hann stýrir bátnum, þótt bylgjan sé
[há
beint upp á himinsins strönd.
Jakob Hjálmarsson
„Enn man grasið þig.
Man enn þegar þú sagðir.
En hve grasið er grænt
og gott að anda.“
Nína Björk Árnadóttir.
Mig langar að minnast hér ör-
fáum orðum vinkonu minnar og
skólasystur, Bryndísar Elíasdótt-
ur, sem nú er látin eftir langa bar-
áttu við erfiðan sjúkdóm.
Hún var dóttir hjónanna
Kristrúnar Kristófersdóttur og
Elíasar Jónssonar, fædd 2. maí
1947 og var því aðeins 36 ára að
aldri þegar hún lést.
Við sáumst fyrst í gamla
Menntaskólahúsinu í Reykjavík
1963 þar sem báðar þreyttu inn-
tökupróf í Samvinnuskólann að
Bifröst. Við vorum utanbæjar-
Málfríður Asmunds-
dóttir — Minning
Fædd 10. febrúar 1899
Dáin 17. janúar 1984
Lífsferill minn hefur verið á
þann veg, að ég hef frekar staðið
þar sem áhorfandi heldur en beinn
þátttakandi, en lífsganga Málfríð-
ar Ásmundsdóttur, sem nú hefur
kvatt sinn jarðneska ævidag, var
lífsganga, sem mótaðist á annan
veg. Þar var starf og reglusemi i
fyrirrúmi og samhliða þeirri lífs-
stefnu var rétt dómgreind og já-
kvæður skilningur á því, sem frek-
ar má kalla tímabundið áhuga-
leysi með sínar orsakir og afleið-
ingar heldur en að þar sé beint um
greindarfarslegan vanmátt að
ræða. Þessi jákvæða afstaða átti
engu síður við um mann hennar,
Sigurjón Skúlason, en hann féll
frá árið 1967. Nú eru þessi hjón,
Málfríður og Sigurjón, bæði farin,
en eftir lifa synir þeirra þrír og
einn af þeim býr enn í húsinu við
Skildinganeshólana, þar sem þau
settust að fyrir rúmlega 50 árum.
Ég vil að endingu færa mína
þökk fyrir þá velvild og þann
skilning sem þau hjónin sýndu
mér það tímabil sem ég hef senni-
lega erfiðast átt. Minning þeirra
mun veita eftirlifandi ástvinum
huggun og styrk á hinni skamm-
vinnu lífsbraut hins jarðneska
ævidags.
Þorgeir Kr. Magnússon
stelpur komnar til Reykjavíkur í
þessum erindagjörðum einum. Við
kíktum uppburðarlitlar hvor á
aðra í ganginum fyrir framan
prófsal og datt hvorugri í hug að
hægt væri að yrða á bláókunnuga
manneskju að fyrra bragði.
Ekki hafði dregið úr uppburð-
arleysinu þegar komið var að Bif-
röst og við létum þegjandi ráð-
stafa okkur, í sitt hvorri herberg-
ið, reyndar staðfastar í því þá að
kynnast hvor annarri.
Það leið heldur ekki á löngu þar
til við vorum orðnar óaðskiljan-
legar vinkonur, deildum saman
þeim fulla trúnaði sem e.t.v. að-
eins er til hjá stelpum á þessum
aldri.
Þrátt fyrir viðkvæma lund
Bryndísar var hlátur og ærsl
aldrei langt undan þar sem hún
var. Bryndís var hláturmildust
allra, gædd ríku ímyndunarafli og
góðri greind. Henni sóttist enda
námið vel. Þó var ein sú náms-
grein sem hún hafði megnustu
vanþóknun á, en það var danska.
Hún sagðist myndu hugleiða hvort
hún legði stund á þetta tungumál
nýlenduherranna — sem þó varla
gæti risið undir því nafni — þegar
handritin væru heimt til íslands
að nýju. Þess má geta, að sú sem
þetta skrifar kúrði í leynum yfir
dönskuglósum eftir þessa yfirlýs-
ingu, ráðalaus gegn ofureflinu;
festu Bryndísar og strangleika
skólameistara sem dönskuna
kenndi.
í bekkjarriti Samvinnuskóla-
nema útskrifaðra 1965 valdi Bryn-
dís sér einkunnarorð eins og aðrir
skólafélagar hennar. Hún kaus sér
að einkunnarorðum: „ ..., það
sem ég vil og vona gerir mig
bjartsýna". Ég hygg að það hafi
ekki veriðtilviljun ein sem réð því
að Bryndís kaus að hirða ekki um
fyrrihluta þessa fleyga orðtaks
Albert Schweitzer; að henni hafi
þá þegar boðið í grun að e.t.v. gæti
svo farið að henni yrði ekki langra
lífdaga auðið.
Syni hennar, Kristjáni Þór,
móður, fóstra og systkinum sendi
ég innilegustu samúðaróskir.
Þeirra er missirinn mestur. Bless-
uð sé minning Bryndísar Elías-
dóttur.
Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
Það er erfitt að sætta sig við
þegar einhver ættingi eða vinur er
kvaddur héðan svo fljótt. Ung
kona, sem manni finnst eiga svo
mörgu ólokið hér. Bryndís er búin
að eiga við sjúkdóm í nokkur ár.
Alltaf verið jafn dugleg eftir hvert
áfallið, að drífa sig upp. Byrjaði
þar sem frá var horfið. Hún vann
eins lengi og hún gat. Sama á
hverju gekk, alltaf var stutt í
brosið hjá henni.
Bryndís fæddist á Bíldudal 2.
maí 1947 — d. 27. jan. 1984. Dóttir
hjónanna Kristrúnar Kristófers-
dóttur og Elíasar Jónssonar.
Systkini hennar voru Ingibjörg, f.
4. des. 1944. — d. í sept. 1969. Hún
lét eftir sig eiginmann, Kristján
Mikaelsson, og tvö börn, Elías og
Söndru. Pétur Þór, f. 26. júlí 1948
— d. 11. apríl 1982. Lét eftir sig
unnustu, Margréti Friðriksdóttur.
Föður sinn misstu þau á unga
aidri úr þessum sama sjúkdómi
sem þau öll hafa látist af. Móðir
hennar giftist síðar Kristjáni Þ.
Ólafssyni, eignaðist með honum
tvö börn, Sigríði og Kristófer, sem
bæði eru gift.
Móðir hennar, Dúdda, hefur
þurft að sjá á eftir öllum börnum
sínum og eiginmanni úr fyrra
hjónabandi. Er það mikil reynsla
hverjum manni. Hún hefur verið
börnum sínum styrk stoð í þeirra
veikindum. Bryndís mat stjúpa
sinn mikils, hann hefur reynst
henni eins og besti faðir.
Ég kynntist Bryndísi fyrir rúm-
um tuttugu árum, er við fórum í
nokkurra daga sumarleyfi með
vinum okkar. Hefur sú vinátta
haldist síðan. Bryndís útskrifaðist
frá Samvinnuskólanum á Bifröst.
Hún vann í nokkur ár á skrifstofu
hjá Kaupfélagi Arnfirðinga á
Bíldudal en fluttist í Kópavog árið
1970 til móður sinnar og stjúpa.
Hún vann hjá Sambandi ísl. sam-
vinnufélaga á skrifstofu og vann
þar meðan hún gát unnið vegna
veikinda sinna. Bryndís átti eitt
barn, soninn Kristján Þór, sem er
f. 29. maí 1971, og er því aðeins
tólf ára gamall er hann sér á bak
móður sinni. Bryndís festi kaup á
ibúð með dugnaði sínum og leigði
hana í nokkur ár. Seldi hana síðan
og keypti sér aðra, sem er í sama
húsi og móðir hennar og stjúpi
búa í. Bryndís hafði búið hana
smekklega. Yndislegt var að koma
til hennar og finna hve hún var
ánægð að vera í sínu eigin hús-
næði. Bryndís var góðum gáfum
gædd.
Eiginmaður undirritaðrar er frá
Bildudal og hefur mér fundist eins
og Bryndís væri systir hans og
besti vinur alla tíð. Ég og fjöl-
skylda mín óskum henni Guðs
blessunar í nýjum heimkynnum.
Biðjum Guð að halda verndar-
hendi yfir syni hennar og öðrum
ættingjum. Blessuð sé minning
hennar.
Yinkona S.B.
SCHIPHOL
Besti f lugvöllur heims*
Schiphol-flugvöllurinn viö Amsterdam er ár eftir
ár kjörinn besti flugvöllur veraldar af þeim sem
best til þekkja - þeim sem stöðugt eru aö
ferðast um heiminn í viðskiptaerindum. Þeir
eru ekki í vafa um það á hvaða flugvöll er best
að koma, eins og kosningar margra virtra
ferðatímarita sýna.
Frábær staðsetning Schiphol í hjarta Evrópu,
stórkostlegar samgöngur til og frá vellinum í
lofti, á láði og legi, þaulskipulögð þjónusta 30
þúsund starfsmanna og stærsta fríhöfn heims,
leggjast á eitt við að gera Schiphol að drauma-
viðkomustað reyndra ferðalanga sem
óreyndra. Þangað flýgur Arnarflug.
Flugfélag með ferskan blæ
^fARNARFLUG
Lágmúla 7, sími 84477
BUSINtSSTRAVl l I I K SI-HI UMBERIVBI
airports
Best
1 Schiphol
Votes
1025
”7[uncTT
Irankfurt
Pans
( httiksdcC»aulU*
\\W
tuna
tv'<opt\aoveta"p,°'>'e
*írp&>°*
V ,,
64A'rP”.Wors,OVerl
V v a&°J
3y^AVEl,
I p
V.*-,
2
3 Fr^h S,erd*n>
Así&s&i
i «inn«s
2-932.
, in P»"’
The Winner
6
•rij
BEST-LIKEO INTERNATIONAL
011 AIRPORT
1 Schlphol (Amsterdam)
2 Changi (Singapore)
3 Zurich
October 1982 EXECUTIVt TRAVtl
orth
‘ll'
nh,
'aSfn;
* Samkvæmt kosningum tímaritanna Business Traveller og Executive Travel
um þjónustu á alþjóðlegum flugvöllum, staðsetningu, timatöflur, samgöngumöguleika o.fl.