Morgunblaðið - 07.02.1984, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
RrvMuntOi-uM'VB
Fáum ekki vinnu
í Hafnarfirði
Jónatan Jónatansson skrifar frá
Hafnarfirði:
„Ég heiti Jónatan Jónatansson
og er fæddur 10. desember 1957.
Mig langar að taka það fram að ég
er lamaður í fótum og geng með
staf utanhúss, en inni geng ég
staflaus.
Ég er fæddur Hafnfirðingur í
húð og hár og mér finnst undra-
legt að Hafnfirðingar geti ekki út-
vegað mér vinnu hér í Hafnarfirði.
Ég er búinn að leita að vinnu
hér í mörg ár og hef aldrei fengið
vinnu í Hafnarfirði. Konan mín er
einnig lömuð í hægri handlegg og
hún hefur einnig leitað að vinnu
hér í Hafnarfirði og verið neitað
um hana.
Nú hefur nýtt heimili fyrir lam-
aða verið opnað hér í Hafnarfirði
og það var tekið fram að öryrkjar
ættu að ganga fyrir. Okkur var
neitað og nú spyr ég: Af hverju?
Við erum bæði lömuð.“
Þátturinn „Nýjustu
fréttir af Njálu“:
Æ’
Ureltar
fréttir?
Magnús Jósefsson skrif-
ar:
„Velvakandi.
Hvað er hann gamall,
þessi náungi sem flytur
þessar nýju fréttir af
Njálu í útvarpinu á laug-
ardögum? Hann hlýtur að
vera aftan úr grárri forn-
eskju, að hann skuli kalla
þessi erindi „nýjar fréttir
af Njálu“.
Mér dettur í hug setn-
ing sem þekktur kaup-
maður sagði fyrir mörg-
um árum, er hann sá gam-
alt og ryðgað anker fyrir
utan búðina sína: „Det
skal skrapes og males og
selges som nytt“.
Ef þessi maður er í al-
vöru að leita að nýjungum
um Njálu, hvers vegna
leitar hann þá ekki í rit-
um Einars Pálssonar sem
heita „Rætur íslenskrar
menningar"? Þetta er rit
uppá um það bil 3000
blaðsíður, sex bækur í
allt. Þar er ýmislegt nýtt
og merkilegt á ferðum.
Einar virðist vera eini ís-
lendingurinn sem skilur
höfund Njálu og það sem
hann raunverulega er að
segja.“
Vil fækka þingmönnum
Nánari upp-
lýsingar um
„Nálina mína“
Guðrún Kristjánsdóttir frá
Þingeyri hringdi og hafði eftir-
farandi að segja:
— Kvæðið „Nálin mín“ hef-
ur verið töluvert til umræðu á
síðum Velvakanda upp á síð-
kastið. Guðrún Bjarnadóttir er
höfundur lagsins við þetta
kvæði, hún er föðursystir mín
og mig langar að koma á fram-
færi nokkrum upplýsingum um
hana.
Hún lést ekki ung að árum,
einsog komist er að orði í Vel-
vakanda laugardaginn 28.
janúar. Hún var gift kona og
tveggja barna móðir er hún
lést úr berklum. Ég held að þá
hafi hún verið 28 ára gömul.
Eftirlifandi maður Guðrúnar
heitir Guðmundur Þórðarson
og býr hann i Reykjavík.
Guðrún samdi fleiri lög en
þetta, en ekki voru þó fleiri út-
sett eftir hana.
Velvakandi þakkar Guðrúnu
upplýsingarnar og af þeim og
hinum, sem áður hafa komið
fram, má ætla að textinn sé eftir
Jón Trausta og sé aö finna í
Ijóöasafni hans, en lagið sé eftir
Guðrúnu Bjarnadóttur, sem að
sögn Guðrúnar Kristjánsdóttur
var ætíð nefnd Rúna Bjarnadótt-
ir.
Karitas Hermannsdóttir
hringdi frá Húsavík og hafði eft-
irfarandi að segja:
— Ég vil ekki láta fjölga þing-
mönnunum, eins og hefur verið
rætt um. Mig langar til að vita,
hversu margir íslendingar þurfa
að skrifa undir beiðni um þjóð-
aratkvæðagreiðslu, svo hún geti
átt sér stað.
Ég hef heyrt um undirskrifta-
lista, sem hafa gengið þar sem
fjölgun þingmanna er mótmælt.
Mitt áhugamál er að fækka þeim
alveg niður í 50 menn, er ekki
annars alltaf verið að spara?
Við mundum þurfa að borga
öllum þessum mönnum laun,
sem yrðu tekin af okkur, því við
erum jú ríkið.
Hérna í Norðurlandskjördæmi
eystra gætum við auðveldlega
séð af tveimur eða þremur þing-
mönnum og þá getið þið þarna á
Suðurlandi bara fengið þá! Mér
skilst að ykkur vanti menn, en
við viljum ekki að þingmönnum
sé fjölgað til að þið á Suðurlandi
Guðmundur Gíslason hringdi
og hafði eftirfarandi að segja:
— Fyrir nokkru kom ég með
fyrirspurn til fjármálaráðu-
neytisins, sem ekki hefur verið
getið haft fleiri menn. Hér höf-
um við sjö menn, en þeir eru svo
duglegir að ég er vissum að
fimm þeirra gætu unnið þetta
sjö manna verk.
Þingmennirnir eru að biðja
okkur um að spara, en þá verða
þeir einnig að gera slíkt hið
sama.
Talað hefur verið um að þjóðin
eigi að sýna verkamönnunum í
Straumsvík meiri samhug. Þjóð-
in stendur alls ekki öll með þeim.
Þeir eru svo tekjuháir að fólk,
sem hefur helmingi lægra kaup
en þeir, vill ekki að þeir fái
hærra kaup. Við viljum að hinir
hæstlaunuðu láti svolítið af sín-
um launum til hinna lægstlaun-
uðu.
Verkamennirnir í Straumsvík
tala um að þeir vinni svo langan
vinnudag. Við viljum vinna ef
við fáum sanngjarnt kaup fyrir
það. Unglingarnir hafa of litla
vinnu og þar afleiðandi leiðast
þeir út í allskyns vitleysu, því
þeir vita ekki hvað þeir eiga að
gera við tímann.
svarað. Ég vil því ítreka spurn-
ingu mína i þeirri von að henni
verði svarað núna:
Hvað er áætlað á fjárlögum til
forsetaembættisins fyrir árið
1983 og hver var fjárþörfin?
Forsetaembættið:
Hver var fjárþörfin?
Bladburóarfólk
óskast!
Austurbær
Þingholtsstræti
JMtvgniiMfiMfr
FRAMSÖGN OG TALTÆKNI
Næstu námskeiö hefjast 20. og 21. febrúar.
LEIKLIST
Kvöldnámskeiö i leiklist mánudag, þriöjudaga og
fimmtudaga.
Þeir, sem þegar hafa skráö sig, vinsamlegast staö-
festið fyrir 14. febrúar.
Innritun daglega í síma 17505 kl. 16.00—19.00.
TALSKÓLINN
Skúlagötu 61, Reykjavík.
Skattaþjónustan og
Tölvuþjónustan
auglýsa: