Morgunblaðið - 07.02.1984, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
íslendingur
hlýtur viður-
kenningu
í Oxford
FYRIR skömmu var íslenskum
fræöimanni veitt mikil viöurkenn-
ing af Oxford-háskóla. Hannes H.
Gissurarson cand. mag., sem er
kunnur lesendum Morgunblaðsins
fyrir regluleg skrif í blaöið nokkur
síöustu árin, hlaut svonefnd Coll-
ingwood-verölaun, en þau eru veitt
einura manni á ári af Pembroke
College og heita eftir hinum kunna
breska heimspekingi R.G. Coll-
ingwood. Verölaunin eru 150 pund,
en þeim fylgja einnig svipuö rétt-
indi og kennarar í Oxford-háskóla
njóta.
„Þetta kom mér satt að segja
mjög á óvart," sagði Hannes, er
Morgunblaðið sneri sér til hans,
„en ég get ekki verið annað en
ánægður með, að kennararnir í
þessum virðulega háskóla hafa
valið mig til að fylla sínar raðir.
1 þessari viðurkenningu felst, að
ég verð félagi á kennarastofunni,
hinni svonefndu Senior Common
Room, og nýt ýmissa annarra
réttinda, þótt ég kenni að vísu
ekkert hér í háskólanum, heldur
vinni að fræðilegri rannsókn á
sambandi íhaldsstefnu og frjáls-
lyndisstefnu, sem ég vonast til
að ljúka seint á næsta ári.“
Hannes H. Gissurarson
„Þess má geta til gamans,"
sagði Hannes ennfremur, „að
Collingwood hafði lesið íslend-
ingasögurnar. Hann segir í The
New Leviathan, að lögin á ís-
landi á þjóðveldisöld hafi verið
svipuð alþjóðalögum á okkar
dögum og að svo virðist sem kon-
ur hafi verið aðalfriðarspillarn-
ir, hvað sem Jafnréttisráð segir
um þá söguskoðun. Annar fræg-
ur félagi hér á garðinum, dr.
Samuel Johnson, hafði annað að
segja um ísland: Hann kvað svo
að orði í bréfi árið 1791, að Dyfl-
inni á írlandi væri miklu verri
staður en Lundúnir, en alls ekki
eins slæmur og ísland. Kannski
var verið að bæta íslendingnum
upp þennan dónaskap dr. John-
sons!“
Laxeldisstöð Laugarlax hf. við Apavatn:
Blátt bann við að frá-
rennslið fari í Apavatn
NÍU ábúendur og/eöa landeigendur
viö Apavatn hafa lagt blátt bann viö
því aö frárennsli fyrirhugaðrar lax-
eldisstöövar þar verði látið renna út
í vatnið. Ákvörðun bændanna kemur
fram í yfirlýsingu, sem Mbl. hefur
borist og mun veröa birt í heild í
blaðinu.
Segja þeir að upphaflega hafi
frárennsli stöðvarinnar átt að
fara í Laugarvatn en nú sé fyrir-
hugað að það fari Djúpin eða
Kvíslarnar, sem séu hrygningar-
stöðvar Apavatns. „Stjórn Laug-
arlax var kunnugt um að ekki lá
fyrir heimild frá eiganda jarðar-
innar Útey I, að afrennsli stöðvar-
innar færi eftir landi hans.. “
segir í yfirlýsingunni. „Það hefur
öllum verið ljóst frá upphafi, að
ekki er hægt að koma afrennsli
stöðvarinnar í vatnakerfi Apa-
vatns nema að fara í gegnum land
jarðarinnar Útey I, og það er ekki
heimilað."
Apvetningar telja að frárennsli
stöðvarinnar gæti haft afdrifarík-
ar afleiðingar fyrir lífríki vatnsins
og að fyrirhugaðar rannsóknir á
súrefnismagni vatnsins muni ekki
breyta neinu þar um, enda verði
þær rannsóknir takmarkaðar.
Segjast þeir í yfirlýsingu sinni
telja eðlilegast, að frárennslið fari
í Laugarvatn. Þar hafi engin mót-
mæli komið fram, þar séu flestir
hluthafarnir og auk þess sé
hreppsfélagið aðili að stöðinni og
telji ábata af væntanlegri starf-
semi hennar. „Hvers vegna taka
þeir ekki áhættuna líka?“ spyrja
þeir. „Við erum ekki á nokkurn
hátt á móti starfsemi Laugarlax
hf., stjórn þess né aðild Laugar-
dalshrepps. Á okkar siðferðilega
og lagalega rétti hefur verið troð-
ið..“
Eyjólfur Friðgeirsson fiskifræð-
ingur, stjórnarformaður Laugar-
lax hf., sagði í samtali við blaða-
mann Mbl. að vinna við stöðina
Viðey seldi í
Bremerhaven
VIÐEY RE seldi 326,6 lestir, mest
karfa, í Bremerhaven á mánudag.
Heildarverö var 5.708.800 krónur,
meöalverö 24,13.
Þá er fyrirhugað að þrjú önnur
skip selji afla sinn erlendis í þess-
ari viku, en það eru Ögri RE,
Karlsefni RE og Ársæll Sigurðs-
son HF.
Færðin erfið og ótrygg vegna
fannfergis og skafrennings
FÆRÐ var mjög ótrygg í gær og erfið vegna fannfergis og skafrennings
víða um land. Sigurður Hauksson, starfsmaður Vegaeftirlitsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að hann hefði það á tilfínningunni að fann-
fergi og snjómokstur það sem af væri árinu væri með mesta móti og
janúarmánuður yrði dýr. Hjá Veðurstofunni fengust þær upplýsingar,
að búizt væri við norðanátt í dag og á morgun og nokkru frosti. Einnig
væri hætt við skafrenningi.
Hjá Vegaeftirlitinu fengust
þær upplýsingar síðdegis í gær,
að víða væri skafrenningur á
Suður- og Vesturlandi og færð
því ótrygg og mokstur erfiður.
Árdegis í gær var fært um Hell-
isheiði og Þrengsli austur til
Víkur í Mýrdal, en þegar leið á
daginn lokaðist vegurinn undir
Eyjafjöllum og færð þyngdist
víðast. Stórum bílum og jeppum
var talið fært austur á firði í
gær, en fjallvegir á Austfjörð-
um voru ófærir. Þokkaleg færð
var á Héraði og Fagridalur fær.
Fært var í gær um Hvalfjörð til
Borgarness og stórum bílum og
jeppum þaðan vestur Mýrar og
um Heydal og svo og á norðan-
verðu Snæfellsnesi. Fært var úr
Búðardal í Reykhólasveit og
mokstur hafinn þaðan í Gufu-
dalssveit. Frá Patreksfirði var
fært út á flugvöll en Kleifaheiði
var ófær, fært var frá Patreks-
firði til Bíldudals. Þokkaleg
færð var um Dýrafjörð og Ön-
undarfjörð og stórum bílum
fært um Gemlufallsheiði. Frá
ísafirði var fært til Bolungar-
víkur og Súðavíkur.
Fyrrihluta dagsins í gær var
fært norður um Holtavörðu-
heiði, Vatnsskarð og Öxna-
dalsheiði til Akureyrar, en í
gærkvöldi var færð á Holta-
vörðuheiðinni farin að spillast
verulega. Jeppafært var norður
eftir Ströndum til Hólmavíkur.
Þá var fært um Skagafjörð til
Siglufjarðar og frá Akureyri
um Dalvík til Olafsfjarðar. Að-
eins jeppum og stórum bílum
var fært frá Akureyri um Vík-
urskarð til Húsavíkur, en hætt
var við mokstur frá Húsavík til
austurs og upp í Mývatnssveit.
VINNIN9AR
I HAPPDRÆTTI
Husbunaður eltir vali, kr. 1.500
10. FLOKKUR 1983—1984
Vinningur til íbúðarkaupa, kr. 400.000
65647
Bifreiöavinningar eftir vali, kr. 75.000
4982 15213 34574 38035
14703 23199 34820 42442
Utanlandsferöir eftir vali, kr. 25.000
1636 31622 35918 44958 53817
3974 33326 37131 45429 62079
7267 34363 38918 45879 62265
29084 34872 42516 47043 74193
29418 35771 42790 50737 75926
Húsbúnaður eftir vali, kr. 7.500
4409 15618 29632 47392 64439
4443 18082 30291 48544 67455
5440 19534 30639 48557 69512
5629 23326 31633 50677 70365
6153 23747 39382 52105 70883
7913 25054 40069 55283 72285
9579 25406 43603 55291 75005
11199 26596 44237 59515 76313
12483 26995 47186 61724 77552
14723 28442 47275 61932 79245
93 7762 15016 22586 31425 41989 50489 57840 64864 74292
152 7867 15286 23106 31581 42120 50564 57842 65194 74378
376 7924 15311 23565 31697 42125 50622 58115 65439 74461
568 7927 15350 24008 31708 42170 50832 58236 65446 74478
738 8009 15583 24150 31885 42322 50937 58944 65610 74620
1039 8666 15619 24302 32398 42472 50958 59251 66378 74666
1101 8717 15875 24609 32663 42480 51384 59310 66502 74807
1219 8829 16033 24642 32735 42912 51398 59320 66744 74941
1328 8984 16038 24804 32856 43201 51421 59792 66970 74945
1505 9180 16283 24818 33176 43306 51552 59926 67236 75077
1602 9846 16417 24970 33310 43492 51553 59970 67837 75111
1757 9911 16524 25084 33753 43514 51763 60029 67899 75398
1863 9998 16805 25202 33757 43894 51957 60089 67952 75521
2179 10015 16868 25423 34518 44169 52117 60174 67975 75551
2323 10143 16960 25444 34525 45246 52308 60190 67977 75673
2462 10183 17012 25725 34953 45352 52668 60419 68065 75852
2663 10235 17147 25772 35177 45480 52669 60509 68212 75973
2843 10267 17468 25815 35291 45556 52892 60646 68335 76577
2967 10587 17517 25993 35408 45631 53024 60672 68534 76585
2996 10723 17670 26072 35443 45649 53032 60783 68751 76681
3095 11375 17826 26081 35824 45650 53230 61237 68777 76721
3140 11398 18312 26279 36016 45677 53380 61340 68817 76872
3324 11491 18446 26509 36077 45796 53949 61346 68984 76891
3648 11549 18892 26563 36148 45905 53974 61506 69299 76946
3651 11704 19048 26655 36256 45951 54249 61561 69843 77205
3916 11768 19163 26906 36421 46542 54506 61621 69902 77382
4029 12044 19242 27027 36499 46592 54515 61808 70047 77500
4199 12170 19247 27032 36568 46608 54935 61988 70368 77563
4331 12309 19288 27060 37284 46709 55190 62192 70400 77606
4449 12685 19373 27180 37466 46714 55288 62238 70619 78042
4679 12717 19720 27292 37469 46731 55478 62262 70933 78216
4735 12719 19776 27530 37680 46832 55552 62464 71051 78304
5103 12766 19805 27659 37961 47077 55559 62614 71409 78311
5198 12906 19942 27729 37970 47216 55581 62631 71487 78445
5208 12944 19966 27735 38164 47296 55762 62655 71562 78558
5235 12974 20282 28129 38266 47358 55802 62827 71865 78851
5468 13056 20451 28297 38751 47568 55929 63073 72126 78864
5557 13158 20482 28408 38858 48092 56106 63244 72231 79104
5655 13178 21068 29332 39469 48647 56111 63287 72342 79271
6079 13339 21094 29382 39896 48728 56170 63338 72452 79528
6586 13347 21096 29459 40118 48753 56281 63453 72538 79555
6650 13389 21116 29594 40324 48851 56319 63467 72904 79577
6681 13410 21226 29691 40665 48952 56350 63636 73132 79673
6993 13415 21233 29856 40806 48990 56494 63702 73150 79713
7103 13749 21437 29883 40961 49209 56608 63813 73205 79835
7241 13848 21682 29917 41005 49291 56808 64080 73441 79903
7465 14135 21737 30330 41126 49489 57061 64197 73498 79912
7499 14190 21902 30395 41326 49521 57285 64250 73559 79915
7503 14213 22051 30573 41508 49807 57360 64443 73564
7527 14356 22124 30660 41517 50037 57515 64500 73659
7678 14431 22490 31166 41700 50101 57529 64604 73911
7743 14506 22562 31393 41864 50252 57697 64763 74201
Algreiðsla húsbúnaðarvinninga hefst 15. hvers mánaöar
og stsndur til mánaöamóta.
væri í fullum gangi og að hann
gerði sér vonir um að stöðin gæti
tekið til starfa innan skamms,
enda væri „pressa á um að koma
hrognum niður sem fyrst. Ég tel
að þetta mál sé úr sögunni og að á
því hafi fengist endanleg lausn
með því að þessi rannsókn á að
fara fram á lífríki vatnsins," sagði
Eyjólfur. „Það skiptir í sjálfu sér
engu máli í hvort vatnið frá-
rennslið fer, það er talið ljóst að
mengun frá stöðinni verður engin.
Ef hreinsibúnaðurinn dugar ekki,
þá verður einfaldlega gert betur,
það hefur alltaf verið ætlun
okkar."
Eyjólfur sagði að af „augljósu
náttúruverndarsjónarmiði" væri
talið, t.d. af Veiðimálastofnun og
Náttúruverndarráði, skárri kostur
að frárennslið færi í Apavatn.
„Afstaða Apvetninga er tilkomin
af þröngum eiginhagsmunum," sa-
gði hann. „Sú afstaða verður léttv-
æg ef tekið er tillit til náttúru-
verndarsjónarmiða í stærra sam-
hengi."
Sigrún Helgadóttir, líffræðing-
ur hjá Náttúruverndarráði, sem
hafði milligöngu um útvegun sér-
fræðings til að gera áðurnefnda
rannsókn á Apavatni í næsta
mánuði, sagðist ekki vitað hversu
vel fyrirhugaður hreinsibúnaður
myndi duga, enda væri þetta í
fyrsta skipti sem slíkur búnaður
væri settur upp hérlendis. Ef at-
hugunin á súrefnisforða vatnsins
undir ís leiddi í ljós að vatnið væri
ekki súrefnissnautt, þá myndi
Náttúruverndarráð ekki leggjast
gegn starfrækslu stöðvarinnar,
enda yrði fylgst rækilega með
áhrifum frárennslisins í a.m.k.
eitt ár og hreinsibúnaðurinn
endurbættur ef þörf krefði.
Fiskverð
enn ókomið
SAMKVÆMT heimildum Morgun-
blaðsins hefur enn hvorki náöst
lausn innan yfirnefndar Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins um ágreining
um fyrirhugaöar ferskfískmatsreglur
né heldur verið lagðar fram ákveðn-
ar hugmyndir um lausn á vanda út-
geröarinnar. Fundur yfírnefndarinn-
ar í gær varö aö mestu árangurslaus
og hefur annar verið boöaður í dag.
Þó fiskverð liggi ekki enn fyrir
hefur margt verið rætt innan yfir-
nefndarinnar. Hefur jafnvel kom-
ið fram hugmynd um að hætta
verðbótum á karfa og ufsa. Verð-
bætur á ufsa hafa til þessa 25% og
15% á karfa. Verði af þessum
hugmyndum skerðir það tekjur
sjómanna verulega svo og útgerð-
ar, en hugmyndir munu hafa kom-
ið upp um að útgerðinni yrði bætt
tekjuskerðingin úr aflatrygg-
ingasjóði.
1500—1800 kr. fyrir
skattaframtalið
LÖGGILTIR endurskoöendur
taka á bilinu 1500—1800 krónur
fyrir aö gera skattframtöl fyrir
einstaklinga, en í fyrra var veröiö
1200 kr. og er því um 25—50%
hækkun að ræða á milli ára.
Þessar upplýsingar fékk
Mbl. hjá einum endurskoðanda
í borginni í gær, en sagði hann
jafnframt að engin verðskrá
væri til vegna þessarar þjón-
ustu. Hins vegar er fyrrgreint
verð það sem algengast er, ef
um venjuleg framtöl er að
ræða.