Morgunblaðið - 07.02.1984, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
47
spurt og svarad
I Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS
Hér birtast spurningar lesenda um skattamál og svör ríkisskattstjóra,
Sigurbjarnar Þorbjörnssonar. Þeir lesendur, sem hafa spurningar fram
að færa, geta hringt í síma 10100 milli klukkan 2 og 3 alla virka daga.
færa í lið E 6.
3. Lífeyrissjóðslán, sem tekin
eru á árinu 1983, ber að færa
í lið S 1 á bls. 4 á framtali
1984. Ráðstöfun lánsins til
byggingarfélagsins er inni-
falin í fjárhæð þeirri sem
svar við 1. og 2. fjallar um.
4. Enginn frádráttur er veitt-
ur vegna barna við álagningu
tekjuskatts, en barnabætur
eru greiddar með börnum
sem eru innan 16 ára á árinu
1983.
5. Viðhaldskostnaður íbúð-
arhúsnæðis til eigin nota er
ekki frádráttarbær. Sama
gildir um kostnað vegna
endurbóta.
Greiðslur til
byggingarsam-
vinnufélags
Hlynur Sigurður Vigfússon,
Vatnsstíg 8, Reykjavík, spyr:
1. Ég og sambýliskona mín
gengum í byggingarsam-
vinnufélagið Byggung sl. ár. Á
ég að sundurliða allar greiðsl-
ur til félagsins vegna íbúðar-
byggingarinnar, eins og spari-
merki, lán og eigið fé?
2. Hvar eiga slíkar upplýsingar
að koma fram á skattfram-
tali?
3. Ég tók lífeyrissjóðslán 1983, á
ég að gera grein fyrir því á
þessari skattskýrslu eða á
þeirri næstu?
4. Við eigum von á barni á árinu,
er hægt að æskja frádráttar
vegna þess nú og þá hvernig?
5. Er hægt að fá kostnað vegna
endurbóta á íbúðarhúsnæði
til frádráttar?
Svar:
1. og 2. Allar greiðslur til
byggingarfélagsins í heild á
árinu 1983 ber að færa í lið E
3 á skattskýrslu sem bygg-
ingarkostnað viðkomandi
íbúðar, enda sé um byggingu
tiltekinnar íbúðar að ræða.
Ef aðeins er verið að greiða
inn á væntanlega byggingu er
litið á innborgun eins og
hverja aðra kröfu sem ber að
Afföll af seldum
skuldabréfum
Guðlaugur Ellertsson, Smyrla-
hrauni 29, Hafnarfirði, spyr:
í hvaða tilvikum koma afföll
af seldum skuldabréfum til frá-
dráttar hjá mönnum utan at-
vinnurekstrar?
Óskað er að dæmi fylgi svari.
Svar:
Samkvæmt ákvæðum skatta-
laganna má draga frá tekjum
vaxtagjöld, afföll og gengis-
töp af skuldum sem sannan-
lega eru notaðar til öflunar á
íbúðarhúsnæði til eigin nota.
Maður, sem gefur út skulda-
bréf og selur það með afföll-
um og ver söluandvirði
skuldabréfsins sannanlega til
öflunar á íbúðarhúsnæði til
eigin nota eða endurbóta á
því, þ.e.a.s. hann uppfyllir
skiíyrði 1. tl. E-liðar 1. mgr.
30. gr. skattalaganna um rétt
til frádráttar vaxtagjalda,
má reikna afföllin til frá-
dráttar með hlutfallslegri
fjárhæð ár hvert eftir af-
borgunartíma bréfsins enda
sé kaupandi bréfanna
nafngreindur.
Það telst ekki sala skulda-
bréfa í þessu sambandi að
kaupandi íbúðarhúsnæðis
gefi út skuldabréf til seljanda
þess til greiðslu á kaupverði
eignarinnar.
Frádráttar-
möguleikar
Guðjóna Kristjánsdóttir, Austur-
brún 2, Reykjavík, spyr:
Ef skattgreiðandi hefur föst
laun auk ellilífeyris, á engar
eignir og ber engar skuldir,
hvaða frádráttarmöguleika hef-
ur hann á skattframtali?
Ef 10% reglan er notuð, er þá
sá skattstofn sem þá fæst notað-
ur til álagningar?
Svar:
Fyrirspyrjandi á rétt á frá-
drætti skv. lið T 8 á framtali,
þ.e. greitt iðgjald í lífeyris-
sjóð, stéttarfélagsgjald, ið-
gjald af lífsábyrgð og í T 11
gjafir til menningarmála og
helming greiddrar húsaleigu,
eða í stað þessara frádrátt-
arliða 10% af samanlögðum
föstum launum og ellilífeyri
ef sú frádráttarfjárhæð er
hærri en framangreindir lið-
ir. Þegar tekið hefur verið til-
lit til hugsanlegs frádráttar
skv. liðum T 4 og T 7 á fram-
tali, auk ofanritaðs, kemur út
skattstofn sem er grundvöll-
ur til álagningar.
Tvö- og þreföld
vinna nægir ekki
— segir Jóhanna Kristjónsdóttir um kröpp kjör einstæðra foreldra
„ÞETTA er ekkert sem kemur á
óvart. Það eru fjölmörg dæmi þess
að einstæðir foreldrar, sérstaklega
einstæðar mæður, verða að leggja á
sig tvö- og þrefalda vinnu, sem næg-
ir þó ekki þeim og börnum þeirra til
lífsviðurværis,“ sagði Jóhanna Krist-
jónsdóttir, formaður Félags ein-
stæðra foreldra, vegna fréttar Mbl. í
gær um niðurstöðu könnunar kjara-
rannsóknanefndar á kjörum lág-
tekjufólks, en þar kemur m.a. fram
að einstæðir foreldrar búa við kröpp-
ust kjörin.
Jóhanna tiltók eitt dæmi: „Ung
kona, 26 ára gömul, með tvö börn,
tveggja og sex ára, er að berjast
við að kaupa ibúð í verkamanna-
bústöðum. Hún er í verksmiðju-
vinnu frá 8—16.30 alla virka daga.
Við ræstingar vinnur hún frá
17—19 og þrjú kvöld í viku vinnur
hún í sjoppu frá kl. 21—23.30.
Fyrir þetta ómanneskjulega
vinnuálag ber hún úr býtum um 18
þúsund krónur á mánuði. — Ég vil
taka fram að þetta er aðeins eitt
dæmi af fjölmörgum. Ég gæti til-
tekið mörg fleiri, og eftirtektar-
vert er að þeim hefur fjölgað mjög
á síðasta ári.“
Jóhanna sagði að Félagi ein-
stæðra foreldra hefði ekki borist
þessi skýrsla, en sér fyndist hálf-
kyndugt ef menn túlkuðu þessa
niðurstöðu sem einhverja þrumu
úr heiðskíru lofti, því þetta væri
það sem einstæðir foreldrar væru
búnir að vera að tjá sig um svo
mánuðum ef ekki árum skipti. Þá
sagði hún ekki einvörðungu um að
ræða óhóflegt vinnuálag, heldur
tækist mörgum hreint og beint
ekki, þrátt fyrir alla vinnuna, að
láta enda ná saman, og yrðu
margir að leita aðstoðar hjá hinu
opinbera, þó sárt væri.
Rennibekkir
Stæröir: 400 x 1500 mm.
G. Þorsteinsson & Johnson h.f.
Armúla 1. — Sími 8 55 33.
BBB. SMITH ■ CORONA
STÓRKOSTLEGAR SKRIFSTOFUVÉLAR
Það er hægt að fá helmingi dýrari, stærri og fyrirferðarmeiri
ritvél án þess að fá fullkomnari og traustari vél en
Smith—Coronamatie 8000.
Varðandi úrbætur sagði hún, að
auðvitað væri upphæð meðlags-
greiðslna til athugunar, og til um-
hugsunar, hvort hækka mætti þær
úr þeim 1.600 kr. á mánuði sem
þær nú væru í, án þess að með-
lagsgreiðendur kiknuðu undan því.
Varðandi umfjöllun um niðurfell-
ingu skatta bæri á það að líta að
fæstir þeir verst settu greiddu
skatta, laun þeirra væru það lág.
Jóhanna taldi sjálfgert að lagfæra
þetta að einhverju leyti með
barnabótum eða neikvæðum
sköttum.
"INJECTOMATIC" pappírsísetning
"PAPPÍRSHALDARI MEÐ JÖFNU ÁLAGI"
"VALSINN FJARLÆGÐUR MEÐ EINUM TAKKA"
"OFF/ON LJÓS"
"FULLKOMIN LÍNUSTILLING"
"FÆRRI HREYFIHLUTIR - MINNA VIÐHALD"
"TÖLVUHANNAÐIR LETURLYKLAR"
'LOKUÐ CORONAMATIC LETURBORÐASPÓLA"
RAÍ8SB
&SAMBANDSINS
VERÐ KR:
18.962,-
stgr.
ÁRMULA3 SIMAR 38900 -38903
OG KAUPFÉLÖGIN
ERTU AÐ BYGGJA - VILTU BREYTA - ÞARFTU AD BÆTA - ERTU AÐ BYGGJA - VILTU BREYTA -
Karlar skila lengri vinnudegi:
Laun kvenna 24%
undir landsmeðaltali
RÚMLEGA 57% þeirra sem störfuðu
13 vikur eða meira á árinu 1982 vóru
karlar en tæplega 43% konur, segir í
Enginn sátta-
fundur með BSRB
ENGINN sáttafundur hefur verið
boðaður í kjaradeilu Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja og er
málið í biðstöðu að sögn sátta-
semjara ríkisins.
fræðsluriti Framkvæmdastofnunar,
„Vinnumarkaðurinn 1982“.
Karlar skiluðu hinsvegar 62%
ársverka en konur 38%, sem sýnir
að hlutastörf eru mun algengari
hjá konum. Meðallaun karla, sem
skila hlutfallslega lengri vinnu-
degi, vóru tæplega 52% hærri en
kvenna. Meðallaun kvæntra karla
vóru 26% yfir landsmeðaltali en
ókvæntra 3,5%. Lítill munur var á
meðallaunum kvenna eftir hjú-
skaparstétt en þau vóru 24% und-
ir landsmeðaltali.
U!
m
O
<
D
t
oc
<
n
Ný glæsileg málningarvörudeild
m
-i
c
>
o
00
-<
O
o
KREDITKORT
Hrayfilshúsinu,
Grensásvegi 18.
Sími 82444.
AD BYGGJA - VILTU BREYTA - ÞARFTU AÐ BÆTA - ERTU AD BYGGJA - VILTU BREYTA -