Morgunblaðið - 07.02.1984, Blaðsíða 48
Svangir
rata *
ttrgtmfybtfrlfe
SIAÐFEST lANSTRAUST
ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Skotárás á 21 árs mann á Tálknafirði:
„Stökk bak við jeppa um
leið og skotið reið af ‘
TVKIK ölvaðir menn um tvítugt
með sitt hvora haglabyssuna skutu
sér leið inn í verbúð Hraðfrysti-
húss Tálknafjarðar f leit að ástr-
alskri eiginkonu annars um klukk-
an fimm að morgni sunnudagsins,
en þorrablót haföi verið haldið í
plássinu kvöldið áður. Níu manns
voru í verbúðinni þegar mennirnir
skutu sér leið inn. Mennirnir
skutu skömmu síðar að 21 árs
gömlum manni, sem hafði farið og
hringt á lögreglu. Hann náði að
stökkva bak við bifreið og lentu
höglin skammt frá manninum. Alls
hleyptu mennirnir tveimur skotum
af í verbúðinni, en enginn slasaðist
og verður það að teljast mikil
mildi.
„Ég varð dauðskelkaður þegar
ég sá byssuhlaupið í glugganum.
Stökk á bak við jeppa um leið og
skotið reið af og lentu höglin
skammt fyrir aftan jeppann,"
sagði maðurinn, sem skotið var á
í samtaii við Mbl. í gærkvöldi.
„Við vorum stödd í stofu í ver-
búðinni þegar við heyrðum skot-
hvell og litum fram á gang. Púð-
urreykur byrgði sýn að mestu.
Veggur gengt hurðinni var þak-
inn höglum, glerbrot voru á víð
og dreif og rúðan úr hurðinni. Þá
kom hendi í gegnum gluggann og
opnaði, en við lokuðum að okkur.
Við vorum sex í stofunni, þrjár
ástralskar stúlkur og þrír ís-
lendingar," sagði maðurinn.
„Við opnuðum þegar þeir
knúðu dyra. Gerðum okkur grein
fyrir hvers kyns var og ég faldi
eiginkonu annars mannsins á
bak við mig. Hún kúrði sig niður
í horni herbergisins. Þeir leituðu
um alla stofuna og miðuðu á
okkur byssunum. Þetta er ætlað
aðeins einni manneskju, sagði
eiginmaðurinn þegar hann mið-
aði á okkur og átti þá við að
hann hygðist skjóta eiginkonu
sína. Við vorum að sjálfsögðu
skelkuð en róleg engu að síður.
Það er óskiljanlegt að þeir skuli
ekki hafa komið auga á konuna
og ég beið tækifæris að koma
henni út,“ sagði Ríkharð Sig-
urðsson í samtali við Mbl.
„Ein ástralska stúlkan þreif
skyndilega haglabyssuna af fé-
laga eiginmannsins, en hún var
óhlaðin eftir skotið. Eiginmað-
urinn miðaði þá á hana og hótaði
að skjóta ef hún ekki léti byss-
una af hendi. Félagi okkar gekk
þá fram fyrir byssuhlaupið —
fram fyrir stúlkuna. Skotmaður-
inn hótaði honum, en stúlkan
kastaði byssunni út um glugga.
Skömmu síðar fóru þeir upp á
loft,“ sagði Ríkharð ennfremur.
Þegar skotmennirnir fundu
ekki eiginkonuna, fóru tveir upp.
Þriðji maðurinn hafði bæst í
hópinn, en var vopnlaus. Hinn
afvopnaði fór út og sótti byssu
sína. Þrjár ástralskar stúlkur
voru uppi og höfðu farið fram á
gang þegar þær heyrðu lætin
niðri. Mennirnir gerðu þeim ekki
mein, en skutu af efri hæðinni á
þann sem hafði farið og hringt á
lögreglu.
Skotmennirnir munu hafa
verið allt upp í hálftíma í ver-
búðinni. Þeir fóru síðan af vett-
vangi og skildu byssur sínar eft-
ir í íbúðarhúsi. Skömmu síðar
kom lögreglan á Patreksfirði á
vettvang. Skotmennirnir höfðu
þá farið í annað hús og voru
handteknir þar. Til handalög-
mála kom þegar átti að hand-
taka mennina og varð að setja þá
í járn og þeir fluttir til Patreks-
fjarðar.
Met Ioðnuveiði:
Aflaverðmætið
26 milljónir
SKIPTAVERÐIÐ á loðnuveiðunum
er núna um 1054 kr. á tonnið að því
er Ágúst Einarsson, fulltrúi hjá LIÚ,
tjáði Mbl., en það þýðir aö verömæti
laugardagsaflans, 25.000 tonn, sem
var metdagur á loðnunni frá upphafi,
er rúmar 26 milljónir.
Hér er miðað við að fituinnihald
loðnunnar sé um 10% eins og verið
hefur að undanförnu og þurrefnis-
innihaldið 16%. Með hverri vik-
unni sem líður minnkar hins vegar
fituinnihaldið um 1% og þegar
komið er að hrygningu er það orð-
ið lítið sem ekkert.
Sjá frekari loðnufréttir á bls.
30 og 32.
Launakönnun VSÍ:
4,1% tóku laun sam
kvæmt ákvæðum
um lágmarkslaun
Stórvirkar vinnuvélar og snjóblásarar vinna nú að hreinsun gatna í Reykjavík, enda fannfergið hið mesta í borginni
í áratugi. Þessi mynd var tekin í gærkvöldi þar sem unnið var að hreinsun Miklubrautar með blásara, en ætlunin var
að unnið yrði á vöktum á honum í alla nótt. Ljósm.: Kristján Einarsson.
Næstmesta snjó-
dýptin síðan
SNJÓDÝPT á þessum tíma í Reykjavík hefur samkvæmt upplýsingum Veð-
urstofunnar aðcins einu sinni verið meiri síðan 1921. í febrúarbyrjun 1952
mældist snjódýpt í borginni 48 sentimetrar eða það mesta síðan 1921, en á
sunnudag mældist hún 43 sentimetrar. Hreinsun gatna í borginn hefur því
bæði reynst tímafrek og dýr og að sögn gatnamálastjóra, Inga Ú. Magnús-
sonar, er ógerlegt að hreinsa gangstéttir eins og nú stendur á, en kostnaður
við moksturinn frá áramótum er talinn nema 12 til 15 milljónum króna.
Vinnuveitendasamband íslands
hefur látið gera launakönnun meðal
fyrirtækja, sem aðild eiga að VSÍ og
bárust fullnægjandi svör frá 454
fyrirtækjum. Starfsmenn fyrirtækj-
anna reyndust vera 19.284, en af
þeim voru 14.003 í fullu starfi.
Könnunin náði til 40% af heildar-
fjölda starfsmanna aðildarfyrirtækja
Enn hrynur úr
Steinafjalli:
Sum björg-
in á stærð
við hús
Holti, V ostur Kyjafjöllum, 6. febrúar.
MIKIÐ bjarghrun varð úr
Steinafjalli ofan Steinahellis á
mörkum Austur- og Vestur-Eyja-
fjalla klukkan rúmlega 23 síð-
astliðið laugardagskvöld. Skrið-
an nær yfir rúmlegan eins hekt-
ara svæði, en olli ekki tjóni nema
á raflínu. Sum björgin eru á
stærð við meðal hús.
Það var mikil mildi að
sumarbústaður, sem er þarna
rétt hjá, slapp og að hrunið
náði ekki niður á þjóðveginn.
Hins vegar skemmdist raflínan
og var því rafmagnslaust fram
eftir nóttu meðan viðgerðar-
menn bættu skemmdirnar.
Björg og aur dreifðust um
grónar brekkur niður undir
þjóðveginn og er þetta hrun
miklum mun meira en þegar
síðast hrundi úr Steinafjalli
fyrir þremur árum.
— Fréttaritari
VSÍ og kemur fram í niðurstöðum
könnunarinnar að 581 starfsmaður,
4,1% af heildarfjölda starfsmann-
anna, tók laun á tímabili því er
könnunin náði til, samkvæmt
ákvæði um lágmarkstekjur fyrir
fulla dagvinnu frá 1. október 1983.
Ákvæði þetta tekur til 10.961 krónu
á mánuði.
í könnuninni kemur m.a. fram
um launadreifingu, að á launabil-
inu 11 til 13 þúsund krónur voru
6,5% verkafólks, 15,9% iðnverka-
fólks og 0,2% iðnaðarmanna. Yfir
35 þúsund króna mánaðarlaunum
voru hins vegar 7,5% verkafólks,
2,8% iðnverkafólks og 26,9% iðn-
aðarmanna. Einnig kemur fram
að af heildarfjölda starfsmanna,
sem könnunin náði til, voru 5,1%
eða 717 manns, sem höfðu tekjur á
bilinu 11 til 13 þúsund krónur og
21,1% starfsfólksins hafði meiri
tekjur en 35 þúsund krónur á
mánuði.
I könnuninni var sérstaklega
spurt um það, hvort laun væru
frábrugðin því, sem venja væri til,
ýmist til hækkunar eða lækkunar.
Alls töldu 16,5% fyrirtækjanna
heildarlaun vera hærri en að jafn-
aði en 11% töldu heildarlaun hins
vegar vera lægri. Áberandi er að í
fyrrnefnda hópnum voru það eink-
um framleiðslufyrirtæki í iðnaði,
sem töldu heildarlaunagreiðslur
vera hærri en þá væntanlega
vegna meiri umsvifa. Hins vegar
voru þau fyrirtæki, er töldu launa-
greiðslur með minna móti einkum
í sjávarútvegi. í greinargerð VSÍ
segir að þessi niðurstaða hafi ekki
komið á óvart, sé litið til annarra
fyrirliggjandi upplýsinga.
Kynning Vinnuveitendasam-
bands íslands á þessari launa-
könnun er birt í heild á miðopnu
Morgunblaðsins í dag.
Ingi Ú. Magnússon sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að
snjómokstur hefði staðið linnu-
laust síðan klukkan fjögur á
mánudagsmorgun og hæfist að
nýju á sama tíma á morgun. Sagði
hann 35 ámoksturstæki og 15
vörubíla vera í notkun og störfuðu
um 100 manns við moksturinn.
Meðan þannig væri unnið við
moksturinn væri áætlað að sólar-
hringskostnaðurinn næmi einni
milljón króna og það sem af væri
árinu hefði verið kostað 12 til 15
milljónum til hans. Hins vegar
væru aðeins 20 milljónir króna
áætlaðar til snjómoksturs til
næstu áramóta svo útlitið væri
heldur dökkt. Aðspurður sagði
hann, að lækkun á taxta Véla-
miðstöðvarinnar hjálpaði eitthvað
í þessu dæmi, en það skipti þó ekki
verulegu máli. Auk þess væri
borgin með mörg tæki á leigu frá
öðrum aðilum.
Ingi Ú. Magnússon sagði enn-
fremur, að þegar kostnaður væri
orðinn svona mikill væri það alls-
endis ómögulegt að hreinsa
1921
gangstéttir. Því fylgdi svo gífur-
legur kostnaður að þurfa að moka
snjónum upp á vörubíla og aka
honum burt, að það væri hreinlega
ekki hægt. Því væri ekki um annað
að ræða en ryðja snjónum af göt-
unum upp á gangstéttirnar og við
það yrði að sitja.
Ingi sagði, að nú í morgun ættu
nær allar íbúðargötur auk um-
ferðargatna að vera orðnar þokka-
lega færar og búið að ryðja mið-
borgina og bílastæði við helstu
samkomustaði. Hins vegar ylli það
hreinsunarmönnum umtalsverð-
um vandræðum þar sem mörgum
smábílum væri lagt í þröngar göt-
ur. Hægt væri að flytja einn og
einn bíl, en væru þeir margir, yrði
fólk að taka sig saman og flytja
þá, svo hægt yrði að ryðja göturn-
ar betur.