Morgunblaðið - 04.03.1984, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 04.03.1984, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MARS 1984 35 þeir helltu niður í mótmælaskyni. Kappræðufundir og fyrirlestrar um hin marvíslegustu málefni voru stór liður á dagskrá „Starfs- daga“ og voru þeir vel sóttir. Síðar þennan sama dag komu rithöfund- arnir og skáldin Þórarinn Eldjárn, Steinunn Sigurðardóttir, Einar Kárason og Anton Helgi Jónsson, og lásu upp úr verkum sínum fyrir fullum sal. Fjölmargir aðrir fyrir- lestrar, kynningar og kappræðu- fundir voru haldnir þessa daga, sem of langt mál er að telja upp hér. Margt fleira er ónefnt, sem þessir „Starfsdagar" buðu upp á og má þar m.a. nefna „Lista- skemmuna", sem starfrækt var fyrir þá sem gengu með lista- manninn í maganum. Voru þeir ótrúlega margir og mátti sjá af- raksturinn uppi á veggjum „skemmunnar", en þar vakti einna mesta athygli samkeppni um bestu myndina af skólameistara. Starfsdaganefnd var skipuð tveimur kennurum, Helga Eiríks- syni og Þórunni Friðriksdóttur og fjórum úr hópi nemenda, þeim Agústi Ásgeirssyni, Eddu Rós Karlsdóttur, Erlendi Indriðasyni og Viktor Kjartanssyni. Þau voru öll sammála um, að þetta nýja fyrirkomulag „Starfsdaga" hefði tekist framar öllum vonum og voru mjög ánægð með fram- kvæmdina. Gamla fyrirkomulagið var gengið sér til húðar, sögðu þau, og nemendur voru farnir að líta á þetta sem eins konar frí og hefði þáttaka verið eftir því. Nú brá hins vegar svo við, að mæting var jafnvel betri en á venjulegum Áhugasamur lesandi „Gellis**. Kristinn Guðjónsson, annar af rit- stjórum „Gellis'* situr fyrir svörum í beinni útsendingu. Myndina tók Ijósmyndari skólablaðsins. Fyrsta daginn snaeddu menn kínverska rétti. (Gellismynd). Jón Böðvarsson skólameistari afhendir sigurvegaranum úr ræðukeppninni verðlaunin. Starfsdaganefnd ’84: Aftar eru kennararnir Helgi Eiríksson og Þórunn Frið- riksdóttir, en sitjandi frá vinstri eru fulltrúar nemenda, Ágúst Ásgeirsson, Kdda Rós Karlsdóttir, Erlendur Indriðason og Viktor Kjartansson. skóladögum og talaði það sínu máli um hvernig til hefði tekist. Um það leyti sem við vorum að búa okkur til brottfarar var að hefjast rallaksturskeppni kassa- bíla, sem hannaðir voru af nem- endum og gat þar að líta margan eigulegan farkostinn. Ekið var um fjögurra kílómetra leið um bæinn, með sérleiðum og tímastöðvum, eins og í alvöru rallkeppni, en því miður kunnum við ekki að segja frá úrslitum keppninnar. Þá um kvöldið var einnig fyrirhuguð skemmtun þar sem m.a. áttu að koma fram tvær hljómsveitir, önnur skipuð kennurum en hin nemendum og er ekki að efa, að þar hefur verið glatt á hjalla. Við látum hins vegar þessari umfjöll- un um Starfsdaga í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja lokið til að gefa myndunum hans Friðþjófs rúm. - Sv.G. Höfdar til „fólksíöllum starfce;reinum! Rangæingar - Rangæingar Árshátíö Rangæingafélagsins veröur haldin í Veitingahúsinu Ártúni laugardaginn 10. mars nk. og hefst hún meö boröhaldi kl. 19.00. Fjölbreytt skemmtidagskrá. Dansaö til kl. 2.00. Forsala aðgöngumiða veröur í Versluninni Elfur, Laugavegi 38, dagana 6. og 7. mars kl. 16—18. Rangæingafélagiö. vinum okkar upp á almenna gjaldeyrisþjónustu s.s.: • stofnun innlendra gjaldeyrisrelkninga • afgreiöslu feröamanna- og námsmannagjaldeyris • útgáfu Eurocard kreditkorta auk allrar almennrar bankaþjónustu. m ÆfWRZlUNRRBflNKINN Bankastræti og Húsi verslunarlnnar. Auglýsingastofa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.