Morgunblaðið - 08.04.1984, Page 1

Morgunblaðið - 08.04.1984, Page 1
96 SIÐUR 83. tbl. 71. árg. Noregur: Samningar á síðustu stundu Ósló, 7. aprfl. AF. í MORGUN tóksl aó koma í veg fyrir allsherjarverkfall 50.000 starfsmanna í norskum málmiðnaöi en þá féllust fulltrúar þeirra á mála- miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Gerir hún ráð fyrir 5,9% kauphækk- un á árinu. Samkomulagið, sem er talið vera stefnumarkandi fyrir ýmsar aðrar starfsstéttir, eins og t.d. verkafólk í vefjariðnaði og við framleiðslustörf, gerir eins og fyrr segir ráð fyrir 5,9% kauphækkun á árinu 1984 og að kaupmátturinn haldist óskertur. Það er þó undir því komið, að verðbólgan verði ekki meiri en 6,7% á árinu en stjórnvöld spá því, að verðlag muni hækka á þessum tíma um 6-6,5%. Verkamenn í málmiðnaði, 40.000 talsins, höfðu boðað verk- fall um helgina og höfðu vinnu- veitendur á móti hótað verkbanni á önnur 10.000. Ef til verkfallsins hefði komið hefði það verið fyrsta verkfall í þessari grein frá 1932. Kína — Víetnam: Barist á landa- mærum Peking, 7. aprfl. AP. ENN HEFUR ófriður blossað upp á landamærum Kína og Víetnam og Kínverjar sögðust í dag hafa svarað fallbyssuskothríð Víetnama á alls 20 stöðum og fellt marga víetnamska hermenn. Kínverska fréttastofan Xinhua greindi frá því, að víetnamskir fallbyssuliðar hefðu staðið í stór- ræðum á fimmtudag og föstudag, sent þá sprengjuregn yfir landa- mærin, einkum á óbreytta borg- ara. í dag hafi síðan verið svarað í sömu mynt og í Pekingsjónvarp- inu voru sýndar fréttamyndir þar sem kínverskir hermenn hlóðu fallbyssur og hleyptu af þeim. Sagði Xinhua að margar stöðvar Víetnama hefðu verið eyðilagðar og mannfall í þeirra röðum hefði verið mikið. Kína og Víetnam voru nánir bandamenn í Víetnamstríðinu á sínum tíma, en vináttuböndin rofnuðu er Víetnamar réðust inn í Kambódíu og ruddu rauðu khmer- unum frá völdum, en Kínverjar studdu stjórn þeirra. Ngyen Co Thach, utanríkisráðherra Víet- nam sagði í dag, að Kínverjar hefðu átt upptökin að landamæra- átökunum nú. Á hinn bóginn væru Víetnamar tilbúnir að horfa fram hjá því ef það gæti orðið til að slaka á spennunni. Sagði Thach að Kínverjar vildu með hernaði sín- um á landamærunum þvinga Hanoistjórnina til að hverfa burt frá Kambódíu. STOFNAÐ 1913 SUNNUDAGUR 8. APRIL 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ástandið er enn óljóst í Kamerún Ahidjan, FflabeinsNtröiidinni, 7. apríl. AP. BARIST VAR í dag í Yaounde, höfuðborg Kamerúns, og ríkir enn mikil óvissa i landinu eftir byltingartilraunina, sem þar var gerð í gær. Flugvellir eru allir lokaðir og engin fjarskipti eru við umheiminn. Beirút brennur enn og í gær var bar- ist þar af sömu heift og fyrr. AP Útvarpið í Yaounde hætti aftur útsendingum í morgun og þykir það benda til, að enn sjái ekki fyrir end- ann á átökunum milli hermanna, sem trúir eru forsetanum, Paul Biya, og hluta forsetalífvarðarins og e.t.v. annarra, sem gengið hafa til liðs við hann. Eru þeir síðar- nefndu múhameðstrúar og undir- rótin sögð togstreita milli þeirra og kristinna manna. í gærkvöldi var í útvarpinu skorað á fólk að halda sig heima meðan verið væri „að upp- ræta síðustu leifar andspyrnunnar“ en í dag mátti enn heyra, að barist var víða. Paul Biya, forseti, sem er krist- inn maður frá Suður-Kamerún, hef- ur sakað fyrrum forseta, Ahmadou Ahidjo, um samsæri gegn stjórn- inni og fyrir skömmu var Ahidjo dæmdur fjarstaddur til lífláts fyrir þær sakir. Biya mildaði dóminn síð- ar og breytti í fangelsisdóm. Ahidjo er múhameðstrúarmaður frá norð- urhluta tandsins og er haft eftir heimildum, að leiðtogi byltingar- manna sé þaðan einnig. Kamerún var áður þýskt vernd- arsvæði en eftir fyrri heimsstyrjöld tóku Bretar og Frakkar við stjórn- inni í landinu. Landið fékk sjálf- stæði árið 1960 og hefur velmegun alla tíð verið þar meiri en annars staðar í Vestur-Afríku. Þar er unn- in olía og þjóðin sjálfri sér næg um matvæli. Heftidarárásir Israela Palestínumanna á vígi Brirúl, 7. apríl. Al’. ÍSRAKLKKAR herþotur gcrðu í dag árásir á stöðvar Palestínuskæruliða í borginni Bhamdoun í Mið-Líbanon, í hefndarskyni fyrir árás hryðju- verkamanna á óbreytta borgara í Jerúsalem fyrir nokkrum dögum. Þetta var sjötta loftárás ísraela á Bhamdoun á þessu ári og sögðu þeir að sprengjur þeirra hefðu hitt í mark. Hvergi var getið um mannfall í árásunum, en ríkisútvarpið í Líban- on sagði að loftvarnarskothríð hefði hindrað þoturnar í því að hæfa skotmörk sín. Á hinn bóginn neitaði útvarpsstöð drúsa því ekki afdrátt- arlaust að árásirnar hefðu lukkast og er Bhamdoun þó á þeirra yfir- ráðasvæði. Þúsundir fjölskyldna hírðust í kjöllurum og sprengjubyrgjum síð- ustu nótt, er mesta sprengjuhríð í 11 daga gekk yfir Beirut, höfuðborg Líbanon. Stríðandi fylkingar létu sem vind um eyru þjóta tilmæli um vopnahlé og voru skotmörk valin af handahófi. Að minnsta kosti 7 manns létu lífið og 53 særðust. Ófriðlegt var einkanlega við „grænu Iínuna“ svokölluðu, sem greinir sundur íbúðarhverfi kristinna manna og múhameðstrúarmanna. Fulltrúar stríðandi fylkinga, sem setið hafa á fundum að undanförnu, hvöttu til vopnahlés, en kallinu var ekki sinnt, og efast menn enn meir fyrir vikið um burði þeirra til að koma á friði í Líbanon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.