Morgunblaðið - 08.04.1984, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 08.04.1984, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1984 Þorskurinn og sauðkindin hafa skipað verðugan sess í þingræðum sl. viku. „Kvótinn“ fékk margar maraþonræður sl. þriðjudag og fimmtudag, þó þing- bréf sniðgangi hann að þessu sinni. Sauðir þeir, sem etnir vóru í útlöndum, gengu og aftur í þingræðum. Verður lítillega um þann gang fjallað í dag sem og nýtt útvarpslagafrumvarp og rannsóknir á landgrunninu. „Sé ég eftir sauðunum sem koma af fjöllunum og etnir eru í útlöndum“ „Hefðbundnir atvinnuvegir, land- búnaður og sjávarútvegur, skarast hvarvetna. Sjávarplássin, staðsett hið næsta miðum, byggja mörg hver helft efnahagslegrar og atvinnuleg- rar tilvistar á nærliggjandi sveitum, úrvinnslu búvöru og iðnaðar- og verzlunarþjónustu. Landbúnaður er ekki einungis lifibrauð nokkurra þúsunda bændaheimila, heldur hrá- efnagjafi mikilvægs iðnaðar, kjöt- og mjólkuriðnaðar, ullar- og skinna- iðnaðar, að ógleymdum þjónustu- störfum, sem tengjast allri frum- framleiðslu. Það sýndi sig og í tveimur heimsstyrjöldum, skammt að baki, þegar samgöngur við um- heiminn vóru nær engar, að það cr grundvallaratriði fyrir þjóðina að vera sjálfri sér næg í matvælafram- leiðslu. Það veikir hinsvegar landbúnað- inn og skapar óþarfa tortryggni í hans garð, hve SÍS hefur einokað ýmsa framleiðslu- og söluþætti. Vinnslu- og sölutækni hefur ekki þróazt með eðlilegum hætti í mis- lukkuðu sölukerfi á umframfram- leiðslu kindakjöts í landinu." Þannig lauk leiðara Morgun- blaðsins sl. fimmtudag um efni sem setti svip sinn á þingstörf í vikunni sem leið. Breyttir tímar — óhæft sölukerfí Þjóðarsagan geymir mörg dæmi um mannfelli. Fólk flosnaði upp fyrr á tíð, fluttist tugþúsundum saman vest- ur um haf, lét jafnvel líf sitt við barm hungurvofunnar. Tækni hins frumstæða bænda- samfélags, sem mótaði mannlíf hér á landi fram yfir síðustu alda- mót, nægði á stundum ekki til að brauðfæða þjóðina í harðærum. Það var e.t.v. á slíkum tíma sem kveðið var: „Sé ég eftir sauðunum / sem að koma af fjöllunum / og etnir eru í útlöndum". Nú er öldin önnur. Umfram- framleiðsla kindakjöts og búvöru Utvarp og auðlindir hafsbotns er vandamál, sem oftlega kemur til umfjöllunar á Alþingi. Bændur hafa fækkað fé umtalsvert á liðn- um árum, til að draga úr kjöt- framleiðslu og laga að innlendri eftirspurn. Hinsvegar er óhjá- kvæmilegt að til falli umfram- framleiðsla í góðærum, ef full- nægja á eftirspurn í lélegri árum. Árferði ræður miklu um fram- gang sauðkindarinnar. Samkvæmt verzlunarskýrslum vóru flutt úr landi 2.585 tonn af frystu kinda- kjöti á sl. ári, og áætlaður útflutn- ingur í ár er liðlega 3.000 tonn. Söluverð þessarar umfram- framleiðslu er hinsvegar langt undir kostnaðarverði. Þannig vóru greiddar útflutningsbætur kr. 58,62 á hvert kíló dílkakjöts og kr. 38.00 á hvert kíló ærkjöts á sl. ári. Söluaðilinn, Búvörudeild SÍS, tek- ur hinsvegar 2% söluþóknun, ekki af raunverði, sem fyrir vöruna fæst erlendis, heldur af svokölluðu „reiknuðu heildsöluverði", sem spannar útflutningsbæturnar auk söluverðsins. Útflutningsbæturn- ar koma því ekki bændum til góða alfarið, heldur lenda að hluta til hjá SÍS. Ýmsir þingmenn gagnrýndu sölukerfi kindakjöts, sem SÍS sér að langstærstum hluta um. Gagn- rýnisatriði vóru m.a. þessi: • Slátur- og geymslukostnaður er óeðlilega hár. „Það er meiri gróða- vegur að geyma en selja kjöt,“ sagði einn þingmaðurinn. • Allt er gert til að verna einokun SÍS á kjötútflutningi, sagði annar. Ef nýir aðilar ná sölusamningum „gufar allt kjöt upp“, þó talað sé um kjötfjall í annan tíma. • Sölukerfi, sem ekki miðar sölu- þóknun við raunverð, verkar ekki hvetjandi til þess að ná hærra verði. Stefán Benediktsson (BJ) lagði sl. fimmtudag fram frum- varp til laga um breytingu á lög- um um Framleiðsluráð landbún- aðarins, verðskráningu, verðmiðl- un og sölu á landbúnaðarvörum, þessefnis, að „söluaðilum sé ekki heimilt að taka meira en 2% af söluverðmæti útfluttra landbún- aðarafurða í sölulaun". • Þetta kerfi er þrándur í götu eðlilegrar þróunar í vinnslu kjöts á erlendan markað. Ekki síður á sölutækni, sem nánast hefur stað- ið í stað í áratugi. íslenzkt dilka- kjöt er „villibráð", úrvalsvara, sem kynna á og selja sem slíka. Islenzkur landbúnaður á undir högg að sækja. Hann er oft rang- lega gagnrýndur. Enginn vafi er á því að tök SÍS á ýmsum landbún- aðarþáttum hafa skaðað þennan atvinnuveg í hugum fólks. Sölu- kerfi kjöts á erlendan markað þjónar hvorki hagsmunum bænda, sem framleiðenda, né almennings, sem útflutningsbæturnar eru sótt- ar til með skattheimtu. Utvarpsrekstur — frelsi og fjölbreytni Ragnhildur Helgadóttir, menntamálaráðherra, mælti í vik- unni fyrir nýju útvarpslagafrum- varpi. Sú grundvallarbreyting, sem frumvarpið felur í sér, er fólgin í því að fleirum en RÚV (ríkisútvarpi) verði veitt leyfi til reksturs útvarps, þ.e. hljóðvarps og sjónvarps. Ráðherrann greindi frá fjölmiðlaráðstefnu í Stokk- hólmi um sl. helgi, sem fjallaði um nýja tækni á þessum vettvangi, m.a. notkun gervihnatta. „Það sem einkenndi allt það, sem fram kom á þessari ráðstefnu," sagði ráð- herrann, „næstum að segja hverja skoðun sem menn höfðu á efnis- atriðum, var þetta, að tækni- þróunin gerði beinlínis óhjá- kvæmilegt að afnema einkarétt ríkisins á útvarpi og sjónvarpi...“ Það kom skýrt fram í máli ráð- herra að RÚV gegndi áfram sama hlutverki, að sjá um fjölbreytta dagskrá hljóðvarps og sjónvarps, er næði til landsmanna allra. Meg- inmálið væri hinsvegar að létta af algjörum einkarétti RÚV á þess- ari fjölmiðlun, þann veg að fólk nyti viðlíka frelsis og fjölbreytni um efni, sem flutt er á öldum ljósvakans, eins og er um fjöimiðl- un í formi prentaðs máls. Frumvarpið er flutt sem stjórn- arfrumvarp en þingmenn stjórn- arflokkanna hafa óbundnar hend- ur um afstöðu til þess, enda er málið ekki flokkspólitískt. Engu að síður — eða einmitt þess vegna — var fróðlegt og lærdómsríkt að heyra, hvern veg einstakir þing- menn tóku afstöðu í umræðunni. Tveir þingmenn Sjálfstæðis- flokks, Friðrik Sophusson og Guð- mundur H. Garðarsson, flytja breytingartillögur, sem marka af- dráttarlausari skref í frjálsræðis- átt en sjálft frumvarpið. Sama má segja um tvo þingmenn Bandalags jafnaðarmanna, Kristínu S. Kvar- an og Guðmund Einarsson. Ingvar Gíslason (F), fyrrv. menntamálaráðherra, kvaðst fylgjandi meginefni frumvarpsins (sem raunar er samið í hans ráð- herratíð). Það væri góður grund- völlur fyrir skynsamlega umræðu um útvarpsmál almennt. Ekkert væri rangt við það að takmarka einkarétt RÚV. Hinsvegar bæri að Lögreglan í Kedavík aðstoóar nemendur grunnskólans við að stöðva ökumenn sem spurðir voru hvert þeir væru að fara og hvaðan þeir kæmu. Morgunblaðid/ Arnór Keflavík — Njarðvík: Umferðarkönnun vegna vegar ofan byggðarinnar Garðí, 5. apríl. f DAG fór fram í Njarðvíkum á vegum Njarðvíkurbæjar og í samráði við Vegagerð ríksins könnun á umferð í gegnum bæinn. Er könnunin gerð til að reyna að átta sig á umferðarþunga á væntanlegum vegi sem áætlað cr að leggja ofan Njarðvíkur- og Keflavík- urbyggðar, en vegur þessi verður m.a. lagður í tengslum við nýja flugstöð á Keflavíkurflugvelli. Könnunin hófst kl. 7 um morgun- inn og stóð þá í tvo tíma. Síðan var byrjað aftur kl. 13.30—14.30 og milli klukkan 16.30 og 18.30 síðdegis. Á þessum tíma voru allir bílar stöðv- aðir og bílstjórar spurðir hvert þeir væru að fara og hvaðan þeir kæmu. Könnunina önnuðust nemendur í 9. bekk Grunnskóla Njarðvíkur og lögreglan í Keflavík, en yfirumsjón höfðu Magnús Guðmannsson, verk- fræðingur, fyrir hönd Njarðvíkur- bæjar og Gunnar Ingi Ragnarsson, verkfræðingur, en Gunnar hefur umferðarskipulagningu að sérgrein. — Arnór. OÐRUVISI Japanskt matarstell fyrir Bistro. Falleg 8 bolla kanna. Kaffibruggari. fallega fjóra. Hvítt postulín, Kaffiskeið og korkmotta lagað hitaþolið gler. prjónar fylgja. Verð kr. fylgja. Verð kr. 1.030.- Fylgihlutir úr rauðu 1.040.- plasti. Verð kr. 1.079.- Sendum í póstkröfu. a habitat Laugavegi 13, sími 25808.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.