Morgunblaðið - 08.04.1984, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1984
27
legur og fallegur, en járnið er
einnig ugglaust mjög skemmtilegt
að glíma við. Ég lærði svolítið
logsuðu í Iðnskólanum á sínum
tíma og við fengum að gera prufur
þar.
Jú, ég geri teikningar af öllum
verkunum. Ég byrja á því að
teikna, móta síðan oft eitthvað út
frá teikningunni, teikna aftur og
móta síðan og þannig gengur þetta
fyrir sig þangað til maður er kom-
inn á ákveðið stig og þarf bók-
staflega að fara frá teikningunni,
því teikning er eitt og mótun ann-
að. Ég móta mikið bein eins og þú
sérð, ég byrjaði eiginlega í þeim
efnum að móta brjóstkassann sem
búr, því sálin er lokuð inni í líkam-
anum á meðan hann lifir og þá
kom hugmyndin um frelsi sálar-
innar eftir dauðann og því setti ég
sálina í búr. Sál í líkama er eins og
fugl í búri. Spurningin er hvort við
getum verið frjáls, hvenær og
hvernig. Við leitum að freisi, reyn-
um að ríma við það, en auðvitað
takmarkast það alltaf af þeim
reglum sem við setjum sjálf, bæði
gagnvart okkur sjálfum og öðrum.
Þótt sum verkin virðist vera
svolítið svartsýn, túlka ég þau sem
bjartsýni, því mér finnst vanga-
veltan um lífið og tilveruna byggj-
ast á bjartsýni þótt dauðinn sé þar
inni í myndinni eins og í öllu sem
lifir. Ég vona að verk mín veki
hugsun um það að okkur beri að
fara vel með lífið, nýta lífið og
möguleika þess með tilliti til
þáttaskila sem geta orðið hvenær
sem er og enginn getur sagt fyrir.
Frá mínu sjónarhorni sýna verkin
þessa baráttu í lífinu, andstæð-
urnar, leitina í lífinu að föstu
formi og leitina að einhverju
óreglulegu sem er annars konar
frelsi.“
— á.j.
Stór fugl í búri. Þarna byggir Ragn-
hildur höggmyndina upp þannig að
sálin er eins og stór fugl í búri, fugl-
inn nær ekki að blaka vængjunum
vegna þess að búrið er of lítið, en
búrið byggir á formi brjóstkassans.
Ragnhildur við eina af höggmyndum sínum,
Ljósm. Mbl.: Ragnar Axelsson.
Mannfólkið, á spjalli um lífið og tilveruna.
Ummyndun, líkaminn að sameinast jörðinni og breytast í annað form.
Höggmyndin lengst til hægri sýnir túlkun listamannsins á sálinni í búri
(brjóstkassaforminu), í miðjunni er brjóstkassinn og lengst til vinstri er sálin
frjáls.
Samruni heitir þessi höggmynd, sem sýnir ummyndunina og á einnig að tákna baráttuna við höftin í lífinu, þar sem
reynir á þolrifin.