Morgunblaðið - 08.04.1984, Side 7

Morgunblaðið - 08.04.1984, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1984 7 HUGVEKJA eftir séra Guðmund óskar ólafsson Það má gjarnan kalla það eitt af vormerkjunum þegar dregur að fermingum. Þess sér reyndar stað fljótlega upp úr áramótum hvað í vændum er, þegar byrjað er að auglýsa í fjölmiðlunum, hvað muni nú hentast þetta árið að gefa unglingunum við tíma- mótin. í annan stað mun það gerast á mörgu heimili að tím- anlega sé farið að undirbúa á ýmsan hátt, ef ferma á að vori. Ýmsum finnst að tilstandið sé víða fullmikið og rétt mun það vera, jafnvel er gengið svo langt, að í einu dagblaðanna fyrir skömmu mátti sjá eftirfarandi setningu: „Stórar gjafir og veg- legar veislur eru haldnar en sjálft guðsorðið og tilgangur fermingarinnar gleymist eða er gefinn lítill gaumur." Ekki eru nú spöruð stóru orðin þarna, reyndar harla merkilegt hvað sumir eru fljótir að alhæfa og gera eitthvert orðspor eða eigin hugrenningar að altækum sann- indum. Víst eru umsvifin að ytra hætti of mikil vegna ferminga, a.m.k. sumstaðar, en hitt held ég að við ættum að athuga, að þessa gætir í flestum tilvikum þegar við gerum okkur dagamun eða viljum gera eitthvað myndarlega og þó að þetta gangi stundum úr hófi, þá held ég að það sé full mikið sagt að slíkt þurfi ævin- lega að skyggja allskostar á inn- tak þeirra atburða, sem verið er að fagna. En hverju fögnum við þegar fermt er? Er ekki megin- mál að það sé ljóst? Að áliti þeirra sem eru í forsvari af kirkjunnar hálfu, þá er verið að fagna því að söfnuðir hafa staðið við þær skuldbindingar að veita skírðum einstaklingum skírnar- fræðslu, það er tilsögn í grunn- sannindum kristinnar trúar og þeirri ábyrgð, réttindum og skyldum sem slíku fylgja. Lokið er einskonar áfanga í þeirri trú- arlegu uppbyggingu, sem uppal- endur, heima fyrir, ásamt skóla og kirkju hafa tekið að sér að miðla til þeirra, sem skírn hafa hlotið. Rétt er að undirstrika að hér er ekki um að ræða neins- konar valdboð eða ítroðslu, því að „kristið uppeldi sem vill vera sjálfu sér samkvæmt getur ekki falið í sér ytra valdboð eða þvingun til trúar og viðhorfa, heldur á það að vera uppeldi til sjálfstæðis, bæði að því er varð- ar athafnir og afstöðu." (Sig. Pálsson námsstj.) Þegar Jesús hafði kallað til sin lærisveina og sendi þá síðan út í heiminn með erindi sitt, þá sagði hann: Farið ... skírið ... og kennið þeim ..." Hvernig til tekst hjá okkur að fara eftir þessu og koma því til skila, það er þarflegt að skoða og blandast víst engum hugur um að mis- brestur er á að nógu vel fari, hvort heldur við lítum til heimil- anna, skólans eða kirkjunnar sem stofnunar. Mér er það mæta vel ljóst hverju sinni, þegar dregur að fermingu að unga fólkið margt, sem ég hefi fengið að umgangast, það er ekki með öll sannindi „upp á vasann“ og mér er það líka sárlega ljóst að of fáir ástvinir þess hafa gefið sér jafn góðan tíma á mánuðun- um fyrir fermingu til að taka þátt í fræðslunni og helgihaldi með börnum sínum, eins og þeir sýnast gera, þegar að athöfninni sjálfri kemur og tilhaldinu og með slíkri vanrækslu eru ástvin- ir í rauninni að grafa undan því að fræðslan sé tekin alvarlega, því þegar fordæmið og áhugann vantar heima, þá er ekki von til mikils árangurs. En þrátt fyrir þetta, þessa vanrækslu okkar Ferming allra, þá held ég að býsna margt sitji eftir í huga og hjörtum ungmenna frá undirbúnings- skeiði, hvað sem sagt er, þegar annað þykir henta betur í frétt- um. Það ætti að vera flestum ljóst að fermingarathöfn er engin töfraathöfn eða stórmerki sem líklegt er til að valda straum- hvörfum, heldur veltur á mestu hvernig hlúð er að þeim vísi til trúarþekkingar og tilbeiðslu, sem reynt var að sá til á meðan á fermingarundirbúningi stóð, en því skyldi heldur ekki gleymt að sérhvert vers, sem barni er kennt við stokkinn og hvert for- dæmi til fylgdar við vilja Guðs, sem ástvinir hafa fyrir barni sínu, allt er það einnig þáttur í fermingarundirbúningi. Víst vitum við, sem árin höf- um nokkuð mörg að baki, við er- um orðin það veðruð að gera okkur grein fyrir því, að ekki er allt varðandi lífsgæfuna heim- anfengið úr höndum okkar fyrir börnin okkar. Við getum bent, stutt og leitt, en það er máttur meiri en við ráðum yfir, sem spinnur örlagaþræði í stundir og daga, sem við taka hjá unga fólkinu. En það getur enginn tekið frá okkur að sá þeim fræ- kornum og kenna þeim að líta í þá átt, sem við treystum stað- fastlega að geti gefið þeim styrkleika og traustan búnað í lífsnestið. Og þó að kirkjan með sína fermingu sé ekki nokkur trygging fyrir áfallalausri ferð, þá trúi ég að ennþá lifi sú trú með flestum í þessu landi, að við getum ekkert gefið börnum okk- ar betra til vegvísunar og lífs- heilla en fylgdina við Jesúm Krist. Það var eitt af ferming- arbörnum ársins, sem skrifaði í smáritgerð þessi orð: „Ég hef lært um Jesú í vetur og skilið hvað Guð er góður, en ég get alls ekki skilið af hverju fólk hlustar ekki betur á hann og tekur meira mark á honum." Já, það þarf ekki háan aldur til þess að greina það að veröldin gæti verið öðruvísi og betri, ef Drottinn þætti marktækari til áhrifa. Og við sem erum fullorðin megum trúlega stundum bera kinnroða frammi fyrir börnum okkar fyrir að kenna þeim og vísa veg, sem við göngum of sjaldan sjálf. Það er áreiðanlega ósk okkar allra á þessu vori sem endranær að unga fólkið, sem um þessar mundir leitar blessunar við ölt- uru kirknanna, að það taki okkur fram, hvað varðar trúfesti við Jesúm Krist og boðskap Hans, að það taki meira mark á Hon- um en okkur hefur auðnast og vinni með því að því, að skapa nokkru hlýrri heim og betri er stundir líða. Og þó að ferming- arbörnin hafi sum takmarkaða kunnáttu í fræðunum eins og við mörg hver, sem stærri erum, þá er gott að minnast þess að þau eru ekki að lúta fylgd við þann leiðtoga, sem þykir vænt um þau í samræmi við kunnáttu og próf og ytri eiginleika, heldur helgar þau öll með elsku sinni og varð- veislu hvernig sem þau eru búin til farar fyrir augum manna. Hvítu kyrtlarnir minna ekki á að börnin séu allsendis flekklaus, heldur að Guð einn hafi ráð á þeim lit altærum, sem geti gert þeim bjart fyrir augum í lífinu. Já, nú er að koma vor og ekki langt í vornálina og ylinn. Og það er elskulegt að hugsa til þess á sinn hátt fyrir ástvini unga fólksins, sem nú er að fermast, að það er að ganga út í vorið í tvennum skilningi, bæði út í blíðu komandi árstíðar og einnig út í vordaga æskunnar. Og ég er viss um að öllum sem þykir vænt um þau bregður ekki svo mjög þó að dálítið umstang sé í kringum fermingardaginn, á meðan sú vonin vakir að sitthvað frá at- höfn og undirbúningi muni leiða til þeirrar sumarhugsunar og björtu gleði, sem trúartraustið á Guði getur fært þeim í hjarta- stað. Jesús sagði: Fylgið mér — ég er vegurinn — ég er lífið sjálft. Og það er Hann sem lyftir höndum og blessar þau börn sem krjúpa við altari kirkju Hans og biðja handleiðslu Hans. Megi Guð gefa að unga fólkið leggi lófa í Hans helgu, traustu hönd og bindi trúnað við Hann. Við eigum ekki völ á að benda til farsælli fylgdar þeim sem okkur er annast um og enginn annar hefur efni á að segja: „Ég mun vera með ykkur allt til enda ver- aldar." 1 Wterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamióill! Píanó — Flyglar Steinway & Sons Grotrian — Steinweg Ibach Pálmar ísólfsson & Pálsson. Pósthólf 136, Reykjavík, símar 30392, 15601, 30257. DSTOÐ VERÐBRÉFA- IDSKIPTANNÞ, Sparifjáreigandi! Hefur þú íhugaö sparnaðarkostina sem eru á markaöinum í dag? Raunávöxtun m/v mismunandi verðbólguforsendur: Árs- Ávöxtun Verð- trygg- ing Veröbólga 12% 15% 20% Verðtr. veðskuldabr. 9,87 Já 9,87 9,87 9,87 Eldri spariskírt. Mism. Já 5,30 5,30 5,30 Happdr.skuldabr. 5,50 Já 5,50 5,50 5,50 Ný spariskírt. 5,08 Já 5,08 5,08 5,08 Gengistr. sparisk. 9,00 ? ? ? ? Ríkisvíxlar 25,72 Nei 12,25 9,32 4,77 Alm. sparisj.reikn. 15,00 Nei 2,68 o -4,17 Sparisj.reikn. 3 mán. 17,70 Nei 5,09 2,35 -1,92 Sparisj.reikn. 12 mán. 19,90 Nei 7,05 4,26 -0,08 Landsb. sparisk. 6 mán. 22,1 Nei 9,01 6,17 1,75 Vegna aukinnar eftirspurnar óskum viö eftir eftirtöldum verðbréfum á söluskrá: □ Eldri spariskírteini ríkissjóös □ Happdrættisskuldabréf ríkissjóðs □ Ríkisvíxlar □ Óverötryggö veöskuldabréf, 18—20% □ Óverðtryggð veðskuldabréf, hæstu leyfil. vextir □ Verðtryggð veðskuldabréf, 2—5 ár EIGENDUR SPARISKSRTEINA RÍKISSJÓÐS ATHUGIÐ! Innlausnardagur flokka 1977-1 og 1978-1 er 25. marz. Þessir flokkar bera 3,7% vexti umfram verðtryggingu á ári. Nú eru á boöstólum spariskírteini sem bera 5,3% vexti umfram verðtryggingu á ári fram að hagstæöasta innlausnardegi. Kynnið ykkur ávöxtunarkjörin á markaðnum í dag. Starfsfólk Verðbréfamarkaðar Fjárfestingarfélags- ins er ávallt reiöubúið að aðstoða við val á hag- kvæmustu fjárfestingu eftir óskum og þörfum hvers og eins. SÖLUGENGIVERÐBRÉFA 9. apríl 1984 Spariskírteini og happdrættislán ríkissjóða Ár-flokkur Sölugengi pr. kr. 100 Ávöxtun- arkrafa Dagafjöldi til innl.d. 1970-2 17.415,64 Innlv. í Seðlab 5.02.84 ' 1971-1 15.303,83 5,30% 1 ár 156 d. 1972-1 13.821,74 5,30% 1 ár 286 d. 1972-2 11.384,26 5,30% 2 ár 156 d. 1973-1 8.656,61 5,30% 3 ár 156 d. 1973-2 8.232,90 5,30% 3 ár 286 d. 1974-1 5.435,99 5,30% 4 ár 156 d. 1975-1 4.002,39 Innlv. í Seðlab. 10.01.84 1975-2 3.021,25 Inntv. i Seölab. 25.01.84 1976-1 2.877,97 Innlv. i Seðlab. 10.03.84 1976-2 2.273,74 Innlv. í Seðlab. 25.01.84 1977-1 2.122,16 Innlv. í Seðlab. 25.03.84 1977-2 1.763,04 5,30% 151 d 1978-1 1.438,89 Innh/. í Seðlab. 25.03.84 1978-2 1.126,32 5,30% 151 d. 1979-1 951,45 Innlv. i Seölab. 25.02.84 1979-2 732.69 5,30% 156 d. 1980-1 620,52 5,30% 1 ár 6 d. 1980-2 477,03 5,30% 1 ár 196 d. 1981-1 408,28 5,30% 1 ár 286 d. 1981-2 302,07 5,30% 2 ár 186 d. 1982-1 284,33 5,30% 322 d. 1982-2 210.67 5,30% 1 ár 172 d. 1983-1 162,41 5,30% 1 ár 322 d. 1983-2 104,57 5,30% 2 ár 202 d. 1974-D 5,319.50 Innlv. í S< sölab. 20.03.84 1974-E 3.658,17 5,50% 232 d. 1974-F 3.658.17 5,50% 232 d. 1975-G 2.382,58 5,50% 1 ár 232 d. 1976-H 2.219,50 5,50% 1 ár 351 <j. 1976-1 1.720,67 5,50% 2 ár 231 d. 1977-J 1.562,59 5,50% 2 ár 352 d. 1981-1. fl. 324,80 5,50% 2 ár 22 d. Veðskuldabréf — verðtryggð Sölugengi m.v. 2 afb. á ári Nafnvextir (HLV) Ávöxtun umfram verötr 1 ár 95,69 214% 8,75% 2 ár 92.30 Z'4% 8,88% 3 ár 91,66 314% 9,00% 4 ár 89,36 3%% 9.12% 5 ár 88,22 4% 9,25% 6 ár 86.17 4% 9.37% 7 ár 84.15 4% 9.50% 8 ár 82,18 4% 9,62% 9 ár 80,24 4% 9,75% 10 ár 78,37 4% 9,87% 11 ár 76,51 4% 10,00% 12 ár 74,75 4% 10,12% 13 ár 73,00 4% 10,25% 14 ár 71,33 4% 10,37% 15 ár 69,72 4% 10,49% 16 ár 68,12 4% 10,62% 17 ár 66,61 4% 10,74% 18 ár 65,12 4% 10.87% 19 ár 63,71 4% 10,99% ‘20 ár 62,31 4% 11,12% Veðskuldabréf óveri tryg gð Sölug.m/v 1 afb á ári 14% 16% 18% 20% (HTvT 21% 1 ár 87 88 90 91 92 2 ár 74 76 78 80 81 3 ár 63 65 67 69 70 4 ár 55 57 59 62 63 5 ár 49 51 54 56 57 Hlutabréf Verzlunarbanki íslands Kauptilboö óskast. hf. Daglegur gengisútreikningur Verðbréfamarkaöur Fjárfestingarfélagsins Lækjargötu12 101 Reykjavik lönaóarbankahúsinu Simi 28566

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.