Morgunblaðið - 08.04.1984, Page 36

Morgunblaðið - 08.04.1984, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1984 Á flota- og heræfingum NATQ: RÁÐIST INN í NORÐUR-NOREG egar Bretar náðu Falklandseyjum af Argentínumönnum fluttu þeir land- gönguliðana jafnt með herskipum og ferjum sem þeir tóku leigunámi. í hinum miklu flota- og heraefingum NATO í Norður-Noregi nú í mars voru fjórar ferjur notaðar til að flytja hluta þeirra 11.600 landgönguliða (marines), sem gerðu strandhögg skammt fyrir sunnan Tromsö. Bárust þær fréttir um sóknarflotann að á ferjunum væru konur við þjónustustörf og fæðið eins og á fyrsta farrými, meira að segja kavíar í forrétt, sem hermennirnir hefðu hafnað af því að þeir héldu að þeir væru að fá maura! Blaðamönnum var nú í fyrsta sinn boðið að vera með sóknarflotanum síðasta spöl hans frá Þrándheimi til áfangastaðar í Malangenfirði og Ballsfirði skammt frá herbækistöðvum Norð- manna við Bardufoss, en þar hafa Norðmenn fjölmennustu herfylki sín í nágrenni sovésku landamæranna sem þó eru í meira en 500 km fjarlægð. Vorum við fjórar nætur með flotanum og bjuggum um borð í bandaríska landgöngu- skipinu Saipan. Alls voru 17 blaðamenn í hópn- um og var ætlunin að okkur yrði skipt niður á landgönguliðasveitir og við fylgdumst með þeim fyrsta sólarhringinn í landi. Því miður heppn- aðist sú ráðagerð ekki að fullu, vegna veðurs og tæknilegra atriða. Sjö okkar sem áttu að fara í land með breskum og hollenskum sveitum kom- ust aldrei til þeirra. Á kortinu er sýnt hvernig heraflanum var skip- að við landgöngu og til varnar umhverfis flug- völlinn í Bardufoss sem landgönguliðarnir áttu að ná á sitt vald. & ÁRÁSARLIÐ A‘VflRNflRLIí) Iœ ÍOOOMENN M 1000 MEHN ■ LANDGÖNfiU- ▼ 5TALIR. , CVARNAR- LÍNA i 5ÓKNARLE1ÐIR <9forJmtnnJ C?\ STORTYLKI15 jj <=HRA&UP(L) \ STORFYLKI N 6.®herdeild eftir Björn Bjarnason 2. GREIN Fljótandi þorp Hlutverk Saipan er að flytja landgönguiiða hvert sem er í ver- öldinni og koma þeim í iand með þyrlum, landgönguprömmum eða bryndrekum sem eru jafnvígir á sjó og landi. Þilfarið er fiugvöllur 250 m langur og 43 m breiður, þar sem bæði þyrlur og þotur sem lenda og fara á loft lóðrétt geta athafnað sig. Skutur skipsins er opnanlegur og unnt að láta sjó flæða inn í hann en þaðan sigla þá landgönguprammar (mest 7 eftir gerð þeirra). Hver prammi hefur eigin áhöfn sem býr um borð í honum og hugsar um hann eins og „sitt“ skip. Saipan er 40.000 lestir. f áhöfninni eru 60 foringjar og 837 sjóliðar en alls er þar rými fyrir 172 landgönguforingja og 1.730 óbreytta hermenn eða samtals 2.799 menn um borð. Alls rúmast 35 þyrlur í skipinu og 200 farar- tæki önnur, bryndrekar, fiutn- ingabílar, fallbyssur, skriðdrekar, jeppar, jarðýtur o.fl., o.fl. Vélar- aflið er 70.000 hestöfl og nær skip- ið yfir 20 hnúta hraða. Banda- ríkjamenn eiga fimm svona skip og tóku tvö þeirra þátt í þessari æfingu, Saipan og Nassau. Um borð er sjúkrahús með fjór- um aðgerðarstofum, 20 rúma gjör- gæsludeild og sjúkrarúmum fyrir 300 manns. Unnt er að elda 8.000 máltíðir daglega. Skipið er búið eigin sjónvarpsstöð, þar sem sýnd- ar eru kvikmyndir, fræðslu- og skemmtiþættir auk frétta. Skóli er starfræktur um borð og þar eru verslanir auk pósthúss og þvotta- húss. Skipið er vopnað eldflaugum til varnar gegn flugvélum, sex 20 mm fallbyssum og þremur 54 kal- ibrabyssum. Á friðartímum eru skip af þessu tagi send á vettvang til neyðar- hjálpar svo sem vegna náttúru- hamfara. Það vakti undrun okkar blaða- mannanna að við gátum ekki sent fréttir frá þessu fljótandi þorpi og greinilegt var að fjarskipti vegna okkar nutu ekki forgangs í stjórn- stöð þess. Hvað sem því leið fór vel um okkur þarna, ekki var unnt að kvarta undan fæðinu og á kvöldin horfðum við á kvikmyndir í for- ingjamessanum. Landgönguliðarnir Herafla er almennt skipt í þrjár greinar: flugher, flota og landher. Að sjálfsögðu var flugherinn ekki til fyrr en nú á þessari öld og lík- lega líður ekki á löngu þar til geimher kemur til sögunnar. Hins vegar gerðist það 28. október 1664 að Karl II Bretakongunur skipaði svo fyrir að 1.200 „Land Souldjer" skyldi dreift á skip í flota hans hátignar. Til þessara fyrirmæla má rekja sögu landgönguliðanna. Þeir eru landhermenn sem sendir voru til sjós og verða að vera undir það búnir að berjast hvar sem skipin koma að landi. Nú á tímum nota landgönguliðar einnig flug- vélar. Á ensku eru landgönguliðar kallaðir „marines" sem í ensk- íslenskri orðabók Sigurðar Arnar Bogasonar er þýtt þannig: „hópur hermanna til þjónustu á sjó“, kom bókin þó út 1952 eftir að land- gönguliðar höfðu getið sér gott orð í síðari heimsstyrjöldinni, ekki síst hinir bandarísku á Kyrrahafi. Breskir landgönguliðar (40 for- ingjar og 775 óbreyttir liðsmenn), hernámu ísland 10. maí 1940 og sumarið 1941 komu hingað banda- rískir landgönguliðar til að leysa Bretana af, en bandaríska sveitin var síðan send héðan til að herja á Japani í Kyrrahafi. Það orð fer af landgönguliðum að þeir séu mestu harðjaxlarnir í hópi hermanna og láti ekkert aftra sér. Bandaríkjamenn eiga fjölmenn- ustu landgönguliðasveitirnar, US Marines, en í þeim eru tæplega 200 þúsund manns. í bresku sveitun- um, Royal Marines, eru alls tæp- lega 8.000 manns og Hollendingar eiga 2.800 landgönguliða. Bretar og Hollendingar æfa saman og bresk skip flytja Hollendingana. Sovétmenn hafa verið að þjálfa hermenn til strandhöggs á nálæg- um og fjarlægum ströndum og nú er talið að um 15.000 menn séu í sovéskum landgöngusveitum. Mestu sovésku æfingarnar til þessa voru í Eystrasalti fyrir rúm- um tveimur árum. Eins og málum er háttað er ekki talið að Sovét- menn ráði yfir nægu afli á þessu sviði til þess að senda landgöngu- liða til dæmis til Islands. Öðru máli gegnir um Norður-Noreg og lönd nær Sovétríkjunum en fsland og víst er að Sovétmenn hafa ekki lagt hendur í skaut á þessu sviði. Sú regla hefur skapast að fjórða hvert ár er efnt til landgönguæf- inga í Norður-Noregi með skipum ‘ - “ " • t • lálH iH l u undir yfirstjórn Atlantshafsher- stjórnar NÁTO og liðsafla frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Hollandi. Þar að auki æfir hraðlið Evrópuherstjórnar NATO í Norður-Noregi annað hvert ár. Nú í mars féllu þessar æfingar saman í fyrsta sinn. í sameiginlegu varnarkerfi NATO líta bresku landgöngulið- arnir á sig sem sérsveitir Atl- antshafsherstjórnarinnar er senda megi hvert sem er en gegni þó lykilhlutverki við varnir Norður-Noregs og eyjanna á Atl- antshafi og í því samhengi nefndi talsmaður bresku sveitanna í Nor- egi sérstaklega portúgölsku eyj- arnar Madeira og Azor og Ber- muda-eyjar við strönd Bandaríkj- anna. Ég spurði um ísland. Kom í ljós að Royal Marines líta ekki á fsland í þessu samhengi. Var helst að skilja að ástæðan fyrir því væri söguleg, Bretar telji að þeir yrðu ekki vel séðir á íslandi vegna þess að þeir hernámu landið á sínum tíma. Á árunum 1968 og 1969 efndu breskir landgönguliðar til heræfinga hér á landi meðal ann- ars í Þjórsárdal, en síðan ekki sög- una meir. í raun hafa landgöngu- liðar aldrei æft sig hér á landi eins og þeir gera í Norður-Noregi og hvarvetna annars staðar þar sem þess mætti vænta að þeirra yrði þörf. Eftir því sem ég kemst næst eru pólitískar ástæður fyrir því að ísland hefur orðið útundan að þessu leyti fremur en hernaðar- legar. Bandarískir landgönguliðar hafa það sérstaka hlutverk um heim allan að gæta öryggis í bandarískum flotastöðvum og í sendiráðum Bandaríkjanna. Þeir starfa því við Laufásveg hér í Reykjavík og rúmlega 100 eru á Keflavíkurflugvelli. Varnir gegn vetrarhörkum Bandarískir landgönguliðar eru ekki vanir heimskautaloftslagi að vetri til. Um borð í Saipan var lagt ofurkapp á að búa hermennina undir landgönguna í Noreg og vistina í snævi þökktu fjalllend- inu. Sumir Bandaríkjamannanna höfðu aldrei séð snjó og aldrei þurft að klæða af sér kulda eða vinna við byssur og brynvarin far- artæki í frosthörkum. í sjónvarps- kerfi Saipan voru hvað eftir annað sýndar fræðslumyndir um það hvernig menn ættu að haga sér í snjó og kulda, forðast vosbúð og koma sér fyrir í tjöldum að næt- urlagi. Sérfræðingur í þessum efn- um flutti erindi um þau yfir okkur blaðamönnunum, svo við færum okkur ekki heldur að voða. Nokkur hluti Bandaríkjamannanna hafði verið í tæpar tvær vikur í vetrar- hörkum í Minnesota til að búa sig undir dvölina í Noregi og hópur hafði einnig verið sendur til snævi þakinna fjalla í Kaliforníu. Þá var okkur sagt að á leiðinni yfir Atl- antshaf hefðu landgönguliðarnir horft á víedó-myndir í 17 klukku- tíma um varnir gegn snjó og kulda. 1 sjúkrahúsi Saipan höfðu læknar verið þjálfaðir til að hjúkra þeim sem ekki þyldu kuld- ann. Bresku og hollensku landgöngu- liðarnir eru tvímælalaust betur undir það búnir en Bandaríkja-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.