Morgunblaðið - 08.04.1984, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1984
39
Gunnur Júlíus-
dóttir —
Fædd 27. febrúar 1927.
Dáin 19. mar.s 1984.
Mér hitnaði um hjartaræturnar
þegar ég frétti lát vinkonu minnar
Gunnar Júlíusdóttur. Ekki óraði
mig fyrir því í sumar þegar ég
naut gestrisni hennar, glaðværðar
og góðvildar á heimili hennar og
eiginmanns hennar, Árna Stef-
ánssonar, að ég ætti ekki eftir að
sjá hana aftur hérna megin graf-
ar. En svona er nú stundum lífið,
óútreiknanlegt og misvindasamt.
Hér rættist enn sem oftar, að það
að heilsa og kveðja er og verður
alltaf lífsins saga.
Gunnur var fædd á Sólheimum
á Svalbarðsströnd hinn 27. febrú-
ar 1927. Hún ólst upp hjá foreldr-
um sínum í stórum systkinahópi.
Snemma komu í ljós þau skap-
gerðareinkenni sem æ síðan settu
mark sitt á hana og störf hennar,
hin hljóðláta alvara, hlýhugur og
umhyggja fyrir öllu því sem bágt
átti og minna mátti sín.
Gunnur Júlíusdóttir var skaprík
kona þótt hún færi vel með það og
sagði alltaf meiningu sína ákveðin
og hispurslaus, enda þótt allt fas
hennar einkenndist af hljóðlátri
hógværð. Hún var glöð í góðum
vinahópi og á ég margar góðar
minningar frá ánægjulegum sam-
verustundum með henni og henn-
Minning
ar fólki bæði í Hólkoti og síðar á
Fjólugötu 8 og nú síðast Grænu-
götu 12 á Akureyri. Fyrir þær er
ég innilega þakklátur, svo og öll
mín kynni af Gunni.
Leiðir okkar Gunnar lágu sam-
an eftir að hún giftist vini mínum
og félaga, Árna Stefánssyni frá
Hólkoti í Hörgárdal, síðar bifreið-
arstjóra á Akureyri. Það var alltaf
ánægjuefni að sækja þau hjónin
heim og njóta samvistanna við
þau á hinu hlýlega og myndarlega
heimili þeirra, þar sem alúð og
traust vináttan, hjartahlýjan og
einlægnin ríkti í fyrirrúmi.
Þau hjónin, Gunnur og Árni,
eignuðust tvo syni, Stefán Jóhann,
sem nú er forstjóri á vörubílastöð-
inni Stefni á Ákureyri, og Gunn-
laug, bifreiðarstjóra á Akureyri.
Áður hafði Gunnur eignast dreng,
Júlíus Kristjánsson, sem nú er
stýrimaður á Rauðanúpi. Öll voru
þau tengd saman traustum fjöl-
skylduböndum og studdu hvert
annað með ráðum og dáð gegnum
brim og boða sem mættu þeim á
lífsleiðinni. Og þegar barnabörnin
komu til sögunnar áttu þau alltaf
athvarf og skjól hjá henni Gunni
ömmu sinni og voru mjög hænd að
henni. Þau sakna nú góðrar
ömmu.
Já, við erum mörg sem söknum
Gunnar Júlíusdóttur. Ég kveð
+
Útför eiginmanns míns og fööur,
BJÖRNS ÓLAFSSONAR,
fyrrverandi konsertmeistara,
veröur gerö frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 10. apríl kl. 13.30.
Kolbrún Jónasdóttir,
Þorbjörg Björnsdóttir.
/
t
Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför móður
okkar, tengdamóöur og ömmu,
RÓSAMUNDU JÓNSDÓTTUR,
fyrrverandi Ijósmóður
fró Bakka, Dýrafirði,
Börn, tengdasynir og barnabörn.
Þökkum + innilega auösýnda samúö viö andlát og útför móöur
okkar. ÖNNU JÓNSDÓTTUR,
Eskihlíö 16 A.
Þóra Guöjónsdóttir, Björn Á. Guöjónsson,
Guömundur Guöjónsson.
+
Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jaröarför
GUÐFINNU H. STEINDÓRSDÓTTUR,
Maríubakka 30.
Steindór V. Sigurjónsson, Áslaug Magnúsdóttir,
Guömundur Sigurjónsson, Ragnhildur Jóhannsdóttir,
Valgeröur Sigurjónsdóttir, Erlingur Friörikason,
Guöfinna Sigurjónsdóttir.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960
hana með söknuði og þökk. Sama
gerir fjölskylda mín.
Aðstandendum Gunnar sendum
við samúðarkveðjur og biðjum al-
góðan guð að styrkja þau öll og
blessa um ógenginn æviveg.
Veri Gunnur sæl og blessuð og
hafi hún þökk fyrir allt. Minning-
in um góða, glaðværa og hjarta-
hlýja konu vermir okkur, vinum
hennar, sem eftir sitjum hérna
megin grafar. Guð blessi hana um
eilífð alla.
Stefán Trjámann Tryggvason
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför
bróöur okkar, tengdafööur og afa,
SIGUROAR SIGFINNSSONAR
fró Noröfiröi.
Sérstakar þakkir til hjúkrunar- og starfsfólks Hrafnistu, Hafnar-
firöi, fyrir góöa umönnun.
Jóhanna Sigfinnadóttir,
Sigurbjörg Sigfinnsdóttir,
Guóný Valtýsdóttir, Paul R. Smith,
Valgerður Eiríksdóttir,
Þóra Eiríksdóttir.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför
sonar míns, fööur okkar, stjúpfööur, tengdafööur og afa,
SIGURÐAR FINNBOGA ÞORSTEINSSONAR,
Strandgötu 17 A,
Patreksfiröi.
Þorsteinn Ólafsson,
Þorsteinn Sigurösson,
Unnur Sigurðardóttir,
Theodór R. Theodórsson,
Sjöfn Theodórsdóttir,
Erling Theodórsson,
Kristbjörn H. Eydal,
Óli Rafn Sigurösson,
Steindór Ögmundsson,
Hermina Halldórsdóttir,
Bruce Brown,
Lolla Hjólmtýsdóttir,
Eyrún Guömundsdóttir
og barnabörn.
RDAM
etta glæsilega sumartilboð
Arnarflugs gefur þér
tækifæri til að kynnast tveimur
stórkostlegum heimsborgum
fyrir ámóta verð og venjulega
kostar að heimsækja eina.
Þetta eru ekki galdrar. Þú flýgur með Arnarflugi frá Keflavík
til Schiphol-flugvallar í Hollandi og þaðan áfram með Air
France t:il Parísar - og sömu leið heim aftur^
M ræður fengd ferðarinnar sjálfur
(hámark 30 dagar) og einnig hvort þú
staldrar við í Amsterdam fyrir
Parísardvölina eða á eftir. I
báöum borgunum er dvalið á góðu
hóteli með morgunverði. Hafðu
samband við næstu ferðaskrif-
stofu eða söluskrifstofur Arnar-'
flugs.
Yerð nðeins 16.175
miðað við gistingu í 2 manna herbergi í viku
Flugfélag með ferskan blæ
^fARNARFLUG
Lágmúla 7, slmi 84477
♦miðað við gengi 23.3. 84.
HÓFUÐBORGIR
EVRÓPU ÍEINNIFERÐ