Morgunblaðið - 08.04.1984, Síða 44
44
MORG.UNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1984
IJE ItlMI KVIKHVNPANNA
HVERJIR
HREPPA HNOSSIÐ?
Þrjár af ástiedunum fyrir því að Terms of Endearment hlaut flestar tilnefn-
ingar í ár, 11 talsins — þau Shirley MacLaine, Debra Winger og Jack
Nicholson.
Oscarsverð-
launin ’84 verða
afhent á mánu-
dagskvöldið
Kitt er nokkuð oruggt, ad þrátt
fyrir margvíslegar breytingar vestur
í Ilollywood frá ári til árs, þá verður
alltaf sami spenningurinn og húll-
umhæið í kringum eftirsóttustu
verðlaun kvikmyndaheimsins —
Óskarinn. Nú er þessi eftirsótti karl
— sem ku vera röskt fet á hæð, losa
4 kfló, með 14 karata gullhúð —
kominn vel á sextugsaldurinn án
sýnilegra ellimarka.
Verðlaunin verða afhent í 56.
skipti með tilheyrandi pomp og
pragt í Los Angeles Music Center
að kvöldi 9. þessa mánaðar.
Að venju kom ýmislegt á óvart
er væntanlegir verðlaunahafar
voru tilnefndir, en þeir eru fimm í
hverju flokki, svo eftirvæntingin
er ekki minni í ár en endranær.
Athygli vakti sá mikli fjöldi til-
nefninga sem myndir hlutu er
kostuðu „lítið" í framleiðslu, en þá
eru Bandaríkjamenn að tala um
„litlar" 120—150 milljónir króna!
Sú sem sat uppi með hvað sárast
ennið var Barbra Streisand, en
flestir spáðu því að mynd hennar,
Yentl, yrði tilnefnd til allra helstu
verðlaunanna og hún sem leik-
stjóri og leikari, en ekkert varð af
þeim draumum. Þá tóku margir til
þess að Eric Roberts var ekki til-
nefndur fyrir góðan leik sinn sem
eiginmaður Dorothy Stratten í
Star 80, og svo mætti lengi telja.
Sú mynd sem margir spá að
hirði flest meginverðlaunin í ár er
Terms of Endearment. Hún hlaut
flestar tilnefningar í ár, eða alls
ellefu talsins. Þetta er tragikóm-
ísk mynd sem fjallar um samband
móður og dóttur. Þá er breska
myndin The Dresser tilnefnd sem
besta mynd ársins. Hún segir af
aldurhnignum, enskum stórleik-
ara og manninum sem séð hefur
um líf hans að tjaldabaki í gegn-
um árin. Þeir félagar eru leiknir
af Albert Finney og Tom Courtn-
ey, sem báðir hlutu tilnefningu
ásamt leikstjóra myndarinnar,
Peter Yates, en sú tilnefning kom
fyrir brjóstið á mörgum.
í kapphlaupinu um óskarinn
fyrir bestu mynd ársins er gam-
anmyndin The Big Chill sem fjall-
ar um endurfundi vina frá há-
skólaárunum, viðhorf þeirra til
dauðans og fullorðinsáranna. The
Right Stuff, sem er saga fyrstu sjö
geimfara Bandaríkjanna og hins
þjóðsagnakennda þjálfara þeirra.
Fimmta myndin sem hlaut til-
nefningu í ár er svo Tender
Mercies, sem fjallar á hljóðlegan
hátt um endurreisn country-
western-söngvara.
Bretar eiga fjóra þeirra leikara
sem tilnefndir eru fyrir bestan
leik í aðalhlutverki og er það eng-
in nýlunda. Áður hefur verið
minnst á Finney og Courtney, en
auk þeirra koma við sögu Michael
Caine fyrir túlkun sína á út-
brunnu skáldi og kaldhæðnum
kennara í Educating Rita og Tom
Conti sem annað útbrunnið skáld
og kvennamaður í sveitahéruðum
Connecticut í Reuben, Reuben.
Eini Bandaríkjamaðurinn í úrvali
leikranna er Robert Duvall í hlut-
verki drykkjusjúks kántrísöngv-
ara sem finnur frið og ró í örmum
góðrar sveitakonu í Tender
Mercies. Conti er sá eini þeirra
sem ekki hefur hlotið tilnefningu
áður. Courtney var tilnefndur sem
besti leikari í aukahlutverki í
Doctor Zhivago. Hinir eru öllu
sigldari. Caine var tilnefndur fyrir
leik sinn í Alfie og Sleuth, Finney
fyrir Tom Jones og The Murder on
the Orient Express en Duvall
hlaut sínar fyrir The Great Sant-
ini, The Godfather og Apocalypse
Now.
Leikkonan sem gekk út með
Óskarinn fyrir bestan leik í aðal-
hlutverki í fyrra, Meryl Streep, er
enn í sviðsljósinu, í þetta skipti
sem hin nafntogaða iðnverkakona
Silkwood, sem hlaut geislun við
störf í kjarnorkuveri og fannst
myrt um það leyti sem hún ætlaði
að hefja mál á hendur verinu.
Myndin er að sjálfsögðu Silkwood,
en það kom mjög á óvart að hún
var ekki tilnefnd sem ein besta
mynd ársins.
Val Julie Waters, hárgreiðslu-
konunnar sem leggur út á náms-
brautina í Educating Rita, kom á
óvart, (einkum þar sem að Streis-
and var skilin eftir í skugganum),
en sama verður ekki sagt um þær
Shirley MacLaine og Debru Wing-
er í hlutverkum hinnar ómögulegu
móður og langþjáðu dóttur í
Terms of Endearment. Jane Alex-
ander hlaut sín fyrir annars konar
móðurhlutverk, en hún má horfa á
börn sín farast í kjarnorkuspreng-
ingu í Testament.
Streep hlaut Óskarsverðlaunin í
fyrra fyrir Sophie’s Choise og 1979
fyrir bestan leik í aukahlutverki í
Kramer vs Kramer. Að auki var
Streep tilnefnd fyrir The French
Lautinant’s Woman og The Deer
Hunter. Ef Streep vinnur í ár
verður hún þriðja leikkonan til að
vinna Óskarsverðlaunin tvö ár í
röð, skipar sér á bekk með Kath-
arine Hepburn og Luise Rainer.
Jane Alexander hefur hlotið til-
nefningar áður fyrir The Great
White Hope, All The President’s
Men og Kramer vs Kramer.
Winger var tilnefnd í fyrra fyrir
An Officer and a Gentleman, en
MacLaine hefur áður hlotið fjórar
tilnefningar, fyrir Some Came
Running, The Apartment, Irma la
Douce og The Turning Point.
Tilnefningar bestu leikstjóra í
ár ollu einnig miklum heilabrot-
um. Tveir þeirra sem nokkrum
dögum fyrr hlutu tilnefningu
Samtaka kvikmyndaleikstjóra
(Directors Guild of America),
Lawrence Kasdan fyrir The Big
Chill og Philip Kaufman fyrir The
Right Stuff, gleymdust. Þeir sem
hlutu náð fyrir augum Akademí-
unnar í ár voru Yates fyrir The
Dresser, Mike Nichols fyrir Silk-
wood, Nýliðinn James Brooks
fyrir Terms of Endearment, Ástr-
alinn kunni, Bruce Beresford,
fyrir Tender Mercies og Ingmar
Bergman fyrir Fanny and Alex-
ander. Þeir þrír síðastnefndu
hlutu tilnefningu bæði Samtaka
leikstjóra og Akademíunnar.
Nichols hlaut verðlaunin árið
1%7 fyrir The Graduate, en var
tilnefndur árið áður fyrir Who is
Afraid of Virginia Wofd?
Bergman hlýtur einnig þriðju til-
nefninguna í ár eftir Cries and
Whispers 1973 og Face to Face
1976. Hvorki Beresford né Brooks
hafa hlotið tilnefningu fyrr og ef
Brooks vinnur verður hann fjórði
ieikstjórinn sem fær Óskarinn
fyrir sína fyrstu mynd. Hinir eru
Delbert Mann fyrir Marty, Jerome
Robbins fyrir Wesí Side Story og
Robert Redford fyrir Ordinary
People.
Nú hef ég gert örlitla grein fyrir
þeim útnefndu í meginflokkunum
— mönnum og myndum. Ég læt
fylgja að lokum upptalningu á öll-
um tilnefningum í helstu flokkun-
um. Svo læt ég fljóta með ágiskun
á líklegustu sigurvegarana —
mest í blindni — rétt til gamans:
Besta myndin: Terms of Edear-
ment. Besti leikstjórinn: James
Brooks. Besti karlleikari í aðal-
hlutverki: Robert Duvall. Besta
leikkonan í aðalhlutverki: Shirley
MacLaine. Besti leikari í auka-
hlutverki: Jack Nicholson. Besta
erlenda mynd ársins: Fanny and
Alexander.
S.V.
RIGHT
STUFF
SILKWOOD
C-«K> -W««r'tTM CiNTc^r »OI
THE
BIG CHILL
THE DRESSER
f
kFwhy&
Q Ape;
q
IMQMAR
.Berqmati
Mynd ársins: Terms of Kndearment,
Tender Mercies, The Right Stuff, The
Dresser, Thc Big Chill.
Besta erlenda mynd ársins:' Carmen
(Spánn), Entre Nous (Frakkland), Fanny
& Alexander (Svíþjóð), Job’s Revolt (Ung-
verjaland), Le Bal (Alsír).
Besti leikstjórinn: Peter Yates/The
Dresser, Ingmar Bergman/Fanny & Al-
exander, Mikc Nichols/Silkwood, Bruce
Beresford/Tender Mercies, Jamen L.
Brooks/Terms of Endearment.
Besti leikari (aðalhlutverk):
Michael Caine í Educating Rita. Tom
Conti í Reuben, Reuben. Tom Courtney í
The Dresser. Robert Duvali I Tender
Mercies. Albcrt Finney í The Dresser.
Bcsta leikkona (í aðalhlut-
verki): Jane Alexander í Testament.
Shirley MacLaine í Terms of Endearment.
Meryl Streep í Silkwood. Julie Walters í
Educating Rita Debra Winger í Terms of
Endcarment.
Besti leikari í aukahlutverki:
Charles Durning í To Be Or Not To Be.
John Lithgow í Terms of Endearment.
Jack Nicholson í Terms of Endearment.
Sam Shepard í The Right Stuff. Rip Torn í
Cross Creek.
Besta leikkona í aukahlutverki:
(!her í Silkwood. Glenn Close í The Big
Chill. Linda Hunt í The Year of Living
Dangerously. Amy Irving í Yentl. Alfred
Woodard í Cross Creek.
Bcsta irumsamda handritið:
Laurcnce Kasdan, Barbara Benedik, The
Big Chill, Ingmar Bergman, Fanny & Al-
exander. Nora Ephron, Alice Arlen, Silk-
wood. Ilorton Foote, Tender Mercies. Law-
rence Lasker, Walter F. Parkes, War Gam-
es.
Besta handritið byggí á áður
birtu efni: Harold Pinter, Betrayal.
Ronald Harwood. The Dresser. Willy Russ
el, Educating Rita. Julius J. Epstein, Reu-
ben, Reuben. James L. Brooks, Terms of
Endearment.
Besta kvikmyndataka: Sven Ny-
kvist, Fanny & Alexander. Don Peterman,
Flashdance. Caleb Deschanel, The Right
Stuff. William A. Fraker, War Games.
Gordon Willis, Zelig.
Besta klipping: Frank Morris, Edward
Abroms, Blue Thunder. Bud Smith, Walt
Mulconery, Flashdance. Glenn Farr, Lisa
Fruchtmann, Stephen A. Rotter, Douglas
Steward, Tom Rolf, The Right Stuff. Sam
O’Steen, Silkwood. Richard Marks. Terms
of Endearment.
Besta frumsamda tónlistin: Leon
ard Rosenman, Cross Creek. Johi? Willi
ams, Return of the Jedi. Bil! Conti, The
Right Stuff. Michaeií Gore, Terms of
Endearment. Jerry Goldsmith, Under Fire.
Bestu búningar: Joe I. Tompkins,
Cross Creek. Marik Vos, Fanny & Alex-
ander. Willian Ware Theiss, Heart Like a
Wheel. Anne-Marie Marchand, The Return
of Martin Guerre. Santo Loquasto, Zelig.
(Heimildir: The New York Times. Variety).