Morgunblaðið - 08.04.1984, Síða 46

Morgunblaðið - 08.04.1984, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1984 Punktar frá Finnlandi: BaðstoAikröId og byggingar aflokkunum á hönd. Hins vegar væri allt í vitleysu þegar þessar tvær stúlkur væru veikar og því væri mönnum misjafnlega mikið áhugaefni að þær héldu góðri heilsu, eða eftir því hvar þeir væru staddir í pólitíkinni. I Helsinki hefur verið farið með okkur vítt og breitt um bæ- inn. Við vorum dagstund í þing- húsinu þar sem virðist vera ögn rýmra um þingmenn en í okkar Alþingishúsi. Þar eru gríðar- stórar vistarverur fyrir allar hugsanlegar nefndir og þing- flokksfundi og síðan tylltum við okkur ásamt ellilffeyrisþegum llelsinki. 5. apríl. Frá Jóhönnu Kristjóns- dóttur. blaóam. Mbl. VH) HÖFUM nú verið hér fjórir íslenskir blaðamenn síðan á sunnudagskvöldið síðasta í boði finnska utanríkisráðuneytisins og okkur hefur verið hampað og hoss- að og við höfum vissulega fengið góða hugmynd um orðlagða finnska gestrisni. Einn af þessum dögum var farið til Turku sem er þriðja stærsta borgin og lengi höfuð- borg Finnlands. Þangað mun forseti íslands einnig koma í heimsókn sinni og við skoðuðum bæði Dómkirkjuna og höllina í bænum sem eru bersýnilega stolt Turku. Höllin var að nokkru reist á þrettándu öld en síðan hafa hvað eftir annað komið upp eldsvoðar þar og því byggt við og breytt og endur- byggt og það hefur að leik- mannsdómi ekki allt tekist svo að fulls samræmis gæti. Dóm- kirkjan hefur einnig orðið fyrir barðinu á eldi og það er raunar furðulegt að heyra hvað eldsvoð- ar hafa oft og einatt leikið þessa borg grátt. Eftir einn slíkan, sem lagði nánast alla borgina í rúst á síðustu öld, var miðbær hennar endurskipulagður og gerð ný áætlun um byggingar- svæðið sem borgin hefur yfir að ráða. Jarðvegurinn er ekki traustur og því setur það stækk- un borgarinnar vissulega nokkr- ar skorður. Við hittum borgarstjórann i Turku, Veino Linna, geðugan og elskulegan mann sem gaf okkur undurfallega bók um staðinn, lýsti fögnuði sínum með vænt- anlega heimsókn forsetans og lét sýna okkur skemmtilega kvik- Úr Musteriskirkjunni í Helsinki. mynd um Turku. Hins vegar varð hann dulítið dapur í bragði þegar við spurðum hann um pólitíska skiptingu innan bæjar- stjórnarinnar. Það hefði nú farið svo í síðustu bæjarstjórnarkosn- ingum að sósíaldemókratar og kommúnistar hefðu fengið tveggja manna meirihluta. Síðan hefðu tvær stúlkur úr hópi sósí- aldemókrata farið að endur- skoða hug sinn og gengið borgar- og grunnskólanemendum á þing- bekk og fylgdumst stutta stund með stjórnarandstöðuþingmanni ræða skattamál og virtust aðeins áheyrendur hlýða á mál hans, þingmennirnir spjölluðu hins vegar saman, gengu fram og aft- ur eða blöðuðu í skjölum. Við fórum einnig út á Hanaholmen sem er þekkt sænskt-finnskt menningarsetur og margir ís- lendingar kannast án efa við, en þar var Ann Sandelin einn helst- ur ráðamaður áður en hún tók við stjórn Norræna hússins og menn huga gott til að fá hana aftur til starfa svo og Borgar Garðarsson leikara sem virðist mjög vel metinn leikari hér í landi. Hanaholmurinn var í vetrarbúningi þegar við komum þangað en á sumrin mætti segja mér að þar væri afar fagurt um að litast. Vingjarnleg stúlka, Anna Stína, fylgdi okkur um húsið og sýndi okkur myndarleg fundaherbergi, prýðilega að- stöðu fyrir gesti sem búa þar meðan ráðstefnur eru haldnar og við litum inn í bókaherbergi miðstöðvarinnar og var sagt að þar væri að finna fáeinar ís- lenskar bækur eftir Halldór Laxness. Einn morguninn þegar við vorum að leggja af stað frá bú- stað okkar, Hótel Marski, var snjór og óvenjulega mikil hálka á gangstéttum. Þá tókst ekki betur til en svo að einn úr hópn- um, Guðmundur Árni frá Al- þýðublaðinu, hrasaði og bár fyrir sig höndina og þóttist hafa vel sloppið og kvartaði í engu. Síðan héldum við glaðbeitt á fund Koivisto forseta eins og þegar hefur verið sagt frá, áttum hjá honum kurteisa stund og síð- an var farið til að hlusta á hina ýmsu ágætu menn sem sögðu okkur bæði frá innan- og utan- ríkismálum. Eftir því sem á dag- inn leið versnaði þó ástandið á fingri alþýðublaðsmannsins, en hann lét sig hafa það þó höndin væri þrýst margsinnis. Við sáum þó að við svo búið mátti ekki lengur standa og þegar læknir skoðaði hann seint um eftir- miðdaginn kom í ljós að hann hafði tvíbrotnað á fingri og varð nú að setja gips um fingurinn. Þetta þótti bæði okkur og finnskum fylgdarmönnum okkar meiri hreysti en aðrir hefðu sýnt. Koivisto forseti er ákaflega vinsæll maður hér og hefur þó ekki verið auðvelt að fara í föt Kekkonens fyrrverandi forseta sem menn dá og virða. Kannski skýringin á vinsældum Koivisto WedgwoocT Höfum nú á boðstólum eitt vinsælasta kafflstell úr beinpostulíni „Bone China“ frá Wedgwood, Gold Chelsea. Hvítt með gylltri rönd. Einnig fáanlegt al- hvítt. Eigum stórkostlegt úrval af glæsilegum gjafavörum. Postulínsrósirnar frá Aynsley og postulínsegg. Til- valdar gjafir um páskana og sumardaginn fyrsta. KeRöal Hverfisgötu 105, sími 26360. Naeg bílastæði að baki hússins, innkeyrsla frá Snorrabraut. Tilboð óskast Tilboð óskast Tilboð óskast í Chervolet Blazer S-10 (Tahoe) árgerð 1983, Ford Bronco árgerð 1983, Mercury Zehyr árgerð 1982, Chevrolet Camaro Rally Sport árgerð 1981, Chevrolet Monza árgerð 1980, AMC Jeep CJ-7 árgerö 1976, auk fleiri bifreiða. Bifreiðirnar verða á útboði þriðjudaginn 10. apríl nk. í bifreiðasal Sölu varnar- liðseigna, Grensásvegi 9, kl. 12—15. Síðasta bifreiðaútboð fyrir páska. Sala varnarliðseigna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.