Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 22. MAl 1984
25
Gústav Baldvinsson:
„Ótrúlega
lélegt
hjá okkur“
Akureyri, 20. maí. Frá Aöalstaini Sigur-
geirssyni, fréttamanni Morgunblaðsins.
„ÞETTA VAR ótrúlega lélegt hjá
okkur. Viö vorum yfirgengilega
stressaöir og Þórsarar voru ein-
faldlega miklu betri í þessum
leik,“ sagöi Gústav Baldvinsson
þjólfari KA eftir leikinn.
„Ég vona bara að þetta fari upp
á við hjá okkur. Við komumst ekki
neðar. Ég verö að segja að mér
finnst dómarar hér á landi vera
orðnir allt of spjaldaglaöir og
finnst að þeir ættu aö hugsa um að
loka vasanum betur,“ sagði
Gústav.
Nói rekinn af velli:
„Sparkaói
í liggjandi
mann“
Akureyri, 20. mai. Frá Aðalsteini
Sigurgeirssyni, fréttamanni Morgunblaös-
ins.
„NÓI SPARKAOI í liggjandi mann
og þess vegna rak óg hann útaf.
En Mark klemmdi fætur hans að
vísu áöur þannig aö Nói hafði
ekki komist í burtu, og fyrir þaö
fékk hann gult spjald," sagöi
Friðgeir Hallgrímsson, dómari,
aöspurður um ástæður þess að
hann rak Nóa Björnsson af velíi.
Mark Duffield KA-maöur fékk
gult spjald er Nói fékk það rauða.
Friögeir sagði aö leikurinn heföi
veriö auödæmdur og prúðman-
lega leikinn.
Nói var aö vonum niðurdreginn
eftir leikinn. „Mark klemmdi á mér
fæturna þannig að ég komst ekki
burtu og ég hef sennilega stigið á
hann eöa danglaö í hann." sagöi
Nói.
• Halldór Áskelsson, Þórsari, sækir aö Erlingi Kristjánssyni, miðveröi KA, í leiknum á sunnudag.
Morgunblaöiö/Guömundur.
Áhorfendur og markaskorarar
ÚRSLIT leikja í V-Þýskalandi. Marka-
skorarar og áhorfendafjöldínn á leikj-
unum:
Werder Bremen — VFB Stuttgart 1—2
(0-0)
Mörkin: 0—1 Ásgeir Sigurvinsson
(62.), 1—1 Benno Moehlmann (72.),
1—2 Hermann Ohlicher (83.). Áhorf.
38.500.
Hamburger SV — Eintracht Frankfurt
0—2 (0—1)
Mörkin: 0—1 Ralf Falkenmayer (9.),
0—2 Falkenmayer (90., vítaspyrna).
Áhorf. 35.000.
Borussia Dortmund — Bayern MUnch-
en 1—1 (0—0)
Mörkin: 0—1 Norbert Nachtweih (55.),
1—1 Erdal Keser (78.). Áhorf. 50.000.
Bayer Uerdingen — 1. FC Köln 4—6
(0-3)
Mörkin: 0—1 Lefkes (6.), 0—2 Klaus
Allofs (15.), 0—3 Allofs (39.), 1—3
Helmut Gulich (46.), 2—3 Horst Feilzer
(55.), 2—4 Pierre Littbarski (67.), 3—4
Sascha' Jusufi (70.), 3—5 Littbarski
(72.), 3—6 Allofs (85), 4—6 Gulich (87).
Áhorf. 11.000.
Bayer Leverkusen — Borussia Mönch-
engladbach 1—2 (0—1)
Mörkin: 0—1 Wilfreid Hannes (30.),
1—1 Kai-Erik Herlovsen (75., sjálfs-
mark), 1—2 Lothar Mattheus (85).
Áhorf. 15.000.
Arminia Bielfeld — VFL Bochum 2—1
(0-0)
Mörkin: 1—0 Gregor Grillemeier (53.
vítaspyrna), 2—0 Detlef Schnier (77.,
vítaspyrna), 2—1 Stefan Pater (78.).
Áhorf. 7.000.
Fortuna DUsseldorf — SV Waldhof
Mannheim 1—2 (1—0)
Mörkin: 1—0 Gerd Zewe (32. víta-
spyrna), 1—1 Dieter Schlindwein
(58.), 1—2 Rainer Scholz (86.). Áhorf.
6.000.
Frankfurt Soccer Lead — 3.
1. FC Kaiserslautern — 1. FC NUrn-
berg 4—2 (2—1)
Mörkin: 1—0 HUbner (23.), 1—1 Dieter
Trunk (31.), 2—1 Andreas Brehme
(40.), 3—1 Wolfgang Wolf (54.), 3—2
Manfred BurgsmUller (55.), 4—2
HUbner (57.). Áhorf. 10.435.
Kickers Offenbach — Eintracht
Braunschweig 1—2 (0—1).
Mörkin: 0—1 Jaroslav Studzizba (33.1
1—1 Trapp (51.), 1—2 Peter Lux (5€ .
vítaspyrna). Áhorf. 2.000.
„Áttum að skora fleiri mörk“
- sagði Þorsteinn Ólafsson þjálfari Þórs eftir sigurinn á KA
- Fyrirliði Þórs rekinn af velli
Akureyri, 20. mai. Fré Aðalstaini Sigurgeiraayni, fréttamanni Morgunblaðeins.
„ÉG ER MJÖG ánægöur með sigurinn en viö eigum þó aö geta leikiö
betur en viö geröum í dag. Þaö er alltaf erfitt aö spila í svona roki en
okkur tókst þó sæmilega að framkvæma þaö sem við höfum verið aö
æfa aö undanförnu og vörnin var góö. Við áttum aö skora fleiri mörk
og Óli Þór átti að gera út um leikinn í byrjun seinni hálfleiks," sagði
Þorsteinn Ólafsson, þjálfari Þórs á Akureyri, eftir aö liö hans haföi
sigrað erkifjendurna, KA, 2:1 í 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Sigur
Þórs var sanngjarn og heföi getað oröið enn stærri. Liöiö baröist mjög
vel, fékk betri marktækifæri og sýndi góða knattspyrnu á köflum.
KA-liöiö var óvenju dapurt, sérstaklega í fyrri hálfleik og alla baráttu
vantaöi. Þórsarar uröu fyrir því áfalli að fyrirliöi þeirra, Nói Björnsson,
var rekinn af velli í seinni hálfleik fyrir að sparka í mótherja.
Þórsarar léku undan töluveröum
norðanstrekkingi í fyrri hálfleiknum
og byrjuðu leikinn af miklum krafti.
Kristján Kristjánsson, sem í fyrra
lék með Völsungi, átti gott skot frá
vítateigslínu strax á fyrstu mínút-
unum en Þorvaldur Jónsson,
markvörður KA, varöi mjög vel.
Tveimur mín. síöar fékk Þór
hornspyrnu sem Bjarni Svein-
björnsson tók. Hann lyfti knettin-
um vel upp í vindinn og stefndi
knötturinn upp í horniö fjær en aft-
ur varði Þorvaldur mjög vel í horn.
Áfram sóttu Þórsarar og mark lá
í loftinu. Á 13. mín. kom svo mark.
Bjarni tók þá aukaspyrnu út viö
hliðarlínu á móts við vítateigshorn-
ið — gaf háan bolta inn í teiginn
þar sem Guðjón Guðmundsson
skallaöi fallega í markiö. Þórsarar
héldu áfram að sækja eftir markið
og skoruöu aftur á 33. mín. Halldór
Áskelsson sendi þá á Kristján
Kristjánsson sem var á vítateigs-
línu. Kristján sneri sér við, lék til
hliðar og skaut svo með vinstri
fæti í bláhorniö niöri. Óverjandi
fyrir Þorvald.
Þegar fimm mín. voru eftir af
fyrri hálfleik náði KA góöri sókn,
Steingrímur Birgisson óö upp með
boltann og átti gott skot af vítateig
sem Páll Guölaugsson varði vel í
horn.
Leikurinn jafnaöist nokkuö í
KA:Þór
1:2
seinni hálfleik er KA lék undan
vindinum, en þaö var engu að síð-
ur Þór sem fékk besta færi leiksins
snemma eftir hlé. Óli Þór fékk
boltann innfyrir vörn KA við miðlin-
una og enginn varnarmanna var
nálægt honum er hann óö upp
völlinn. Við vítapunkt skaut Óli en
Þorvaldur kom út á móti og varði.
Af honum skaust boltinn út á völl-
inn þar sem Nói Björnsson, fyrirliöi
Þórs, náði honum og skaut yfir. Er
hálftími var til leiksloka var Nói svo
rekinn af velli eins og annars stað-
ur kemur fram. Eftir það efldust
KA-menn og fóru aö berjast meira.
Þeir áttu nokkur skot að marki en
þau geiguöu öll.
Fimm mín. fyrir leikslok kom svo
eina mark KA. Liðið fékk innkast
við hornfánann, boltinn barst inn í
markteiginn þar sem Hinrik Þór-
hallsson, sem skömmu áöur hafði
komið inn á sem varamaöur, skor-
aði. Hann tók knöttinn á bringuna
og ýtti honum inn fyrir línuna. KA
sótti meira síðustu mínúturnar eh
skapaði sér ekki verulega góð
færi. Einu sinni varði Páli í Þórs-
markinu þó vel frá Steingrími Birg-
issyni.
I stuttu máli:
Islandsmótió 1. deild, Þórsvöllur
Þór—KA 2:1 (2:0)
Mörk Þórs: Guójón Guómundsson á 13. min.
og Kristján Kristjánsson á 33. min.
Mark KA: Hinrik Þórhallsson á 85. min.
Gul spjöld: Sigurbjörn Vióarsson Þór, Gústav
Baldvinsson KA. og Mark Duffield KA.
Rautt spjald: Nói Björnsson Þór.
Ahorfendur: 864 sem borguóu sig inn.
Dómari: Friógeir Hallgrimsson.
Einkunnagjöfin: ÞÓR: Páll Guölaugsson 7.
Jónas Róbertsson 7. Sigurbjörn Viöarsson 7.
Nói Björnsson 7, Oskar Gunnarsson 8, Arni
Stefánsson 7. Guójón Guómundsson 7, Krist-
ján Kristjánsson 7. Halldór Askelsson 7, Oli
Þór Magnusson 7 og Bjarni Sveinbjörnsson 7.
KA: Þorvaldur Jónsson 8, Ormarr Örlygsson
7. Erlingur Kristjánsson 7, Friöfinnur Her-
mannsson 6, Njáll Eiósson 6. Gústav Bald-
vinsson 6. Steingrímur Birgisson 7, Mark
Duffield 6. Hafpor Kolbeinsson 5, Asbjörn
BjÖrnsson 6, Bjarni Jóhannesson 5, Þorvaldur
Örlygsson (vm. á 65 min.) 5 og Hinrik Þór-
hallsson (vm. lók of stutt).
♦ ♦ ♦ ♦;♦.♦.'