Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 44
Opið alla daga frá
kl. 11.45-23.30.
AUSTURSTRÆTI22,
INNSTRÆTI,
SlMI 11633.
Opiö öll fimmtudags-, föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld.
AUSTURSTRÆTI22,
INNSTRÆTI,
SÍMI 11340
ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Þing-
lausnir
í dag
EFTIR nokkurt málþóf í neðri
deild Alþingis í gærkveldi náðist
samkomulag milli stjórnar og
stjórnarandstöðu um að þing-
lausnir fari fram í dag. Neðri deild
Alþingis sat enn á fundum þegar
Mbl. fór í prentun en efri deild
lauk störfum um kvöldmatarleytið
og sátu þingmenn kvöldverðar-
veislu deildarinnar í gærkvöldi.
í gærkvöldi héldu áfram um-
ræður í neðri deild um þau mál
sem stefnt er að að afgreiða
fyrir þinglausnir og var reiknað
með að fundir gætu staðið fram
á nótt. Stefnt er að því að deild-
arfundir hefjist kl. 11 árdegis á
ný og sameinað þing komi sam-
an kl. 14.00. Þar verða greidd
atkvæði um þau mál sem lokið
var umræðu um fyrir helgi, en
ljóst er að a.m.k. 12 tii 14 þings-
ályktunartillögur koma ekki til
atkvæða. Þá verður kosið í
stjórn kísilmálmverksmiðju við
Reyðarfjörð. Einnig verður kos-
inn maður í fjárveitinganefnd í
stað Lárusar Jónssonar og sam-
kvæmt heimildum Mbl. verður
Halldór Blöndal þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Norður-
landskjördæmi eystra kjörinn í
fjárveitinganefnd Alþingis á
fundi sameinaðs Alþingis í dag.
11■ 'v A m
1
ft, & \\ M W.,M f v rj m' v / ySFr }/ 1
Meö Snarfara í Viðey
Á MILLI 60 og 70 börn á aldrinum
11 til 12 ára fóru ásamt foreldrum
sínum til Viðeyjar síðastliðinn
sunnudag og sáu félagar í Snar-
fara, félagi smábátaeigenda, um
flutningana milli Reykjavíkur og
Viðeyjar.
Poreldrafélag nemenda í
Laugarnesskóla stóð fyrir
skemmti- og skoðunarferðinni
til Viðeyjar á sunnudag. Lagt
var af stað í morgunsárið, um kl.
10, frá smábátahöfninni við Ell-
iðaárvog, sem sumir nefna
Elliðanaust. Siglt var norður
Karlsvík og að bryggju Snarfara
við austurenda Viðeyjar. Atta
bátar tóku að sér flutningana og
fóru sumir þeirra tvær ferðir.
Fólkið skoðaði sig um á eynni í
ágætu veðri og um eftirmiðdag-
inn var svo haldið heim á leið.
Að sögn eins félaga Snarfara,
sem blm. Mbl. hafði tal af, voru
állir sæfararnir vel búnir og
klæddir björgunarvestum sem
Slysavarnafélag íslands lét þeim
í té. Á meðfylgjandi mynd, sem
ljósmyndari Morgunblaðsins tók
við smábátahöfnina við Elliða-
árvog, má sjá nokkra nemendur
Laugamesskóla stíga um borð í
einn bátinn.
Verslunum
lokað á laug-
ardögum
í sumar
TÆPLEGA 450 manna fundur í
Verslunarmannafélagi Reykjavíkur,
sem haldinn var á Hótel Esju í
gærkveldi, samþykkti einróma sam-
komulag um að verslanir skuli lok-
aðar á laugardögum frá 20. júní til 1.
september.
„Það var mikil stemmning á
fundinum og kom mjög greinilega
fram í ræðum manna að fólk er
mjög óánægt með þennan langa
vinnutíma sem er við lýði hjá
verslunarmönnum og það var ein-
hugur um að snúa þessari þróun
við,“ sagði Magnús L. Sveinsson,
formaður VR, í samtali við Morg-
unblaðið í gærkveldi.
Skærur hjá
símvirkjum
LIKUR eru á að stór hópur sím-
virkja, sem nú kallast rafeindavirkj-
ar, hjá.Pósti og síma mæti ekki til
vinnu í dag, á morgun og á fimmtu-
dag. Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hefur hópur símvirkja
síðustu daga hvatt félaga sína til að
tilkynna fjarvistir þessa þrjá daga til
að leggja áherzlu á kaup- og
réttindakröfur. Óljóst er hver áhrif
af þessum skærum veröa, það fer
eftir fjölda símvirkja, sem mæta
ekki, og tíðni bilana m.a.
Álverð lækkar á
frjálsum markaði
ÁLVERÐ á hinum frjálsa markaði
eða samkvæmt svonefndum London
Metal Exchange Barometer hefur
farið lækkandi að undanförnu og er
nú lægra en það hefur verið í um það
bil ár. Þegar verðið var hæst var það
talsvert yfir 1100 pundum tonnið, en
hefur nú lækkað um nálega 10%
miðað við þegar það var hæst.
Þessi verðlækkun kemur ekki til
með að hafa áhrif á afkomu Ál-
versins í Straumsvík nema um
viðvarandi lækkun sé að ræða, þar
sem framleiðsla álversins er ekki
seld á þessum frjálsa markaði,
enda einungis lítill hluti álfram-
leiðslunnar í heiminum seldur á
honum, heldur samkvæmt föstum
samningum. Breytingar á álverði
til hækkunar eða iækkunar koma
því ekki strax fram og þetta fyrir-
komulag seljendum í hag sé um
lækkun að ræða, en kaupendum sé
um hækkun á álverði að ræða.
Það er ekki óþekkt fyrirbrigði
að álverð lækki á þessum árstíma
Efnahagsbandalagið ráðgerir að
senda skip til loðnuveiða á hafsvæð-
inu norður af fslandi í sumar.
Að sögn Ólafs Egilssonar, sendi-
herra og formanns íslenzku sendi-
nefndarinnar í viðræðum við EBE
og Norðmenn í Bergen fyrir
skömmu, gerir EBE tilkall til veiði-
að sögn kunnugra og hefur þeirri
skýringu verið varpað fram að
kaupendur haldi að sér höndum
við kaupin á vorin vegna sumar-
fría sem framundan eru.
réttinda á umdeilda hafsvæðinu
milli Jan Mayen og Grænlands, en
um það er ágreiningur milli þeirra
og Norðmanna. Norðmenn telja, að
miðlína eigi að gilda milli Jan May-
en og Grænlands, en Danir, fyrir
hönd Grænlendinga, telja að
Grænland eigi rétt á 200 mílna
lögsögu á þessu svæði.
Ólafur sagði, að í kröfum EBE
fælist 105.000 lesta veiði, eða sama
magn og Norðmenn fá, þar með
taldar bætur vegna þess, að engin
skip frá EBE stunduðu þessar veið-
ar síðastliðið sumar. Yrði af því,
kæmu aðeins 90.000 lestir í okkar
hlut miðað við núverandi tillögur
fiskifræðinga um 300.000 lesta
heildarafla, sem allir sæju að væri
allt of lítið.
Ólafur sagði, að margir teldu að
þessar veiðar yrðu skipum EBE
óhagkvæmar og nánast útilokað að
stunda þær án einhverra styrkja.
Gerðardómur skipaður
í flugmannadeilunni
HÆSTIRÉTTUR ákvað í gær leiða fyrir 15. júní nk. Guðmund-
hverjir skuli skipa gerðardóm ur Skaftason hæstaréttarlög-
þann, sem samkvæmt lögum maður er formaður gerðardóms-
þeim sem sett voru í sl. viku til ins, en aðrir gerðardómsmenn
þess að koma í veg fyrir verkfail eru þeir Bárður Daníelsson arkí-
fiugmanna skal úrskurða um tekt og Þórður Einarsson pró-
kaup og kjör flugmanna Flug- fessor.
EBE ráðger-
ir loðnuveiðar
Ásgeir og
félagar
í beinni út-
sendingu
ALLT bendir til að knattspyrnu-
leikur Stuttgart og Hamburger SV
í v-þýzku Bundesligunni verði
sýndur beint í sjónvarpinu á laug-
ardag. Leikurinn er úrslitaleikur
um v-þýzka meistaratitilinn og á
Ásgeir Sigurvinsson góða mögu-
leika á að vinna titilinn með fé-
lögum sínum í Stuttgart.
„Sjónvarpið hefur fengið
heimild frá V-Þýzkalandi um að
leikurinn verði sýndur beint hér
á landi og hefur pantað línu um
gervihnött. Svar fæst væntan-
lega í dag,“ sagði Bjarni Felix-
son, íþróttafréttamaður sjón-
varps, í samtali við Mbl.
„Þetta er búið að vera mikið
þref, svo vægt sé til orða tekið,“
sagði Bjarni Felixson og bætti
við: „Ástæðan f^rir því að lína
um gervihnött var ekki pöntuð í
siðustu viku er sú, að kollegar
mínir í V-Þýzkalandi töldu það
allt of mikla bjartsýni að ætla
að leikurinn yrði sýndur beint
hér á landi. En sem betur fer
hefur það nú fengizt í gegn."
Bjarni sagði að upptöku- og
réttindakostnaður við sýningu
leiksins væri 40 þúsund íslenzk-
ar krónur, en við bættist leiga á
sjónvarpslínunni.