Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 22. MAÍ 1984
5
Pétur Guðmundsson
Pétur Guð-
mundsson
látinn
Pétur Guðmundsson, skipstjóri, er
látinn, 66 ára að aldri.
Hann fæddist í Reykjavík 18.
desember 1917, sonur hjónanna
Guðmundar Jónssonar skipstjóra
á Reykjum í Mosfellssveit og konu
hans, Ingibjargar Pétursdóttur
frá Svefneyjum.
Pétur varð gagnfræðingur 1933
og lauk farmannaprófi 1941. Há-
seti á Skallagrími hjá föður sínum
1933—35 og er einnig með föður
sínum ýmist á Reykjaborg eða
Fossunum til 1941. Eftir það stýri-
maður á ýmsum skipum til 1954 er
hann tók við skipstjórn á Skelj-
ungi II og eftir það Kyndli.
Pétur kvæntist 1945 Kristjönu
Margréti Sigurðardóttir og eign-
uðust þau þrjú börn.
Látinn eftir
umferðarslys
MAÐURINN, sem varð fyrir bif-
reið í Kópavogi fyrir nokkru, er
látinn. Hann hét Eyjólfur Ást-
geirsson, til heimilis að Mávahlíð
22 í Kópavogi. Eyjólfur heitinn
var 27 ára gamall, fæddur 16. maí
1957.
Gott fersk-
fiskverð
erlendis
TVÖ ÍSLENZK fiskiskip seldu afla
sinn erlendis á mánudag. Fengu þau
gott verð fyrir aflann, sem var að
mestu þorskur og karfi.
Arney KE seldi 56,8 lestir, mest
þorsk og ýsu, í Hull. Heildarverð
var 1.505,800 krónur, meðalverð
26,52. Snæfugl SU seldi 174,6 lestir
í Bremerhaven. Heildarverð var
4.888,900 krónur, meðalverð 28,01.
Afli Snæfugls var að mestu karfi
og hefur verð á honum nú hækkað
verulega frá því sem verið hefur
að undanförnu.
/
0K
0 ,
\
° \<b\u
>eV";
>acA
Minnum á úrslitakvöld í
keppninni Stjarna Hollywood 1984.
Fulltrúi ungu kynslóöarinnar 1984 og
Sólarstjarna Úrvals 1984 1. iúní nk.
VERID VELKOMIN
VEL KLÆDD í
MIÐA- OG BORÐAPANTANIR
í SÍMA 77500.
my
Þar sem
GÆÐI OG GLÆSILEIKI
eru metin crð M
veröleikum er
í íararbroddi
...'.■t.iS-s.
MEST SELDIBILL A ISLANDI
Frá því FIAT UNO var kynntur á miöju s.l. ári hefur hann selst meira en nokkur annar
einstakur bíll hér á landi.
BILL FAGURKERANS
ÍTÖLSK HÖNNUN, KLASSÍSIC FEGURÐ
Bíll ársins 1984
Unol
EGILL
VHHJALMSSON HF.
i
Smidjuvegi 4. Kópavogi Simar 77200 - 77202.