Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1984
29
t
„Four Jets“
í Reykjavík
NORSKA popp- og danshljóm.sveilin
„Four Jets“ kemur til Reykjavfkur
um mánaóamótin og lcikur tvö
kvöld í Broadway. Hljómsveitin
skemmti gestum í Broadway fyrir
réttu ári viö góðar undirtektir en
einmitt um það leyti átti hún tuttugu
ára starfsafmæli.
Föstudagskvöldið 1. júní fara
fram í Broadway úrslit í keppn-
inni um „Ungfrú Hollywood" og
leikur norska hljómsveitin þá
fyrir dansi og aftur kvöldið eftir,
laugardagskvöldið 2. júní. „Four
Jets“ hefur um langt árabil verið
ein vinsælasta danshljómsveit
Norðmanna. Fjórtánda hljóm-
plata sveitarinnar kom út fyrir
fáum vikum og gerir útgáfufyrir-
tækið sér vonir um að sú plata
verði metsöluplata í Noregi í ár —
ein af fyrri plötum „Four Jets“
seldist í 500 þúsund eintökum.
Námsstefna
um náttúru-
hamfarir
DAGANA 22. til 25. maí nk. verður
haldin í Reykjavík námsstefna á
vegum almannavarnanefndar Atl-
antshafsbandalagsins (NATO).
Almannavarnir ríkisins eru að-
ilar nefndarinnar af íslands hálfu
og skipuleggja námsstefnuna.
Verður fjallað um málefnið:
„Hlutverk almannavarna f nátt-
úruhamförum og annarri vá á
friðartímum." Námsstefnuna
sækja u.þ.b. 30 þátttakendur frá
10 aðildarríkjum NATO.
Fjallað verður um náttúru-
hamfarir, umfang þeirra og afleið-
ingar, hamfaramat og ráðgjöf vís-
indastofnana við almannavarna-
yfirvöld. Einnig verður fjallað um
skipulag og viðbúnað vegna nátt-
úruhamfara og fyrirbyggjandi
ráðstafanir og langtímavarnir.
HANDBÓK
ALÞINGIS
1984
fc
Fyrsta hand-
bók Alþingis
komin út
KOMIN er út „Handbók AI-
þingis“. Efni þcssarar fyrstu
handbókar er í öllum megin-
dráttum sniðið eftir handbókum
frændþjóðanna, en henni þó
skorinn þrengri stakkur. Bókina
tók saman Lárus H. Blöndal
fyrrverandi bókavörður Alþingis
og Helgi Bernódusson deildar-
stjóri á skrifstofu Alþingis.
Efni bókarinnar er m.a. auk
æviskrár núverandi alþing-
ismanna: skipan þingsins, alþing-
iskosningarnar 23. apríl 1983;
skrár um forseta Alþingis og tölu
þinga, ráðherrar og ráðuneyti
1904—1984. Þá er gerð grein fyrir
starfsháttum skrifstofu Alþingis
og birtar eru teikningar af sæta-
skipan þingmanna í deildum og
sameinuðu þingi.
Bókin er sett, prentuð og unnin í
bókbandi hjá Ríkisprentsmiðjunni
Gutenberg. Ljósmyndir vann
Kristján Ingi Einarsson, að und-
anskilinni kápumynd.
Dregið í Renault-getraun
DREGIÐ hefur verið í Renault-
verölaunagetrauninni, sem var á
Myndin er tekin hjá Kristni
Guðnasyni hf. þegar Ólafur Krist-
insson framkvæmdastjóri og Ey-
vindur Albertsson sölustjóri af-
hentu vinningana.
Auto 84, og tók mikill fjöldi sýn-
ingargesta þátt í getrauninni.
Vinningshafar eru: 1. verðlaun,
vikuferð til Parísar: Hrafnkell
Gunnarsson. 2. verðlaun, kvöld-
verður á Hótel Holti: Anna Guð-
rún Birgisdóttir. 3. verðlaun,
bókaverðlaun: Ingólfur Einarsson.
4. verðlaun, bókaverðlaun: Einar
Sveinsson. 5. verðlaun, bókaverð-
laun: Hafsteinn Rósinkransson.
-engaráhyggtur
Kynntu þér kjörin sem Iðnaðar-1'
bankinn býöur sparendum. Beröu
þau saman viö þaö sem aðrir bank-
ar bjóöa núna.
Viö bjóöum 21,6% ársávöxtun á
BANKAREIKNINGI MEÐ BÓNUS.
Bú getur valiö milli þess aö hafa
slíka reikninga verötn/ggöa eöa
óverðtryggða.
Rú mátt einnig færa á milli þessara
reikninga, án þess aö þaö skeröi
bónus eöa lengi 6 mánaöa bindi-
tíma. v
í þessu fellst mikiö öryggi - ef verðbólgan vex.
ktnadarbankinn
Fer eigin leiöir -fyrir sparendur.