Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1984
47
Kaupmannahöfn:
Sýning Sigrúnar Eldjárn
Jónshúsi, 16. maí.
Sigrún Eldjárn sýnir teikningar
og grafík í félagsheimilinu í Jóns-
húsi þessa dagana, en hún dvelur
nú ásamt fjölskyldu sinni í fræði-
mannsíbúðinni. Eru alls 23 myndir
á sýningunni og hafa margir skoð-
að hana síðan hún var opnuð 5.
maí.
Sigrún er fædd 1954 og stund-
aði nám í Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands 1974—77. Fór
hún ári síðar í námsför til Pól-
lands og lærði mezzotintu vð
akademíuna í Varsjá og Kraká,
en áður hafði hún kynnzt pólskri
grafík á sýningum á Kjarvals-
stöðum 1976 og 1977. Fékk Sig-
rún styrk úr Menningarsjóði til
fararinnar.
Fyrstu einkasýningu sína hélt
Sigrún 1980 í Gallerí Langbrók
og síðan í Bókasafni ísafjarðar
sama ár. Þá í Rauða húsinu á
Akureyri 1981. Hún hefur tekið
þátt í fjölda samsýninga bæði
heima og erlendis, m.a. á öllum
Noðurlöndunum að Færeyjum
meðtöldum, Vestur-Þýzkalandi,
Póllandi, Bandaríkjunum og
Kóreu. Þá fékk Sigrún Eldjárn
listamannalaun 1981 og þriggja
mánaða starfslaun frá íslenzka
ríkinu árið eftir.
Listasafn rikisins, Listasafn
Alþýðu, Listasafn Kópavogs og
Norræna húsið eiga verk eftir
Sigrúnu og auk þeirra Statens
Konstrad í Svíþjóð og Sveaborg í
Finnlandi.
Sýning Sigrúnar Eldjárn hér
var opnuð 5. maí eins og áður
segir og var fjölmenni við
opnunina, og voru sendiherra-
hjónin meðal gesta. Eru teikn-
ingarnar tíu, allar unnar hér í
Jónshúsi, og mezzotintur 13 frá
1983 og ’84. Heiti 10 þeirra er ein
heild, svo sem Tröll með skáld,
Vakinn með sofinn, Konur með
karl, og yrkisefnin þannig sam-
tengd, enda myndirnar unnar í
sama skiptið. Hinar þrjár bera
allar heitið Engar sprengjur í
dag og er meðfylgjandi mynd ein
þeirra. Hafa þegar nokkur af
hinum fíngerðu verkum Sigrún-
ar selzt. Sýningunni lýkur
sunnudaginn 27. maí.
G.L.Ásg.
ÓDÝR OG AUÐVELD LAUSN FRÁ OLÍS
• Þvottaskinn
Auðveldar þvott og
þurrkun.
Handhægt og ending-
argott
• Handþvottakrem
1 kg.
Fjarlægir fitu, olíu, máln-
ingu og margt fleira
Hewlett-I’ackard
SÝNING
Hótel Loftleiðir
24. og 25. maí 1984 kl. 9.00-16.00
Hewlett-Packard hefur hér með þá ánægju að bjóða þér að skoða tölvukerfi
sem eru meðal þeirrá nýjustu og hæstþróuðu í heiminum.
Komdu og kynntu þér tækni framtíðarinnar - við sýnum m.a. smátölvur til
almennra nota og fullkomið teiknikerfi.
Vertu velkominn á:
Allt sem til þarf 0 Bón 0 Rúðuhreinsir
• Ofur-hreinsir fyrir stuðara og dekkjahringi
0 Áklæðahreinsir 0 Gljái fyrir mælaborð o.fl.
Áður
Kr.^oar-
Dráttarvélanám-
skeið í Reykjavík
NAMSKEIÐ í akstri og meðferð
dráttarvéla verður haldið í Duggu-
vogi 2 í Reykjavík. Námskeiðið hefst
á morgun og lýkur 27. maí. Fornám-
skeið verður fyrir 14 og 15 ára nem-
endur og dráttarvélanámskeið fyrir
16 ára og eldri. Fornámskeiðið
stendur yfir í 5 kennslustundir og
kostar kr. 480. Námskeið hinna
eldri verður 10 stundir og kostar
1.580 kr. Tilgangur námskeiðsins er
fyrst og fremst sá að auka öryggi og
hæfni unglinganna til aksturs en
einnig að stuðla að hagkvæmari
vinnubrögðum og bættri meðferð á
vélunum.
Þessi námskeið hafa verið hald-
in með líku sniði undanfarin ár og
hafa margir bændur látið í ljós
ánægju sína með þá unglinga, sem
hafa sótt þau. Sumir hafa jafnvel
sett það sem skilyrði fyrir sveita-
Fasteignaskattar
á sumarbústööum
NEDKI deild Alþingis samþykkti í
gær að lækka fasteignaskatta af
sumarbústöðum úr 1% í 0,5% og efri
deild gerði það sama við aðra umræðu
með 10 atkvæðum gegn 9. Þriðja um-
ræða fer fram í efri deild í dag og ef að
líkum lætur verður frumvarpið þá að
lögum.
Við aðra umræðu í efri deild í dag
gerðist það sem er óvenjulegt, að
tillaga annars minnihluta viðkom-
andi þingnefndar, sem Davíð Aðal-
steinsson (F) mælti fyrir, þess efnis
að málinu yrði vísað til ríkisstjórn-
arinnar, var felld á jöfnum atkvæð-
um, 9:9, en 1 sat hjá og 1 var fjar-
staddur.
Tillöguna flytur Pétur Sigurðsson
(S) ásamt fleirum og var hún upp-
haflega um það að lækka skatt af
sumarbústöðum niður í 0,25%, en
samkomulag varð um það í neðri
dvöl að unglingar hafi sótti slík
dráttarvélanámskeið.
Innritun fór fram í síðustu viku,
en viðbótarinnritun verður í dag,
þriðjudag milli klukkan 16 og 19.
• WD-40 Undraefnið
Þurrkar, hreinsar, leysir,
smyr.
Sjón er sögu ríkari
• Prox-til alhliða
hreingerninga
• Sápustaukar 10 stk.
Hæfa fyrir flestar gerðir
þvottakusta og hjálpa
þér við að þvo enn betur
• Poler-Tork
Mjúkur og sterkui klútur
til hvers kyns nota
Olís býöur þér ódýra
og alhliða lausn við hreingerninguna.
Vörurnar fást á öllum stærri útsölustöðum Olís.
Olís um land allt.
HEWLETT
PACKARD
GERIÐ BÍLINN GLJÁANDI