Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1984 47 Kaupmannahöfn: Sýning Sigrúnar Eldjárn Jónshúsi, 16. maí. Sigrún Eldjárn sýnir teikningar og grafík í félagsheimilinu í Jóns- húsi þessa dagana, en hún dvelur nú ásamt fjölskyldu sinni í fræði- mannsíbúðinni. Eru alls 23 myndir á sýningunni og hafa margir skoð- að hana síðan hún var opnuð 5. maí. Sigrún er fædd 1954 og stund- aði nám í Myndlista- og hand- íðaskóla íslands 1974—77. Fór hún ári síðar í námsför til Pól- lands og lærði mezzotintu vð akademíuna í Varsjá og Kraká, en áður hafði hún kynnzt pólskri grafík á sýningum á Kjarvals- stöðum 1976 og 1977. Fékk Sig- rún styrk úr Menningarsjóði til fararinnar. Fyrstu einkasýningu sína hélt Sigrún 1980 í Gallerí Langbrók og síðan í Bókasafni ísafjarðar sama ár. Þá í Rauða húsinu á Akureyri 1981. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga bæði heima og erlendis, m.a. á öllum Noðurlöndunum að Færeyjum meðtöldum, Vestur-Þýzkalandi, Póllandi, Bandaríkjunum og Kóreu. Þá fékk Sigrún Eldjárn listamannalaun 1981 og þriggja mánaða starfslaun frá íslenzka ríkinu árið eftir. Listasafn rikisins, Listasafn Alþýðu, Listasafn Kópavogs og Norræna húsið eiga verk eftir Sigrúnu og auk þeirra Statens Konstrad í Svíþjóð og Sveaborg í Finnlandi. Sýning Sigrúnar Eldjárn hér var opnuð 5. maí eins og áður segir og var fjölmenni við opnunina, og voru sendiherra- hjónin meðal gesta. Eru teikn- ingarnar tíu, allar unnar hér í Jónshúsi, og mezzotintur 13 frá 1983 og ’84. Heiti 10 þeirra er ein heild, svo sem Tröll með skáld, Vakinn með sofinn, Konur með karl, og yrkisefnin þannig sam- tengd, enda myndirnar unnar í sama skiptið. Hinar þrjár bera allar heitið Engar sprengjur í dag og er meðfylgjandi mynd ein þeirra. Hafa þegar nokkur af hinum fíngerðu verkum Sigrún- ar selzt. Sýningunni lýkur sunnudaginn 27. maí. G.L.Ásg. ÓDÝR OG AUÐVELD LAUSN FRÁ OLÍS • Þvottaskinn Auðveldar þvott og þurrkun. Handhægt og ending- argott • Handþvottakrem 1 kg. Fjarlægir fitu, olíu, máln- ingu og margt fleira Hewlett-I’ackard SÝNING Hótel Loftleiðir 24. og 25. maí 1984 kl. 9.00-16.00 Hewlett-Packard hefur hér með þá ánægju að bjóða þér að skoða tölvukerfi sem eru meðal þeirrá nýjustu og hæstþróuðu í heiminum. Komdu og kynntu þér tækni framtíðarinnar - við sýnum m.a. smátölvur til almennra nota og fullkomið teiknikerfi. Vertu velkominn á: Allt sem til þarf 0 Bón 0 Rúðuhreinsir • Ofur-hreinsir fyrir stuðara og dekkjahringi 0 Áklæðahreinsir 0 Gljái fyrir mælaborð o.fl. Áður Kr.^oar- Dráttarvélanám- skeið í Reykjavík NAMSKEIÐ í akstri og meðferð dráttarvéla verður haldið í Duggu- vogi 2 í Reykjavík. Námskeiðið hefst á morgun og lýkur 27. maí. Fornám- skeið verður fyrir 14 og 15 ára nem- endur og dráttarvélanámskeið fyrir 16 ára og eldri. Fornámskeiðið stendur yfir í 5 kennslustundir og kostar kr. 480. Námskeið hinna eldri verður 10 stundir og kostar 1.580 kr. Tilgangur námskeiðsins er fyrst og fremst sá að auka öryggi og hæfni unglinganna til aksturs en einnig að stuðla að hagkvæmari vinnubrögðum og bættri meðferð á vélunum. Þessi námskeið hafa verið hald- in með líku sniði undanfarin ár og hafa margir bændur látið í ljós ánægju sína með þá unglinga, sem hafa sótt þau. Sumir hafa jafnvel sett það sem skilyrði fyrir sveita- Fasteignaskattar á sumarbústööum NEDKI deild Alþingis samþykkti í gær að lækka fasteignaskatta af sumarbústöðum úr 1% í 0,5% og efri deild gerði það sama við aðra umræðu með 10 atkvæðum gegn 9. Þriðja um- ræða fer fram í efri deild í dag og ef að líkum lætur verður frumvarpið þá að lögum. Við aðra umræðu í efri deild í dag gerðist það sem er óvenjulegt, að tillaga annars minnihluta viðkom- andi þingnefndar, sem Davíð Aðal- steinsson (F) mælti fyrir, þess efnis að málinu yrði vísað til ríkisstjórn- arinnar, var felld á jöfnum atkvæð- um, 9:9, en 1 sat hjá og 1 var fjar- staddur. Tillöguna flytur Pétur Sigurðsson (S) ásamt fleirum og var hún upp- haflega um það að lækka skatt af sumarbústöðum niður í 0,25%, en samkomulag varð um það í neðri dvöl að unglingar hafi sótti slík dráttarvélanámskeið. Innritun fór fram í síðustu viku, en viðbótarinnritun verður í dag, þriðjudag milli klukkan 16 og 19. • WD-40 Undraefnið Þurrkar, hreinsar, leysir, smyr. Sjón er sögu ríkari • Prox-til alhliða hreingerninga • Sápustaukar 10 stk. Hæfa fyrir flestar gerðir þvottakusta og hjálpa þér við að þvo enn betur • Poler-Tork Mjúkur og sterkui klútur til hvers kyns nota Olís býöur þér ódýra og alhliða lausn við hreingerninguna. Vörurnar fást á öllum stærri útsölustöðum Olís. Olís um land allt. HEWLETT PACKARD GERIÐ BÍLINN GLJÁANDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.