Morgunblaðið - 26.05.1984, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1984
27
Útskriftartónleikar Tónlistarskólans
Mánudaginn 28. maí kl. 20.30 halda Sinfóníuhljómsveit íslands og
Tónlistarskólinn í Reykjavík útskriftartónleika f Háskólabfói. Fjór-
ir nemendur Tónlistarskólans ljúka síðari hluta einleikaraprófs.
Guðrún Þórarinsdóttir leikur víólukonsert eftir Johann Christian
Bach, Sólveig Anna Jónsdóttir leikur pfanókonsert nr. 3 eftir Beet-
hoven, Bryndís Halla Gylfadóttir leikur cellókonsert í D-dúr eftir
Haydn og Bryndfs Pálsdóttir leikur fiðlukonsert op. 48 eftir Kabal-
evský. Stjórnandi á tónleikunum er Páll P. Pálsson.
Tónleikar Kórs
Langholtskirkju
KÓR Langholtskirkju hefur starfað
af miklum krafti í vetur en hann
mun Ijúka starfsári sínu með tón-
leikum næstkomandi sunnudag kl. 5
í Langholtskirkju.
Á efnisskránni verða verk af
ýmsu tagi, t.d. lagasyrpur í út-
setningu Gunnars Reynis Sveins-
sonar, sem kórinn flutti í sjón-
varpinu í vetur, islensk alþýðulög í
hinum hefðbundnu útsetningum,
og Gloria úr „Missa Criolla" frá
Argentínu, en kórinn flutti hana í
heild fyrir nokkrum árum.
í vetur hefur kórinn komið fram
í sjónvarpsþáttunum „Tökum lag-
ið með Kór Langholtskirkju", og
er hugmyndin að hluti tónleik-
anna verði með svipuðu sniði,
þannig að áheyrendur fái tækifæri
til að taka lagið með kórnum.
Stjómandi kórsins, Jón Stefáns-
son, mun sjá um að koma fjörinu
af stað, og einnig munu nokkrir
kórfélagar koma fram og syngja
einsöng. Þessi skemmtun er ætluð
fyrir alla fjölskylduna og er þess
vænst að fólk fjölmenni á tónleik-
ana og taki börnin með.
Miðaverð er kr. 150 fyrir full-
orðna og kr. 50 fyrir börn. Auk
þess sem gestum gefst tækifæri til
að þenja raddböndin verður þeim
einnig boðið upp á kaffi og með-
læti í safnaðarheimilinu í hléinu,
við vægu verði.
Landbúnaðarráðimeytið:
Kannast ekki við að-
ild að „kartöflustríöi
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi tilkynning frá landbúnað-
arráðuneytinu vegna „ýktra frétta nokkurra fjölmiðla um innflutning
kartaflna, þar sem segir að ráðuneytið sé í stríði við innflytjendur“, eins
og segir i yfírskrift tilkynningarinnar:
stuðla að sem öruggastri fram-
kvæmd á innflutningi kartaflna,
meðan unnið er samkvæmt nú-
gildandi lögum."
Hverfis-
og fjöru-
hreinsun
MORGUNBLAÐINU hefur borist
svohljóðandi fréttatilkynning frá
íbúasamtökum Vesturbæjar syðri:
„íbúasamtök Vesturbæjar syðri
gangast fyrir árlegri vorhreinsun f
hverfinu laugardaginn 26. maí.
Hreinsunardeild Reykjavíkur-
borgar leggur til plastsekki og
munu þeir liggja frammi á laug-
ardagsmorguninn við þrjár versl-
anir í hverfinu, KRON við Dun-
haga, Melabúð á horni Hofsvalla-
götu og Hagamels, og Skjólakjör
við Kaplaskjólsveg og Sörlaskjól.
Mjög mikið rusl er nú um götur og
garða, torg og fjörur hverfisins,
eftir langan og snjoþungan vetur,
en íbúasamtökin vonast til þess að
margar hendur muni vinna létt
verk við að hreinsa til fyrir sum-
arið.
„Itrekað hefur komið fram að
innflutningur á kartöflum fer eft-
ir lagaákvæðum, sem nú eru til
endurskoðunar. Ekki er á valdi
ráðuneytisins að víkja frá gildandi
lögum. í því bráðabirgðaástandi
sem ríkir um þessi mál, hefur
ráðuneytið leitast við að ná sam-
vinnu við innflytjendur um fram-
kvæmd mála m.a. með hliðsjón af
því að tryggja hag neytenda varð-
andi innfíutning, sölu og dreifingu
kartafínanna og tryggja innlenda
framleiðendur, þegar að uppskeru
þeirra kemur.
Þessi viðleitni ráðuneytisins
Vorþing
Kvenna-
lista
KVENNALISTINN í Reykjavík hef-
ur sent Morgunblaðinu svohljóðandi
fréttatilkynningu : „Vorþing
Kvennalistans verður haldið dagana
25.-27. maí í Valsskálanum við
Kolviðarhól.
Á dagskrá verður meðal annars
innra starf Samtakanna í vetur,
starfið framundan, fyrirhuguð
hringferð Kvennalistakvenna i
júní í sumar og þingstarfið i vetur.
hefur mætt skilningi hjá fíestum
innflytjendum, en verið misskilin
af öðrum og rangfærð. Þar á með-
al að ráðuneytið ætlaði innflytj-
endum 150 tonna kvóta fram í
miðjan júnimánuð. Sú tala sem
um ræðir var einungis áætlun um
innfíutning á vegum umræddra
aðila, sem var byggð á mjög tak-
mörkuðum upplýsingum vegna
þess að ekki tókst að koma á þeim
skiptum á upplýsingum og sjón-
armiðum, sem ráðuneytið stefndi
að og óskaði eftir.
Rétt er að taka fram að heimild-
ir til innfíutnings hafa hlotið af-
greiðslu jafnóðum og tilskilin
skjöl hafa borist ráðuneytinu, sem
tollayfirvöld krefjast til að toll-
afgreiða kartöflur, er flytja á inn
til landsins.
Ráðuneytið kannast ekki við að-
ild að „kartöflustríði", en vill
Félag matvörukaupmanna:
Dreifíng grænmetis og
kartaflna verði frjáls
FÉLAG matvönikaupmanna ítrekar þá skoðun sína að innflutningur og dreifíng
innlendrar framleiðslu á grænmeti og kartöflum eigi að vera frjáls, segir í frétt frá
félaginu.
Félagið bendir á að af mörg þús-
und tegundum matvara sem eru á
boðstólum í matvöruverslunum, eru
kartöflur og fleira grænmeti einu
vörutegundirnar sem látnar eru
sæta ófrávíkjanlegum einokunar-
reglum um innfíutning og dreifingu i
heildsölu.
Hér með er skorað á viðkomandi
yfirvöld að þau hlutist til um að lög-
um um innflutning og dreifingu á
kartöflum og öðru grænmeti verði
breytt nú þegar og innflutningur
gefinn frjáls, svo tryggt sé að sam-
keppni fái að njóta sín á þessum
vettvangi og að neytendum séu
tryggð bestu gæði og lægsta verð. Þó
skal jafnan gæta þess að innlend
framleiðsla eigi aðgang að innlend-
um mörkuðum umfram innfluttar
A næsta
blaðsölustað
w # B
v '%A
I
Stjörnublaðið
Blað með frábærum
persónulýsingum
Öll stjömumerkin
í einu blaði á
aðeins 79 krónur
DREPIÐ
FYRIR
DOLLARA
$ >>4*
- *
< !
■ ***>*■
Drepið fyrir dollara
Góður efnismikill
56 sfðna spennureyfari
Heil bók f blaðaformi
á aðeins 97 krónur.
Þér ætti ekki að leiðast
um helgina
Akurútgáfan
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásfóum Moggans! y
afurðir, standist
neytenda.
hún gæðakröfur
Norsk strengja-
sveit í heimsókn
VIKUNA 24.—31. maf mun dvelja hér
á landi norsk strengjasveit I boði
Strengjasveitar Tónlistarskólans á
Seltjarnarnesi. Er það Veslefrikk-
strengjasveitin frá Majorstuaskole (
Osló, en f henni eru nemendur á aldr-
inum 10 til 14 ára.
í fréttatilkynningu Tónlistarskól-
ans á Seltjarnarnesi segir að norsku
gestirnir muni meðal annars heim-
sækja Bessastaði í boði forseta Is-
lands og einnig leika fyrir vistmenn
á Hrafnistu.
Veslefrikk-strengjasveitin og
Strengjasveit Tónlistarskólans á
Seltjarnarnesi munu sfðan halda
sameiginlega tónleika f Frfkirkjunni
( Reykjavfk þriöjudaginn 29. mai nk.
kl. 20.30.
SUNNLENDINGAR
OP€L BÍLASÝNING OPGL
Ascona, 4turig
I
e
e
Kynnum þessa frábæru fjölskyldubíla á Hellu kl. 13.00-15.00 viö
verkalýöshúsiö á Hvolsvelli kl. 16.00—18.00 viö bílaverkstæöi
Kf. Rangæinga sunnudag 27. maí.
Hagstæö verö — góö greiöslukjör.
Komiö og reynsluakiö.
BIFREIDADEILD SAMBANDSINSI! ]#
OPEL
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRUM