Morgunblaðið - 26.05.1984, Blaðsíða 48
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Vigdís
Finnboga-
dóttir
• ai •• • •
sjalfkjorin
SH veitir 25
milljónum
í fiskeldi
SAMÞYKKT var á aðlfundi Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna í gær, að
verja 25 milljónum króna til fiskeldis.
Tillagan er svohljóðandi: „Aðal-
fundur SH haldinn í Reykjavík dag-
ana 24. og 25. mai 1984 heimilar
stjórninni að verja allt að 25 millj-
ónum króna á starfsárinu 1984 i því
skyni að stuðla að og efla starfsemi á
sviði fiskeldis."
Hamingjusamar mæðgur
ÞÆR ERU sællegar þessar mæðgur, Unnur Steinsson, I lega hálfri annarri stundu eftir að móðirin var flutt á
feguröardrottning íslands 1983, og nýfædd dóttir þeirra fæðingardeildina um fjögurleytið í fyrrinótt var komin í
Vilhjálms Skúlasonar. Fæðingin gekk fljótt og vel — lið- | heiminn dökkhærð stúlka, 12 merkur og 52 sm.
FRESTUR til þess að bjóða sig
fram til embaettis forseta íslands
næsta kjörtímabil rann út í gær.
Eitt framboð barst, frá Vigdísi
Finnbogadóttur, forseta fslands.
Er hún því sjálfkjörin.
Vigdís Finnbogadóttir var
kjörin forseti íslands 1980 og
lýkur kjörtímabili hennar 31.
júlí nk. Hinn 1. ágúst nk. verð-
ur Vigdís Finnbogadóttir sett í
embætti til næstu fjögurra ára
eða til 31. júlí 1988.
Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands.
Tap Coldwater um
34 milljónir á sl. ári
— rekstrartap fyrsta ársfjórðung 1984 um 33 milljónir
TAP Coldwater, sölufyrirtækis Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna í
Bandaríkjunum, nam á síðasta ári
um 34 milljónum króna fyrir skatta
og á fyrsta ársfjórðungi þessa árs
nemur rekstrartapið um 33 milljón-
um króna. Með áhrifum skattbreyt-
inga, það er reglum um millifærslu
milli ára og endurgreiðslu greiddra
skatta árið 1980, nemur tap síðasta
árs um 17,5 milljónum króna.
Vegna þessa ræddi Morgunblaðið
við Jerry Clark, fjármálastjóra
Coldwater. Sagði hann aðalástæðu
tapsins árið 1983 vera vegna niður-
skrifta birgða á sérstakri pakkn-
ingu, sem þá var farið út í og hefði
hluti hennar bæði reynzt of dýr í
framleiðslu og erfiður í sölu. Þá
hefðu birgðir fyrirtækisins í 5
punda pakkningum verið skrifaðar
niður í kjölfar 10 centa lækkunar-
innar til Long John Silver’s og
ennfremur hefðu blokkarbirgðir
verið niðurskrifaðar vegna lækkun-
ar á markaðsverði.
Niðurskriftir vegna hinnar nýju
Hagkaup og Eggert Kristjánsson hf.:
Óska eftir viðskiptum við
kartöflubændur í haust
HAGKAUP hf. og Eggert Kristjánsson hf. birta í Morgunblaðinu í dag orð-
sendingu til kartöflubænda þar sem fyrirtækin óska eftir viðskiptum við
kartöfiubændur á hausti komanda. Lýsa þau því yfir að fyrirtækin muni haga
innfiutningi í samræmi við upplýsingar frá kartöflubændum um áætlaðan
uppskerutíma og magn þannig að erlendar kartöfiur verði ekki til staðar þegar
uppskera hefst.
Sigurður Gísli Pálmason, fram-
kvæmdastjóri hjá Hagkaup, sagði I
samtali við blm. Morgunblaðsins,
þegar hann var spurður hvort fyrir-
tækin væru ekki að brjóta lög með
þessari orðsendingu, að hún væri
birt í trausti þess að yfirlýsingar
stjórnmálamanna, um að þessi
verslun verði gefin frjáls stæðust.
Uppskeran kæmi ekki fyrr en i haust
og fyrr en þá yrði enginn „glæpur“
framinn. „Eg er nokkuð viss um að
stór meirihluti kartöflubænda í
Þykkvabænum, þar sem stærstur
hluti framleiðslunnar er, eru búnir
að fá sig fullsadda af Grænmetis-
verslun landbúnaðarins og misbeit-
ingu hennar á valdi sinu. Þvf á ég
von á að þeir taki málaleitan okkar
fegins hendi," sagði Sigurður Gísli
þegar hann var spurður að þvi hvort
hann gerði sér vonir um að kartöflu-
bændur sinntu þessari orðsendingu.
Blm. Morgunblaðsins reyndi
árangurslaust að ná sambandi við
Jón Helgason, landbúnaðarráðherra,
í gær til að fá viðbrögð ráðuneytisins
við yfirlýsingu sex umsækjenda um
innflutningsleyfi á kartöflum um að
þeir muni halda áfram innflutningi
eins og verið hefur og fyrirhugaðri
dreifingu þeirra á innlendri upp-
skeru í haust. í gær barst blaðinu
hinsvegar tilkynning frá landbúnað-
arráðuneytinu þar sem sagt er að
ekki sé á valdi ráðuneytisins að vikja
frá gildandi lögum en leitast hafi
verið við að ná samvinnu við inn-
flytjendur um framkvæmd innflutn-
ings. Ekki koma fram viðbrögð við
þeirri yfirlýsingu innflytjenda að
þeir muni halda áfram innflutningi
en tekið fram að innflutningsbeiðnir
hafi jafnóðum hlotið afgreiðslu og
tilskilin skjöl hafi borist ráðuneyt-
pakkningar hefðu numið um 22,5
milljónum króna, en alls hefði þar
verið um að ræða um 2.000 lestir.
Farið hefði verið út í þessa fram-
leiðslu til aó vinna upp samdrátt í
sölu, meðal annars til Long John
Silver’s, en þessi tilraun hefði því
miður ekki tekizt sem skyldi og því
væru birgðirnar niðurskrifaðar í
samræmi við sölumöguleika.
Hvað varðaði rekstrartapið
fyrsta ársfjórðung þessa árs, væri
áðurnefnd tilraunapakkning enn
aðalorsökin svo og frekari verð-
lækkun á blokkinni. Ennfremur
nýjar pakkningar, sem enn hefðu
ekki skilað arði, heldur valdið
auknum kostnaði, en talið væri að
uppskera þess yrði aukin sala í
framtíðinni. Ef óheppnin legði ekki
fyrirtækið í einelti ættu endar að
nást saman á þessu ári, þrátt fyrir
erfiða stöðu nú. Það væri kannski
bjartsýni en hún væri nauðsynleg í
þessari baráttu.
Jerry Clark sagði ennfremur, að
sala á þessu ári hefði aukizt og
fyrirtækið nyti álits á markaðnum
fyrir mestu gæðin og 1 því fælist
styrkurinn hvað mest. Hins vegar
mætti benda á það, til að sýna hve
erfiður þessi markaður væri, að
gjaldþrot viöskiptavina félagsins
hefðu margfaldazt á síðustu árum
án þess þó, að það hefði borið af því
verulegan skaða. Það væri því eng-
inn leikur að halda velli á þessum
markaði, en það hefði gengið vel til
þessa og ekki væri ástæða til að
ætlast til annars í framtíðinni.