Morgunblaðið - 06.06.1984, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1984
Ræða Sverris Pálssonar skólastjóra
Gagnfræðaskóla Akureyrar við skólaslit
sl. laugardag en frá skólanum útskrifast
nú í sfðasta sinn nemendur á fram-
haldsstigi
Háttvirta samkoma,
gestir og heimamenn!
Enn er upp runnin sú stund,
sem afmarkar lok skólaárs og
starfsárs nemenda og kennara. Ég
hygg, að þetta skeið í sögu skól-
ans, þetta skólaár, sem nú er á
enda runnið, fái góð eftirmæli á
flesta lund, og að mínum dómi
hefir skólastarfið og skólalífið
verið farsællegt og friðsamlegt.
Ég vona, að velflestum nemendum
hafi liðið vel í skólanum og þeir
hafi sótt hingað nokkurn fróðleik,
menntun og þroska. Ég vona einn-
ig, að kennurum hafi þótt nokkuð
sækjast fræðsluverkið og þeir hafi
unað allvel í starfi. Sjálfum hefir
mér liðið hér vel í góðri sambúð og
samvinnu við nemendur, kennara
og annað starfsfólk skólans, og
fyrir þetta allt er ég þakklátur
fólki og forsjón.
Þessi skólaslit marka að því
leyti mikil þáttaskil í sögu Gagn-
fræðaskóla Akureyrar, að við þau
hverfur starf hans á framhalds-
skólastigi til annarrar stofnunar,
framhaldsdeildir hans verða lagð-
urum var hann vinur í raun og í
daglegum samskiptum, glaður og
góðviljaður og jafnan hress i
bragði. Þó að hann hefði látið af
kennslustarfi við skólann, fylgdist
hann vel með því, hvað títt var hér
á bæ, og alltaf var gott að leita til
hans og ræða við hann ýmislegan
vanda, sem upp kunni að koma,
því að hann var í senn skjótráður,
snjallráður og hollráður. Okkur
þykir því ærið skarð fyrir skildi,
þegar hann er kvaddur brott á
miðjum aldri.
Ég vil biðja ykkur öll að rísa úr
sætum til virðingar við minningu
þessara tveggja mætu kennara.
Ég mun nú stuttlega víkja að
nokkrum atriðum, er varða skól-
ann og skólalífið á þessu skólaári.
Nemendafjöldi var því sem næst
sem hér segir: í rramhaldsNkólanum voru innritaóir:
Á heilbrigðÍNSviói 85
— uppeldiss-viði 52
— viðskiptasviði 181
— matvKlaUeknabraut (HMSK) 12
í fornámi eingöngu 34
Aðrir 3 Alls 367
Ljósm. GBerg.
svo heil og sæl guði
og góðum vættum“
í grunnskólanum voru innritaðir:
„í DAG útskrifast í síðasta sinn nemendur á fram-
haldsstigi frá þessum skóla. Afmarkað tímabil í
sögu skólans er liðið, kemur aldrei aftur, og ég
játa, að mér er eftirsjá að því. Þið eruð síðustu
fulltrúar þess. Þið hafið risið undir þeirri ábyrgð
með fullum sóma til síðasta dags, og það langar
mig að þakka ykkur. Skólinn verður snauðari,
minni og fátækari eftir að þið hafið kvatt. Ef til vill
verður brosað að mér góðlátlega fyrir þessar til-
fínningar og hugrenningar nú eða síðar, en við það
verður þá að sitja. Ef til vill verður líka einhver til
að skilja mig.“
„Farið
á vald
ar niður. Þess vegna brautskrást
nú í síðasta sinn nemendur af
þeim námsbrautum framhalds-
skólastigs, sem skólinn hefir hald-
ið uppi um 15 ára skeið. Það starf
allt er eftir þetta kvöld orðið liðin
saga, endurminning horfinna
daga. Gagnfræðaskóli Akureyrar
verður aftur viðtökuskóli nem-
enda að lokinni barnafræðslu,
ekki fjögurra ára skóli eins og
fyrir 1%9, þegar framhaldsdeildir
tóku til starfa, heldur þriggja ára
grunnskóli eins og á árabilinu
1934-1949.
Frá því er skóli var settur I
haust hafa tveir fyrrverandi kenn-
arar hans látist.
Hermann Stefánsson var
íþróttakennari skólans frá stofn-
un hans 1930 til vors 1946, auk
þess sem hann vann aðalstarf sitt
við Menntaskólann á Akureyri.
Hann var, eins og alþjóð er kunn-
ugt, hinn mesti áhugamaður og
forystumaður um íþróttir, útivist
og líkamsrækt, auk þess sem hann
var miklum hæfileikum búinn á
sviði ýmissa lista, einkum söng-
listar. Hann var glæsimenni, sem
hvarvetna var eftir tekið, enda var
hann ungu fólki, ekki síst nemend-
um sínum, glæst fyrirmynd í öllu
lífemi og framgöngu.
Sigurður Óli Brynjólfsson var
nemandi þessa skóla 1944—1947,
en gerðist stundakennari
1951/1952 og 1953-1955. Fasta-
kennari í fullri stöðu var hann
1955—1976, en í hálfri stöðu
1976—1981. Næsta vetur var hann
í launalausu leyfi, en sagði stöðu
sinni lausri sumarið 1982. Kenn-
araferill hans hér var því orðinn
þriggja áratuga langur. Auk þess
kom hann mjög við sögu skólans
og studdi málefni hans eftir föng-
um sem bæjarfulltrúi í meira en
20 ár og sem formaður fræðslu-
ráðs og síðar skólanefndar Akur-
eyrar í 12 ár og hin síðari ár sem
formaður fræðsluráðs Norður-
lands eystra.
Sigurður ÓIi var afar ötull
kennari, kappsamur og fullur
áhuga. Kennslugreinar hans voru
einkum eðlis- og efnafræði og
stærðfræði. Hann var mikill félagi
og ráðgjafi nemenda sinna, brá oft
á leik með þeim á skíðum eða við
skákborð og fylgdist vel með gengi
þeirra í námi og lífi. Okkur kenn-
f 7. bekk 124
f 8. bekk IS4
f 9. bekk 142
Allx 420
Nemendur samtals 787
Á tölvunánuikeióum 80
867
Ég vil vekja athygli á því að GA
er nú næstfjölmennasti fram-
haldsskóli landsins utan Reykja-
víkursvæðisins, aðeins Mennta-
skólinn á Akureyri er fjölmennari.
Kennarar voru alls 75, þar af 42
fastakennarar, en 33 stundakenn-
arar, þó ekki allir samtímis. Yfir-
kennari grunnskóladeilda var
Magnús Aðalbjörnsson og fram-
haldsdeilda Baldvin Bjarnason, en
brautarstjórar auk hans voru
Margrét Pétursdóttir og ólafur
Búi Gunnlaugsson.
Vel má hafa það í huga, að f
þessari stofnun hefir efalaust ver-
ið í vetur fjölmennasti vinnustað-
ur á Akureyri, hartnær 900 manna
viðkvæmt samfélag harla ólíkra
og sundurleitra einstaklinga. Þeg-
ar þess er gætt, að margt þessara
einstaklinga er á erfiðasta og upp-
næmasta aldri ævinnar, hlýt ég að
vera forsjóninni þakklátur fyrir
það, hversu ljúflega og lipurlega
allt hefir gengið, þyrna- og
þrautalaust.
Á þessum vetri hafa 11 sjúkra-
liðar lokið prófi að fullu, þar af 2
nú í dag. Verslunarprófi hinu
meira (eftir 3 ára nám) luku 26,
almennu verslunarprófi 36, 2 ára
námi á uppeldissviði 18 og á heil-
brigðissviði 15.
í 9. bekk þreyttu 140 nemendur
samræmt grunnskólapróf. Það er
orðið nokkuð árvisst, að unnt sé að
segja góða sögu af frammistöðu
nemenda þessa skóla á þessu
prófi, og að þessu sinni verður það
enn gert. Hvort sem miðað er við
meðaltal landsins alls eða lands-
byggðarinnar utan Reykjavík-
ursvæðisins, hefir GA mikla yfir-
burði og ef borið er saman við
Reykjavíkursvæðið sjálft, sem
vissulega hefir algera sérstöku og
ber höfuð og herðar yfir byggðir
landsins, hefir GA nokkurn veg-
inn í fullu tré við það. Þessi sam-
anburður er reistur á skýrslum
prófanefndar. Rétt er að taka
fram, að 3 nemendur hlutu 4 „A“
og 2 nemendur 3 „A“ og 1 „B“.
Einkunnina „A“ fengu í íslensku
10 nemendur, í dönsku 8, norsku 3,
sænsku 1, ensku 8 og stærðfræði
15. 115 nemendur náðu hnökra-
lausri réttindaeinkunn til náms í
Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar slitið í 54. sinn
Akureyri, 4. júní.
SVERRIR Pálsson, skólastjóri Gagnfræðaskóla Akureyrar, sleit skólan-
um sl. laugardag. í máli hans kom m.a. fram að nú væru þáttaskil í sögu
skólans, þar sem nú brautskrást í síðasta sinn nemendur af þeim
námsbrautum framhaldsskólastigs, sem skólinn hefur haldið uppi um 15
ára skeið, en hinn nýi Verkmenntaskóli mun taka við því hlutverki, en
Gagnfræðaskóli Akureyrar verður aftur viðtökuskóli nemenda að lokinni
barnafræðslu, þ.e. þriggja ára grunnskóli.
Skólastjóri minntist tveggja
vennara skólans, sem látist
löfðu frá því að skóli vai settur
í haust, þeirra Hermanns Stef-
inssonar, íþróttakennara, og
sigurðar Óla Brynjólfssonar
sem kenndi við skólann um
þriggja áratuga skeið, auk þess
sem hann studdi skólann mjög
sem bæjarfulltrúi á Akureyri,
formaður fræðsluráðs og skóla-
nefndar Akureyrar.
Á liðnu starfsári voru alls 367
nemendur í framhaldsdeildum
skólans, 420 í grunnskólanum og
að auki sóttu 80 manns almenn
tölvunámskeið, sem skólinn
gekkst fyrir. Nemendur urðu því
alls 867. Kennarar voru alls 75,
þar af 42 fastakennarar.
Fulltrúar 20 ára og 35 ára
gagnfræðinga fluttu ávörp við
skólaslitin, auk þess sem Aðal-
geir Pálsson, skólastjóri Iðnskól-
ans á Akureyri, flutti kveðjur
skóla síns. G'.fier
María Bára Hilmarsdóttir tekur við
prófskírteini sínu úr hendi Sverris
Pálssonar. María Bára er síðasti
nemandinn sem útskrifast frá fram-
haldsdeildum GA og jafnframt var
hún 100. sjúkraliðinn sem skólinn
útskrifar.
framhaldsskóla, eða 81,56%.
Hundraðstala nemenda, sem
hlutu einkunnirnar „A“, „B“ og
„C“ í einstökum greinum, var sem
hér segir, borin saman við lands-
meðaltal, þar sem nemendur GA
eru raunar líka og verða til að
draga úr mismuninum:
Grein „A“, „B‘ og „C“ Lands- Mis-
GA meðaltal munur
íslenska 79,98 70,69 + 9,29
Danska 81,62 69,38 -► 12,24
Enska 72,85 70,91 + 1,94
Staerðfræði 77,85 69,80 + 8,05
Meðaltalsmismunur: 7.HH prósentustig.
Ef meðaltal stiga í hverri grein
er athugað, annars vegar í GA, en
hins vegar á öllu landinu, kemur
þetta í ljós:
Lands- Mis-
Grein GA meðaltal munur
íslenska 58,7 55,5 + 3,2
Danska 58,2 53,9 + 4,3
Enska 56,5 56,0 + 0,5
Stcrðfræði 59,6 55,2 + 4,4
Meðatal 58,25 55,15 + 3,1
Samkvæmt skýrslu prófanefnd-
ar ber Reykjavíkursvæðið langt af
öðrum landshlutum, þegar árang-
ur nemenda er athugaður. Meðal-
stigafjöldi Reykjavíkursvæðisins
er 59,23 en GA 58,25, svo að munar
tæplega einu stigi, að árangur
nemenda Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar geti jafnast á við þann, sem
bestur varð á landinu öllu.
Þessar góðu og hagstæðu niður-
stöður til ég nú þakka vöskum
hópi nemenda 9. bekkjar og ötul-
um kennurum þeirra, ekki aðeins í
vetur, heldur einnig á fyrri árum.
Félagslíf hefir ef til vill verið
með daufara móti, en þó hafa
skemmtisamkomur verið haidnar
reglulega og farið fram á þann
hátt, að til sóma hefir verið og
fyrirmyndar. Hér hefir farið eins
og fyrri daginn, að skólinn á í vök
að verjast gegn hinu fjölþætta fé-
lagsstarfi í bænum, sem annars er
gott eitt um að segja. Helst hefir
íþróttalíf staðið með blóma, bæði
innan skólans og í keppni við nem-
endur annarra skóla, svo sem
Laugaskóla í Suður-Þingeyjar-
sýslu og annarra framhaldsskóla
á Akueyri.
9. bekkur fór í 6 daga ferð til
Vestmannaeyja og Suðvestur-
iands. Þátttakendur voru 98 og
fararstjórar 4. 33 nemendur 2. árs
komu í nótt ásamt Hauki Harð-
arsyni fararstjóra sínum úr viku
ferð til Danmerkur. Báðar ferð-
irnar tókust ágæta vel.
Nokkrir fyrirlesarar heimsóttu
skólann á vetrinum, og nokkrir
kvöldfundir voru haldnir með for-
eldrum, sumir á vegum foreldra-
og kennarafélagsins, þar sem um-
ræður fóru fram um brýn efni. Þá
voru haldnir 2 foreldradagar í
grunnskóla. Miklar umræður fóru
fram um fíkniefnamál og umferð-
armál og þær hættur, sem ungu
fólki eru búnar í þeim efnum.
Fjögur 40 stunda námskeið í
tölvunotkun og eitt 10 stunda í rit-
vinnslu voru haldin á vegum skól-
ans fyrir almenning, og var að-
sókn að þeim öllum meiri en tök
voru á að sinna. Ágóða var varið
til endurbóta og aukningar á
tölvubúnaði skólans, sem nú er
orðinn mjög góðour. Nokkurt orð
fer af skólanum fyrir forystu í
tölvukennslu, einkum á grunn-
skólastigi, enda sækja nemendur
Kennaraháskólans fast eftir því
að fá að komast hingað til æf-
ingakennslu í þeirri grein. Þess
má geta, að eftir fáeina daga hefst
hér tölvunámskeið fyrir skóla-
stjórnendur á vegum KHl, og hef-
ir kennurum GA verið falin fram-
kvæmd öll, öflun og samning
gagna, undirbúningur og kennsla.
O O O
Eins og ég gat um áðan, hafa
yfirvöld ríkis og bæjar ákveðið og
um það samið, að það starf, sem
fram hefir farið á framhalds-
skólastigi í þessum skóla í hálfan
annan áratug, skuli nú frá honum
tekið og fengið annarri stofnun í
hendur, Verkmenntaskólanum á
Akureyri, sem stofnaður var í gær
og mun þar að auki taka við hlut-