Morgunblaðið - 06.06.1984, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNl 1984
41
Um meðalaldur iktsýkisjúklinga
sagði Jón að hvað liðagigt varðaði
væri meðalaldur um 50 ár og flestir
sjúklingarnir konur. Bakverkir væru
algengastir um fertugt og það hjá
karlmönnum, en yfirleitt færu
verkirnir batnandi þegar frá liði.
Slitgigt væri hins vegar algeng um
og upp úr 50 ára aldri og hjá eldra
fólki.
Þegar gigtlækningastöðin verður
orðin fullmönnuð verður þar hægt
að veita um 80 manns þjónustu, en
skortur er á sjúkra- og iðjuþjálfur-
um, sem þó stendur til bóta. Hver
meðferðartími í stöðinni kostar
rúmar 212 krónur og greiðir sjúkl-
ingur 40% af gjaldinu, en Trygg-
ingastofnun greiðir meðferð þeirra
sem eiga við mjög erfiða sjúkdóma
að striða. Að sögn Sigríðar Gísla-
dóttur, sjúkraþjálfara og varafor-
manns Gigtarfélagsins, er mjög mis-
munandi hve langan meðferðartíma
iktsýkissjúklingur þarf, en 15 með-
ferðartímar eru ekki óalgengir.
Gigtarfélag íslands var stofnað í
október árið 1976. Félagið er hluti í
heilbrigðiskerfinu, þannig að Trygg-
ingastofnun greiðir hluta meðferðar
sjúklinga. Hlutverk félagsins er m.a.
að veita fræðslu um gigtsjúkdóma,
standa að útgáfustarfsemi í því
skyni, stuðla að rannsóknum á
sjúkdómnum, bæta aðstöðu til gigt-
lækninga, veita stjórnvöldum aðhald
og styrkja heilbrigðisstéttirnar til
aukinnar menntunar á sviði gigt-
lækninga. Félagsmenn eru nú um
1.800 á landinu öllu. I stjórn félags-
ins eru Sveinn Indriðason, formaður,
Arinbjörn Kolbeinsson, Sigríður
Gísladóttir, Sigurður H. Ólafsson,
Sigurþór Margeirsson, Jón Þor-
steinsson, Kári Sigurbergsson,
Kristín Fenger, Jóhanna Magnús-
dóttir og Anný Ástráðsdóttir.
Tölva sem rúmast
í skjalatöskunni
KOMIN er á markaöinn ný tölva frá
Apple-fyrirtækinu, Apple //C. Að sögn
forráðamanna Kadíóbúðarinnar, um-
boðsaðila Apple hér á landi, er nýja
tölvan lítil og þægileg og rúmast fyrir í
skjalatösku.
Ekki er nauðsynlegt að rafmagn
sé fyrir hendi því hin nýja tölva
gengur einnig fyrir rafhlöðum.
Minni tölvunnar er 128-K, þ.e. geym-
ir 128 þúsund stafi, þá er diskadrif
innbyggt. Eigendur Ápple //C geta
valið úr tuttugu þúsund forritum
m.a. fullkomin bókhaldsforriti.
Nýja tölvan Apple //C.
„Vestfírska“
tvisvar í viku
Verió velkomin á skrifstofu okkar og fáið nánari
upplýsingar og sjáiö myndband frá helstu sigl-
ingaleiðum og aðbúnaði um borð.
Isafirði, 4. júní.
VESTFIRSKA fréttablaðið kom út í
dag, mánudag. Þar með kemur blaðið
út reglulega tvisvar í viku, á mánu-
dögum og fimmtudögum, og er þar
með annað blaðið utan Reykjavíkur
sem kemur út oftar en vikulega.
nVestfirska“ hóf starfsemi 1973
og hefur útbreiðsla þess og stærð
vaxið jafnt og þétt síðan.
Vestfirska fréttablaðið er óháð
fréttablað í eigu Árna Sigurðsson-
ar prentara á ísafirði og er lang-
stærsta fréttablaðið sem gefið er út
af einstaklingi á íslandi.
Úlfar
Ásknfturshmm er 83033
'Wv
NÝJUNG
i Hkamsrækt
Ekki aðeins þrekhjól heldur .
einnig róðrartæki
Model 17 er topptæki á ótrúlega lágu verði. Fyrir þá \ \
sem er annt um líkama sinn og vilja halda þyngdinni í \ <
skefjum. \
Lítil fyrirferð og algjörlega lokað drif sem kemur
í veg fyrir óþrif og slysahættu
_ — Reidhjólaverslunin,
ORNINNL
Spítalastíg 8 við Óölnstorg. Símar 14661 og 26888.
Siglið sjálf um fegurstu
héruð Englands
Stundum er sagt að vatnaleiðirnar á Bretlandi séu
best varðveittu leyndardómarnir þarlendis. Þessar
siglingaleiöir liggja um fallegustu héruð Ðret-
lands, frá Pennina-fjallgarðinum aö Thames-
ánni. Á kyrrlátum skurðum, ám og vötnum
getur þú kynnst því besta sem landiö
hefur að bjóöa.
Ferðasknfstofan Laugavegi 66. 101 Revkjavik, Simi 28635