Morgunblaðið - 10.06.1984, Page 4
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 1984
Emil Guðmundsson, hótelstjóri, kynnir gestum starfsemi Blómasalar Hótels Loftleiða. Ljósm. Mbl. Friðþjófur.
Hótel Loftleiðir:
Víkingar og tískudömur
HÓTEL Loftleiðir tók til starfa
fyrir 18 árum. Þá var jafnframt
byrjuð framreiðsla á köldum mat á
híaðborði í hádeginu. Nú hefur ver-
ið aukið við kalda borðið og er nú
fjölbreyttara úrval fiskrétta en áð-
ur. Óskar Guðjónsson, yfirmat-
sveinn, á veg og vanda af borðinu.
Þar er, auk fískrétta, að fínna úrval
af rammíslenskum mat, s.s. hákarl,
hval og hangikjöt. Að sögn Emils
Guðmundssonar, hótelsstjóra, hafa
útlendingar gaman af að bragða ís-
lenska matinn, þó sumir þeirra
verði dálítið undarlegir á svipinn
þegar þeim er boðinn hákarl.
Víkingakvöld eru í Blómasal á
hverju sunnudagskvöldi, þar sem
boðið er upp á víkingamjöð,
lambakjöt og pönnukökur. Vík-
ingakvöldin, sem hafa verið
reglulega í tvö ár, eru sérstök að
því leyti, að þá klæðast matsvein-
ar víkingaklæðum og fram-
reiðslustúlkur klæðast að hætti
víkingakvenna.
Síðastliðin 11 ár hafa verið
tískusýningar á Hótel Loftleiðum
og verður svo einnig nú í sumar.
Sýningarnar, þar sem kynntur er
ullarfatnaður og skartgripir,
verða í hádegi alla föstudaga.
Óvænt ævintýri Hebba
ÞEGAR blaðamenn Morgun-
blaðsins fóru hringferð um land-
ið í siðustu viku til þess að afla
efnis i sjómannadagsblað Morg-
unblaðsins voru þeir að fara frá
Vestmannaeyjum til Neskaup-
staðar á einni af flugvélum
Leiguflugs Sverris Þóroddssonar.
Um það leyti ienti þar Fokker
Flugleiða og kom þá í ljós að
ungur piltur úr Reykjavík, 10 ára
gamall, hafði farið í ranga vél og
var lentur i Vestmannaeyjum í
stað þess að vera á leið til Eg-
ilsstaða þar sem von var á fólki
frá Neskaupstað til þess að
sækja hann. Til þess að stytta
leiðina fyrir Herbert litla tóku
Morgunblaðsmenn hann með sér
til Neskaupstaðar þar sem faðir
hans tók á móti honum, en pilt-
urinn var hinn ánægðasti með
óvænt ævintýri.
Ljóam. Mbl. Sigurgeir úr Eyjum.
Herbert á fíugvellinum á Neskaupsstað ásamt Albert Baldurssyni flugmanni
frá Leigufluginu.
L I T M Y N D I R
VIÐ FRAMKOLLUM
OG KÓPÍERUM
MYNDIRNAR
Á 60 MÍNÚTUM
SUÐURLANDSBRAUT 2 S. 82219
Agnethe Christensen, altsöngkona.
Tónleikar í
Fríkirkjunni
Á hvítasunnudag, 10. júní, verða
tónleikar í Fríkirkjunni í Reykjavík
og hefjast kl. 21.00. Agnethe Christen-
sen altsöngkona og Henry Linder
klarínettuleikari frá Danmörku halda
kvöldskemmtun, sem helguð verður
„Dala-kórulunum“, en svo nefnist
blanda af gömlum sálmalögum og
þjóðlegri tónlist sænskri, eins og hún
var í Dölunum í Svíþjóð á síðustu öld.
Á efnisskrá eru ellefu Dalakóral-
ar, þrjú lög handa einleiksklarín-
ettu eftir Werner Wolf Glaser (f.
1910 í Gautaborg) og Dalakórala-
svíta fyrir klarínett og einsöngs-
rödd um sálmalagið „Þann signaða
dag“ eftir Leif Kayser (f. 1919 j
Danmörku).
Henry Linder, klarínettuleikari.