Morgunblaðið - 10.06.1984, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 1984
Frá tilnefningu Botha í embætti forsætisrádherra 1978. Elanza dóttir hans óskar honum til hamingju. Kona hans
fylgist með.
,,Haukurinn“
Skipulag hersins og aginn, sem
þar ríkti, höfðuðu mjög til hans og
það var á þessum árum sem hann
fékk orð fyrir að vera mikill
„haukur". Hann lýsti því yfir að
hann mundi aldrei láta Namibíu
af hendi við „marxistann og
hryðjuverkamanninn" Sam Nuk-
oma, leiðtoga SWAPO, og gagn-
rýndi einn af leiðtogum stjórn-
arandstæðinga þegar hann kom
heim frá Zambíu, þar sem hann
hafði rætt við Kenneth Kaunda
forseta, fyrir að umgangast „vini
morðingja og nauðgara". Nú hæla
Suður-Afríkumenn Kaunda fyrir
„stjórnvizku" og hafa rætt við
Nukoma.
Botha stækkaði heraflann og
gerði á honum miklar endurbæt-
ur. Herútgjöld tuttugufölduðust á
einum áratug og hann skipulagði
innrásina í Angólu 1975. Hermenn
eru enn í hópi nánustu ráðunauta
hans og hermál eru eina áhugamál
hans fyrir utan stjórnmálin. Hann
setti sig vel inn í herfræðikenn-
ingar á þessum árum og háskólinn
í Stellenbosch sæmdi hann heið-
ursnafnbót í hervísindum.
Hann varð forsætisráðherra
fyrir tilviljun í september 1978.
Hneyksli í upplýsingaráðuneytinu
varð Jóhannesi Vorster forsætis-
ráðherra og arftaka hans, Connie
Mulder, að falli. Þetta mál minnti
á Watergate-hneykslið í Banda-
ríkjunum og var kallað „Mulder-
gate“, en Botha kom ekki nálægt
því. Hann hafði setið lengur í rík-
isstjórn en nokkur annar ráðherra
og allir gátu sætt sig við val hans
sem eftirmanns Vorsters.
Þar sem Botha var talinn mikill
„haukur" bjuggust fáir við mikl-
um breytingum þegar hann tók
við, en hann sýndi frá upphafi
sveigjanleika í afstöðu sinni til 22
milljóna svartra íbúa Suður-
Afríku. Hann fór t.d. fljótlega í
heimsókn til Soweto, fjölmenns
bæjar við Jóhannesarborg. Hann
var fyrsti forsætisráðherra Suð-
ur-Afríku, sem það hafði gert, og
andstæðingar hans urðu forviða.
Ein mikilvægasta breytingin,
sem stjórn hans hefur gert í kyn-
þáttamálum, er sú að verkalýðs-
félög blökkumanna hafa fengið
lagalega viðurkenningu og rétt-
indi blökkumanna til að stofna
verkalýðsfélög hafa verið aukin.
Hann hefur einnig átt fundi með
fulltrúum stórfyrirtækja, sem eru
undir stjórn enskumælandi
stjórnarandstæðinga — frjals-
lyndra Engil-Saxa og gyðinga,
sem leiðtogar Afríkana fyrirlíta.
Síðan hefur Botha boðað um-
bætur í nokkrum ræðum og hvatt
hvíta landsmenn til að sætta sig
við þær. „Við verðum að aðlagast,
að öðrum kosti deyjum við út,“ er
viðkvæðið hjá honum.
Þetta varð til þess að margir
hvítir Suður-Afríkumenn, sem
höfðu ekki viljað vera bendlaðir
við aðskilnaðarstefnu stjórnarinn-
ar, í kynþáttamálum, apartheid,
komu til liðs við hann. Þeir vilja
umbætur, en óttast stjórn blökku-
manna og Botha virtist bjóða
töfraformúlu, sem fól í sér breyt-
ingu án þess að slakað yrði á yfir-
ráðum hvítra manna.
Uppreisn
Pólitískt hugrekki Botha hefur
sjaldan komið eins vel í ljós og í
nóvember 1982, þegar til uppgjörs
kom milli hans og öfgafullra
íhaldsmanna í Þjóðernisflokknum
undir forystu dr. Andries Treurn-
icht, sem hefur verið ráðherra,
áhrifamaður í hollenzku siðbót-
arkirkjunni, formaður leynifélags-
ins Broederbond og formaður
Þjóðernisflokksins í Transvaal.
Þessir menn höfðu snúizt önd-
verðir gegn tillögum Botha um að
veita 2,7 milljónum kynblendinga
og 850.000 indverskum íbúum
Suður-Afríku takmörkuð áhrif á
stjórn landsins. Botha veitti upp-
reisnarmönnunum vikufrest til að
samþykkja tillögurnar eða segja
sig úr flokknum.
í nokkra daga leit út fyrir að
Þjóðernisflokkurinn í Transvaal
færi í stjórnarandstöðu undir for-
ystu dr. Treurnichts og þar með
hefði stjórnin misst stuðning um
það bil helmings fulltrúa sinna á
þingi og kjarna stuðningsmanna
sinna. Botha fór flugleiðis til Pret-
oriu, þar sem stjórn Þjóðernis-
flokksins í fylkinu ræddi hvað til
bragðs skyldi taka, mætti óboðinn
á fundinn og hvatti til einingar í
áhrifamikilli ræðu. Honum tókst
að halda uppreisninni í skefjum og
þegar dr. Treurnicht sagði sig úr
flokknum fylgdu honum aðeins 16
þingmenn þjóðernissinna.
Klofningurinn var engu að síður
erfið reynsla og vakti ugg um aft-
urhvarf til illvígra innbyrðis
deilna Afríkana á árunum áður en
þjóðernissinnar komust til valda
og þjóðarklofning. En aukið fylgi
Botha meðal enskumælandi Suð-
ur-Afríkumanna, sem venjulega
hafa kosið stj'órnarandstöðuna,
hefur vegið upp á móti því fylgi,
sem hann hefur misst meðal harð-
línumanna.
Þetta kom í ljós í þjóðarat-
kvæðagreiðslu í nóvember sl., þeg-
ar 66% kjósenda hvítra kjósenda
samþykktu tillögur Botha um hina
nýju stjórnarskrá. Hún mun veita
kynblendingum og fólki af ind-
verskum uppruna rétt til að kjósa
ákveðinn fjölda þingmanna, sem
sitja munu í aðskilinni þingdeild,
og gerir ráð fyrir að kynblend-
ingar og Indverjar verði skipaðir í
ríkisstjórn. Þessi lög, sem taka
gildi í september, tryggja að
sjálfsögðu að allar endanlegar
ákvarðanir verða sem fyrr í hönd-
um hvíta minnihlutans.
Fullyrt er að með þessum breyt-
ingum hafi Botha farið að ráðum
vina sinna úr hernum, sem hafi
með þeim viljað treysta stjórn
hvíta minnihlutans í sessi. Náin
vinátta Botha og Magnúsar Mal-
ans hershöfðingja, fyrrverandi yf-
irmanns heraflans og núverandi
landvarnaráðherra, hefur leitt til
ásakana um að herinn hafi of mik-
il áhrif á störf stjórnarinnar, en
Malan og aðrir ráðherrar þver-
taka fyrir það. „Það er aðeins einn
maður, sem stjórnar þessari ríkis-
stjóm og það er P.W.,“ sagði einn
þeirra nýlega.
Aðdáendur Botha halda því nú
fram að hann hafi alltaf beitt sér
fyrir sáttum við kynblendinga,
sem flestir tala mál Afríkana og
aðhyllast sömu trú og þeir. Botha
hefur heldur aldrei farið dult með
samúð sína með kynblendingum.
Einu sinni skipaði hann embættis-
mönnum á landbúnaðarsýningu í
kjördæmi sínu að veita kynblend-
ingum aðgang; „Þessir menn berj-
ast á landamærum okkar og vinna
í verksmiðjum okkar. Þeir eru
tryggir borgarar þessa lands.“
En margir kynblendingar benda
á að Botha hafi aldrei lagzt gegn
lögum frá 1956, er sviptu kyn-
blendinga í Höfðafylki kosninga-
rétti. Þeir benda einnig á að þegar
hann fór með mál kynblendinga í
ríkisstjórn 1966 hafi hann undir-
ritaði illræmda tilskipun, sem
varð til þess að sögulegt hverfi
kynblendinga í Höfðaborg, svo-
kallað „Hverfi 6“, var jafnað við
jörðu og 60.000 íbúar þess fluttir
67
til nýrrar byggðar á sandauðnum
við False Bay.
Útrýmingarhætta
Afríkanar hafa búið í Suður-
Afríku í þrjár aldir og eiga sér
engar rætur lengur í Evrópu.
Svartir þjóðernissinnar hafa
þrengt meir og meir að hvítum
mönnum í Afríku og hvítir íbúar
Suður-Afríku telja sig í útrým-
ingarhættu. Þeir ætla alls ekki að
afsala sér raunverulegum pólitísk-
um völdum; þeir óttast að þar með
verði þeir minnihlutahópur í
landi, sem aðrir stjórna, og glati
tilverurétti sínum.
Þann rétt er Botha staðráðinn í
iað varðveita og að því leyti hefur
engin grundvallarbreyting orðið.
Þær breytingar, sem hann hefur
beitt sér fyrir, miða að því að
sníða verstu agnúana af apart-
heid-kerfinu og miða ekki að rót-
tækum uppskurði. Tilgangurinn er
að tryggja áframhaldandi völd
Afríkana á tímum aukins þrýst-
ings heima fyrir og erlendis frá.
„Ég er hlynntur því að laga-
ákvæði, sem gera ráð fyrir óþörfu
og skaðlegu misrétti, verði felld
niður. Mörg þeirra hafa verið felld
niður,“ sagði hann 1979. „En ég er
ekki hlynntur þvinguðum sam-
runa og er ekki hlynntur því að
sjálfsákvörðunarrétti þjóðar
minnar verði stefnt í hættu."
Hann kveðst einnig „trúa á varð-
veizlu menningarlegra verðmæta".
Markmið Botha og dr. Treur-
nichts og annarra harðlínumanna
eru því í aðalatriðum hin sömu og
þá greinir aðeins á um leiðir að
markinu. Hins vegar hafa breyt-
ingarnar á stjórnarskránni verið
gerðar í trássi við vilja flokks-
þinga Þjóðernisflokksins og Botha
hefur verið gagnrýndur í flokkn-
um fyrir að hafa ekki haft hvíta
kjósendur með í ráðum. Allar
frekari breytingar hafa í för með
sér þá hættu að fleiri hægrimenn
snúi baki við flokknum.
En Botha hefur komizt að þeirri
niðurstöðu að alger aðskilnaður sé
ekki lengur raunhæfur möguleiki
og að kynblendingar, og ef til vill
Indverjar síðar meir, séu forrétt-
indastétt borgar-blökkumanna,
sem hvítir menn þurfi að fá til
samstarfs. Hann ætlar alls ekki að
koma því til leiðar að Afríkanar
og aðrir hvítir menn verði minni-
hluti í landi, sem aðrir stjórni.
Botha lætur senn af embætti
forsætisráðherra, en völdum hans
lýkur ekki þar með. Hann verður
líklega forseti í haust. Völd for-
seta verða aukin og eftir á að
koma í ljós hvað breytingum það
veldur á stöðu hans og ástandi
suður-afrískra stjórnmála.
GH
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTOFÍGI
Sumarið er komið og framundan eru ferðalög og útilegur.
En hvert sem leið þín liggur, skaltu hafa með þér góða
bók og birtugjafa af bestu gerð; litla Ijósálfinn.
Þegar aðrir tjaldbúar eru komnir í fastasvefn, þá skalt þú
festa litla Ijósálfinn á bókina og lesa síðan í ró og næði,
án þess að trufla svefnfriðinn.
Einn stærsti kostur itla Ijósáifsins er að hann getur notast
við rafhlöður og þannig lýst þér við lesturinn, í bílnum,
bátnum, flugvélinni, tjaldútilegunni, sumarbústaðnum, -
hvar sem er!
Borgartúni 22, sími 24590, Reykjavík
Fæst einnig í bóka- og gjafavöruverslunum