Morgunblaðið - 16.06.1984, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.06.1984, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1984 Hér má sjá þrjátíu og fimm reyk- víska iðnaðar- og verkamenn er unnu að lagningu vatnsveitunnar fyrir 75 árum. Myndin mun tekin í Góðtemplarahúsinu. Fáar fram- kvæmdir í höfuðstaðnum munu hafa verið jafn „eldfimar" og vatnsveitan. Auk brennandi áhuga á hollustu og hreinlæti er leiddi af rennandi vatni á hverju heimili iogaði allt í sundurlyndi vegna tafa er urðu á framkvæmdum. Og svo kviknaði í rusii meðan borgara- fundur var haldinn. Dugmiklir starfsmenn luku þó verki sínu með sóma. Það kemur allt með kalda vatninu „Erfiðasta og áhættumesta verkið við vatnsveituframkvæmdina var að flytja pípurnar úr skipi á land og þaðan um torleiðið þangaö, sem þeim skyldi komið fyrir í jörðu. Gufuskipið „Lydehorn" flutti þær til Reykjavíkur, en þangað kom það 4. júlí. Daníel Daníelsson, síðar dyravörður í stjórnarráðinu, og Valentínus Eyjólfsson buðust til að taka að sér uppskipunina fyrir minna verð en aðrir. Samkvæmt tilboðinu fengu þeir hálfa þriðju krónu fyrir smálestina með því skilyrði að afferma 150 smálestir á dag, eða að öðrum kosti að greiða þann kostnað, sem töf skipsins bakaði bæjarsjóði. Uppskipunin gekk með þeim flýti, sem þeir höfðu gert ráð fyrir og slysalaust, enda voru þeir verkhyggnir og stjórnsamir, en verkamennirnir, sem unnu hjá þeim, harðduglegir og ókvaksárir. — Daníel og Valentínus tóku einnig að sér að flytja pípurnar út úr bænum á slóöir vatnsveitunnar, og fengu fyrir það 3100 krónur. Áhlaupaverk var það ekki, því að vegir voru slæmir.“ — eftir Pétur Pétursson þul í DAG eru liðin 75 ár frá því að Vatnsveita Reykjavíkur tók til starfa og vatni var hleypt á leiðsl- ur. Flestir munu kannast við orða- tiltæki, sem kemur fram í fyrir- sögn greinarinnar. En nú spyr margur: Hvenær heyrðist það fyrst? Var það meðan þess var beð- ið að lokið væri lagningu vatns- veitu í Reykjavík? Hvenær var það? Hyggjum nánar að því. Það gekk hreint ekki þrauta- laust að grafa fyrir vatnsveitu- rörum í Reykjavíkurbæ árið 1908. Eða svo sögðu verktakarn- ir. Þeir rituðu vatnsveitunefnd Reykjavíkur bréf. Síðan eru liðin ein 75 ár. „Við undirritaðir, jeg, Jón Ei- ríksson, steinsmiður, Laufás- vegi 43, og jeg, Jónas Jónsson, búfræðingur fyrr á Laugavegi 58, nú á 61, sem tókum að okkur að grafa og fullgjöra skurð fyrir vatnsveitupípur á kaflanum frá fyrirhuguðum vatnsgeymi á Rauðarárholti að skurðardepli Laugavegar og Barónsstígs og annað eins og gjörður samningur hljóðar 24 —8 1908, finnum okkur hjer með til knúða að tilkynna hinni heiðruðu vatnsveitu- nefnd Reykjavíkur okkar ómöguleika til að halda verkinu áfram samkvæmt samningum, vegna þess hve af- ar miklir örðugleikar hafa komið í ljós því frekar sem á verkið hefur gengið og yfirleitt allt á annan veg en við höfðum gjört okkur hugmynd um þá er við gjörðum tilboðið o.fl., o.fl., sem veldur því, að við hljótum að skila af okkur verkinu að fullu og öllu í hendur þeirra er okkur hafa veitt og að mestu eiga undir þeirra dánu- mennsku hvernig þeim þóknast með að fara. Full þörf á skýrum og skjót- um úrskurði. Virðingarfyllst, Reykjavík 8. okt. 1908, Jónas Jónsson, Jón Eiríksson Til Vatnsveitunefndarinnar í Reykjavík. Knud Zimsen, borgarstjóri, greindi frá vinnu við Vatnsveit- una í bókarkafla. Upphaflega var áformað að bjóða út allan gröft innanbæjar og komu fimm tilboð, en öll þóttu þau svo óaðgengileg og ótrygg, að ekki þótti hyggilegt að taka nokkru þeirra. Hvarf vatnsveitunefnd þá að þvi ráði að láta gera þetta verk í dag- launavinnu fyrir reikning bæj- arsjóðs og samtímis að bjóða bæjarmönnum að leysa af hendi nokkurn hluta þess í ákvæðis- vinnu. Kom á daginn, að sú stefna reyndist bænum mjög í hag. Kostnaður við þennan hluta verksins varð miklu minni en þótt tekið hefði verið lægsta til- boðinu. Lét nærri, að metrinn í skurðunum, gröftur og ofaní- mokstur, kostaði fimm krónur, en þeir voru fjögurra feta djúpir. Jónas Jónsson og Jón Eiríks- son, steinsmiðir, tóku að sér í ákvæðisvinnu að grafa skurð frá Rauðarárholti að Barónsstíg, en gáfust upp í miðjum klíðum, og varð þá annar vinnuflokkur bæj- arins að taka við. Jóhannes Jónsson á Tóftum við Lindargötu annaðist skurðgröft í sinni götu, Hverf- isgötu, og í þvergötunum upp að Laugavegi. Jóni Þorsteinssyni, steinsmið, var falinn Laugavegur að mestu leyti, Bankastræti, og nokkrar þvergötur. Ursin hét norskur maður, sem hér dvaldist um skeið, dugnað- arforkur mikill. Hann tók að sér skurðgröft í Skólavörðustig, Þingholtsstræti, Miðstræti, Amtmannsstíg, Bókhlöðustíg og nokkurn hluta af Skálholtsstíg og Laugavegi. Hjá þessum þremenningum, er tekið höfðu að sér skurðgröft í fyrrnefndum götum 1 ákvæðis- vinnu, unnu rösklega eitt hundr- að manns í nóvembermánuði 1908. Einar Finnsson, faðir Finns bóksala, var ráðinn til þess að aðgæta stöðugt ofaní- mokstur þeirra, er unnu við skurðgröft eftir samningi. Um þetta leyti unnu tveir flokkar bæjarins að sama verki, en í þeim báðum voru eitt hundr- að og tuttugu manns. Magnús Vigfússon á Kirkjubóli við Laug- arnesveg var verkstjóri annars, en Valen'tínus Eyjólfsson hins. Kaup verkamanna var 30 aurar um tímann, en verkstjóra 50 aurar. Hinir þrír nýju sendiherrar áaamt forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, og Matthiasi Á. Mathiesen, viðskipta- ráðherra. Þrír nvir sendiherrar NÝSKIPAÐUR sendiherra Ung- verjalands, Hr. Károly Szigeti, nýskipaður sendiherra Mexíkó, hr. Tomas Ortega Bertrand, og ný- skipaður sendiherra Egyptalands, hr. Samih Eissawi Zayed, afhentu i dag forseta Islands, trúnaðarbréf sín að viðstöddum Matthíasi Á. Mathiesen, viðskiptaráðherra. Síðdegis þáðu sendiherrarnir boð forseta lslands að Bessastöð- um ásamt fleiri gestum. Sendiherra Ung\’erjalands hef- ur aðsetur í Stokkhólmi, sendi- herra Mexíkó í Osló og sendiherra Egyptalands í Osló. Doktor f byggingar- hljóðfræði STTEINDÓR Guðmundsson varði doktorsritgerð sína við verkfræði- deild háskólans í Lundi, Svíþjóð, 30. maí. Ritgerðin heitir „Studies of Sound Insulation Problems in Diff- erent Construction Elements on El- astic Foundations", og fjallar hún um tvenns konar hljóðeinangrunar- vandamál, sem hafa það sameigin- legt, að í báðum tilvikum er um að ræða byggingahluta sem hvíla á fjaðrandi undirstöðu, eru „fljót- andi“. Fyrri hluti ritgerðarinnar fjall- ar um hjáleiðslu i steyptri botn- plötu i kjallaralausum raðhúsum með léttum milliveggjum. Síðari hlutinn fjallar um hljóðeinangr- unareiginleika svokallaðra fljót- andi gólfa. Steindór lauk stúdentsprófi frá eðlisfræðideild MR árið 1972 og prófi i byggingaverkfræði frá Há- skóla íslands 1976. Hann hóf dokt- orsnám í byggingahljóðfræði við Doktor Steindór Guðmundsson verkfræðideild Lundarháskóla ár- ið 1977 og var jafnframt aðstoðar- kennari í þeirri grein 1978—1983. Steindór er sonur hjónanna El- inborgar Stefánsdóttur og Guð- mundar Benediktssonar læknis. Eiginkona Steindórs er Inga Jóna Jónsdóttir hagfræðingur. Þau eiga tvo syni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.