Morgunblaðið - 16.06.1984, Page 16

Morgunblaðið - 16.06.1984, Page 16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNl 1984 Í6 Að kenna að um- gangast náttúruna — eftir Davíð Ólafsson Það er áberandi, að gildismat fólks hefur verið að breytast á síð- ustu áratugum. Þetta á ekki sízt við um afstöðu mannsins til um- hverfis síns. Á meðan svo var ástatt um hagi manna, að megin- hluti tímans fór í að afla sér fæðis, klæðis og húsaskjóls, var það eðli- legt, að nytsemissjónarmiðið réði. Það, sem var ekki til nytsemdar í ríki náttúrunnar, var lítils virði. Á nítjándu öld tóku skáldin að prísa fegurð og tign landsins í ljóðum og þjóðin drakk þau í sig. En það leið langur tími, þar til önnur sjónarmið en þau, sem til nytsemdar horfðu, fengu rúm í hugum manna. Upphafsorð Grasaferðar eftir Jónas Hall- grímsson eru fræg og margtilvitn- uð: „Systir góð, sérðu það sem ég sé?“ og svo fylgir fjölbreytileg náttúrulýsing, sem lýkur þó á því, sem nytsamlegt er í huga drengs- ins, en hann segir: „Ég er að draga þig dálítið á því, sem bezt er, sérðu nú rindana þarna uppi á Bröttu- skeið sunnanverðri? Þeir eru fag- urbleikir, manstu hvernig þeir eru að sjá í þurrki?“, en systirin svar- ar: „Þú ert mesta gersemi og besti frændinn, sem ég á, það eru allt saman grös, það er ógn af blessuð- um grösum." Ferðalög til að njóta útivistar og skoöa sérkennilega og fagra staði voru áreiðanlega hrein und- antekning fyrr en á okkar öld. Áhugi á slíkum ferðalögum kom svo fram í stofnun Ferðafélags Is- lands seint á árinu 1927. í lögum félagsins segir m.a. svo um tilgang þess: „Að vekja áhuga lands- manna á ferðalögum um landið, sérstaklega þá landshluta, sem lítt eru kunnir almenningi, en eru fagrir og sérkennilegir." Síðan hefur öll þessi starfsemi tekið á sig fastara form og orðið fjöl- breyttari, ekki aðeins á vegum Ferðafélagsins, sem var braut- ryðjandinn, heldur hafa fleiri bætzt í hópinn. Skal það ekki rak- ið frekar. Nú er svo komið, að bylting í samgöngutækjum og almenn vel- megun hafa opnað óbyggðirnar. Landsmenn sjálfir hafa í vaxandi mæli uppgötvað þetta. Á sama tíma hefur vaxið upp þjónustuiðn- aður fyrir erlenda ferðamenn og aðsókn þeirra beinist einnig i vax- andi mæli að óbyggðum. Þá er komið að umgengninni við náttúru landsins. ísland er á þeim breiddargráð- um, þar sem allur jarðargróður berst harðri baráttu fyrir tilver- unni. Einkum á þetta við um óbyggðir landsins og öræfin. Þar er gróður yfirleitt lítill og á í vök að verjast vegna náttúruskilyrða. Á komandi tímum mun ferðafólk leita á þessi svæði meira en áður og það á við jafnt um fslenzka ferðamenn sem erlenda. Til þess liggja aðllega þrjár ástæður, auk- inn frítími, aukin bílaeign og bættar samgöngur yfirleitt, og svo vaxandi þörf kyrrsetu- og- inni- stöðufólks fyrir útiveru og sam- neyti við óspillta náttúru. Undir- staðan undir öllu saman er svo aukin velmegun heimsbyggðarinn- ar, sem er hvað mest í nærliggj- andi löndum, og þaðan koma líka ferðamennirnir aðallega. Þó ísland sé mjög strjálbýlt land samanborið við lönd Vestur- og Norður-Evrópu, þá er nú svo komið, að meira en % þjóðarinnar býr í þéttbýli. Meginhluti þess fólks er einnig alinn upp í þéttbýli og þekkir vart landið utan þess nema af strjálum og stuttum heimsóknum. En smám saman eykst þörfin og jöfnum höndum áhuginn á að leita úr þéttbýlinu út í náttúruna. Nákvæmlega hið Davíð Ólafsson. „Enginn nema sá, sem hefur reynt það á sjálf- um sér getur gert sér í hugarlund þann unað, sem það veitir að vera úti í óspilltri náttúrunni og gefa sig henni á vald, skoða gróður, dýr, fugla, fiska í vötnum og steina, auk alls annars, sem fyrir augað getur borið.“ sama er að gerast í öðrum löndum, nema að þar er þéttbýlið enn meira yfirþyrmandi og tækifærin til að komast út í óspillta náttúr- una enn takmarkaðri. Enginn nema sá, sem hefur reynt það á sjálfum sér, getur gert sér í hug- arlund þann unað, sem það veitir að vera úti í óspilltri náttúrunni og gefa sig henni á vald, skoða gróður, dýr, fugla, fiska í vötnum og steina, auk alls annars, sem fyrir augað getur borið. Sjálft landslagið er líka lifandi veröld, þegar hugsað er um þá sköpunarsögu, sem að baki iiggur, og sem er sífellt að gerast. Það er þetta, sem flestir þeir, sem leita á vit náttúrunnar, eru að leita að, en það er ekki sama með hvaða hug- arfari það er gert eða hvernig. Þeir eru fæstir, sem fara gang- andi. Yfirgnæfandi meirihluti fer í bílum og gæta þess þá ekki ætíð sem skyldi, hversu viðkvæmar óbyggðirnar eru. Mikil umferð um þær hlýtur að hafa í för með sér hættu fyrir náttúruna þar, og við því ber að stemma stigu eins og hægt er. En þá lendum við í vanda. Við höfum reynslu af því í okkar þjóðfélagi, að boð og bönn eru hæpin aðferð og á þessu sviði tel ég vonlaust að slíkt sé farsælt. Hér þarf að koma til uppeldi og kennsla og þar eru skólarnir hinn rétti vettvangur. I grunnskólum og ekki síður í framhaldsskólum ætti það að vera fastur þáttur í kennslunni um náttúru landsins að fræða nemendur um nauðsyn þess að umgangast hina viðkvæmu náttúru óbyggðanna með fullri gát og benda á, hvaða afleiðingar það hefur, ef svo er ekki gert. Slíkri fræðslu ætti einnig að ætla rúm í útvarpi og sjónvarpi, svo hún næði til allra landsmanna. Einkum gæti sjónvarpið verið þýðingarm- ikið, því þar er hægt að sýna á myndrænan hátt afleiðingar slæmrar umgengni. Við hina erl- endu ferðamenn, sem hingað koma og ætla að ferðast um óbyggðir, trúi ég einnig, að fræðsl- an dugi bezt, en þar verður auðvit- að eftir atvikum að beita viðeig- andi aðferðum. Þetta eru engar nýjar hug- myndir, en ég legg áherzlu á þær hér, af því mér finnst umræðan um þessi mál hafa í seinni tíð beinst of mikið í þá átt, að boð og bönn leysi vandann. Það gera þau ekki að mínu áliti. Hér er mikið verk að vinna fyrir Ferðamálaráð, enda hlýtur það að vera eitt meg- inhlutverk þeirrar stofnunar. Daríd Ólafsson er seðlabankastjóri og forseti Ferðafélags íslands. Kirkja í sviðsljósinu SUNNUDAGINN 17. júní verður lýðveldissamkoma í Bústaðakirkju á vegum Bræðrafélags Bústaða- kirkju, og hefst hún kl. 10.00 fyrir hádegi. Þau nýmæli verða, að leikmenn annast allt samkomu- haldið. Aðalfundur BÍ í dag AÐALFUNDUR Blaðamannafé- lags íslands verður haldinn í dag í húsnæði félagsins í Síðumúla 23. Á dagskrá verða venjuleg aðal- fundarstörf og önnur mál. Meðal annars verður rætt um höfundar- réttarmál blaðamanna, endur- skoðun siðareglna og fleira. Fund- urinn í dag hefst klukkan 14 stundvíslega. Otto A. Michelsen, safnaðar- fulltrúi, stjórnar samkomunni. Ásbjörn Björnsson, formaður safnaðarnefndar, les úr ritning- unni. Guðmundur Hansson, for- maður Bræðrafélagsins flytur ræðu. Þórður Kristjánsson úr sóknarnefnd flytur upphafsorð. Organisti er Oddný Þorsteins- dóttir. Meðlimir Bræðrafélagsins bjóða gesti velkomna við kirkjudyr. Samkoman hefst kl. 10.00 fyrir hádegi, og mun standa í þrjá stundarfjórðunga. Þannig er hægt að koma til kirkju ferðaklæddur, ef þú ætlar úr bænum, eða verið búinn að ganga til kirkju áður en þú ferð til hátíðarhalda annars staðar í borginni. Sungnir verða sálmar sem allir kunna, og óskað er eftir þátttöku kirkjugesta. (Frá Bræðrafélagi Bústaðakirkju.) Afhelgunin fer fram á morgun ÞEGAR að lokinni fermingar- guðsþjónustunni, sem verður í hinni gömlu Þóroddsstaðakirkju á hádegi á morgun, þjóðhátíðardag- inn, mun fara fram afhelgun kirkj- unnar, sagði sr. Kristján Róberts- son prestur á Hálsi í Fnjóskadal, sem þjónar Þóroddsstaðakirkju í Kinn um þessar mundir, í samtali við Mbl. í gær. Sem kunnugt er úr fréttum blaðsins hefur verið ákveðið að rífa þessa gömlu kirkju. Afhelgunarathöfninni lýkur með því að sóknarnefndarmenn munu bera úr kirkjunni altaris- gripi og koma þeim í geymslu. Alt- aristaflan gamla og prédikunar- stóllinn verða tekin síðar og þeim komið fyrir í geymslu uns hægt verður að koma þeim fyrir í nýju kirkjunni. Vonir standa til þess, sagði sr. Kristján, að smíði hennar miði það í sumar, að hún verði fokheíd orðin í haust. Aðspurður um það hvort kom- ið hefðu fram einhver mótmæli við því að hin 99 ára gamla Þór- oddsstaðakirkja yrði nú rifin, svaraði hann að sér væri ekki kunnugt um það. Sóknarnefnd- arformaður er Baldvin Baldurs- son bóndi á Rangá. Frjáls innflutn- ingur garðávaxta * — Afangasigur í sölumálum landbúnaðarafurða — eftir Friörik Sophusson Skemmdar kartöflur, sem SÍS sá um að kaupa fyrir Grænmetis- verzlun landbúnaðarins, urðu í vor tilefni mikilla umræðna og blaða- skrifa. Inn í þær umræður bland- aðist afstaða þingmanna Sjálf- stæðisflokksins til frumvarps Eiðs Guðnasonar o.fl. til breytinga á framleiðsluráðslögunum, en það var byggt á frumvörpum, sem annars vegar Friðrik Sophusson o.fl. og hins vegar Vilmundur Gylfason o.fl. höfðu flutt á undan- förnum þingum. Öll þessi frum- vörp gerðu ráð fyrir leyfum til innflutnings á garðávöxtum skv. almennum reglum, þegar innlend framleiðsla er ekki fáanleg. Með öðrum orðum: Samþykkt frum- varpanna hefði afnumið einokun Grænmetisverzlunarinnar. Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Ed. Alþingis fluttu tillögu þess efnis, að frum- varpi Eiðs yrði vísað til ríkis- stjórnarinnar með þeim rökum, að „stjórnarflokkarnir [séu] sammála um að rækileg endurskoðun fari fram á sölumálum landbúnaðar- ins, þar sem einokun verði aflétt." Tillaga þessi var samþykkt. Vegna seinlætis landbúnaðar- ráðuneytis og Framleiðsluráðs landbúnaðarins (sem hefur lög- bundinn umsagnarrétt) var því haldið fram, í blöðum, að Sjálf- stæðisflokkurinn hefði horfið frá stefnu sinni um frjálsan innflutn- Friðrik Sophusson ing garðávaxta, þegar innlend framleiðsla væri ekki fyrir hendi. Sannleikurinn er hins vegar sá, að á vegum stjórnarflokkanna starf- ar nefnd, sem gera skal tillögur til breytinga á framleiðsluráðslögun- um. Sú nefnd skilar væntanlega áliti í haust. Með því að sam- þykkja lagabreytingu um það eitt að breyta viðskiptaháttum með innflutta garðávexti, hefði hugs- anlega verið fórnað tækifæri til að gera heildarbreytingar á úreltum framleiðsluráðslögum. Nú hefur það gerst í fullu sam- ræmi við yfirlýsingar forystu- manna í Sjálfstæðisflokknum, að innflutningur garðávaxta hefur „Nú hefur það gerst í fullu samræmi við yfir- lýsingar forystumanna í SjálfstæðisHokknum, að innflutningur garð- ávaxta hefur verið gef- inn frjáls, þegar inn- lenda framleiðslan fæst ekki.“ verið gefinn frjáls, þegar innlenda framleiðslan fæst ekki. Ríkis- stjórnin samþykkti að tillögu viðskiptaráðherra fyrir skömmu, að innflutningsleyfi verði áfram veitt þeim, sem þess óska, og að landbúnaðarráðuneytið hafi sam- ráð við viðskiptaráðuneytið um af- greiðslu leyfa vegna áformaðs inn- flutnings. Þessum tíðindum ber að fagna. Með þessari stjórnarsamþykkt hefur unnist áfangasigur í sölu- málum landbúnaðarafurða. Næstu skrefin í frjálsræðisátt verða væntanlega stigin i framhaldi af niðurstöðum framleiðsluráðslaga- nefndarinnar. Það er kominn tími til, bæði vegna hagsmuna neyt- enda og framleiðenda, að nú- tímavinnubrögð verði viðhöfð í viðskiptum með garðávexti. Friðrik Sophusson er einn af þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins fyrir Heykjavíkurkjördnmi og varafor- maður Sjilfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.