Morgunblaðið - 16.06.1984, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1984
17
Smekkleysi
í sjónvarpi
— eftirJón óskar
Ég sé í Morgunblaðinu, laugar-
daginn fyrir hvítasunnu, að Pétur
Pétursson þulur muni hafa fundið
að því í blaðagrein hverskonar lög
eru valin handa fólki að hlusta á,
þegar það hefur opnað sjónvarps-
tækið og bíður þess að dagskráin
hefjist með fréttum, en þá horfa
flestir landsmenn á sjónvarpið
nema helst börn og unglingar, þó
Náttúrulækn-
ingafélag
Akureyrar
byggir
heilsuhæli
Nú eru framkvæmdir hafnar á ný við
byggingu heilsuhælis Náttúrulækn-
ingafélags Akureyrar í Kjarnaiandi.
Ákveðið er að ljúka uppsteypu á
tveimur hæðum og vonast menn til
að hægt verði að gera húsið fokhelt
fyrir veturinn. Þó að sjóður félagsins
sé nú allstór, er vafamál að hann
dugi til þess að ljúka þessum áfanga.
Er ýmislegt á döfinni hjá félaginu til
þess að safna fé. Fyrst má nefna
merkjasölu, sem verður með því
sniði að dregið verður um einn vinn-
ing, flugfar frá Akureyri til Reykja-
víkur og til baka, ásamt 3ja vikna
dvöl á heilsuhælinu í Hveragerði.
Einnig er fyrirhugað að verða með
veitingasölu á göngugötunni einn
föstudag í júlí og annan í ágúst. 1
haust mun svo verða efnt til hluta-
veltu.
__
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
engu sé líkara en einmitt van-
þroskaðir unglingar hafi verið
látnir annast þetta lagaval. Ég hef
ekki lesið grein Péturs, en mér
þykir full ástæða til að taka undir
við hann, þegar ég les svar það
sem haft er eftir framkvæmda-
stjóra sjónvarpsins, þar sem hann
reynir að afsaka valið og lætur
m.a. þessi orð falla: „Það fer eftir
dögum og því efni sem er í sjón-
varpinu, hvaða tónlist er spiluð."
Ég býst ekki við að menn hafi
skrifað hjá sér hvað flutt var
þennan og þennan daginn, svo þeir
gætu komið með dæmi um sam-
ræmi þetta eða réttara sagt
ósamræmi sem hvað eftir annað
hefur gerst, svo staðhæfing fram-
kvæmdastjórans er því aðeins
rétt, að þeir sem velja séu ger-
sneyddir allri þekkingu á tónlist
og öllum skilningi á menningu ís-
lensku þjóðarinnar.
Framkvæmdastjórinn sagði, að
það væru hljóðmenn sem sæju um
að velja þessi lög sem höfð eru
fyrir útsendingar og í hléum.
Þetta vekur spurningu um það,
hversu mikil virðing þarna er bor-
in fyrir þjóðinni? Hér ættu frem-
ur tónlistarmenntaðir menn um
að fjalla, en einkum þó smekk-
menn og menn sem eru vel kunn-
ugir sögu þjóðarinnar og menn-
ingu.
Þá furða ég mig á því sem fram-
kvæmdastjórinn segir, að enginn
hafi kvartað nema Pétur Péturs-
son. Ég las að minnsta kosti eitt
sinn grein eftir Glúm Gylfason
organista, þar sem hann skopaðist
að öllu poppglamrinu, ef til vill of
góðlátlega til að framkvæmda-
stjórinn muni eftir því, en ef mér
skjátlast ekki hefur Jón Ásgeirs-
son tónskáld verið með svipaðar
ábendingar í skrifum sínum, og
trúlega hafa fleiri látið á sér finna
svipuð viðhorf á prenti, þó ég hafi
ekki séð það. Tónlistarmenntaðir
menn vita að nóg er til af léttum
sígildum lögum til að nota í þessu
skyni í staðinn fyrir tískuglamrið,
þótt ekki væri farið að fylgja
þeirri reglu að öll slík lög væru
íslensk. Hitt er annað mál, að
menn hafa of lengi þolað ósómann
möglunarlaust. Og mál er að linni.
Jón Óskar er rithöfundur.
ÞYSK VANDVIRKNI
BiLVANGUR Sf=
HÖFÐABAKKA 9 ■ IE4 RGYKJAVÍK 5ÍMI 687BOO
CKKIBARA haGHíGUR
-UKA SKíMMTtl£GUR ÍHKSnU'
Gfsli Sigurðsson, umsjónarmaður Lesbókar
Moggans og „atvinnumaður" íreynsluakstrihefurátt
fjóra Citroén bíla: „BXinn hefur þrennt umfram aðra
Citroén bíla: Viðbragðið er það langbesta, hann er
hljóðlátari og frágangurinn, sem lengi var veikur
punktur, er nú óaðfinnanlegur. Sætin eru stórkostleg,
bremsurnar mjög góðar og vökvfjöðrunin það besta
sem til er í nokkrum bíl. Hann er ekki bara þægilegur, það er líka
skemmtilegt að keyra hann. BXinn liggur og vinnur vel. Gírskiptingin
erþó veikasti punkturinn. Mælaborðið eralltafsérá parti, en venst vel."
Citroén BX16 TRS, með 1580 cm3 92,5 hestafla bensínvél, kostar
frá kr. 443.260.-
Globusr SÍMI81555
CITROÉN BX
Citroön BX 19 TRD, með 1905 cm3 65 hestafla dlsilvél kostar frá kr. 385.200.- til leigubílstjóra en frá kr. 505.000,- til almenningsnota. ^
Citroén BX er með 4ra strokka vatnskældri vél, 5 gíra kassa, framdrif, vökvafjöðrun með hæðarstillingum og diskabremsur á öllum hjólum.