Morgunblaðið - 16.06.1984, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1984
Aðalfundur Sambandsins að Bifröst 13. og 14. júní
Fundarfulltrúar hlýða á mál Harðar Zophaníassonar, annar.s stjórnarmann-
anna sem voru andvígir þátttöku Sambandsins í tsfilm.
Bekkurinn var þétt setinn í fundarsal Samvinnuskólans á Bifröst, og var setið
með litlum hléum fr4 þvf snemma á morgnana, fram á rauðanótt.
Átakafundur, þar sem hart var
deilt um ísfilm og skipulag
Afgreidslu á tillögum stjórnar um breytingu á samþykktum Sambandsins frestað um eitt ár
STÆHSTA máli aðalfundar Sambands íslenskra samvinnufélaga, sem haldinn var að Bifröst í Borgarfirði þann 13.
og 14. júní, og lauk ekki fyrr en laust fyrir kl. 01 í fyrrinótt, var frestað, en það var afgreiðsla á tillögum stjórnar
Sambandsins um breytingar á samþykktum Sambandsins. Önnur stórmál fundarins, sem voru landbúnaðarmál og
umræða um þátttöku Sambandsins í ísfilm voru afgreidd á fundinum, með ályktunum. Fundinum lauk með
endurkjöri stjórnarmannanna þriggja sem áttu að ganga úr stjórn nú. Vakti mesta athygli í því kjöri hversu
geysilegan stuðning Valur Arnþórsson formaður stjórnar Sambandsins hlaut í því kjöri, en hann fékk 102 atkvæði af
104.
Aðalfundur Sambandsins hófst
með hefðbundnum hætti, skýrslu
formanns stjórnar og forstjóra.
Engar umræður urðu um skýrslur
þeirra Vals og Erlendar, og vakti
það athygli á fundinum. Var að
heyra á fundarfulltrúum, sem,
voru 117 talsins frá hinum ýmsu
kaupfélögum, auk um 60 áheyrn-
arfulltrúa og gesta, að þeir væru
ánægðir með afkomu Sambands-
ins á liðnu ári, en þá skilaði rekst-
urinn tæplega 70 milljón króna
hagnaði, en árið 1982 var 27 millj-
ón króna tap á rekstrinum. Jafn-
framt mátti heyra á máli fulltrúa
að þeir væru ánægðir með þennan
aðalfund, þar sem mikil og
opinská umræða fór fram um mál
sem margir fulltrúanna sögðust
fyrirfram hafa talið svo viðkvæm,
að ekki yrði hægt að ná fram þeim
skoðanaskiptum sem þarna urðu,
án þess að til illinda kæmi.
Stærsta málið — breytingar
á samþykktum Sambandsins
Mönnum bar saman um að til-
lögur stjórnarinnar að breyting-
um á samþykktum Sambandsins
væru stærsta mál fundarins, og
voru margir fundarmanna á því að
svo stórt og viðamikið mál þyrftí
mun meiri umfjöllun meðal al-
mennra félaga, áður en ákvörðun í
málinu væri tekin. Eins og þegar
hefur verið greint frá í Morgun-
blaðinu, þá gera þessar breyt-
ingartillögur m.a. ráð fyrir því að
forstjóri fái mjög aukið vald frá
því sem nú er, með þeim hætti að
hann ráði í starf aðstoðarforstjóra
og framkvæmdastjóra hinna ýmsu
deilda, en í dag eru slík ráðn-
ingarmál i höndum Sambands-
stjórnar. Þá gera þessar tillögur
ráð fyrir því að stjórnarformaður
taki formennskuna að sér sem
starf að einhverju eða öllu leyti,
og verði hans verksvið fyrst og
fremst félagslegs eðlis. Það var
Valur Arnþórsson, formaður
stjórnar Sambandsins sem hafði
framsögu í þessu máli, og sagði
hann þessar tillögur stjórnarinnar
einkum fram komnar til þess að
efla virka ákvarðanatöku og sam-
hæfa rekstrarþætti. Valur sagði
tillögurnar raunar vera í beinu
framhaldi af breyttu skipulagi
Sambandsins, sem hefði verið
ákveðið með það sama í huga. í -
máli hinna ýmsu fundarmanna,
sem tóku til máls um þessar tillög-
ur stjórnarinnar kom fram hörð
gagnrýni á þessar tillögur, en þó
lýstu fulltrúar yfir ánægju sinni
með þær skipulagsbreytingar sem
þegar hafa átt sér stað, og töldu
margir að þær væru til bóta.
Tillögur þessar gera einnig ráð
fyrir því að framkvæmdastjórn
sem slík verði lögð niður, en við
taki framkvæmdaráð, sem þó hef-
ur enn ekki verið skilgreint nánar.
Fljótlega í umræðu um þessar
tillögur kom 1 ljós að um bullandi
ágreining var að ræða, og að ein-
hver fjöldi fulltrúa taldi að með
breytingum sem þessum væri ver-
ið að draga úr lýðræði og auka
forstjóravald. Þeir sem hvað harð-
ast gengu fram í gagnrýni sinni
voru Þröstur Ólafsson, Magnús
Finnbogason og Guðmundur
Gíslason, en hann sagðist draga í
efa að stjórnarfyrirkomulag sem
þetta hefði mikið ágæti í för með
sér. t sama streng tók Magnús
Finnbogason frá Lágafelli, sem
spurði fundinn að því hvernig (
ósköpunum væri hægt að efla lýð-
ræði innan samvinnuhreyfingar-
innar með því að setja alla
ákvarðanatöku á herðar þriggja
manna, forstjóra, aðstoðarfor-
stjóra og formanns.
Valur Arnþórsson gerði þá til-
lögu, er hann sá hversu mikill
ágreiningur yrði um þetta mál, að
fundurinn kysi 5 manna nefnd
sem í væru fulltrúar beggja sjón-
armiða, og að þessi nefnd reyndi
að komast að sameiginlegri niður-
stöðu á fundinum. Var það gert, og
seint í fyrrakvöld kynnti Þröstur
Ólafsson niðurstöðu þessarar
nefndar, sem var á þá leið að lagt
var til að afgreiðslu málsins yrði
frestað og Sambandsstjórn falið
að endurskoða málið og kynna
fulltrúum fyrir næsta aðalfund,
þannig að hægt yrði að afgreiða
málið að ári. Var þessi tillaga
samþykkt í fyrrakvöld með 58 at-
kvæðum gegn 46. 2 seðlar voru
auðir. Valur Arnþórsson, sagði í
samtali við blm. Mbl. að lokinni
atkvæðagreiðslunni að hann væri
fullkomlega sáttur við þessa
niðurstöðu. Fundarfulltrúar
þyrftu einfaldlega að kynna sér
breytingartillögurnar betur, og
sumir hefðu ekki séð þær fyrr en á
sjálfum fundinum, þó svo að þær
hefðu verið sendar til kaupfélag-
anna 2 mánuðum fyrir fundinn,
eins og lög Sambandsins gera ráð
fyrir. Erlendur Einarsson, for-
stjóri Sambandsins sagði hinsveg-
ar einungis: „Ég hef ekkert um
málið að segja. Þetta var lýðræð-
isleg kosning."
Nýr tónn í landbúnaðar-
málum
Sérmál fundarins var landbún-
aðarmálin, og voru flutt 3 fram-
söguerindi um þau mál. Umræður
um landbúnaðarmálin urðu mikl-
ar og kom fram skýr vilji fulltrúa
og gesta sem tóku þátt í umræð-
unni, að samræma þurfi betur
sjónarmið neytenda og framleið-
enda. Að loknum umræðum um
landbúnaðarmálin var fundarfull-
trúum skipt niður i vinnuhópa,
sem fjölluðu um einstök atriði
landbúnaðarmála og ályktuðu um
þau. I sameiginlegri ályktun fund-
arins um landbúnaðarmál segir
m.a.: „Aðalfundur Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga, haldinn á
Bifröst 13.—14. júní 1984, telur að
stefna í framleiðslumálum land-
búnaðarins skuli miðast fyrst og
frekst við að fullnægja þörfum
innlends markaðar."
Jafnframt segir í þessari álykt-
un að koma þurfi til móts við óskir
neytenda um vörugæði og vöruval
og efla samráð og samstarf neyt-
enda og framleiðenda í vinnslu- og
sölufyrirtækjum samvinnumanna.
Fundurinn leggur ekki til að
niðurgreiðslur verði lækkaðar frá
því sem nú er, því þær örvi sölu og
létti kaup heimilanna. Fundurinn
telur að aðlögun búvörufram-
leiðslunnar að innlendri markaðs-
þörf þurfi að gerast skipulega og í
áföngum, samhliða því að stórátak
verði gert í eflingu atvinnulífs, svo
ekki komi til frekari röskunar í
byggð landsins.
föðrum lið þessarar ályktunar
aðalfundarins segir m.a. að fund-
urinn telji nauðsynlegt að efla
kjötiðnað á vegum samvinnu-
hreyfingarinnar til þess að mæta
breyttum neysluvenjum, og felur
fundurinn forystu Sambandsins
að beita sér hið fyrsta fyrir upp-
byggingu þjónustustöðvar á þessu
sviði.
Lokaliður þessarar ályktunar er
almenns eðlis um áróðurs- og
samkepnnisstöðu Sambandsins.
Þar segir m.a.: „Aðalfundur Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga
ályktar að samvinnuhreyfingin
hafi verið of sein til svara og sé
ekki nógu opinská... Að ekki
nægi að svara ásökunum, heldur
verði að taka frumkvæði með öfl-
ugu kynningarstarfi og auknu
upplýsingastreymi jafnt inn á við
til félagsmanna og starfsmanna
sem út á við í þjóðfélaginu."
Þátttaka í ísfílm mikid hita-
mál, sem þó var sjatlað á
fundinum
Eins og vænst hafði verið, kom
til snarpra umræðna um þátttöku
Sambandsins í ísfilm, og deildu
margir fulltrúa hart á það hvernig
staðið hefði verið að þeirri ákvörð-
un svo og að samstarfsákvörðun
við aðra aðila ísfilm skyldi hafa
verið tekin. Valur Arnþórsson
hafði framsögu 1 málinu, og
kynnti aðdraganda þess að þessi
ákvörðun var tekin. Jafnframt las
Valur upp ályktanir 8 kaupfélaga,
þar sem andstöðu var lýst við
þetta samstarf. Valur sagði að
lögmæt ákvörðun um þetta sam-
starf hefði verið tekin af lögmæt-
um aðila, stjórn Sambandsins.
Sagðist hann persónulega telja að
ákvörðun um samstarf við Árvak-
ur og Frjálsa fjölmiðlun orkaði
tvímælis, en hann liti þó þannig á
málið að kostir slíks samstarfs
væru fleiri en gallarnir. Valur
sagði orðrétt: „Það er alveg sjálf-
gefið, að menn geta hætt þátttöku
eða orðið óvirkir. Ég fullyrði að ef
einhvern tíma verður traðkað á
Sambandinu og þess hagsmunum í
þessu samstarfi í ísfilm, þá mun
Sambandið hætta þátttöku sinni í
þessu fjölmiðlafyrirtæki." Valur
sagðist jafnframt mundu hafa
áhyggjur af því, ef útvarps/sjón-
varpsstöð risi í Reykjavik, eftir að
einkaréttur ríkisútvarpsins á slík-
um rekstri hefur verið afnuminn,
með þátttöku höfuðandstæðinga
samvinnuhreyfingarinnar, Árvak-
urs hf. og Frjálsrar fjölmiðlunar
hf. án þess að rödd Sambandsins
fengi að heyrast einnig.
Umræða um þetta mál tók lang-
an tíma og voru margir mjög
harðorðir í garð stjórnarinnar
fyrir þessa ákvörðun. Hörður
Zophaniasson, einn stjórnar-
manna gerði grein fyrir því að
hann og Finnur Kristjánsson var-
aformaður stjórnar Sambandsins
hefðu verið andvígir þessu sam-
starfí. Þeir hefðu talið að sam-
starf um fjölmiðlarekstur sem
þennan ætti að vera á öðrum
grundvelli en við höfuðandstæð-
inga samvinnuhreyfingarinnar.
Reyna hefði átt til þrautar að ná
slíku samstarfi við samtök laun-
þega og bænda. Kjartan P. Kjart-
ansson greindi frá því að allar við-
ræður við þá aðila um hugsanlegt
samstarf um rekstur fjölmiðlafyr-
irtækis hefðu strandað á þvi að
launþegahreyfingin og bænda-
samtökin hefðu lýst því yfir að
þau skorti fjármagn til þátttöku.
Sumir fulltrúanna voru ómyrkir
í máli, er þeir lýstu skoðun sinni á
samstarfi Sambandsins við Ár-
vakur og Frjálsa fjölmiðlun. Til að
mynda sagði Sigurður Brynjólfs-
son: „Þeir sem sofna hjá hundun-
um, vakna með flær.“ Andrés
Kristjánsson lýsti eindreginni
andúð sinni á þessu samstarfi, og
sagði hann m.a.: „Morgunblaðið og
DV eru miklu harðari í gagnrýni
sinni og árásum á samvinnuhreyf-
inguna, en samþykktir Sjálfstæð-
isflokksins segja til um. Þau eru
því miklu harðari andstæðingar
samvinnuhreyfingarinnar, en
Sjálfstæðisflokkurinn, enda full-
yrði ég að Morgunblaðið er ekki
málgagn samvinnusjálfstæðis-
manna.“
Er líða tók á umræðuna, og
harðorð tillaga og önnur breyt-
ingatillaga lágu fyrir fundinum,
kom fram vilji fundarmanna að
reyna að sameinast um eina mil-
dari tillögu, og eftir fund þar til
skipaðrar nefndar var lögð fram
tillaga sú sem samþykkt var með
56 atkvæðum gegn 5, en aðrir sátu
hjá. í þessari tillögu segir orðrétt:
„Ákvörðun stjórnar Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga um aðild
að ísfilm hf. hefur vakið andstöðu
samvinnumanna um land allt, eins
og umræður og ályktanir ýmissa
kaupfélaga bera vott um.
Aðalfundur Sambandsins...
telur því miður farið að tekið hef-
ur verið upp — án almennrar um-
ræðu í samvinnuhreyfingunni —
samstarf um fjölmiðlun við aðal-
málgögn höfuðandstæðinga sam-
vinnustefnunnar i landinu með
þátttöku i fsfilm hf og álítur að
leita beri samstarfs um þetta mál
við samtök launafólks og bænda,
sem öðrum fremur mynda ís-
lenska samvinnuhreyfingu.
Jafnframt lýsir fundurinn mik-
illi ánægju sinni með þá ákvörðun
samvinnumanna við Éyjafjörð að
stofna fyrirtæki á sviði fjölmiðl-
unar i samvinnu við almanna-
samtök og kaupfélög á Norður-
landi og með þátttöku Sambands-
ins.“
Glæsileg kosning Vals
Laust fyrir miðnætti í fyrra-
kvöld hófst svo síðasti dagskrár-
liður aðalfundarins, sem var kosn-
ing þriggja stjórnarmanna í Sam-
bandsstjórn, en kjörtími þeirra
Vals Arnþórssonar, stjórnarfor-
manns, Ólafs Sverrissonar og Jón-
asar R. Jónssonar var útrunninn.
Var atkvæðagreiðsla leynileg, og
án tilnefninga. Fyrst var kosið í
formannskjörið og fékk Valur
geysilega sterkt endurkjör, því
hann hlaut 102 atkvæði af 104.
Dagbjört Höskuldsdóttir hlaut 1
atkvæði og Kjartan P. Kjartans-
son 1 atkvæði. Var þessari niður-
stöðu vel fagnað af fundarfulltrú-
um. Ólafur Sverrisson var endur-
kjörinn með 86 atkvæðum og Jón-
as R. Jónsson með 84 atkvæðum.
Dagbjört Höskuldsdóttir hlaut 19
atkvæði í þeirri kosningu og örfáir
aðrir fulltrúar 1 til 3 atkvæði
hver. Þá voru varamenn í stjórn
allir endurkjörnir, en þeir eru
Þorsteinn Sveinsson, ólafur
ólafsson og ólafur Jónsson.
Að kosningum loknum tók Val-
ur Arnþórsson til máls, þakkaði
fundarmönnum traustið, jafn-
framt því sem hann þakkaði
starfsmönnum fundarins og
starfsmönnum Bifrastar fyrir vel
unnin störf. Sleit Valur að því
búnu fundi.
Nýja stjórnin kom saman til
fundar, strax að aðalfundi loknum
og fundaði fram eftir nóttu. Sam-
bandsstjórnin kaus nýja fram-
kvæmdastjórn á fundi sínum og
hana skipa: Erlendur Einarsson,
formaður, Axel Gislason, varafor-
maður, Hjalti Pálsson, Magnús
Friðgeirsson, Sigurður Markús-
son, Jón Þór Jóhannsson, Hjörtur
Eiríksson, Kiartan P. Kjartans-
son, Eggert Á. Sverrisson og Þor-
steinn ólafsson. Úr stjórninni
gekk Geir Magnússon, sem nú
hættir sem framkvæmdastjóri
fjármáladeildar og tekur við
bankastjórastarfi i Samvinnu-
bankanum.