Morgunblaðið - 03.07.1984, Page 1
48 SÍÐUR 4 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
STOFNAÐ 1913
149. tbl. 71. árg.____________________________________ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Guatemala:
Carlos fangi
hjá ísraelum?
T«J AtIt, 2. júll, AP.
YITZHAK Shamir,
forsKtisráðherra
fsraels, sagðist f
dag ekki trúa þeirri
frétt, að herskip frá
ísrael hefdu tekið
til fanga alþjóðlega
hryðjuverkamann-
„Carlos"
Sagði
Shamir á kosn-
ingafundi fyrir sunnan Tel Aviv: „Ég
álít, að ef það væri satt, þá hefði ég
strax verið látinn vita.“
Fréttin um handtöku Carlosar
birtist í brezka blaðinu Evening
Standard. Þar var jafnframt sagt,
að hjá ísraelsstjórn ríkti nú mikill
fögnuður yfir því, að „sjakalinn"
hefði verið handtekinn.
Blaðið segir, að Carlos hafi stigið
um borð í ferjuskipið Alison
Blanco, rétt áður en það fór frá
Larnaca á Kýpur áleiðis til Beirút.
Israelsk herskip sigldu í veg fyrir
ferjuskipið og færðu það til hafnar
I lsrael. Flestir farþeganna voru
fljótlega látnir lausir, en ísraelar
héldu 9 þeirra í varðhaldi þrátt
fyrir ásakanir ýmissa rikja um sjó-
rán og héldu því fram, að fangarnir
væru grunaðir um „fjandsamlegar
aðgerðir gegn fsrael".
Carlos, sem fæddur er í Venezú-
ela og heitir réttu nafni Ilyich
Ramirez-Sanchez, er m.a. eftirlýst-
ur i sambandi við fjöldamorðin á
ísraelskum íþróttamönnum á
Ólympíuleikunum 1972 og mann-
rán i Vínarborg 1975 á oliumála-
ráðherrum olíuútflutningsríkjanna
(OPEC).
Anatoly Dobrynin, sendiherra Sovétrfkjanna f Bandarfkjunum (til vinstri á myndinni), og Ronald Reagan forseti
ræða saman f garðveizlu í Hvíta húsinu í Washington á sunnudagskvöld.
Bandarfkjamenn svara tillögum Rússa:
Segjast reiðubúnir til að
ræða bann við geimvopnum
Wuhiafton o* MohIctu, 2. júli. AP.
BANDARÍKIN eru reióubúin til
þess að ganga til viðræðna við Sov-
étrikin í Vínarborg í haust um bann
við geimvopnum, en þau vilja einnig
nota það tækifæri, sem þar gefst, til
þess að taka upp viðræður um kjarn-
orkuvopn að nýju. Skýrði Larry
Speakes, talsmaður Bandaríkjafor-
seta, frá þessu í dag. „Við munum
mæta til þessara viðræðna í sept-
ember,“ sagði hann ennfremur.
I grillveizlu í Hvíta húsinu í
fyrrakvöld skýrði Ronald Reagan
forseti afstöðu Bandaríkjastjórn-
ar í þessu máli fyrir Anatoly
Dobrynin, sendiherra Rússa í
Washington. Tók George Shultz
utanrfkisráðherra einnig þátt i
þessum viðræðum. Larry Speakes
kvaðst i dag ekki geta skýrt frá
einstökum atriðum þessara við-
ræðna, en lagði áherzlu á, að fyrir-
fram væri það ekki skilyrði af
hálfu Bandarikjastjórnar fyrir
viðræðum um geimvopnabann, að
rætt yrði samtímis um fækkun
kjarnorkuvopna. „Við teljum við-
ræður um kjarnorkuvopn hins
vegar það mikilvægar nú, að mjög
æskilegt væri að taka þær með.“
Geoffrey Howe, utanríkisráð-
herra Bretlands, sagði f Moskvu í
dag, að neiti Rússar framkomnum
tilmælum um að taka upp viðræð-
ur um kjarnorkuvopn að nýju,
mætti jafna því við „uppgjöf".
Lýsti Howe yfir stuðningi sínum
við tillögur Bandaríkjastjórnar
um að hefja slíkar viðræður að
nýju samtimis viðræðum um
geimvopnabann.
f viðræðum við Andrei Grom-
yko, utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, í dag gerði Howe ennfremur
mannréttindi að umtalsefni og
sagði, að Vesturlönd álitu Sovét-
rikin hafa framið brot á alþjóða-
samningum á þvi sviði. Tilgreindi
hann fimm kunna andófsmenn,
sem grundvallarmannréttindi
hefðu verið brotin á, þeirra á með-
al Andrei Sakharov og konu hans.
Handtekinn
í Leningrad
TH Atít, 2. júlí. AP.
BLAÐ í fsrael skýrði frá því í dag, að
Ephraim Katzir, fyrrum forseti lands-
ins, hefði verið handtekinn af sovézk-
um leynilögreglumönnum í Leningrad i
dag, eftir að hann hafði heimsótt and-
ófsmann af gyðingaættum á beimili
hans.
Risaolíuskipið Tiburon
ónftt eftir árás íraka
Manama, Bahrain, 2. júli. AP.
RISAOLÍUSKIPIÐ Tiburon var í
dag dregið að svonefndum „skipa-
kirkjugarði“ úti fvrir strönd Bahr-
ain, þar sem reynt verður að dæla
olíufarmi þess, sem er um 50 millj-
óna dollara virði, yfir í önnur skip.
„Tiburon er illa á sig komið. Það er
í rauninni algerlega ónýtt,“ sagði
talsmaður björgunarfélagsins. „Það
hefur hins vegar tekizt að slökkva
eldinn í skipinu og allt kapp verður
nú lagt á að tæma olíuna úr því.!‘
Tiburon varð fyrir eldflaug frá
íraskri herþotu í síðustu viku, er
skipið var statt í gvennd við olíu-
höfn írana við Khargeyju. í gær
gerðu írakar enn loftárásir á skip
á leið til írans og sögðust hafa
grandað þar fimm skipum, auk
þess sem tundurdufl þeirra hefðu
eyðilagt tvö önnur skip. Utanrík-
isráðuneytið í Suður-Kóreu stað-
festi í dag, að herþotur frá írak
hefðu eyðilagt flutningaskip það-
an nærri olíuhöfn trana við Band-
ar Khomeini.
Mikil spenna ríkti í dag á víglín-
unni milli íraks og írans og kom
víða til átaka. Beittu írakar óspart
þyrlum gegn stöðvum trana fyrir
austan borgina Basra og sögðust í
kvöld hafa eyðilagt 8 þeirra og
fellt marga tugi manna í þessum
árásum.
Útvarpið i Israel sagði i dag, að
ekki væri vitað um dvalarstað Katz-
irs, eftir að honum var skipað að
yfirgefa heimili andófsmannsins
Yaacov Gorodetzky. Þá væri það
ekki fullljóst, hvort hann hefði verið
handtekinn eða aðeins skipaö af
KGB (sovézku leynilögreglunni) að
yfirgefa heimili Gorodetzkys.
Katzir, sem er kunnur lffefna-
fræðingur, var forseti ísraels
1973-1978.
Ephraim Katzir, fyrrverandi forseti
tsraels.
Miðflokkurinn
með mest fylgi
GulemaU-bor*, 2. júlí. AP.
ÞINGKOSNINGAR fóru fram í
Guatemala á sunnudag og er talningu
atkvæða úr Guatemala-borg lokið.
Miðflokkurinn þykir sigurstrangleg-
astur, en hann hafði hlotið yfir 25%
talinna atkvæða.
Ekki var búið að telja atkvæði
nema úr Guatemala-borg og ná-
grenni, en úrslitatalna er að vænta
á þriðjudag. Kristilegir demókratar
höfðu fengið næstmest fylgi.