Morgunblaðið - 13.07.1984, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 1984
13
Hátíðisdagar hestafólks í júlflok:
Akureyringar skora á Reykvíkinga
í gæðingakeppni á Melgerðismelum
Alltaf öðru hvoru brydda
hestamenn upp á nýjungum á
hestamótum og nú er í vændum
nýjungamót hjá Eyfirðingum. Á
hverju sumri halda hestamanna-
félögin þrjú í Eyjafirði, Léttir,
Funi og Þráinn, sameiginlegt
hestamót á Melgerðismelum.
Hafa þessi mót verið með hefð-
bundnu sniði en nú á sem sagt
að breyta út af vananum. Hafa
þeir Akureyringar skorað á
Reykvíkinga í gæðingakeppni
þannig að efstu hestar á hvíta-
sunnumóti Fáks mæta þá norður
og keppa við efstu hestana frá
hvítasunnumóti Akureyringa.
Einnig verður keppt í paragæð-
ingakeppni ef kalla má það því
nafni. Verður tilhögun keppninnar
þannig að hvert par er samtímis
inni í hringnum og bæði dæmd
samtímis en hvoru um sig gefin
einkunn og síðan lagt saman og
deilt í með tveimur og er þá komin
einkunn fyrir parið.
Á mótið verður boðið öllum
hestum sem sigrað hafa á lands-
og fjórðungsmótum undanfarin ár
og verða það um tíu hestar. Ekki
munu þessir hestar taka þátt í
keppni heldur eingöngu sýndir
mönnum til skemmtunar.
Að öðru leyti verður mótið
hefðbundið, gæðingakeppni og
kappreiðari en laugardagskvöldið
verður kvöldvaka með varðeldi og
í lokin verður stiginn dans á
staðnum.
í samtali við Reyni Hjartarson
hjá hestamannafélaginu Létti
kom fram að þeir Eyfirðingar
binda miklar vonir við þessar nýj-
ungar sem þarna verður boðið upp
á en hann kvað aðsókn að hesta-
mótum hafa minnkað undanfarin
ár og væri þetta meðal annars til-
raun til að sníða dagskrána meira
að óskum áhorfenda en gert er
venjulega á hestamótum. Einnig
kvaðst hann vonast eftir góðri
þátttöku í kappreiðum og þá jafn-
vel að kappreiðahestar að sunnan
kæmu í slaginn en þátttökutil-
kynningar þurfa að berast fyrir
16. júlí nk. og er það gert i síma
96-21205.
Frá hestamóti i Melgerðismelum.
Árbók Ferðafélags
íslands komin út
Út er komin 57. Árbók Ferðafélags-
ins og er efni hennar Reykjanesskagi
austur að Grindaskörðum. Árbók
Ferðafélagsins 1936 fjallaði um land-
nám Ingólfs og ritaði dr. Bjarni Sæ-
mundsson í hana lýsingu á því sem
næst sama svæði, en í þessari Árbók
er lögð áhersla á aðra efnisþætti en
var í lýsingu Bjarna, segir í frétt frá
Ferðafélaginu.
Fjórir höfundar eru að þessari
bók: Séra Gísli Brynjólfsson, fyrr-
um prófastur, skrifar kafla um
byggðir Suðurnesja. Gísli er kunnur
fyrir þekkingu sína á sögu þessara
byggðarlaga enda hefur hann ritað
fjölda greina um það efni auk bókar
um Staðarhverfi í Grindavík. Jón
Jónsson, jarðfræðingur, skrifar
kaflann um „Heiðar og hraun", en
hann er þekktur fyrir jarðfræði-
rannsóknir sínar á Reykjanesskaga.
Prófessorarnir Hörður Kristinsson
og Arnþór Garðarsson hafa báðir
stundað náttúrufræðirannsóknir á
Reykjanesskaga, hvor á sínu sér-
sviði. Hörður ritar kafla um
gróðurfar skagans og Arnþór um
fuglabjörg og bjargfugla.
I kaflanum „Fuglabjörg Suður-
kjálkans" er greint frá geirfuglin-
um og endalokum hans. Mynd af
tveim geirfuglum er birt með þeim
kafla og er hún fengin úr fyrstu
útgáfu af „The Birds of America",
sem kom út f London 1827—1838,
eftir amerfska listamanninn og
náttúrufræðinginn John James
Audobon (1785—1851). Margar lit-
myndir eftir ýmsa höfunda eru í
Árbókinni.
Árbók 1984
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Kort, bæði jarðfræðikort og
landakort, eru til skýringar lesmáli.
í kaflanum „Félagslíf" er að finna
upplýsingar um starfsemi Ferðafé-
lagsins.
Ritstjóri Árbókar Ferðafélagsins
er Þorleifur Jónsson, bókavörður.
ri ^
Urvals
nautakjöt
Það munar um minna
U.N.I. gæöaflokkur
Okkar Skráö
verö verö
Nautasnitchel 375 590
Nautagullasch 327 487
Nauta roast beef 347 535
Nauta T-bone steik 245 377-
Nauta fillet 490 709
Nauta mörbrá 490 709
Nauta grillsteik 170 227
Nauta bógsteik 170 227
Nautahakk 195 332
10 kg. nautahakk pr. kg. 175 313
Nautahamborgari pr. stk. 14 kr. 24
Mánudaga, þriðjudaga og
miðvikudaga opið til kl. 7.
Opið fimmtudaga til kl. 20.
Opið föstudaga til kl. 20.
Visa — Kreditkorta-
þjónusta
Áskrifmnimnn er 8X)33
8
Þú færö gjaldeyrinn í utanlandsferöina hjá okkur.
Ef eitthvað er eftir þegar heim kemur er tilvaliö
aö opna gja Idey risrei kn i ng og geyma afganginn á vöxtum
til seinni tíma.
Iðnaðarbankinn
Aöalbanki og öll útibú.