Morgunblaðið - 01.08.1984, Side 1
56 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
174. tbl. 71. árg.
MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Flugræningjar
lentu á
Genf. 31. júlí. AP.
FARÞEGAÞOTU Air France mei 58
farþegum og sex manna áhöfn var
rænt i leið frá Frankfurt til Parísar í
kvöld. Vélin tók eldsneyti í Genf, en
fór þaðan einni og hálfri stundu síð-
ar og stefndi til Beirút.
Yfirvöld i Beirút tilkynntu að
flugvellinum yrði lokað. En þau létu
síðan undan, þar sem ræningjarnir
tilkynntu að sprengjur væru f vélinni
Mótmæli
í Varsjá
Varaji, 31. júlí. AP.
NOKKKAR þúsundir manna gengu
um gamla hluta Varsjár og sungu ætt-
jarðarsöngva eftir messu sem haldin
var í tilefni af 40 ára afmæli uppreisn-
arinnar f Varsjá.
Þúsundir manna fylgdust með
messunni og hélt svo þorri hópsins
af stað áleiðis að hallartorginu í
Varsjá, syngjandi einkunnarorð
Samstöðu og nafn Lech Walesa.
Mótmælendurnir söfnuðust síðar
saman hjá gröf óþekkta hermanns-
ins og héldu söng sinum áfram.
Lögreglan lét mótmælagönguna af-
skiptalausa, enda fór hún friðsam-
lega fram.
Sjá nánar frétt um Pólland á bls. 24.
Kýpur
og hún hefði einungis eldsneyti til
fimm mínútna flugs.
Flugvélin fór hins vegar nær
samstundis i loftið aftur án þess
að taka eldsneyti, þar sem flug-
vallarstarfsmenn reyndu að koma
i veg fyrir brottför hennar. Frá
Beirút var stefnan tekin til Kýpur
og lent þar klukkutíma síðar.
f Genf var sagt að ræningjarnir
væru sennilega tveir eða þrir og
töluðu „lélega arabísku". Flug-
stjórinn sagði að hann hefði heyrt
skothvelli og að ræningjarnir
hefðu gefið i skyn að einhver hefði
verið myrtur. Hins vegar segir Air
France að enginn slasaður maður
sé í vélinni.
„Ræningjarnir eru mjög óþol-
inmóðir. Látið mig hafa leyfi til
brottfarar, eldsneyti sem mig
vantar og leyfið mér að fara,“
sagði flugstjórinn við flugturninn
í Genf. Reynt var að tefja fyrir
afgreiðslu vélarinnar eins og kost-
ur var.
Fyrst átti að stefna vélinni til
Teheran, en yfirvöld neituðu að
leyfa henni að lenda þar. Flugvél-
um hafði verið komið fyrir á
flugvellinum i Beirút til að hindra
lendingu vélarinnar, en samþykkt
var að rýma völlinn um leið og
lendingarleyfi fékkst.
AP-símamynd
Árekstur í lofti
Tvær þyrlur rákust á f lofti yfir Akashi í Japan á þriðjudag. Um borð í
þyrlunum voru blaðamenn og Ijósmyndarar og fórust þrír þeirra og fjórir
slösuðust er þyrlurnar hröpuðu á byggingar og bíla fyrir neðan. Myndina
tók járnbrautarstarfsmaður sem leið átti um svæðið þar sem slysið varð.
Símamynd AP.
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, fyrir miðju, ræðir við fréttamenn fyrir utan bústað forseta eftir viðræður
þeirra um möguleika á þjóðstjórn.
Viðræður um myndun
þjóðstjórnar í ísrael
Jenualcm, 31. júll. AP.
YITZHAK Shamir, forsætis-
ráðherra ísrael, og Shimon
Peres, formaður Verka-
mannaflokksins, samþykktu
í dag eftir fund með forseta
landsins, Chaim Herzog, að
hittast á morgun og ræða
möguleika á þjóðstjóm. Per-
es gaf í skyn að Shamir hefði
samþykkt að sitja í ríkis-
stjórn undir forystu Verka-
mannaflokksins.
Shamir sagði að allir
möguleikar yrðu ræddir í
stjórnarviðræðum þeirra
Peresar og það væri sam-
komulagsatriði hvort hann
yrði forsætisráðherra eða
Peres. Fulltrúar Likud,
flokks Shamirs, sögðu hins
vegar að hann hefði aldrei
gefið í skyn að hann vildi
vera í stjórn undir forystu
Verkamannaflokksins.
Shamir og Peres reyndu
að mynda samsteypustjórn
í fyrra, en þeim mistókst
vegna ágreinings um stefn-
una í utanríkismálum. Ef
samsteypustjórn verður
mynduð nú, verður aðal-
spurningin sú hvor aðilinn
það verður sem hefur á
hendi forystuhlutverkið.
Umdeilt orku-
ver samþykkt
Bonn, 31. júlf. AP.
STJÓRNIN í Bonn samþykkti f
kvöld starfrækslu umdeilds orku-
vers, „Buschhaus“-versins í
Helmstedt, án hreinsibúnaðar.
Græningjar vara við mikilli
mengun frá orkuverinu og saka
stjórnina um uppgjöf fyrir fyrir-
tækinu sem reisti verið.
Kohl kanzlari gerði hlé á
sumarleyfi sínu til að tryggja
samkomulag um málið í stjórn-
inni. Áður hafði þingið samþykkt
starfrækslu versins með 256 at-
kvæðum gegn 195.
Þrír þátttakendur i mótmælum
fyrir utan þinghúsið voru hand-
teknir.
Reynt að halda olíu-
brákinni í skefjum
Lake Charles, Louísúum, .31 .júlf. AP.
Mengunarvarnarmenn og
hreinsunarsveitir vinna nú baki
brotnu við að hreinsa 13 km langa
og 2 km breiða olfubrák sem
myndaðist þegar breska olíuskipið
Alvenus strandaði á Mexfkóflóa á
þriðjudag.
Talsmaður bandarisku
strandgæslunnar sagði að strönd
Bandaríkjanna stafaði engin
bráð hætta af olíunni. T.d. væru
friðuð dýrasvæði um 65 km
norðaustur af strandstað ekki
talin i hættu. Strandgæslan
fylgist þó grannt með olíubrák-
inni, þar sem hætta er á að hún
breyti um stefnu í breytilegri
vindátt.
Um 350.000 oliutunnur voru
um borð i oliuskipinu þegar það
strandaði við bakka skipaskurð-
ar sem liggur út á flóann. Olía úr
um 40.000 tunnum lak út um 35
metra langt gat sem myndaðist
á hlið skipsins.
Talsmaðurinn sagði að olíu-
lekinn hefði nú að mestu verið
stöðvaður og reynt yrði að flytja
olíutunnurnar úr skipinu um
borð í önnur og draga svo
strandaða skipið í höfn, annað-
hvort f Houston eða New
Orleans.