Morgunblaðið - 01.08.1984, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1984
35
ferðir og gefið sundlaugafrf.
Kennd var leikfimi og gerð tilraun
til kennslu í frönsku, spænsku,
hraðritun, skák og vöruþekkingu.
Oddur er 4. í röðinni af 8 börn-
um hjónanna Herdísar Jónsdóttur
og Sigurðar Oddssonar skipstjóra,
sem bjuggu lengst af á Laugavegi
30. Hann vann m.a. í Tóbaksversl-
uninni London, heildversluninni
Elding Trading og stofnaði árið
1958 Plastprent og síðan árið 1974
Plastos, þar sem nú vinna um 60
manns. Árið 1940 giftist hann
Guðfinnu Björnsdóttur frá Vest-
mannaeyjum og eiga þau tvo syni.
Sigurð verkfræðing, sem hefur
fyrir nokkrum árum gengið inn í
fyrirtækið og aðstoðað Odd. Kona
hans er Erla Aðalsteinsdóttir og
eiga þau 3 börn. Yngri sonur
þeirra er Björn, sem er doktor í
jarðfræði. Hann er giftur Gabri-
elle F. Richter þýskrar ættar og
ætla þau hjónin að setjast hér að.
Við bekkjarsystkinin höfum
hist á 5 ára fresti og hefur það
komið í hlut Odds, Viðars Thor-
steinsson (sem nú er látinn), Ulr-
ichs Richter og min að smala
hópnum saman og hef ég þess
vegna átt þess kost að kynnast
Guðfinnu, konu Odds, töluvert ná-
ið. Árið 1977 þegar við bekkjar-
systkinin héldum upp á 45 ára af-
mæli okkar, buðu þau Guðfinna og
Oddur okkur að hittast á þeirra
fallega heimili að Flókagötu 69 áð-
ur en við fórum á nemendasam-
komu skólans að Hótel Sögu og
áttum við öll þar alveg ógleyman-
lega stund. Þegar við áttum 50 ára
afmæli 1982 var Oddur svo veikur
að hann gat ekki mætt með okkur
á Hótel Sögu og var hans vissu-
lega saknað. Oddur hefur oft átt
við mikla vanheilsu að striða en
sem betur fer hefur hann náð sér
furðu fljótt aftur og er nú hinn
hressasti og ætla þau hjónin að
taka á móti ættingjum og vinum
að Hótel Holti kl. 4—6 i dag í til-
efni sjötugs afmælisins.
Ég vil fyrir hönd okkar bekkj-
arsystkinanna óska afmælisbarn-
inu innilega til hamingju með
þennan áfanga og við vonum að
við eigum eftir að eiga margar
skemmtilegar stundir saman.
Sigríður Pétursdóttir Blöndal
Viðborgum meira, Sóttum vörumarþangað. Pvígeturþú valið
iír Lundúnarvörum á útsölunni okkar hér í BankastrætL
Strætó í miðbæinn kostar 30 krónur báðar leiðir, gisting,
morgunmatur og leiðsógn óþörf, og ekki færðu popp.
Efí ÞAÐ ER PEPP í
UTSOLUmi
OliKAR
VORUIX3FTI
SIGTUN 3
AUGLÝSIR NÝJA LEIÐ TIL SPARNAÐAR
<UR
. SKOR
—IKFONG
, . FATNAÐU
•-OBUSAHOL
flCO