Morgunblaðið - 16.08.1984, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 16.08.1984, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984 Fulltrúaráðsfundur kartöflubænda: Verslanir geti keypt af pökkunarstöðvum Á fulltrúaráðsfundi Landssambands kartöflubænda sem haldinn var í fyrra- dag var samþykkt bókun þar sem lýst er yfir eindreginni andstöðu við að heildverslanir eða aðrar verslanir fái leyfi til að kaupa kartöflur beint af bændum og versla með þær. Fulltrúa- ráðið lýsti því hinsvegar yfir að það sæi ekkert þvf til fyrirstöðu að verslanir kaupi kartöflur af pökkunarstöðvum bænda. Þá telur fulltrúaráðið að skipu- lag það sem nú er í gildi um sölumeð- ferð á íslenskum kartöfium tryggi best hag framleiðenda og neytenda en óskar eftir að taka upp viðræður við landbúnaðarráðuneytið um rekstur Grænmetisverslunar landbúnaðarins með það fyrir augum að Landssam- bandið taki við rekstri fyrirtækisins. 6 ára barn brenndist alvarlega SEX ára gamall drengur brenndist alvarlega vestur í bæ um miðjan dag f gær. Hann mun hafa verið að fikta með eldspýtur í stigagangi fjölbýlishúss er slysið varð, en engin vitni voru að slysinu. Aðvíf- andi maður sá barnið koma hlaup- andi út alelda og tókst að nota nálægan poll til að slökkva eldinn. Barnið var flutt f sjúkrahús alvarlega brennt eða með mitt á milli annars og þriðja stigs bruna og er líðan þess eftir at- vikum. Brunnar eldspýtur fundust f stigaganginum, þar sem dreng- urinn hafði verið að leik og barn hafði séð hann skömmu áður en slysiö varð leika sér með eld- spýtur. Eins og fyrr sagði voru engin vitni að slysinu, en talið er að drengurinn hafi einhvern veginn misst eldspýtur í föt sín og þau síðan orðið alelda. Bændur vilja taka við rekstri Græn- metisverzlunarinnar Ofangreind bókun var samþykkt sem svar fulltrúaráðsins við erindi Framleiðsluráðs landbúnaðarins þar sem leitað er álits Landssambands- ins á umsóknum fjögurra fyrirtækja sem sótt hafa um leyfi til heildsölu- dreifingar á innlendum kartöflum. Magnús Sigurðsson í Birtingaholti, formaður Landssambandsins, sagöi í samtali við Morgunblaðið að kart- öflubændur vildu f aðalatriðum viðhalda því skipulagi sem væri á sölumálum þeirra. Legðu þeir mikla áherslu á að bændurnir sjálfir hefðu dreifinguna sem mest með höndum. Væru þeir mjög áfram um að þeir gætu fengið greiðslur vel og örugg- lega eins og þeir hefðu fengið í gegn- um Grænmetisverslunina. Þá vildu þeir líka að kartöflumar væru tekn- ar hlutfallslega jafnt af öllum bænd- um en ekki verið að semja við ein- staka bændur þannig að sumir losn- uðu við sína framleiðslu á undan öðrum. Aðspurður um hvað fyrir þeim vekti að heimila verslunum að kaupa kartöflur beint af hinum ýmsu pökk- unarstöðvum sagði Magnús að nú þegar væru nokkrar pökkunarstöðv- ar og umboð Grænmetisverslunar- innar úti á landi, til dæmis í Eyja- firði, Höfn og öræfum. Nú væri fyrirhugað að koma upp pökkunar- stöð á aðalframleiðslusvæðinu, Þykkvabænum, og jafnvel annarri f Eyjafirði. Til þessara stöðva gætu menn snúið sér ef þeir vildu það frekar en að versla við pökkunarstöð Grænmetisverslunarinnar f Reykja- vík. Sagði hann að með þessu vildu kartöflubændur stuöla að því að leið kartaflnanna frá bóndanum yfir á disk neytandans yrði stytt og gæti þetta ef til vill sparað eina með- höndlun á kartöflunum þannig að þær kæmust betri til neytenda. Eins og fram kom í bókuninni hér að ofan óska kartöflubændur eftir viðræðum við landbúnaðarráðuneyt- ið um að þeir tækju við rekstri Grænmetisverslunar landbúnaðar- ins sem Framleiðsluráð ber nú ábyrgð á. Magnús sagði aðspurður um þetta atriði f samþykktinni að þeir teldu að yfirleitt hefði það gef- ist vel að bændur væru sjálfir við stjórn þeirra fyrirtækja sem sæju um sölu afurða þeirra. Kartöflu- bændur teldu eðlilegt að svo væri einnig með það fyrirtæki sem sæi um sölu á kartöflum. Hann sagði að- spurður aö ekki bæri að lita á þessa samþykkt sem vantraust á stjórn Grænmetisverslunarinnar, þar sem hann á sjálfur sæti. Viðræður í dag við Færeyinga Margeir vann MARGEIR Pétursson vann Piu Cramling í næstsíöustu umferö á al- þjóölega skákmótinu í Gausdal í gær. Guðmundur Sigurjónsson gerði jafntefli í umferðinni f gær og er í 3.-7. sæti með 5% vinning, en Margeir er í 8.—13. sæti með 5 vinn- inga. Efstur á mótinu er titillaus Svíi, Ernst að nafni, sem hefur kom- ið mjög á óvart, með 6V4 vinning og f 2. sæti Karlson stórmeistari, einn- ig frá Svíþjóð, með 6 vinninga. HALLDÓR Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra mun í dag eiga viðræð- ur við Pauii Ellefsen lögmann Fær- eyinga og Klassberg sjávarútvegs- ráðherra þeirra. Fundurinn verður í Kaupmannahöfn. Umræðuefnið verður loðnuveiðar Færeyinga á Jan Mayen-svæöinu. „Það hefur komið fram hjá Dön- um að þeir gera ráð fyrir því að loðnuveiðar þeirra verði ekki meiri en liðlega 15 þúsund tonn, auk sjö þúsund lesta hjá Færey- ingum,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra þegar blaðamaður Morgunblaðsins innti hann fregna síðdegis i gær af Jan Mayen-málinu. Áð sögn Halldórs hefur hann bent Færeyingum á að loðnuveiðar þeirra við Jan Mayen geti haft alvarlegar afleiðingar á góð samskipti þeirra og íslend- inga. Sem kunnugt er hafa Færey- ingar heimild til veiða á ákveðnu magni botnfisks í íslenzkri land- helgi. Morgunblaðið/ Ólafur K. Magniisaon. Maraþonhlaup við Alþingishúsið Maraþonhlaup verður haldiö í Reykjavík á næstunni og er fyrirhugað að keppni þessi veröi árlegur viðburöur í höfuöborginni. Þegar hafa um 150 manns tilkynnt þátttöku í hlaupinu, mest útlendingar. Hlaupiö var kynnt fyrir fréttamönnum í gær og þá brugðu þeir Knútur Óskarsson og Gunnar Páll Jóakimsson á leik á Austurvelli vopnaðir á viðeigandi hátt. Sparisjóðir: Vaxtabreytingar svipaðar og hjá viðskiptabönkunum FLESTIR sparisjóöir hafa ákveöið vexti inn- og útlána. Stjórn Sambands íslenskra sparisjóða og skrifstofa þess gerði tillögur um vexti, en stjórn hvers sparisjóðs um sig ákveöur end- anlega vexti inn- og útlána, en rang- bermt var f Morgunblaöinu í gær aö sparisjóöirnir heföu engin samráð um þessi efni. Að sögn Baldvins Tryggva- sonar, formanns Sambands íslenskra sparisjóöa, hefur ákvörðun allra spari- sjóöa hingað til um vexti verið sam- hljóöa. Eins og í öðrum innlánsstofnun- Stjórnarsáttmáli rædd- ur á fundi formannanna Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra og Þorsteinn Páls- son formaður Sjálfstæðisflokksins munu hittast á fundi kl. 14 f dag, þar sem lögö verða drögin að und- irbúningi viöræðna stjórnarflokk- anna um endurskoðun stjórnar- sáttmálans, og ákveðið með hvaða hætti þessar viðræður veröa, sem eiga aö hefjast nú á næstu dögum. Þingflokkur og miðstjórn Sjálfstæðisflokksins héldu fund f gær, og samkvæmt þvf sem Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagði f sam- tali við blm. Mbl. f gærkveldi, þá voru rædd þau atriði á þessum fundi, sem sjálfstæðismenn telja að mesta áherslu beri að leggja á í viðræðunum sem framundan eru. „Það er ljóst að við þurfum að leggja megináherslu á að varðveita þann árangur sem náðst hefur, í þvf að koma hér á jafnvægi f þjóðfélaginu. Auk þess þurfum við að leggja áherslu á að ná jafnvægi á öðrum sviðum hagkerfisins, þ.e.a.s. viðskiptum okkar við útlönd, og í ríkisfjár- málunum. Við verðum að búa svigrúm til þess að veita fjár- magni til nýsköpunar f atvinnu- lífi og gera nauðsynlegar breyt- ingar á okkar fjármagnskerfi, til þess að sú nýsköpun geti átt sér stað,“ sagði Þorsteinn Pálsson, er hann var spurður um hver Sjálfstæðisflokkurinn teldi vera þau höfuðmarkmið sem stefna bæri að. „Mér fannst það liggja ljóst fyrir strax í vor, að fullt sam- komulag væri um það á milli stjórnarflokkanna, að hverju bæri að stefna með endurskoðun stjómarsáttmálans, og ég ætla að svo sé enn,“ sagði Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, er hann var spurður á hvað Framsóknarflokkurinn vildi leggja mesta áherslu í viðræðum stjórnarflokkanna sem framund- an eru. „Allra stærsta verkefni okkar á næstunni er að ná jafn- vægi í ríkisfjármálum, því við getum ekki, með þeim viðskipta- halla sem er og þenslu í þjóðfé- laginu, rekið rfkissjóð með halla. Auk þess þurfum við að gera átak til þess að nýjar atvinnu- greinar geti komist á fót og þró- ast,“ sagði forsætisráðherra, og bætti við að þar ætti hann ekki við þátttöku ríkisins í nýjum atvinnugreinum, heldur að ríkið útvegaði lánsfé, eða rfkisábyrgð í vissum tilvikum, til þess að styðja við uppbygginguna. Að öðru leyti vildi forsætis- ráðherra ekki tjá sig um viðræð- ur þær sem fyrir dyrum standa — sagðist einungis gera sér vonir um að stjórnarflokkarnir gætu komist að sameiginlegri niður- stöðu, og kvaðst reyndar bjart- sýnn á að svo gæti orðið. Þorsteinn Pálsson var spurður að því hvort hann teldi að Sjálfstæðisflokkurinn og Fram- sóknarflokkurinn gætu náð sam- eiginlegri niðurstöðu í þessari endurskoðun stjórnarsáttmál- ans: „Ég vænti þess, að hjörtun- um geti svipað saman, bæði í Grímsnesinu og Súdan,“ svaraði Þorsteinn. um bera almennar sparisjóðsbækur í sparisjóðum 17% vexti, en spari- sjóðsskirteini 23% og er ársávöxtun 24,3%. Sparireikningar með þriggja mánaða uppsögn bera 20% vexti, ársávöxtun er 21%, en sparireikn- ingar með 6 mánaða uppsögn bera 23,5% og er ársávöxtun 24,9%. Þar með falla niður tólf mánaða reikn- ingar og sagði Baldvin Tryggvason sex mánaða reikningana gefa bestu ávöxtun miðað við binditíma. Verðtryggðir sparireikningar eru tvenns konar, með þriggja og sex mánaða uppsögn. Þeir fyrrnefndu bera 0% vexti en þeir síðarnefndu 5% vexti. Sparisjóðirnir bjóða 12% vexti á hlaupa- og ávfsanainnstæð- um. Heimilislánareikningar, sem tengdir eru lánsmöguleikum ef sparað er f 3 til 5 mánuði, eru með 20% vöxtum, sem þýðir 21% árs- ávöxtun. Ef sparað er 1 sex mánuði eða lengur eru vextirnir 23% (ávöxtun 24,3%). Otlánavextir hjá sparisjóðum eru: Víxlar (forvextir) 23%, hlaupa- reikningsyfirdráttur 22%, skulda- bréfalán og afborgunarlán 25,5%, verðtryggð lán í allt að 2 Vi ár 8%, verðtryggð lán f lengri tfma en 2 xh ár 9%. ________ Börkur selur BÖRKUR NK seldi f gær f Grimsby 110 tonir af þorski fyrir 3.178.800 krónur, meöalverö 28,60 krónur fyrir kílóiö. Einn bátur selur i dag, Gullver NS í Grimsby, og tveir á morgun, föstudag, Þorleifur Jónsson f Grimsby og Krossvík f Þýskalandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.