Morgunblaðið - 16.08.1984, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 16.08.1984, Blaðsíða 48
OPIÐ ALLA DAGA — ÖLL KVÖLD AUSTURSTRÆTI22 INNSTRÆTI, SÍMI 11340 OPIÐALLA DAGA FRÁ KL. 11.45-23.30 AUSTURSTRÆTI22 INNSTRÆtl, SlMI 11633 FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Forstjóri Rainbow Navigation Inc. f samtali við Morgunblaðið: Minnkum flutninga til íslands um 40 % BANDAHÍSKA skipafélagió Rainbow Navigation, Inc., sem síðan í vor hefur annast nær alla flutninga á vegum Bandaríkjahers til Varnarliðsins á Keflavíkurnugvelli, mun á næstunni minnka þá flutninga um allt að 40%, að því er forstjóri fyrirtækisins sagði í samtali við blaðamann Mbl. í gær. „Með því að hætta að koma við ( New York á leiðinni milli Norfolk í Virginíu og íslands minnkum við flutningana um 21 % og auk þess munum við draga saman í flutningunum milli fslands og Norfolk um 15—20% Samtals verða þetta nærri 40%“ sagði forstjórinn, Mark W. Yonge. „Þessi breyting tekur gildi eftir um það bil 20 daga.“ Yonge sagði ástæður þessara áætlunarbreytinga vera margar, einkum þá að féiagiö vildi eiga gott samstarf við íslensk út- og innflutn- ingsfyrirtæki og geta annast flutn- inga fyrir þau milli Islands og Bandaríkjanna. Hann sagði það einnig eiga sinn þátt í þessari ákvörðun Rainbow Navigation, Inc., að landflutningar milli Norfolk og New York-hafnarinnar Bayonne hefðu verið dýrir. „Þetta er fyrst og fremst viðskiptaleg ákvörðun af okkar hálfu, tilraun til að efla við- skiptavelvild okkar á íslandi. Ef þetta getur orðið til að liðka fyrir, þá teljum við það þess virði,“ sagði hann. Forstjóri Rainbow Navigation neitaði því alfarið, að þrýstingur af hálfu bandarískra stjórnvalda hefði átt þátt í ákvörðun félagsins. „Við höfum átt marga fundi með full- trúum bandariskra stjórnvalda og hernaðaryfirvalda en við höfum ekki verið beittir neinum þrýstingi, enda væri það fullkomlega ólöglegt,“ sagði Mark Yonge. Þórður Magnússon, framkvæmda- stjóri hjá Eimskipaféiagi íslands, kvaðst taka þessum fréttum með miklum fyrirvara. Rainbow Navigat- ion hefði aldrei siglt á Bayonne og ef ætti að hætta að flytja varning það- an landleiðina til Norfolk, þá væri það gert tit að spara bandaríska skipafélaginu aukakostnað. Um samdrátt í flutningum beint frá Norfolk hafði hann ekki heyrt og sagðist ekki hafa trú á, að nokkur aukning yrði á því vörumagni, er ís- lensku skipafélögin hefðu fengið f sinn hlut. Það hefði verið um 16% að undanförnu og miðað við upplýs- ingar íslenska sendiráðsins í Wash- ington og þess bandaríska 1 Reykja- vík hefðu þeir ekki trú á að á því yrði breyting. Yfirlýsing Rainbow Navi- gation um flutningana frá Bayonne væri vafalaust sett fram í þeim til- gangi, að svo liti út, að þeir væru að koma til móts við kröfur íslendinga. Hins vegar benti ekkert til þess að Stefnumót vid sjávarsíðuna Mbl./Rax Það fer vel i með þessum tveimur, kisunórunni og trillukarlinum, sem hittust í vörínni við /Egissíðu þegar sjómaðurinn var að dytta að bit sínum i dögunnm. Útlit fyrir metupp- skeru á kartöflum Hátt í tvöfalt meiri en ársneysla ÍJTLIT er fyrir metuppskeru á kartöfl- um i komandi hausti. Kóvald B. Malmquist yfirmatsmaöur garóávaxta áætlar ad uppskeran verfti tiu til tólf- fold aft jafnafti sem þýftir aft upp úr kartöflugörftum landsmanna koma í haust 250 til 280 þúsund tunnur af kart- öflum sem er 25 til 28 þúsund tonn. Besta uppskeran verður á Norftur- og Norftausturlandi en lökust verður hún i Borgarfirfti og á Snæfellsnesi ef fram fer sem nú horfir. Otlit er fyrir talsverða offram- leiðslu á kartöflum því ársneysla landsmanna er talin vera 130 til 150 þúsund tunnur og er áætluð uppskera því hátt í tvöföld ársneyslan. Ef vel tekst til með geymslu uppskerunnar ættu landsmenn þvi að geta fengið íslenskar kartöflur þar til ný upp- skera kemur á markaðinn næsta haust. Eins og kunnugt er brást kartöfl- uuppskeran að verulegu leyti síðasta ár, og var uppskeran þá aðeins um 37 þúsund tunnur. f samtali við Eðvald B. Malmquist kom fram að þessi upp- skera væri sú mesta sem komið hefði. Á síðustu árum hefur uppskeran mest orðið 176 þúsund tunnur árið 1980. Á síðustu 10 árum hefur fram- leiðslan verið öðru hvoru megin við 150 þúsund tunnur f fjögur ár, i eitt ár rúmlega 100 þúsund tunnur og í fimm ár innan við 90 þúsund tunnur. Skrá um lífeyris- greidslur laun- þega á einum stað Fjármálaráðuneytið vinnur nú að því að framfylgja lögum um lífeyr- isskrá fjármálaráðuncytisins, sem mun gera öllum launþegum kleift að fylgjast með lífeyrisréttinduro sín- um. Auk þess fær fjármála- ráðuneytið með skrá þessari tækif- æri til þess að hafa eftirlit með því hvort launþegar og launagreiðendur Óformlegar viðræöur hafnar um samningamálin: Kröfur VMSÍ verða afhent- ar á mánudag — yfír 30 % FORYSTUMENN innan Alþýðusam- bands íslands og Vinnuveitendasam- bands íslands hafa undanfarnar vikur verift f óformlegum viðræftum um hugsanlega lausn á heildarkjarasamn- “ingum í landinu. Þar hafa verzlunarm- enn riftió á vaftið og haft forystu um áþreifingar, sem átt hafa sér stað. Þeg- ar hefur einn formlegur viftræftufund- ur milli Verslunarmannafélags Reykjavíkur og VSÍ verið haldinn, 7. ágúst, en viku áður var haldinn óform- legur viftræftufundur milli VR og VSÍ. Það hefur komið ýmsum á óvart, að VR, félagiö, sem sagði ekki samningum upp, ásamt bygginga- mönnum, skuli hafa haft forystu um viðræður. Hins vegar mun Verka- mannasamband íslands eiga form- legan viðræðufund við VSÍ á mánu- dag næstkomandi og samkvæmt heimildum Morgunblaösins munu kröfur sambandsins verða lagðar þar fram. Þær eru hærri en t.d. kröfur Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, sem hingað til eru þær hæstu, sem lagðar hafa verið fram. Kröfur VMSl munu vera á bilinu 30—40% miðað við taxta og á ákveðnum atriðum munu þær ná í allt að 50%. Talsmenn félaga, sem ekki eru umbjóðendur fólks í bónus- og álagskerfi, leggja I viðræðunum ríka áherzlu á að þessi kerfi séu ekki grundvölluð á töxtum, þar sem þeir líta svo á að þau hafi þau áhrif að töxtum sé haldið niðri. Fáist ekki leiðrétting á þessu hljóti leiðir bón- usfélaga og annarra að skilja innan verkalýðshreyfingarinnar. Dag- vinnukauptrygging hafi f raun skil- að því fólki, sem lægst hefur launin, mestu. Talsmenn félaga, sem hafa innan sinna vébanda mikið af bónusfólki, leggja hins vegar áherzlu á að út- rýmt verði því sem þeir kalla „tvö- falt launakerfi", þ.e. að bónusinn reiknist á taxta en ekki dagvinnu- trygginguna, sem komið var á í samningunum í febrúar. Aðalkrafa þeirra er að taxtar fyrir neðan dagvinnutrygginguna verði skornir af, auk fleiri breytinga. Þá leggja forystumenn innan verkalýðshreyfingarinnar á það ríka áherzlu að kjarnasamningurinn frá 1980, þar sem launataxtar allra að- ildarfélaga ASl voru samræmdir, verði endurskoðaður í ljósi þess tíma, sem liðinn er. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun Vinnuveitendasam- bandið hafa tekið jákvætt undir ákveðna hluti f viðræðum aðila, en aðalatriðið frá sjónarmiði vinnu- veitenda er að samkomulag náist á sem breiðustum grundvelli. Flestir forystumenn innan ASÍ gera sér og grein fyrir að markmið samning- anna frá í febrúarmánuði um að viðhalda kaupmætti þeirra út samningstímabilið sé það sem menn munu þurfa að sættast á í þessari samningalotu. sinna þeirri skyldu að greiða í lífeyr- issjóði. Snorri Olsen í fjármálaráðu- neytinu sagði í gær, að í mörgum tilvikum væri málum þannig hátt- að að einstaklingar hefðu greitt i gegnum árin í marga lífeyrissjóði — nefndi hann sérstaklega náms- menn. Það vildi svo oft gleymast, þegar í fast starf væri komið, að námi loknu, í hvaða lífeyrissjóði hefði verið greitt, og þar með væri fé það sem greitt hefði verið um skamma hríð í hina ýmsu sjóði glatað. Eftir að lífeyrisskráin væri komin í gagnið, þá gætu einstakl- ingar einfaldlega fengið upplýs- ingar hjá ráðuneytinu um heild- arlífeyrisréttindi sín. Sjá nánar á bls. 4. Féll á lyfja- prófi á ÓL Frjálsfþróttamaðurinn Vésteinn Haf- steinsson á yfir höffti sér allt að tveggja ára keppnisbann vegna notkunar ólög- legra lyfja. Hann féll á lyfjaprófi að lokinni keppni í kringlukasti á ÓL. f Los Angeles, en í lyfjaprófi Páls Eiríks- sonar, læknis, á íslenzkum fþrótta- mönnum f Bandarfkjunum I vor mældist engin slík notkun hjá Vé- steini. Hann notaði lyf þau er hér um ræðir samkvæmt læknisráði fyrir fimm mánuðum. Sjá nánar á íþróttasíðu bls. 47.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.