Morgunblaðið - 16.08.1984, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984
í stuttu máli
Kohl vísar
sovéskri gagn-
rýni á bug
SL Cilgen, Auslurríki, 14. á|(Ú8t. AP.
HELMIIT Kohl, kanslari Vest-
ur-Þýskalands, sem nú er stadd-
ur í orlofi í Austurríki, sagði f
viðtali við útvarpið þar í dag, að
árásir á vestur-þýsk stjórnvöld í
sovéskum fjölmiðlum að undan-
förnu v«eru áróðursbragð og
væri tilgangur þeirra að hafa
áhrif á samskipti Vestur-Þýska-
lands við önnur ríki f Varsjár-
bandalaginu.
Kohl vísaði á bug þeirri
staðhæfingu sovéskra fjöl-
miðla að Vestur-Þjóðverjar
hefði í hyggju að ná aftur
þeim landsvæðum sem þeir
töpuðu í síðari heimsstyrjöld-
inni.
Fréttaskýrendur á Vestur-
löndum telja að árásir Sov-
étmanna stafi af ugg þeirra
vegna náinna samskipta Aust-
ur- og Vestur-Þýskalands að
undanförnu. Fyrirhugað er að
Erich Honecker, forseti
Austur-Þýskalands, komi í
heimsókn til Vestur-Þýska-
lands innan skamms, en Sov-
étmenn eru mjög óánægðir
með þá ferð.
Kohl kanslari áréttaði þann
grundvallarmun, sem væri á
viðhorfum stjórnvalda í Aust-
ur- og Vestur-Þýskalandi til
framtíðar þýsks þjóðfélags, en
kvað ágreining þeirra ekki
þurfa að hindra skoðanaskipti,
jafnvel ekki á tíma stirðra
samskipta austurs og vesturs.
Bandaríkin:
Blaðamaður
frá Rúmeníu
biðst hælis
San Diego, Kaliforníu, 14. *2ÚMt. AP.
Rúmenskur blaðamaöur, sem
staddur var í Bandaríkjunum
vegna Ólympíuleikanna, hefur
beðið um hæli þar sem pólitískur
flóttamaður.
Maðurinn, sem heitir Vlad-
imir Moraru og er 38 ára gam-
all, hefur starfað við rúm-
enska íþróttadagblaðið Sport-
ol.
Það var bandaríska dagblað-
ið San Diego Union sem fyrst
greindi frá flótta Rúmenans,
en hann hafði verið fenginn til
að aðstoða starfsmenn blaðs-
ins við frásagnir af þátttöku
landa sinna í Ólympíuleikun-
um jafnhliða því sem hann var
fréttaritari Sportol á leikun-
um.
Eiginkona Moraru og fimm
mánaða gömul dóttir þeirra
eru í Rúmeníu.
Rúmenía var eina ríkið í
Austur-Evrópu, sem þátt tók í
leikunum í Los Angeles.
Fréttir úr Morgunblaö-
inu lesnar á virkum
dögum kl. 19.50 á „Út-
rás“ FM 89,4.
Útvarp kl. 20.30:
Undir yfirborðið
„Undir yfirborðið" nefnist þátt-
ur um mál kynjanna og viðhorfið
til karlmanna og stöðu þeirra, sem
verður á dagskrá útvarps í kvöld
kl. 20.30. Þáttur þessi er gerður í
tengslum við dönskunámskeið,
sem haldið var við Háskóla ís-
lands, og bar heitið „Mál kynj-
anna“. Þáttur þessi er unninn af
þremur nemendum í dönsku við
Háskólann, þeim Bjarna Þor-
steinssyni, Ríkharði Hördal og
Valgerði Kristjánsson undir stjórn
Lísu Schmalensee lektors.
Efst á baugi í þættinum verða
vandamál karla í nútímaþjóðfé-
lagi, þar sem konur eru sífellt að
færa sig upp á skaftið og farnar
að færast ýmislegt í fang sem
áður var einungis álitið vera á
„karla meðfæri". Rætt verður
við fjölda karlmanna um viðhorf
þeirra til kvenna fyrr og nú, með
áðurnefndar breytingar, sem
orðið hafa á stöðu konunnar í
þjóðfélaginu, í huga.
Útvarp kl. 22.35:
Geir H. Haarde
Haraldur Steinþórsson.
Þorsteinn A. Jónsson.
Fimmtudagsumræðan
Rafn Jónsson er stjórnandi
„Kimm tudag.su mræðunnar“ sem
er á dagskrá útvarps í kvöld.
Þátturinn fjallar að þessu
sinni um kjaramál opinberra
starfsmanna. Rætt verður um
þróun kjaramála þeirra síðustu
árin, í samanburði við kjör ann-
arra stétta. Þá verður reifuð
staða þessara mála í dag.
Geir Haarde, aðstoðarmaður
fjármálaráðherra, Haraldur
Steinþórsson, framkvæmda-
stjóri BSRB, og Þorsteinn A.
Jónsson, varaformaður launa-
málaráðs BHM, taka þátt í um-
ræðunni í beinni útsendingu en
einnig koma aðrir fram í þættin-
um.
Það skal tekið fram að í þætt-
inum í kvöld verður ekki opin
lína fyrir hlustendur að loknum
umræðum, eins og verið hefur í
„Fimmtudagsumræðunni" hing-
að til. Orsökin er sú að ekki þyk-
ir ráðlegt að fara út í smáatriði
varðandi kjör opinberra
starfsmanna, vegna kjarasamn-
inganna sem nú gilda og stöð-
unnar í samningamálum.
Útvarp kl. 11.30:
Viðar Eggertsson og Guðrún
Jacobsen lesa tvær smásögur í
útvarpi í dag.
Tvær
smásögur
Tvær smásögur verða lesnar í
útvarpi í dag kl. 11.30. Sú fyrri
nefnist „Tarot“ og er eftir Jón
Pálsson, lesari er Viðar Egg-
ertsson. Síðari sagan er eftir
Guðrúnu Jacobsen og nefnist
„Þegar amma deyr“, höfundur
les.
„Tarot“ segir frá sérkenni-
legri stúlku sem sögumaður
kynnist og frá sambandi sem
myndast þeirra á milli. Saga
þessi birtist í Lesbók Morgun-
blaðsins ekki alls fyrir löngu
en höfundurinn, Jón Pálsson,
hefur aðallega fengist við að
skrifa skáldsögur og leikrit í
knöppu formi.
Sagan „Þegar amma deyr“
var skrifuð árið 1957 og birtist
í smásagnasafninu „Smáfólk"
sem kom út árið 1963. Sagan
fjallar um lítinn strák sem
verður fyrir því að foreldrar
hans skilja og á hann því ekk-
ert athvarf annað en hjá
ömmu sinni. Svo þegar að hún
deyr finnst honum hann vera
einn í heiminum. Sagan lýsir
tilfinningum litla stráksins,
hann saknar ömmu sinnar svo
mikið en fær ekki einu sinni að
fara í jarðarför hennar þar
sem hann er enn svo ungur að
árum.
Útvarp Reykjavík
FIMMTUDKGUR
16. ágúst
MORGUNNINN_______________________
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. í
bítið. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð: — Bjarni Sigurðs-
son talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Eins og ég væri ekki til“ eftir
Kerstin Johansson. Sigurður
Helgason les þýðingu sína (3).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. Þulur velur og kynn-
ir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar.
11.00 „Ég man þá tíð“. Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Her-
mann Ragnar Stefánson.
11.30 Tvær smásögur.
a. „Tarot“ eftir Jón Pál. Viðar
Eggertsson les.
b. „Þegar amma deyr“ eftir
Guðrúnu Jacobsen. Höfundur
les.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 „Við bíðum“ eftir J.M.
Coetzee. Sigurlína Davíðsdóttir
les (7).
14.30 Á frívaktinni. Sigrún Sigurð-
ardóttir kynnir óskalög sjó-
manna.
SÍPDEGID
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar.
a. Chanson Anglaise eftir Em-
anuel Adriaensen. Narciso Yep-
es leikur á gítar.
b. Kvintett nr. 5 eftir Victor Ew-
ald. The Mount Royal-blásara-
kvintettinn leikur.
c. Næturljóð eftir Claude De-
bussy í útsetningu Maurice
Ravel. Anne Shasby og Richard
McMahon leika á tvö píanó.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Síðdegisútvarp.
Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
Daglegt mál. Eiríkur Rögn-
valdsson talar.
KVðLDID_____________________
19.50 Við stokkinn. Stjórnandi
Gunnvör Braga.
20.00 Sagan: „Júlía og úlfarnir"
eftir Jean Graighead George.
Geirlaug Þorvaldsdóttir les þýð-
ingu Ragnars Þorsteinssonar
20.30 Undir yfirborðið. Þáttur um
mál kynjanna og viðhorfið til
karlmanna og stöðu þeirra,
gerður í tengslum við dönsku-
kennslu í Háskóla íslands af
Bjarna Þorsteinssyni, Ríkarði
Hördal og Valgerði Kristjáns-
son undir stjórn Lísu Schmal-
ensee lektors.
21.30 Frá kammertónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar íslands í
mars sl. Páll P. Pálsson stj.
a. Þættir úr óperunni „Brott-
námið úr kvennabúrinu“ eftir
Mozart í útsetningu Johann
Nepomuk Wendt.
SKJANUM
FÖSTUDAGUR
17. ágúst
19.35 Umhverns jörðina á áttatíu
dögum
15. Þýskur brúðumyndaflokkur.
Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
Sögumaður Tinna Gunnlaugs-
dóttir.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Á döfinni
Umsjónarmaður Karl Sigtryggs-
son.
20.45 Skonrokk
Umsjónarmenn Anna Hinriks-
dóttir og Anna Kristln Hjart-
ardóttir.
21.15 Var 007 njósnaflug?
Bresk fréttamynd.
Fyrir einu ári grönduðu Sovét-
menn kóreskri farþegaþotu
með 269 manns innanborðs. í
myndinni eru atburðir þessir
raktir og reynt að varpa nýju
Ijósi á þá.
Þýðandi Einar Sigurðsson.
21.40 Kampútsea
Stutt bresk fréttamynd.
Þýðandi og þulur Einar Sigurðs-
son.
21.55 Kona utan af landi
(La Provinciale)
Frönsk-svissnesk bíómynd frá
1981.
Leikstjóri Claude Goretta.
Aðalhlutverk: Nathalie Baye,
Angela Winkler, Bruno Ganz og
Pierre Vernier.
Ung kona fer til Parísar í at-
vinnuleit. Kynni hennar af
borgarlífinu og borgarbúum
valda henni ýmsum vonbrigðum
en hún eignast vinkonu sem
reynir að kenna henni að semja
sig að nýjum siðum.
Þýðandi Ragna Ragnars.
23.45 Fréttir í dagskrárlok.
J
b. Svíta úr „Túskildingsóper-
unni“ eftir Kurt Weill.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 Fimmtudagsumræðan.
Stjórnandi: Rafn Jónsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR
16. ágúst
10.00—12.00 Morgunþáttur
Fyrstu þrjátíu mínúturnar helg-
aðar íslenskri tónlist. Kynning
á hljómsveit eða tónlistar-
manni. Viðtöl ef svo ber undir.
Ekki meira gefið upp.
Stjórnendur: Jón Olafsson og
Sigurður Sverrisson.
14.00—15.00 Eftirtvö
Létt dægurlög.
Stjórnendur: Jón Axel Ólafs-
son.
15.00—16.00 Nú er lag
Gömul og ný úrvalslög að hætti
hússins.
Stjórnandi: Gunnar Salvarsson.
16.00—17.00 Jóreykur að vestan
Litið við á bás-2, þar sem fjósa-
og hesthúsmaðurinn Einar
Gunnar Einarsson lítur yfir far-
inn veg og fær helstu hetjur
vestursins til að taka lagið.
17.00—18.00 Gullöldin — lög frá
7. áratugnum
Vinsæl lög frá árunum 1962 til
1974 — Bítlatímabilið.
Stjórnendur: Bogi Ágústsson og
Guðmundur Ingi Kristjánsson.