Morgunblaðið - 16.08.1984, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.08.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984 23 Hirohito minnist uppgjafar Japana Tókýó, 15. ígúst AP. HIROHITO, keisari Japans og eini eftirlifandi þjóðarleiðtogi úr heimsstyrjöldinni síöari, flutti ávarp við athöfn í Tókýó í dag, þar sem minnst var loka stríösins og þeirra þriggja milljóna Japana sem iétu líflð í strfðinu. Hirohito er nú 83 ára og farinn að heilsu. Hann talaði skýrri röddu að því er frétta- menn segja og mælti meðal ann- ars: „Hjarta mitt er enn fullt sárs- auka þegar ég hugsa um alla þá sem létust í stríðinu. Og ég veit að margir eiga enn um sárt að binda vegna þessara hörmulegu atburða sem ég bið að megi aldr- ei endurtaka sig.“ Um 6.500 manns sem misstu ættingja í styrjöldinni voru viðstaddir, svo og um þúsund háttsettir embættismenn og er- lendir sendimenn. Nákvæmlega fyrir 39 árum flutti Hirohito ávarp til þjóðar sinnar í fyrsta skipti, þar sem hann hvatti stríðshrjáða Japani til að leggja niður vopn og gefast upp. A öðrum stað í Tókýó var haldinn fjöldafundur þeirra sem eru andsnúnir hervæðingu Jap- ans og nánum tengslum við Bandaríkin. Stríðsfangar í Japan: Sannanir fyrir eit- ur e fnatilr aunum Tókýó, 15. ágúst AP. JAPANSKIR háskólakennarar hafa fundið skjallegar sannanir um sýkla- og eiturefnatilraunir Japana á stríðsfongum í upphafi síðari heimsstyrjaldarinnar. Fóru tilraunir þessar fram í Mansjúríu. Skýrði Akira Tanaki, prófessor við háskólann í Keio.'Trá þessu í dag. Áður höfðu komið fram ásak- anir um að svonefnd Ishii-her- deild — sem dró nafn sitt af hershöfðingjanum Shiro Ishii, er stofnaði herdeildina — hefði gert tilraunir með sýkla og eit- urefni á kínverskum, rússnesk- um og bandarískum stríðsföng- um í síðari heimsstyrjöldinni. Vitnisburðir fyrrverandi her- manna úr þessari herdeild voru birtir fyrir tveimur árum í bók, sem japanski rithöfundurinn Seiichi Morimura gaf út um þessar tilraunir. Eitt þeirra skjala, sem fundizt hafa, er ódagsett skýrsla um af- leiðingar þess, að stífkrampa- eitri var sprautað í fanga. Tan- aka heldur því fram, að þrír menn að minnsta kosti hafi dáið af völdum þessarar tilraunar. í annarri skýrslu, sem er frá því í september 1940, greinir frá tilraunum með sinnepsgas, sem eyðileggur einkum öndunarfær- in í mönnum. Það var notað mik- ið í Evrópu í fyrri heimsstyrjöld- inni og japanskar hersveitir beittu því í verulegum mæli í Kina í síðari heimsstyrjöldinni. Talið er, að ekki færri en 3.000 stríðsfangar hafi látið lífið í til- raunum þessarar herdeildar. Er haft eftir Tanaka, að skjölin hafi fundizt í stafla af bókum, sem einn af meðlimum Ishii-her- deildarinnar lét eftir sig. Svíþjóð: Sektaður fyrir að flengja son sinn Stokkbólmi. 15. ífúa. AP. KENNARI í Gallivare f Norður-Svíþjóð var í gær dæmdur f 100 sænskra króna sekt, um 360 ísl.kr., fyrir að hafa flengt son sinn 11 ára gamlan. Þetta er í fyrsta sinn, sem barn hefur ákært föður sinn fyrir líkamlega refsingu en i Svíþjóð eru ströng viðurlög við slíku. Þetta mál vakti mikla athygli í apríl sl. en þá kom strákurinn á lögreglustöð f borginni og kærði föður sinn fyrir að hafa flengt sig þrisvar sinnum með birkitág. Hafði drengurinn unnið það til saka að vera á hjólinu sínu án leyfis og slegist við vin sinn. Faðirinn refsaði syni sfnum einnig með þvf að loka hjólið inni. Strákur vissi vel, að í Svíþjóð er bannað að berja börn og fór þvf til lögreglunnar en þegar málið var komið nokkuð á leið vildi hann falla frá ákærunni. Þá var það hins vegar of seint því að kerfið var komið f gang. Ekki mun verða skýrt frá þvf hverjir þeir feðgar eru. Þetta mál hefur vakið nokkrar deilur í Svíþjóð og hafa ýmsir hægrisinnaðir hópar krafist þess, að lagabókstafurinn, sem þykir mjög óljós, verði skil- greindur betur. Við erum komin í eina sæng Bókaverslun Snæbjarnar er nú flutt á einn staö, í gjörbreytt og rúmbetra húsnæöi aö Hafnarstræti 4. f hinni nýju verslun veröur einungis boöiö upp á enskar og íslenskar bækur, auk fjölbrevtts úrvals kennslugagna á spólum og mvndböndum. Bókaverslun Snæbjarnar var stofnuð 1927. Þaö var vfirlýst stefna Snæ- bjarnar Jónssonar aö hafaeinungisvandaöar bækurá boðstólum, og mun hin nýja verslun starfa í anda stofnanda síns. í hver mánaöarlok verður kvnning á völdum bókum, sem boðnar veröa á sérstöku kynningarverði. SnffbjönufónsscmStb.h.f Hafnarstræti4, sími 14281 VERIÐ VELKOMIN í BÓKAVERSLUN SNÆBJARNAR AÐ HAFNARSTRÆTI 4.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.