Morgunblaðið - 16.08.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984
3
Vegleg
bókagjöf
Á þriðja þúsund bindi
NÝLEGA gaf séra Valgeir
Helgason, fyrrverandi sóknar-
prestur og prófastur í Asum í
Skaftártungu, Héraösbókasafn-
inu á Kirkjubcjarklaustri allt
bókasafn sitt — á þriðja þúsund
bindL Bókagjöfinni fylgja eitt
hundrað krónur í peningum,
sem verja skal til þess að skrá
safnið og prenta bókaskrá þess.
Þetta eru allt íslenskar bækur,
fjalla einkum um sagnfræði og
þjóðleg fræði. Safnið er í mjög
góðu ásigkomulagi — og er mikill
hluti þess í bandi, bókakápur heil-
ar og hreinar. Afhending þess fer
fram eftir samkomulagi gefanda
og bókasafnsvarðar.
Héraðsbókasafnið á Kirkjubæj-
arklaustri er miðsafn, sem þjónar
héraðinu milli Skeiðarár- og
Mýrdalssands.
Gjöf þessi er bókasafninu mjög
kærkomin — og með henni telur
safnið á 9. þúsund bindi og er
þriðja stærsta bókasafn á Suður-
landi, stærri eru aðeins sðfnin í
Vestmannaeyjum og á Selfossi.
Það er mikill menningarauki
fyrir íbúa héraðsins af bókagjöf
þessari og sýnir hún einnig rækt-
arsemi og rausnarskap séra Val-
geirs Helgasonar.
Séra Valgeir var prestur í Ás-
prestakalli í Skaftártungu frá
1933—1980 og prófastur frá
1963-1980.
Hann dvelur nú á elliheimilinu i
Vík í Mýrdal.
Svipað veð-
ur áfram um
allt land
Búist er við svipuðu veðri
áfram um allt land að sögn
Trausta Jónssonar veðurfræð-
ings.
Gert var ráð fyrir smávægi-
legri rigningu á Austurlandi í
gærkveldi, en síðan átti að
létta til og er líklegt að þurrt
verði að mestu á Norður- og
Austurlandi. Áfram verður
rigning eða súld á Suður- og
Vesturlandi, en úrkoman
verður sennilega ekki eins
stórfelld og verið hefur.
Karl gerði
jafntefli
við Stohl
KARL Þorsteins og Stohl fri Tékkó-
slóvakíu gerðu jafntefli í gær, f 11.
umferð heimsmeistaramóts skik-
manna 20 ira og yngri, og eru þeir
nú í 3. til 4. sæti i mótinu raeð 7'A
vinning, einum vinningi i eftir
Dreev frá Sovétríkjunum og Hansen
fri Danmörku, sem eru efstir og
jafnir með 8‘/j vinning.
Sovétmaðurinn gerði í gær jafn-
tefli við Romero frá Spáni og Han-
sen vann núverandi heimsmeist-
ara, Georgiev frá Búlgariu. 011 frá
Sovétríkjunum er með unna bið-
skák á móti Norðmanninum öst-
enstad og ef svo fer sem horfir
verður hann einnig með 7 Vi vinn-
ing ásamt þeim Karli og Stohl.
Líkur eru á að Karl tefli við 011 í
12. umferð og gæti sú skák orðið
jöfn og spennandi þar sem Sovét-
maðurinn hefur stöðugt sótt í sig
veðrið á mótinu.
Mikil verðlækkun á
útiræktuðu grænmeti
MIKIÐ framboð er nú i útiræktuðu
grænmeti og hefur verðið verið lækk-
að eftir því sem grænmetið berst i
markaðinn. Fyrr í vikunni varð til
dæmis mikil verðlækkun i blómkili
og spergilkili. Heildsöluverðið i
blómkili lækkaði úr 70 krónum kíló-
ið í 45 krónur en fyrr í sutnar var
heildsöluverðið i kflói af blómkáli
110 krónur. Spergilkilið lækkaði úr
110 krónum kflóið í 70 krónur.
Guðmundur Bjarnason, starfs-
maður hjá Sölufélagi garðyrkju-
manna, sagði í samtali við blm.
Morgunblaðsins að framboðið af
útiræktuðu grænmeti væri nú mik-
ið því garðyrkjubændur væru þessa
dagana „að rífa upp úr görðunum".
Hann sagði að heildsöluverðið á
gulrófum væri nú 30 krónur kilóið,
þær hefðu lækkað úr 47 krónum í
síðustu viku. Hvítkálið kostaði
einnig 30 krónur hvert kíló og hefði
það lækkað úr 47 krónum um síð-
ustu mánaðamót. Sagði hann að
gulræturnar kostuðu 95 krónur
kílóið í pakkningum en 80 krónur í
lausu. Þær hefðu enn ekkert lækk-
að i verði enda svo til eingöngu
inniræktaðar gulrætur sem komið
hefðu á markaðinn. Guðmundur
sagðist ekki vita hvort verðið ætti
eftir að breytast, það færi eingöngu
eftir framboði og eftirspurn.
Guðmundur sagði að kílóið af
tómötum og gúrkum kostaði nú 60
krónur í heildsölu og 145 krónur
kílóið af papriku. Sagði hann að
lítið bærist af þessum vörum vegna
sólarleysis og bjóst ekki við að
verðið á þessum tegundum muni
lækka frekar en orðið er i sumar.
F0SSAR
þeir finna ávallt hagkvæmustu leiðina
Reynsla Eimskips og stöðug endurnýjun í
flutningstækni tryggir viðskiptavinum okkar
fullkomið öryggi í hvers kyns flutningum.
Sérhæfður skipakostur Eimskips annast
einingaflutning, gámaflutning, frystiflutning,
kæliflutning og stórflutning á skjótan og
hagkvæman hátt. Traustir starfsmenn
móttökuhafnanna ásamt vönduðum
flutningstækjum í landi sjá til þess að varan
kemur heil heim í hlað - á réttum tíma.
Fossarnir-farsæll flutningur um allan heim.
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
Sími 27100