Morgunblaðið - 16.08.1984, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 16.08.1984, Blaðsíða 7
(@i KARNABÆR W Sími frá skiptiboröi 45800. Sovésku duflin rann- sökuð í Bandaríkjunum TVÖ sovésk „magnesíumdufr Vesturlöndum og hafa nú verið fundust fyrir skömmu á tveimur send til Bandaríkjanna til nán- stöðum fyrir norðan, á Barðsvík ari rannsóknar. Meðfylgjandi á Ströndum og Mánárbakka á myndir tók Bergvin Gíslason af Tjörnesi, eins og greint var frá í duflunum um borð í varðskipinu frétt Morgunblaðsins sl. þriðju- Óðni. dag. Dufl þessi eru lftt þekkt á MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984 Þú svalar lestrarþötf dagsins y ájsjöum Moggans! °r Þátttakendur í heimsþingi Lútherska heimssambandsins talið frá vinstri: séra Kristján Valur Ingólfsson, annar fulltrúi tslensku kirkjunnar, séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir, fyrrverandi stjórnarmaður á Lútherska heimsþinginu, Biskup íslands, hr. Pétur Sigurgeirsson, Frú Sólveig Ásgeirsdóttir og Guðrún Kristjánsdóttir, hjúkrunarfrteðingur, starfsmaður á heimsþinginu. Lútherska heimssambandið: Heimsþing haldið í fyrsta skipti í Austur-Evrópu HEIMSÞING Lútherska heims- sambandsins var fyrst haldið í Lundi árið 1947 og hefur verið haldið á sjö ára fresti síðan. í ár var þingið hald- ið í Búdapest í Ungverjalandi dag- ana 22. júlí til 5. ágúst. Fimm íslend- ingar sóttu heimsþingið, biskup ís- lands, herra Pétur Sjgurgeirsson, kona hans Sólveig Ásgeirsdóttir, séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir, sem hefur verið stjórnarmeðlimur heims- sambandsins undanfarin 7 ár, séra Kristján Valur Ingólfsson, fulltrúi íslensku kirkjunnar á þinginu, og Guðrún Kristjánsdóttir, hjúkrunar- fræðingur, en hún var starfsmaður á þinginu. Guðrún sótti einnig æsku- lýðsmót, sem haldið var dagana 11.— 22. júlí. Þegar blaðamaður hitti þátttak- endur á heimsþinginu nýlega sögðu þau að einkenni þessa þings hefði verið fyrst og fremst að það hefði verið haldið í fyrsta sinn í sögu þingsins í A-Evrópu. Mikil eftirvænting ríkti, en sem kunn- ugt er, eru stjórnvöld þar f landi ekki vinveitt kirkjunni. Þó mun ungverska kirkjan einna frjálsust kirkna A-Evrópu, en sem dæmi má nefna fengu engir söfnuðir lúthersku kirkjunnar í Rússlandi að senda fulltrúa sína á þingið. Biskup lúthersku kirkjunnar i Ungverjalandi, Kaldy, var kosinn forseti næsta heimsþings, en hefð- in hefur verið sú að forseti er kos- inn biskup þess lands sem heldur heimsþingið. Forseti heimsþings- ins hefur því ekki áður verið Ung- verji. Daginn áður en þingið hófst var haldin minningarathöfn um fyrrverandi biskup Ungverja- lands, Lajos Ordass, en hann lenti í útistöðum við stjórnvöld og var vísað úr embætti 1956. „Það má segja að yfir minningu Ordass hafi hvílt andstaða gegn ríkjandi skipulagi,“ sagði herra Pétur Sig- urgeirsson, „Með þessari minning- arathöfn sem Kaldy hélt fyrir þingið má segja að Ördass hafi i fyrsta skipti fengið uppreisn æru opinberlega í Ungverjalandi. Ordass var mjög merkilegur mað- ur, og sterkur persónuleiki, segja allir sem honum kynntust. Hann var varaforseti heimssambandsins tvisvar sinnum. Hann var mikill málamaður og komst í kynni við íslendinga f gegnum séra Sigur- björn Ástvald Gíslason, og síðar varð hann góður vinur Sigur- bjarnar Einarssonar, biskups. Ordass lærði fslensku það vel að hann þýddi Passíusálma, Hall- gríms Péturssonar, á ungversku, og hefur sú þýðing verið gefin þar út,“ sagði Pétur jafnframt. Á heimsþinginu í ár voru 13 málaflokkar ræddir um yfirskrift- ina „í kristi — von veraldar“ — og má þar m.a. nefna friðarmál, kynþáttamisrétti, mannréttindi, trúbboð og samskipti kynjanna. Markverðast við þetta þing töldu þátttakendurnir hafa verið að þinginu hefði tekist að færa sam- an andstæð öfl í austri og vestri, og mikilvægt skref hafi verið stig- ið með því að halda þingið í Ung- verjalandi. í boðskap frá þessu þingi Lútherska heimsþingsins til lútherskra kirkna um vfða veröld segir m.a. „Þing okkar hér og gestrisnin, sem við höfum notið, sýna okkur að í kirkju Krists getum við treyst hvert öðru og brúað það bil milli þjóða, sem skapast af stjórnmál- um og hugmyndafræði." Skagstrendingur: 400 tonn eftir af þorskveiði- kvótanum MJÖG hefur gengið á kvóta togara Skagstrendings hf. á Skagaströnd og eiga þeir um 400 tonn eftir af þorskveiðikvótanum. Vegna þessa mun skipum fyrirtækisins verða lagt í einhvern tíma. Hvenær það verður gert hefur ekki verið tekin ákvörðun um, en að sögn Sveins Ingólfssonar framkvæmdastjóra Skagstrendings hefur veiði gengið vel að undanförnu og gengur því hratt á kvótann. Sömu sögu var að segja frá Siglufirði. Þar hefur veiði gengið vel og hefur vinnuaflsskortur gert vart við sig í landi vegna sumar- leyfa starfsfólks. Hjá Þormóði ramma fengust þær upplýsingar að mjög gengi á þorskveiðikvót- ann. Annar togari fyrirtækisins Sigluvík er bilaður og verður frá veiði í tvo mánuði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.