Morgunblaðið - 16.08.1984, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.08.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984 21 UNESCO endurgreiði um 80 milljónir dollara sem safnast hafa upp á gengisbreytingareikningi Pmris, 15. ágÓ8t AP. UPP er komin deila milli Bandaríkj- anna og UNESCO, Menningar, og vísindastofnunar Sameinuðu þjóð- anna, út af 80 millj. dollurum á gengisbreytingareikningi stofnunar- innar. Bandaríkjamenn, sem hyggjast hætta aðild sinni að stofnuninni, leggja fram fjórða hlutann af þeim 374,4 millj. dollara fjár- framlögum, sem eiga að ganga til UNESCO á fjárhagsárinu 1984—1985. Á síðasta ári sagðist Amadou Mahar M’Bow, aðalfram- kvæmdastjóri stofnunarinnar, hins vegar, að greiða ætti aöild- arríkjunum 70 millj. dollara, sem safnazt höfðu upp á árunum 1981—1983 á gengisbreytingar- eikningi stofnunarinnar vegna gengishækkana á dollarnum. Fyrr á þessu ári var fulltrúum Bretland: Verkfallsmenn á báðum áttum London, 15. ágúst AP. TIL átaka kom í dag með náma- mönnum og lögreglu fyrir utan kola- námur þar sem vinna hefir ekki ver- ið lögð niður og hefur þá verið sleg- ist við þær í þrjá daga samfellt. Verkfallið hefur nú staðið í 23 vikur rúmar en kolanámastjórnin segir, að þeim fari dagfjölgandi, sem snúi aft- ur til vinnu. Ekki kom til alvarlegra átaka með lögreglu og verkfallsmönnum en 31 var þó handtekinn eftir að verkfallsmenn reyndu að koma í veg fyrir, að þeir kæmust til vinnu sinnar, sem ekki eru í verkfalli. Víða eru verkfallsmenn á báðum áttum með hvort þeir eigi að snúa aftur til vinnu eða halda verkfalli áfram en að sögn kolanámastjórn- arinnar fjölgar þeim dag frá degi, sem taka aftur til starfa sinna. Tilkynnt hefur verið, að loka verði ýmsum námum i Skotlandi vegna þess, að ekki þykir lengur á það hættandi að senda menn inn í göngin. Leiðtogar námamanna hafa frá þvi verkfallið hófst komið í veg fyrir allt viðhald í mörgum námum og er það nú farið að segja til sin. í London vofir yfir nýtt verkfall hjá hafnarverkamönnum vegna þess, að fyrirhugað er að nota krana við uppskipun úr kolaskip- um en ekki mannshöndina i jafn ríkum mæli og hingað til. Sri Lankæ Stjórnarher legg- ur eld að 14 húsum Sri Lanka, 15. ágúst AP. AÐ SÖGN ótilgreindra embætt- ismanna kveiktu stjórnarhermenn í 14 húsum í Jaffna-héradi, sem er um 310 km frá höfuðborginni, Colombo. Einnig herma fréttir að herinn hafi gert árás á heimili tveggja manna, sem heyra til Tamil, minnihlutanum sem berst fyrir aðskilnaði. Sam- kvæmt frétt stjórnvalda voru tveir hryðjuverkamenn felldir, og um 80 grunaðir teknir höndum af öryggis- lögreglunni. Þá hótaði skæruliðahreyfing í dag að sprengja í loft upp aðal- járnbrautarstöðina í Colombo ef stjórnarherinn sendi liðsauka á vettvang í norðurhluta Sri Lanka, þar sem meirihlutinn er af Tam- il-trúflokknum, en um 17% lands- manna heyra honum til. Indira Gandhi forsætisráðherra Indlands lýsti í dag yfir áhyggjum yfir ástandinu á Sri Lanka, og Norskir sjómenn fá áhættuþóknun fyrir sigling- ar á Rauðahafi NORSKIR sjómenn á siglingu á Rauðahafi fá greidda stríðsáhættu- þóknun frá og með þriðjudeginum 7. ágúst. Upphæðin verður ákveðin í samningum á næstu dögum, segir David Vikören, framkvæmdastjóri Sambands skipaútgerða í Noregi, við norska blaðið Aftenposten. Umferð norskra skipa á þessum slóðum er með eðlilegum hætti. Hafa þau fengið fyrirskipun um að sigla vestur fyrir Stóru-Hanish- eyjar, en þar hafa norsk skip farið um án þess að rekast á tundurdufl. sagði að þar færu fram morð á saklausu fólki. vestrænna ríkja hjá stofnuninni skýrt frá því, að 80 millj. dollara til viðbótar yrðu greiddar til baka, eftir að brezkir endurskoðendur höfðu lokið endurskoðun sinni á reikningum stofnunarinnar, sem hefur stöðvar sínar í París. Af hálfu UNESCO er því hins vegar haldið fram nú, að þessi fjárhæð verði sennilega ekki greidd til baka fyrr en á árinu 1985. „Við álítum, að reikningunum hafi verið lokað 31. desember og að þau aðildarriki, sem innt höfðu að fullu framlög sín fyrir 1981-1983, eigi rétt á fullri endurgreiðslu," var í dag haft eftir frú Jean Gerard, fastafulltrúa Bandaríkjanna hjá UNESCO. „Þessi sjóður tilheyrir ekki framlagasjóði stofnunarinnar og skýringar hennar verða að teljast ófullnægjandi." Hefur frú Gerard mælt með því við stjórnvöld í Washington, að þær 20 millj. doll- ara, sem Bandaríkjamenn eiga inni af þessum sökum, verði dregnar frá því, sem ógreitt er af framlagi þeirra til stofnunarinnar á þessu ári. Fulltrúar ýmissa annarra vest- rænna ríkja hafa vefengt það, að stjórn stofnunarinnar sé heimilt að halda eftir vöxtunum á áður- nefndum reikningi. Fyrrum varnarmálaráðherra fsraels, Ariel Shamir, missti fótanna ( fyrra- kvöld þegar hann var á leið f göngu, sem farin var til stuðnings sovéskum gyðingum. AfganLstan: 80 hermenn hlup- ust undan merkjum 80 HERMENN í afganska hernum hlupust undan merkjum og héldu yfir landamærin til Pakistan í þvf skyni að ganga í liö með afgönsku andspyrnu- hreyfíngunni. Var iiðhlaup hermann- anna opinberlega staðfest á laugar- dag. Að sögn heimildarmanna innan andspyrnuhreyfingarinnar er hátt- settur herforingi frá setuliðsbæn- um Jalalabad meðal liðhlaupanna. Það er ekki með öllu óþekkt fyrir- bæri, að hermenn afganska stjórn- arhersins hlaupist undan merkjum, en þetta er í fyrsta skipti sem heill herflokkur flýr saman. Fjölmenni í útför IRA-manns Belfast, 15. ágúst AP. LÖGREGLUMENN og hermenn létu lítið fyrir sér fara f dag þegar 5000 manns fylgdu til grafar Sean l)owns, unga IRA-manninum, sem féll um helgina fyrir plastkúlum lögreglunnar. Um eitt þúsund manns voru í kirkjunni þegar Downs var jarð- sunginn en fimm þúsundir alls fylgdu honum til grafar. Sveimuðu tvær þyrlur yfir líkfylgdinni en lögreglumenn og hermenn var hins vegar hvergi að sjá. Downs beið bana þegar lögreglumenn réðust sl. sunnudag á 2000 manna göngu í Belfast til þess að hafa hendur í hári bandarísks stuðn- ingsmanns IRA, Martins Galvins, sem hafði verið bannað að koma til Norður-írlands. Til átaka kom milli lögreglu og fólksins og særð- ust þá 20 manns af plastkúlum lögreglunnar auk Downs, sem lét lífið. í gær sagði James Prior, ráð- herra bresku stjórnarinnar i mál- efnum Norður-írlands, að það hefðu verið mistök að banna Galv- in að koma til landsins og kvaðst hann bera ábyrgð á því. Galvin, sem fer huldu höfði, lét þau boð út ganga i gærkvöldi, að hann hygð- ist mæta í aðra mótmælagöngu í Belfast. TILBOÐ A HREINLÆTISVÖRUM SPAR þvottaefni 3 kg. 119,95 SPAR mýkingarefni 4,0 I 84,20 SPAR mýkingarefni 2,0 I 45,50 SPAR hreingerningalögur 0,75 I 32,40 SPAR uppþvottalögur/toft 1,0 I 21,25 SPAR þvottaklór 1,0 I 28,70 SPAR ræstiklór 1,0 I 19,30 SPAR ræstikrem 0,5 I 25,65 SPAR uppþvottal. sítrón 0,5 I 24,40 SPAR uppþvottal. sterkur 0,5 I 23,95 HA6KAUP Reykjavík Akureyri Njarðvik

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.